Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 • Hinn leikreyndi fyrirliði Vikings á tvíi erfið verkefni framundan. Á sunnudagskvðldið ieiðir hann lið sitt á móti Val i íslandsmótinu i handknattieik og næstkomandi miðvikudag mætir Páli ásamt félögum sinum unKversku meisturunum i Evrópukeppninni i handknattleik. „Getum vel unnið ungverska liðið" - segir Páll Björgvinsson „Í»AÐ ER Vals að brjóta okkur niður. En okkar að standa undir nafni og haida si>fur>fönKu okkar áfram. Við höfum nú leikið 22 ieiki í íslandsmótinu i hand- knattleik án þess að tapa leik og ætlum okkur að sjálfsögðu að hækka þá tölu“ sagði fyririiði Víkings er Mbl. ræddi við hann i gærdag. Víkingar eiga nú tvo erfiða leiki framundan. Á sunnudagskvöld leika þeir gegn Val í íslandsmót- inu í handknattleik og næstkom- andi miðvikudag mæta þeir ung- versku meisturunum Tatabanya í Laugardalshöll og hefjast báðir þessir leikir kl. 20.00. Er Mbl. spurði Pál út í möguleikana gegn Ungverjunum sagði hann: „Þetta ungverska lið er senni- lega eitt sterkasta félagslið í heiminum í dag. Leikmenn Ung- verja búa yfir mikilli leiktækni eru fljótir og góðir skot- og gegnumbrotsmenn. Engu að síður tel ég að okkar sterka lið geti unnið hér á heimavelli með einu til tveimur mörkum takist okkur vel upp. Við erum í góðri æfingu um þessar mundir og búum yfir mikilli leikreynslu og með góðri hjálp áhorfenda ætti okkur því að takast vel upp.“ — þr. Handknattleikur um helgina: Valur - Víkingur mætast á morgun TVEIR leikir eru á dagskrá i 1. deild karla i handknattieik um helgina og fara þeir báðir fram i Laugardalshollinni á morgun. En þá eru fimm leikir í röð á dagskrá i 1. deild karia og kvenna. auk 2. deildar karla. Fyrsti leikurinn hefst klukkan 14.00, en þá mætast Fylkir og Haukar í 1. deild karla. Strax að leik loknum mætast ÍR og HK í 2. deild karla. Að þeim leik loknum, eða um klukkan 17.15, leika Ár- mann og Afturelding í 2. deild karla. Þá verður dálítið hlé, en síðan hefst gamanið að nýju og klukkan 20.00 mætast Víkingur og Valur í 1. deild karla. Að þeim leik loknum, fer loks fram síðasti leikurinn, Víkingur — FH í 1. deild kvenna. Sem sagt nóg að gera á sunnudag. En í dag er aðeins einn ieikur á döfinni. Sá leikur fer fram í Hafnarfirði og er það viðureign Hauka og Fram í 1. deild kvenna. Norskt liö hefur augastað á Guðmundi og Sigurkarli NORSKT lið. VEB, er nú á höttunum eftir isienskum knatt- spyrnumönnum. Lið þetta er i 2. deild þar í landi og hefur ekki farið með veggjum i ieit sinni að islenskum ieikmönnum. Má þar nefna, að liðið setti sig i samband við iþróttasiðu Mbl. og spurði um frammistöðu hinna og þessara leikmanna á siðasta keppnistima- bili. Þeir sem að félagið hafði greinilega mestan áhuga á voru þeir Guðmundur Þorbjörnsson hjá Val og Sigurkarl Aðalsteins- son, sem lék með Þrótti. Að sögn talsmanna VEB, stóð til að ræða við þessa pilta á næstunni með næsta keppnistimabil fyrir aug- um.... „Víkingar eicja góða möguleika her heima“ - segir Jóhann Ingi „VÍKINGAR eiga án nokkurs vafa að skipa sterkasta félagsliði á íslandi i dag. Bogdan Kowai- czyk er ákaflega fær þjálfari og hann hefur mótað mjög sterka heiid. Ef Vikingar spila eðlilega að getu og verði óhræddir — fara með því hugarfari að allt sé að vinna og engu að tapa þá eiga þeir góða möguleika gegn Ung- verjum,“ sagði Jóhann Ingi Gunnarsson, fyrrum landsliðs- þjálfari. „Ungverjar hrepptu bronzið á OL í Moskvu í sumar. Þeir eiga í dag á að skipa einu af 4 sterkustu félagsliðum heims og einnig landsliöi. FH lék hér um árið eftirminnilega leiki gegn ung- verska liðinu Honved og ég er sannfærður um, að viðureign Vík- ings og Tatabanya verður hörku- viðureign tveggja sterkra liða,“ sagði Jóhann Ingi ennfremur. Valsmenn mæta UMFN á mánudagskvöldið EKKERT verður keppt í úrvals- eildinni i körfuknattleik um helg- ina, en á mánudagskvöldið dreg- ur hins vegar til tiðinda. Þá fer fram stórleikur i Laugardalshöll- inni, er Valur og Njarðvik eigast við. Lið UMFN er sem kunnugt er enn án taps, en Valsmenn hafa dregist nokkuð aftur úr. Víst er, að tapi Valsmenn, eru möguleik- ar þeirra á þvi að verja titil sinn litlir og má þvi fastlega reikna með hörkuleik þar sem ekkert verður gefið eftir. Leikurinn hefst klukkan 20.00. Tveir leikir fara fram í 1. deildinni. í Borgarnesi leika Skallagrimur og ÍBK i dag klukkan 14.00 og á morgun leika i Hagaskólanum Fram og Þór. Hefst leikur þeirra klukkan 14.00. • Guðmundur Þorbjörnsson, Val. Einkunnagjöfin Lið Þróttar: Kristinn Atlason 7 Sigurður Ragnarsson 6 Páll Ólafsson 6 Sigurður Sveinsson 9 ólafur H. Jónsson 6 Jón Viðar Jónsson 6 Magnús Margeirsson 7 Lárus Lárusson 6 Einar Sveinsson 6 Gísli Ásgeirsson 6 Lið KR: Pétur Hjálmarsson 6 Konráð Jónsson 8 Haukur Geirmundsson 6 Haukur Ottesen 6 Björn Pétursson 6 Friðrik Þorbjörnsson 6 Jóhannes Stefánsson 6 Brynjar Kvaran 6 Þorvarður Guðmundsson 5 Körfuboltalið ÍBK enn án taps í 1. deild ÍBK sigraði Grindavik i 1. deild íslandsmótsins i körfuknattleik i fyrrakvöld, en leikurinn fór fram i Keflavik. Lokatölur leiksins urðu 95—73, eftir að staðan í háifleik hafði verið 47—36. Þetta var ágætur leikur hjá ÍBK, sem hefur ekki tapað leik enn sem komið er. Stigahæstir hjá ÍBK voru Axel með 22 stig, Read með 21 stig og þeir Viðar og Einar með 14 stig hvor. Stigahæstir hjá Grindavík voru Hreinn með 19 stig, Ólafur og Bandaríkjamaðurinn Fraswella ( HandKnalllelKur STAÐAN Staðan í 1. deildar- keppninni í körfuknatt- leik er nú þessi: Fram 5 4 1 425-408 8 ÍBK 3 3 0 267-228 6 Þór 4 2 2 326-334 4 Borgarnes 5 1 4 401—422 2 UMFG 5 1 4 401-432 2 með 18 stig hvor. S/þr. Ef eitthvert íslenskt lið á möguleika þá er það Víkingur - segir Axel Axelsson „VÍKINGAR eiga á að skipa sterkasta liðinu á íslandi i dag og Ungverjar eru geysiskemmti- legir. Ég er sannfærður um, að það verður enginn svikinn sem fer i Höllina á miðvikudag — ef eitthvert isienzkt lið á möguleika gegn Tatabanya þá er það Vík- ingur,“ sagði Axel Axelsson en hann spiiaði nokkuð oft gegn Tatabanya þegar hann iék með liði sínu, Dankersen i V-Þýzka- landi. „Tatabanya er geysisterkt lið og leikur mjög skemmtilegan hand- knattleik. Hins vegar veit ég ekki nákvæmlega hvernig liðið er nú. Síðast þegar ég þekkti til, þá voru 3—4 leikmanna liðsins komnir yfir þrítugt svo það kann að verða Víkingum til framdráttar ef eitt- hvað er,“ sagði Axel Axelsson ennfremur. 'J I J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.