Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 47 Torfi Magnússon átti góðan leik í gærkvöldi. Enn tapar UMFL EINN ieikur fór fram i úrvals- deildinni i blaki í fyrrakvöld, Framarar sóttu UMFL heim að Laugarvatni og höfðu heim með sér bæði stigin. Þetta var mikill hörkuleikur og leika varð fimm hrinur áður en að úrslit fengust. Laugdælir unnu íyrstu hrinuna örugglega 15—3 og var þar sterklega byrjað. En allur vindur var þar með úr UMFL i bili og Fram vann næstu tvær hrinurn- ar, 15-11 og 15-6. UMFL jafnaði leikinn i fjórðu hrinunni með því að sigra 15—5, en úrslitahrinuna vann Fram á mun öruggari hátt heldur en lokatal- an 15—11 gefur til kynna. Má geta þess. að Fram komst í 14 —2, en UMFL sótti sig áður en yfir lauk. Einkunnagjðfln Lið ÍR: Kolbeinn Kristinsson 7 Sigmar Karlsson 5 Jón Jörundsson 4 Kristinn Jörundsson g Jón Indriðason 4 Kristján Oddsson 4 Stefán Kristjánsson 4 Steinn Logi Björnsson 4 Lið KR: Garðar Jóhannsson 7 Bjarni Jóhannesson 4 Jón Sigurðsson 7 Ágúst Líndal 7 Geir Þorsteinsson 5 Eiríkur Jóhannesson 4 Ásgeir Ilallgrimsson 4 Willum Þórsson 5 UMFN Gunnar Þorvarðarson 7 Jónas Jóhannesson 6 Guðsteinn Ingimarsson 6 Valur Ingimundarson 8 Þorsteinn Bjarnason 5 Árni Lárusson 5 Sturla Örlygsson 5 Brynjar Sigmundsson 5 Júlíus Valgeirsson g Lið Vals: Kristján Ágústsson 7 Torfi Magnússon 7 Ríkharður Hrafnkelsson 6 Jóhannes Stefánsson 7 Jón Steingrímsson 4 Gylfi Þorláksson 4 Þórir Magnússon 6 Gústaf Gústafsson 4 Guðmundur Jóhannsson 3 Lið Ármanns: Davið Arnar 5 Atli Arason 4 Valdemar Guðlaugsson 4 Kristján Rafnsson 4 Guðmundur Sigurðsson 4 Björn Christiansen 5 Hörður Arnarson 4 Hallgrimur Gunnarsson 4 ÍS: Jón Oddsson 4 Bjarni Gunnar 6 Gísli Gíslason 5 Pétur Hansson 3 Þórarinn Sveinsson 3 Ingi Stefánsson 5 Jón Óskarsson 3 Árni Guðmundsson 5 Höfuðlaus her Armanns var Val engin hindrun VALSMENN voru ekki í vandræðum að tryggja sér sigur gegn höfuðlausum her Ármanns í Hagaskólanum í gærkvöldi. Lokatölur leiksins urðu 113—85, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 52—49 fyrir Val. Sem sagt stórsigur og ef Ármenningar ætla sér að fá fleiri stig á mótinu, þarf að kippa stjórninni af bekknum i liðinn. Þvílík della reið þar súðum, að ekki var furða að Valur ynni stórt. Ármenningar bókstaflega sendu Val rauðan dregil að körfu sinni. En nóg um það i bili. Forsmekkurinn að því sem koma skyldi frá Ármanni og hernaðarsérfræðingum þeirra kom strax í byrjun, er byrjunarlið félagsins trítlaði inn á gólf. Eftir á bekknum sátu menn eins og Valdemar Guðlaugsson, Davíð Ó. Arnar, Hörður Arnarson og Kristján Rafnssop. Hefur Ár- mann engin efni á áð halda slíkum leikmönnum utan vallar. En þó gekk þetta ekkert afleitlega fram- an af, enda léku Valsmenn þá afar illa. Jafnræði var allan fyrri hálfleik og aðeins þriggja stiga munur Val í hag í leikhléi. En í síðari hálfleik sprakk allt saman, Valsmenn skoruðu tíu stig í röð og þar skildi með liðunum. Lokatölur urðu sem áður segir 113—85 og verður ekki eytt fleiri orðum í gang leiksins. Lið Vals verður ekki dæmt af þessum leik, því andstæðingurinn brotnaði al- ValunArmann 113:85 gerlega. En Jóhannes Magnú§son átti einn af sínum betri dögum og Þórir bróðir átti spretti. Auk þeirra voru þeir sterkir að venju, Ríkharður, Torfi og Kristján. Mil- ey var þokkalegur. En Ármanns-liðið var sér kapít- uli. Þar lék enginn af eðlilegri getu. Stoðin mikla, James Breeler, var þreyttur, skaut mikið og hitti illa. Var hann um tíma í seinni hálfleik hreinlega ekki með. Og innáskiptingar Ármenninga voru með óiíkindum og hvernig Ár- menningar telja sig geta farið með lykilmenn sína, er ótrúlegt. Áður er getið byrjúnarliðsins. Þar vant- aði fjóra bráðefnilega unga menn. Síðan voru örar innáskiptingar og á þann veg, að þessir umræddu ungu menn komust aldrei inn í leikinn svo heitið gat. Og þegar þeir komu inn á, virtust þeir þrúgaðir á taugum. Liðstjórn eins og Ármenningar framkvæma hana, er til lítils annars nýt, en að brjóta niður sjálfstraust sumra leikmanna liðsins. Ef að Ármenn- ingar ættu betri leikmenn í her- búðum sínum væri lítið við þessu að segja, en það er það sem Ármenningar hafa ekki, þ.e.a.s. betri leikmenn. Stig Ármanns: James Breeler 34, Davíð Arnar 12, Atli Arason 11, Björn Christiansen 10, Guð- mundur Sigurðsson 6, Hallgrímur Gunnarsson og Valdemar Guð- laugsson 4 hvor og Kristján Rafnsson 2 stig. Stig Vals: Jóhannes Stefánsson 22, Torfi Magnússon og Kristján Ágústsson 19 hvor, Brad Mil.ey 18, Ríkharður Hrafnkelsson 17, Þórir Magnússon 10, Gylfi Þorkelsson 4, Jón Steingrímsson og Gústaf Gústafsson 2 stig hvor. — gg UMFN átti léttan dag NJARÐVÍKINGAR unnu stóran og fremur auðveldan sigur á stúdentum i úrvalsdeildinni í körfubolta á heimavelli í gær- kveldi. Lokatölur leiksins urðu 119—75, eftir að 24 stiga munur hafði verið í hálfleik, 61—47. Úrslitin eru dæmigerð fyrir þann getumun sem er á liðunum, Njarðvíkingar voru í algjörum sérflokki. Og þótt Njarðvíkingar hafi gengið sigurvissir til leiks, sýndu þeir festu og ákveðni í leik sínum allt frá upphafsmínútunum. Þeir léku hraðan og skemmtilegan körfubolta og gengu vel flestar sóknir þeirra upp. Danny Shouse var áberandi sem fyrr, skoraði alls 38 stig, þar af 29 í fyrri hálfleik, en hann sat á bekknum mest allan seinni hálfleik, er óreyndari menn í Njarðvíkurliðinu fengu að UMFN:ÍS 119:75 spreyta sig. Auk Dannys sýndu þeir Valur Ingimundarson og Júlí- us Valgeirsson skemmtilegan leik, og Jónas Jóhannesson, Guðsteinn Ingimarsson og Gunnar Þorvarð- arson voru sterkir. Njarðvíkingar voru á köflum, einkum í fyrri hálfleik, sterkir í vörn, og ef eitthvað var athuga- vert við leik þerra var það van- ræksla í vörninni. Þeir hefðu getað komið í veg fyrir að stúd- entar skoruðu 75 stig með meiri ákveðni í vörninni allan leikinn. Það er erfitt að fjalla um lið ÍS. Það virtist aldrei ná sér atstrik, en samt eru margir ágætir einstakl- ingar í liðinu, einkum byrjunarlið- inu, en skiptimenn eru ekki marg- ir né sterkir. Og það segir sína sögu að mark Coleman skorar yfir 40% af stigum liðsins. Það hlýtur að verka illa að fá á sig svo stórt tap, en vonandi er að tapið verði frekar til að stappa stálinu í stúdenta. Liðinu virðist henta betur að leika rólegan körfubolta en hraðan, því mikil ónákvæmni var í sendingum þegar skyndiupp- hlaup voru reynd eða hraðar sóknir. tS: Mark Coleman 31, Jón Oddsson. 4, Bjarni Gunnar 17, Gisli Gislason 6, Injfi Stefánsson 6, Árni Guðmundsson 11. UMFN: Danny Shouse 38. Gunnar Þorvarðsson 16, Jónas Jóhannesson 10. Guðsteinn Invjimars- son 6, Valur ln^imundarson 19. Þorsteinn Bjarnason 5, Arni Lárusson 4, Sturla örlygsson 4, Brynjar Sigmundsson 6, Július Valgeirsson 11. KA í engum vandræóum KA VANN auöveldan sigur á Þór i 2. deild íslandsmótsins í hand- knattleik á Akureyri i gærkvöldi. Eftir að Þór hafði skorað tvö fyrstu mörkin, svaraði KA með fimm i röð og gaf liðið engann höggstað á sér eftir það. Lokatöl- ur leiksins urðu 23—16 KA í hag. eftir að staðan i hálfleik hafði verið 12-7. Það var einkum og sér í lagi stórleikur Gunnars Gíslasonar, sem Þórsarar réðu ekkert við, Gunnar skoraði tólf mörk og lagði grunninn að stórsigri KA. En það var einnig sterkari liðsheild KA sem átti sinn þátt í hinum góða sigri. KA-liðið er einfaldlega betra lið en Þór um þessar mundir. Hjá Þór bar enginn af nema ef vera skyldi Ragnar markvörður, sem stóð sig mjög bærilega í fyrri hálfleik, en síðan ekki söguna meir. Er best að hafa sem fæst orð um Þórs-liðið, það lék illa að þessu sinni. Mörk KA: Gunnar Gíslason 12, 3 víti, Friðjón Jónsson 4, 1 víti, Erlendur Hermannsson 3, Magnús Birgisson 2, Þorleifur Ananíasson og Guðmundur Guðmundsson eitt hvor. Mörk Þórs: Sigurður Sigurðsson 5, Benedikt Guðmundsson og Sig- tryggur Guðlaugsson 3 hvor, Sig- urður Pálsson 2, Guðmundur Skarphéðinsson, Ragnar Sverris- son og Árni Gunnarsson eitt hver. sor./ — gg Stuðningsmenn Víkings í handknattleik HVATNINGARFUNDUR verður haldinn í Félagsheimili Víkings laugardaginn 29. nóvember kl. 14.00. Yfir kaffibolla leggjum við á ráðin um hvernig við getum náð markmiði okkar. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Sjáumst á leiknum á móti Val. Arni Sveinsson í atvinnumennsku? Skagamaöurinn Árni Sveinsson kunni að fara i atvinnu- mennsku i knattspyrnu áður en langt um iiður. Mbl. reyndi að ná tali af Árna i gærkvöldi til að fá staðfestingu á þessum orðrómi, en það tókst ekki. En Morgunblaðið telur sig hafa áreiðaniegar heimildir fyrir því að vissir aðiiar séu að kanna jarðveginn hjá 1. deildar-liði i Sviþjóð, auk þess sem þýski umboðsmaðurinn Willy Reinke sé að garfa í málinu meðai þýskra og niðuricnskra liða. Mbl. hefur það fyrir satt, að Árni hafi mikinn hug á að reyna fyrir sér ytra. Hann er ekki með öllu ókunnur knattspyrnu á er- lendri grund, hann lék m.a. um tíma með hollenska liðinu Ex- celsior, sem nú er í úrvalsdeild- inni hollensku, en var þá i 1. deild. Væntanlega skýrist mál þetta á næstunni. -gg-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.