Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 7
SGS MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 7 BÆKUR SEMHITTA ÍMARK Asgeir Sigurvinsson Knattspyrnuævintýri Eyjapeyjans eftir Sigmund Ó. Steinarsson og Guðjón Róbert Ágústsson. Þetta er sérstæðasta íþróttabók sem gefin hefur verið út á íslandi, þar sem Ijósmyndir og texti, vinna sameiginlega að kynningu á hinum þekkta knattspyrnu- kappa Ásgeiri Sigurvinssyni, allt frá því aö hann var lítill peyi í Vestmannaeyjum og hafði með sér bolta til þess að geta æft sig í kaffitímunum.til þess aö hann veröur einn þekktasti og besti knattspyrnumaöur Evrópu. Þetta er sannarlega óskabók allra íþróttaunnenda, ungra jafnt sem aldinna. Komin er út ný bók í bókaflokknum Frömuðir landafunda, bókin um hinn mikla sæfaranda og landkönnuö KÓLUMBUS. Bókin er prýdd af Kristínu R. Thorlacius, en umsjón meö útgáfunni hafði Örnólfur Thorlacius. Þetta er bók um eitt mesta landkönnunarafrek mannkynssögunnar, um mikilmenni sem lét ekki skilningsleysi og þekkingarleysi samtíma síns setja sér skorður, heldur lagði út á hin óþekktu miö, og markaöi þar meö óútmáanleg spor í sögu mannkynsins. Fjallakúnstner segir frá Stefán frá Möörudal rekur sögu sína eftir Pjetur Hafstein Lárusson. Sérstæð bók um sérstæðan listamann, sem ekki bindur bagga sína sömu hnútum og samferöamennirnir. Stefán hefur lifaö margbreytilegu lífi og ber svip uppruna síns, hinna hrikalegu Möörudalsöræfa, þar sem bjarndýr hafa sótt bæjarfólkiö heim meö óskemmtilegum afleiöingum, og Mööru- dals-Manga gerir sig heimakomna, löngu eftir aö jarövlstardögun- um er lokiö. Stefán Jónsson, fjallakúnstner, segir frá á sinn skemmtilega og sérstæöa máta, og kemur í bókinni, eins og í myndum sínum, til dyranna eins og hann er klæddur. SNORRI JÓNSSON OG ÁSMUNDUR STEFÁNSSON Miöað viö þaö, hve lengi Snorri Jónsson hefur veriö í forystusveit Alþýöubandalagsins í verkalýðsmálum, má búast viö forystu Ásmundar Stefánssonar til 2018. — Hvernig væri að „sérfræðingar" Alþýöubandalagsins í „þjóöfrelsismálum" kynntu sór endurnýjun flugvóla varnarliösins síðan flokkur þeirra komst í ríkisstjórn? Ihaldssemi VIA kjör nýs og unga manns i forsetaembætti Alþýðusambands ís- lands úr röðum þeirra Alþýðubandalatrs- manna er ekki úr vegi að leiða hugann að þvi, hvernig háttað er endurnýjun i þessari fylkingarsveit Alþýðu- bandalagsins. Hverfa verður allt aftur til árs- ins 1942, ef rekja á feril Snorra Jónssonar, sem nú lætur af forystust- örfum fyrir Alþýðu- bandalagið innan ASI. Þann 15. febrúar það ár var hann kjörinn form- aður Félags járniðnað- armanna i Reykjavik og um þær sömu mundir komst Eðvarð Sigurðs- son i forystu Dagsbrún- ar. Þetta var á striðsár- unum, þegar kommún- istar stóðu fyrir þvi, sem þeir köliuðu „skæruhernaðinn“ fyrir réttindum verkafólks og minnast nú sem sið- ustu stórátaka sinna. Um þá Snorra og Eð- varð hefur jafnan verið sagt af samherjum þeirra, að þeir hafi ver- ið „hertir“ i átökum við auðvaldið og þvi haft dýpri skilning en flestir aðrir á hag verkalýð- sins. Þessir menn hafa nú i 38 ár verið 1 framvarð arsveit Alþýðubandal- agsins í verkalýðsmál- um ásamt þeim Birni Bjarnasyni i Iðju, sem á jafnvel enn fleiri ár að baki, Benedikt Daviðss- yni og Guðmundi J. Guðmundssyni. sem ekki hafa starfað að verkalýðsmálum eins lengi og þessir aldurs- forsetar, þótt feril þeirra megi rekja marga áratugi aftur i timann. Eina nýja nafn- ið, sem hefur verið kynnt til forystustarfa af hálfu Alþýðubandal- agsins siðustu ár er Guðmundur Þ. Jónsson formaður Landssamb- ands iðnverkafólks og borgarfulltrúi i Reykja- vik. Var Guðmundi treyst til forystu af flokknum, eftir að hann hafði dvalist i Sovétrikj- unum til að kynnast „verkalýðsmálum“. Um alla þessa menn má segja, að þeir hafi verið i tengslum við „grasrótina“ i verka- lýðshreyfingunni. Það verður hins vegar ekki sagt um Ásmund Stef- ánsson nýkjörinn for- seta Alþýðusambands lslands. Hann kemur inn í verkalýðshreyfing- una „ofan frá“, ef þann- ig má að orði komast. Eftir að hafa starfað sem hagfræðingur Alþýðusambandsins og lektor við viðskipt- afræðideild Háskóla Is- lands var hann ráðinn framkvæmdastjóri ASI, þegar Snorri Jónsson lét af þvi starfi og tók við forsetaembættinu við veikindi Björns Jónssonar. sem kosinn var forseti ASÍ á þing- inu 1976. Miðað við þá ihaldssemi. sem rikir i Alþýðubandalaginu og vali þess á mönnum til forystu í verkalýðs- hreyfingunni, geta menn þvi reiknað með þvi að Ásmundur Stefánsson verði full- trúi flokks sins i foryst- usveit ASt að minnsta kosti til ársins 2018. Flugvélamar og Alþýðu- bandalagið Athyglisvert er, hve mikla áherslu talsmenn Alþýðubandalagsins i utanrikismálum leggja nú á það. að tæknibú- naður varnarliðsins á Keflavikurflugvelli skapi ógnvekjandi hættu fyrir land og þjóð. Virðast óljós um- mæli um þetta atriði eiga að vera kjarni þeirrar „samfelldu um- ræðu“ og „hræðslu- áróðurs“, sem boðað er að skuli hefjast i kjölfar landsfundar flokksins. Greinilega hafa komm- únistar sannfærst um það i umræðunum um kjarnorkuvopn i sumar. að slik vopn sé ekki að finna hér á landi, þvi að ekki er þvi lengur ha- ldið á loft af þeim. Nú beinist athyglin hjá „sérfræðingum“ flokk- sins i þessum efnum einkum að flugvélakosti varnarliðsins. Með hliðsjón af því, sem gerst hefur á því sviði siðan Alþýðuband- alagið komst i rikis- stjórn 1. september 1978, hljóta menn að draga þá ályktun, að „sérfræðingar“ komm- únista á þessu sviði hafi tekið alltof seint við sér. 21. mars 1978 hófst endurnýjun á orrustu- þotum varnarliðsins á Keflavikurflugvelli. Þann dag lentu tvær fyrstu McDonnell Douglas F 4E Phant- om-þoturnar á Keflavikurflugvelli. Á næstu þremur mánuð- um bættust tiu vélar af sömu gerð i hópinn og endurnýjuninni lauk með komu 13. vélarinn- ar 14. desember 1978, sem sé þremur og hálf- um mánuði, eftir að ráðherrar Alþýðubandalagsins settust i rikisstjórn. 23 dögum eftir að Alþýðu- bandalagsráðherrarnir tóku til starfa, þ.e. 23. september 1978, lenti fyrsta Boeing E 3A Sentry (AWACS) óvopnaða ratsjárþotan á Keflavikurflugvelli og sú siðari kom fjórum dögum siðar. Dagana 23. til 28. febrúar 1979 komu siðan á Keflavik- urflugvöll niu Lockheed P-3C Orion kafbátaleit- arvélar af nýjustu og fullkomnustu gerð, sem nefnd hefur verið „Up- date II“. Hvernig væri, að „sérfræðingarnir“ vektu athygli á þessum staðreyndum á sam- felldum umræðufund- um sinum og minntust um leið þessarar setn- ingar úr áliti starfs- hóps Alþýðubanda- lagsins um þjóðaratkvæðagreiðslu, sem dreift var á lands- fundi flokksins: „Flokk- urinn ber ábyrgð á stefnu ríkisstjórnarinn- ar i utanrikismálum eins og öðrum málum.“ Furumarkaður í Nýborg Viöarþiljur: Panel 19x100 mm. Verö 6700 pr. ferm. Límtré: 3—4 cm. þykkt. Vara fyrir þá er vilja smíöa og hanna eigin húsgögn. Furuparkett: 18x38x2400 mm. Kr. 19.980 pr. ferm. Baðhúsgögn frá Svedberg í Svíþjóö. Boröstofuhúsgögn, rúm og hlaörúm: Verölaunuö húsgögn á alþjóölegum sýningum. — Gott úrval Nýborgp Armúla 23 — Sími 86755 Hagstætt verð Opið til kl. 4 laugardag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.