Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 5 Ný ljóðabók eftir Vilmund Gylfason ÚT ER komin ljóðabók eftir Vilmund Gylfason alþingismann og nefnist hún „Ljóð“. Útgefandi kunnarorð og Aðfararorð, þar sem höfundur ræðir um ljóð og stíl. Þar segir hann að ljóð sé ekki raunverulegt, heldur „endurskin tilfinninga kannske ástríðna". Bókinni er skipt í fjóra kafla, sem heita: Myndir I, II og III og Ljóðabrot I. I fremsta kafla bók- arinnar er ljóðaflokkur um ástina og hefur höfundur þar ort ný kvæði inní eldri ljóð úr fyrri bók sinni. í síðasta kaflanum eru meðal annars prósaljóð. Þessi nýja ljóðabók Vilmundar Gylfasonar er 64 blaðsíður að stærð og í lok bókarinnar er sagt, að hún sé ort í Reykjavík og víðar á árunum 1966 og 1980. Vilmundur Gylfason er Iðunn. „Þessi ljóðabók min skýrir sig sjálf.“ sagði höfundur í stuttu spjalli við Mhl. „Fyrir 10 árum gaf ég út ljóðabók — var þá að dunda við að yrkja í menntaskóla en var í hópi lakari skólaskálda. Á andvöku- nóttum hef ég dundað við að semja ljóð. Ég skil nú vel heiti á heildarsafni Stephans G.,“ sagði Vilmundur ennfremur. Framan við þessa nýju ljóðabók Vilmumjar Gylfasonar eru ein- NORRÆNA HÚSIfX Sýning á dönskum skartgripum í DAG verður opnuð í bókasafni Norræna hússins sýning á skartgripum eftir dönsku gull- smiðina Thor Selzer (f. 1925) og Ole Bent Petersen (f. 1938). Báðir hafa þeir getið sér góðan orðstír á alþjóðlegum vettvangi bæði hvað snertir frábæra tækni og óvenjumikla hugmyndaauðgi við mótun og gerð skartgripa. Þeir hafa báðir haldið sýningar á fjöl- mörgum stöðum víðsvegar um heiminn. Á sýningunni í Norræna húsinu, sem Thor Selzer hefur sett upp, koma sérkenni listamannanna tveggja vel í ljós. Thor Selzer vinnur mikið með steina, einkum opala, en Ole Bent Petersen hefur sérhæft sig í gerð eins konar skúlptúra úr gulli og silfri. Sýningin er opin á venjulegum opnunartíma bókasafnsins, mánu- daga—laugardaga kl. 13—19, sunnudaga kl. 14—17 og stendur til 5. janúar. Stjórn Heimdallar: Stalínistar allsráðandi i Alþýðubandalagi MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi ályktun. sem sam- þykkt var á stjórnarfundi i Ileim- dalli í fyrradag: Engum dylst lengur, að ríkis- stjórn Gunnars Thoroddsens hefur mistekist í glímunni við verðbólg- una. Hin svonefnda „niðurtalning" framsóknarflokksins hefur reynst óskhyggja og blekking, enda eru Framsóknarmenn að ókyrrast í valdastólunum og tala um 20% gengisfellingu um áramót og 70% verðbólgu á næsta ári. En sýnu alvarlegra er það, að stalínistar sitja nú í ríkisstjórn á íslandi. Þeir eru allsráðandi í Alþýðubandalag- inu, og þeir eru valdamestir ' í ríkisstjórninni. Þeim er ekki að- eins að takast að koma í veg fyrir allar raunhæfar aðgerðir gegn verðbólgunni. Þeir tefja einnig framfarasókn þjóðarinnar með íhaldssemi sinni og andstöðu við stóriðju og stórvirkjanir og nauð- synlegar framkvæmdir á Svlandi. Ungt fólk hlýtur að snúast gegn þessari ríkisstjórn af alefli. Unga fólkið sem stendur í húsbygging- um, stynur undan vaxtabyrðinni, sem afleiðing verðbólgunnar. Það horfir á verðbólguna éta upp ávöxt ráðdeildarsemi sinnar og dugnað- ar. Og nú síðast er því gert erfiðara fyrir en áður að eignast þak yfir höfuðið, því að stjórnvöld hafa markað þá stefnu að reisa einkum „félagslegt" húsnæði. Þessi stefna er þvert á stefnu Sjálfstæð- isflokksins undir kjörorðunum: „Eign handa öllum" og „Hjálp til sjálfshjálpar". Ríkisstjórnin neitar ekki aðeins að virkja fallvötnin, heldur líka það, sem mestu máli skiptir — hugvit og framtakssemi einstaklinganna. Það er krafa Heimdallar, að þessi ríkisstjórn fari frá. Aðventuknmsar aðventu- og # jólashvytingar Nú er aðventan að hefjast. Margir halda þeim gamla, góða sið að skreyta hjá sér af því tilefni. Komið við í Blómavali við Sigtún. Skoðið hið stórkostlega úrval okkar af aðventukrönsum og skreytingum, smáum sem stórum. Eigum jafnframt fyrirliggjandi allt efni til aðventu- og jólaskreytinga. Allskonar jólaskraut, jólaskreytingar og efni til slíks. Fallegt úrval af blómstrandi jólastjörnum rauðum og hvítum. btómouQf^á Gróðurhúsinu við Sigtún:Simar36770-86340

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.