Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 48
^Síminn á afgreiöslunni er 83033 JHtrgunblnbib Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 JRflreunblfltlib LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 Flugmenn ósammála um sáttatillöguna ATKVÆÐAGREIÐSLU fluKmanna- félaeanna og FluKleiða um miðlun- artillöKU i málefnum fluKmanna lauk I K<»'r t>K Iúku niðurstöður fyrir í KBerkvöld. Fór atkvæða- Krciðslan á þann veK, að Félag LoftleiðafluKmanna samþykkti til- löKuna með yfirgna'fandi meiri- hluta atkvæða, Flugleiðir sam- þykktu tillöKuna. en Félag ísl. atvinnufluKmanna hafnaði tillöK- unni með miklum meirihluta at- kvæða. — Ég tel, að þessi niðurstaða sýni vel, að hér hefur ekki verið farið bil beggja, Loftleiðaflugmenn sam- þykkja en ekki við og sýnir það að hér hefur ekki tekizt að miðla málum, sagði Kristján Egilsson formaður Félags ísl. atvinnuflug- manna í samtali við Mbl. í gær- kvöldi. Kvaðst hann að öðru leyti ekki vilja ræða niðurstöðurnar eða tillöguna. Öllum flugmönnum Flugleiða hef- ur verið sagt upp störfum frá næstu mánaðamótum og þarf því fyrirtæk- ið að ákveða hvernig endurráðning- um verður hagað um helgina. For- ráðamenn Flugleiða hafa boðað full- trúa flugmannafélaganna á sinn fund fyrir hádegi í dag, en í gærkvöldi ræddu félagsmenn FÍA stöðu mála. Samið um sölu á reyktri síld fyr- ir rúman milljarð SÖLUSTOFNUN lagmetis og Norð- urstjarnan i Hafnarfirði gerðu fyrir nokkru samning um sölu á verulegu magni af reyktum síldar- flökum til Bandaríkjanna á næsta ári. Væntanlega verður um 3—4 milljónir dósa að ræða og áætlað útflutninsgverðmæti er rúmlega elnn milljarður króna, en í samn- ingnum náðist um 10% meðaltals- hækkun. Óvenjulegt er, að slíkir samningar séu gerðir svo snemma, en það auðveldar hráefnisöflun og eykur hagkvæmni í rekstri. Stærsti kaup- andinn er fyrirtækið Chr. Bjelland, sem selur undir vörumerkinu King Oscar, en talsverður hluti þessa samnings verður seldur undir vöru- merki SL, þ.e. Iceland Water. Þá eru verulegar líkur taldar á því að fyrirtækið muni setja á Bandaríkja- markað á næsta ári fleiri vöruteg- undir frá Islandi en það áður hefur gert. Um helmingur þess, sem Banda- ríkjamenn neyta árlega af „kippers" eða reyktum sílJarflökum, er fram- leitt hér á landi og ráða íslendingar dýrasta hluta þessa markaðar. Sam- keppnin við Kanadamenn er þó mjög hörð á þessu sviði eins og svo víða annars staðar. Sá samningur, sem nú hefur verið gerður er um svipað magn og Norðurstjarnan framleiddi í ár fyrir Bandaríkja- markað. FYRSTA skóflustunga að nýjum grunnskóla i Vestmannaeyjum var tekin sl. laugardag, en skólinn á að rúma um 750 börn fullbúinn. Skólinn er staðsettur í nýju byggðinni vestur í Hrauni. Áætlað er að skólinn verði byggður i fjórum áföngum og þarna var tekin skóflustunga að þeim fyrsta sem er um 1200 fermetrar og á að vera tilhúinn í byrjun skólaárs 1981. Væntanlegir nemendur i skólanum tóku fyrstu skóflustunguna. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir Skipstjórarn- ir vopnaðir í siglingum til Nígeríu SKIPSTJÓRARNIR á Háafossi og Laxfossi, sem þessa dagana eru í Nígeríu, fóru á fund Bjarka Eliassonar, yfirlög- regluþjóns, áður en þeir létu úr höfn og fengu í hendur skammbyssur að láni. Ástæða þess, að skipstjórarnir voru vopnaðir er ótti við bófaflokka i Nígeríu, sem hafa ráðist um borð í skip og m.a. létu tveir skipverjar á dönsku skipi lífið i átökum við slíkan flokk fyrir tveimur árum. Nú nýlega hefur ekki verið tilkynnt um slíkar árásir, en í öryggisskyni þótti rétt að vopna skipstjórana. Auk þess að hafa eina skammbyssu hvor, er haglabyssa um borð í öðru skipinu en lítill rifill í hinu. Yfirmenn á öðrum skipum Eim- skipafélagsins eru ekki vopnaðir og íslenzk farskip eru það yfir- leitt ekki. Þess má geta að Laxfoss kom til Nígeríu um síðustu helgi, en Háifoss hefur verið þar í um mánuð og lauk losun á skreið í Lagos í fyrra- dag. Verðlagsgrundvöllur sexmannanefndarinnar tilbúinn: 20% hækkun búvöruverðs - æskilegt aö mæta hækkunum á búvörum með auknum niöurgreiðslum, segir Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra ÁSKRIFTAR-, lausasolu- og auglýsingaverð Morgunblaðs- ins hækkar frá og með 1. desember nk. Mánaðaráskrift verður þá kr. 7.000, lausasöluverð kr. 350 eintakið. Grunnverð aug- lýsinga kr. 4.200 pr. eindálka- sentimetra. SEX manna nefndin hefur sent ríkisstjórninni niðurstöður sínar um hækkun verðlagsgrundvallar landbúnaðarins. sem er um 14%, en það þýðir allt að 20% hækkun útsöluverðs búvara að óbreyttum niðurgreiðslum. Pálmi Jónsson, landbúnaðarráðherra. sagði i samtali við Mbl. i gærkvöldi, að hann teldi æskilegt að mæta hækkunum á búvöru með aukn- um niðurgreiðslum. en málið hefði aðeins verið kynnt í ríkis- stjórninni og yrði rætt frekar á ríkisstjórnarfundi síðdegis á mánudaginn. Pálmi sagði því Ijóst, að nýtt búvöruverð gæti ekki tekið gildi 1. desember, en vonandi liðu ekki allt of margir dagar af desembermánuði áður en nýja verðið kæmi. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Mbl. aflaði sér í gær hækkar launaliður búvörugrundvallarins um 21%; 10,6% vegna kjarasamn- inganna frá 27. október og ofan á það kemur 9,52% vísitöluhækkun 1. desember. Launaliðurinn mun vera um 47% í búvörugrundvellin- um, en meðaltalshækkun annarra liða er um 8%. Pálmi Jónsson sagði ríkisstjórn- ina stefna að því að niðurgreiðslur yrðu fast hlutfall af útsöiuverði búvara, en menn hefðu veigrað sér Flokksráðs- og formannaráðstefna Sjálfstæðisflokksins: Um 300 manns eiga rétt til fundarsetu FLOKKSRÁÐS- og formannaráðstefna Sjálfstæðisflokksins verður haldin nú um helgina, og hefst hún klukkan 10 árdegis i dag með ræðu formanns Sjálfstæðisflokksins, Geirs Hallgrímssonar. Að sögn Kjartans Gunnarssonar framkvæmdastjóra flokksins eiga um 300 manns rétt til setu á ráðstefnunni, hvaðanæva að af landinu. Helstu mál ráðstefnunnar, auk almennra umræðna um stjórnmálaviðhorfið, verða kjördæmamálið og kosningalöggjöfin, og rætt verður um efnið ísland til aldamóta. Að lokinni ræðu formanns í dag, verður kjörin stjórnmálanefnd. Eftir hádegi hefst ráðstefnan svo aftur með ræðum alþingismann- anna Matthíasar Bjarnasonar og Matthíasar Á. Mathiesens um kjördæmaskipan og kosninga- löggjöfina. Þá mun Kjartan Gunn- arsson framkvæmdastjóri flytja ræðu um val frambjóðenda og prófkjör. Að því loknu mun svo dr. Gunnar G. Schram mæla fyrir álitsgerð starfshóps um efnið „ís- land til aldamóta" og að því loknu verða almennar umræður. Á sunnudag hefst ráðstefnan með því að starfshópar vinna að stjórnmálaályktun um kosninga- löggjöf, kjördæmaskipan og val frambjóðenda, og ennfremur starfar starfshópur að efninu ís- land til aldamóta. Eftir hádegið verða síðan almennar umræður og afgreiðsla nefndaálita og stjórn- málayfirlýsingar. Ráðstefnan hefst sem fyrr segir í dag klukkan 10 og verður hún haldin að Hótel Esju. í gær var haldinn sérstakur fundur í Valhöll með formönnum hinna ýmsu sjálfstæðisfélaga á landinu, og sóttu þann fund um 50 formenn. Þar var einkum rætt um skipulag og innra starf Sjálfstæðisflokks- ins. Flokksráðs- og formannaráð- stefna Sjálfstæðisflokksins verður ekki opin fjölmiðlum, samkvæmt einróma samþykkt miðstjórnar síðdegis í gær, að því er Kjartan Gunnarsson framkvæmdastjóri tjáði Morgunblaðinu. Ætla að rækta rauðsprettu í Kelduhverfi FYRIRHUGAÐ er að byrja til- raunir með rauðspretturækt I Lóni i Kelduhverfi næsta sumar. Það eru Fiskifélag íslands og Hafrannsóknastofnun, sem ætla að gera þessar tilraunir. Ingimar Jóhannsson, fiski- fræðingur hjá Fiskifélaginu, sagði í gær, að fyrir allmörgum árum hefði verið talsvert um rauðsprettu í lóninu og bændur í nágrenninu hefðu veitt ágætlega. Brimið hefði kastað seiðum yfir sjávarkambinn inn í lónið og þar hefði rauðsprettan lifað góðu lífi. Með breyttum staðháttum hefði náttúran hætt þessum seiða- flutningum. Aðalsteinn Sigurðs- son fiskifræðingur kannaði rauð- sprettuna þarna á sínum tíma og komst þá m.a. að því, að vaxtar- hraði rauðsprettunnar þarna var um helmingi hraðari en t.d. í Faxaflóa. Sagði Ingimar að næsta sumar væri ætlunin að safna kolaseið- um fyrir utan Lón og koma þeim innfyrir, líkt og náttúruöflin gerðu í eina tíð. Hann sagði að menn væru spenntir að sjá hvernig til tækist. Ekki væri þó verið að hugsa um meiri háttar atvinnurekstur, heldur aðeins svolítið forvitnilega tilraun. við að stíga skrefið til fulls. Hann kvaðst þeirrar skoðunar, að aukn- ar niðurgreiðslur á vörum í upp- hafi verðlagstímabils ættu að koma jafnharðan inn í vísitöluút- reikninga og væri slíkt fyrirkomu- lag forsenda þess að framan- greindu stefnumiði ríkisstjórnar- innar yrði náð. Pálmi kvaðst þegar hafa gert ráðstafanir til að kannað yrði, hvernig niður- greiðsluliðurinn stæði og horfur á því, hvernig fjárlagaliðurinn ent- ist til áramóta. Sagðist hann vona, að niðurstöður lægju fyrir eftir helgina og ríkisstjórnin gæti í framhaldi af því tekið ákvörðun um tilhögun niðurgreiðslna í sam- bandi við nýtt búvöruverð. Mokveiði hjá loðnuskipunum EFTIR mikla tregðu í 10 daga kom góður kippur í loðnuveið- arnar i fyrrinótt og „kom þá mjög sterk veiðihrota“ eins og Andrés Finnbogason hjá Loðnu- nefnd orðaði það. Ellefu skip voru á miðunum og fylltu 10 þeirra sig yfir nóttina, en 11. skipið vantaði litilræði til að ná fullfermi. 10 skip tilkynntu Loðnunefnd þvi um afla. samtals 10.540 lestir. Aflinn fékkst á Kolbeinseyjar- svæðinu, 70-80 mílur norður af Siglufirði, en þar veiddist mikið af loðnu í fyrrahaust. Þarna virtist vera mikið af loðnu og var loðnan stærri heldur en sú sem fengizt hefur undanfarið. Flest skipanna fóru til Siglufjarðar og var áætlað að landa þar um 7 þúsund tonnum. Eftirtalin skip tilkynntu Loðnu- nefnd um afla: Júpiter 1250, Hrafn 650, Gígja 730, Hilmir 1350, Rauðsey 580, Náttfari 530, Eld- borg 1600, Óli óskars 1370, Sig- urður 1400, Bjarni Ólafsson 1080.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.