Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 29.11.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 25 Björn Þórhallsson, varaforseti ASÍ: ASÍ-stjórnin ekki í neinum tengslum við ríkisstjórnarmynstrið „JÚ, ÞAÐ verða að teljast timamót, þe>tar sjálfstæðismað- ur og verzlunarmaður er kjör- inn varaforseti Alþýðusam- bands lsiands,u sagði Björn Þórhallsson, er Morgunblaðið ræddi við hann undir lok ASÍ- þings i gær, „og þá einkum og sér i lagi þegar það er haft i huga að það eru ekki svo mörg ár siðan verzlunarmenn þurftu að ieita til féiagsdóms til að verða teknir hingað inn. Ég held þó að það sé ekkert öðru visi fyrir sjálfstæðismann að taka við þéssu embætti en flokksmann einhvers annars flokks. Ég hef unnið lengi i verkalýðshreyfingunni og því verður engin byltingarkennd breyting.“ Morgunblaðið spurði Björn, hvað hann vildi segja um þær fullyrðingar alþýðuflokks- manna, að í ASÍ hefði verið kjörið sama stjórnarmynstrið og í landsmálunum. Björn sagði: „Þessi stjórn í ASI er ekki í neinum beinum tengslum við ríkisstjórnarmynstrið. Hér var leitazt við að mynda samstarf á sem breiðustum grundvelli, en menn reyndust mismunandi trú- verðugir í því efni. Samsetning miðstjórnar Alþýðusambandsins er þannig að hver flokkur fær sinn hlut eftir því sem menn komast næst að ráða í styrk flokkanna. En guði sé lof, hér er þó ekki allt flokkapólitík." Hvað viltu segja um þær efnahagsráðstafanir ríkisstjórn- arinnar, sem svo oft hefur verið minnzt á í umræðum hér á þinginu? „Eg veit ekki hvernig þær verða, þessar fyrirhuguðu efna- hagsráðstafanir. Hið eina, sem allir þykjast vita, er að það verði að taka á þeim málum. Alþýðu- samband Islands getur varla snúizt gegn þessum ráðstöfun- um, fyrr en sést í þær og það hefði vitaskuld verið æskilegast, að eitthvað hefði getað legið fyrir þinginu af þessum áform- um. Þá hefði miðstjórn að sjálf- sögðu haft eitthvað í nesti um það, hvernig hún skyldi bregðast við og það hefði auðveldað störf hennar. Hins vegar hafa ráð- herrar lýst því yfir að leitað verði samráðs og þær aðgerðir sem að væri verið að vinna kynntar. Hafa þeir lýst því yfir að miðstjórn ASÍ verði ekki látin standa frammi fyrir gerðum hlut.“ Karvel Pálmason, fulltrúi á ASÍ-þingi: Björn verður sterki maðurinn í stjórninni „ÉG ER sannfærður um. að i Ijósi þessara kosninganiður- staðna var búið að binda þessi mái fyrir löngu. Mest hefur mér þó komið á óvart, að þetta hefur komið forystuliði sjáifstæð- ismanna hér á þinginu jafnmik- ið á óvart, hversu þrælbundið þetta var,“ sagði Karvel Pálma- son, varaformaður Alþýðu- sambands Vestfjarða, i samtali við lok ASÍ-þings i gær, en hann var i framboði til forseta. en tapaði. „Hér hefur því myndazt útvikkað ríkisstjórnarmynstur, kannski sameiningarmynstur fyrir rikisstjórnina og Sjálf- stæðisflokkinn.*4 „Mér sýnist, og það kæmi mér ekki á óvart, að Björn Þórhalls- son hafi verið og verði sterki maðurinn í þessu samstarfi. Ég ræð það fyrst og fremst af því, hversu gjörsamlega hann hefur handjárnað allt sitt lið og ég er viss um að nýkjörinn forseti sambandsins hefur sett fram það skilyrði til sinna manna, að Björn yrði með sér sem varafor- seti. Þetta gefur vísbendingu um að það verði Björn, sem ráði í þessum herbúðum. Hvað ætlazt Alþýðuflokkurinn fyrir? „Alþýðuflokkurinn mun fyrst og fremst berjast málefnalegri baráttu, eða við skulum segja, að ég telji að þeir fulltrúar innan verkalýðshreyfingarinnar eigi að berjast málefnalega. í ljósi þess, sem gerzt hefur, hefði verið ástæða til þess að það lið, sem berðist málefnalegri baráttu, væri fjölmennara. Greinilegt er að ríkisstjórnin hefur nú sett upp forystusveit fyrir Alþýðu- sambandið og því mun ekki veita af málefnalegum málflutningi í því sem framundan er, efna- hagsaðgerðir og kjaraskerðing- aráform ríkisstjórnarinnar." Að lokum sagði Karvel Pálma- son: „Ég veit ekki, hvort menn hafa gert sér grein fyrir því, að Alþýðubandalag og Sjálfstæðis- flokkur þurfa ekkert á Fram- sóknarflokknum að halda. Nú hafa hins vegar þau öfl, sem beittu sér í að útiloka sjálfstæð- ismenn frá áhrifastöðum innan ASÍ á þinginu 1976, tekið hönd- um saman, svarizt í fóstbræðra- lag og munu þeir með þessum sömu aðilum ráða ferðinni." Sigurður Óskarsson, formaður verkalýðsmálaráðs Sjálfstæðisflokksins: Er sannfærður um að þetta verður góð miðstjórn „ÞETTA þing hefur verið til- tölulega friðsælt i innri störf- um, en greinilegt er að menn eru óánægðir með kjör sín og þá löngu samningaiotu, sem var fyrir kjarasamningana. Teija menn að ríkisstjórnin hafi ekki sýnt þessa alþýðuelsku og verkalýðsást, sem hún hefur verið að predika," sagði Sigurð- ur Óskarsson, formaður Verka- lýðsmálaráðs Sjáifstæðisfiokks- ins og fulltrúi Rangæinga á ASÍ-þingi. „Þó kemur mér á óvart, hvað lítið hefur verið drepið á þessar fyrirhuguðu efnahagsráðstafanir.“ Morgunblaðið spurði Sigurð, hvort um væri að ræða sama stjórnarmynstur innan ASÍ og í landsmálum. Hann sagði: „Þetta er ósköp notalegur áróður krata, að halda því fram að sjálfstæðis- mönnum í verkalýðshreyfing- unni sé stjórnað af forystu Sjálfstæðisflokksins. Ég tók sjálfur þátt í því að velja þá forystumenn sem hér hafa verið kjörnir og það voru engir spurðir ráða í þeim efnum. Það get ég upplýst, að hafi formenn stjórn- málaflokkanna verið hér í bak- herbergjum, þegar uppstilling var ákveðin, voru þeir ekki í Sjálfstæðisflokknum. Við þurf- um ekki á neinni línu að halda. Það þarf heldur enginn að segja mér að miðstjórnarmennirnir Guðmundur Hallvarðsson og Hilmar Jónasson séu stjórnar- sinnar í landsmálunum og þeir eru þekktir af öðru en pólitísk- um hrossakaupum. Þetta eru fyrst og fremst góðir verkalýðs- sinnar." „Ég er ánægður með hlut okkar hér í þessu stjórnarkjöri og tel að miðstjórn sambandsins sé saman sett af sönnum verka- lýðssinnum. Ég þekki þessa menn í starfi og kannski þá helzt fyrir að hafa orðið fyrir aðkasti fyrir að hafa stutt „erkióvininn" í stjórnmálunum. Ég hef góða reynslu af samstarfi við þessa menn og er sannfærður um að þetta eigi eftir að verða góð miðstjórn," sagði Sigurður Óskarsson. Kosningaúrslit á ASÍ-þingi EINS og skýrt var frá í Morgunblaðinu í gær var Ásmundur Steíánsson kjör- inn forseti Alþýðusambands íslands til næstu fjögurra ára í fyrrakvöld á ASÍ-þingi. Jafnframt var Björn bór- hallsson kosinn varaforseti og fengu þeir báðir mikinn meirihluta atkvæða. Er kjöri forsetanna var lokið hófust kosningar í miðstjórn, sam- bandsstjórn og varamanna í hvorttveggja. Kosning í miðstjórn hófst eftir forsetakjörið og gekk heldur brösuglega og stóð talning fram til klukkan 06.30. Kjörnir voru í miðstjórn: Að- alheiður Bjarnfreðsdóttir (óháð), hlaut 52.675 atkvæði; Benedikt Davíðsson (Abl.), hlaut 48.475 atkvæði; Guðjón Jónsson (Abl.), hlaut 51.950; Guðmundur J. Guðmundsson (Abl.), hlaut 48.025 atkvæði; Guðmundur Hallvarðsson (Sj.fl.), hlaut 35.375 atkvæði; Guðmundur Þ. Jónsson (Abl.), hlaut 48.800 atkvæði; Hilmar Jónasson (Sj.fl.), hlaut 44.550 atkvæði; Jón Helgason (Afl.), hlaut 49.875 atkvæði; Jón Agn- ar Eggertsson (Fr.fl.), hlaut 51.200 atkvæði; Karvel Pálma- son (Afl.), hlaut 36.825 at- kvæði; Óskar Vigfússon (óháð- ur), hlaut 52.800 atkvæði; Þórður Ólafsson (Fr.fl.), hlaut 50.725 atkvæði og Þórunn Valdimarsdóttir (Afl.), hlaut 50.125 atkvæði. Auk þess hlutu atkvæði, en komust ekki í miðstjórn: Bjarnfríður Leós- dóttir (Abl.), hlaut 24.900 at- kvæði; Magnús Geirsson (Sj.fl.), hlaut 27.175 atkvæði og Ólafur Emilsson (óháður), hlaut 27.275 atkvæði. Ógildir seðlar voru 1.175 og auðir seðlar 425. Þá voru kjörnir varamenn í miðstjórn og var uppstilling kjörnefndar samþykkt sam- hljóða. Kosningu hlutu: Bjarn- fríður Leósdóttir, Bjarni Jak- obsson, Guðmundur M. Jóns- son, Guðríður Elíasdóttir, Halldór Björnsson, Karl Steinar Guðnason, Magnús Geirsson, Ólafur Emilsson og Sigurður Guðmundsson. í sambandsstjórn voru kjörnir: Bárður Jensson, Birg- ir Hinriksson, Dagbjört Hösk- uldsdóttir, Einar Karlsson, Friðrik Jónsson, Guðrún Ólafsdóttir, Gunnar Þórðar- son, Hákon Hákonarson, Jó- hanna Friðriksdóttir, Jón Ingimarsson, Jón Karlsson,. Magnús E. Sigurðsson, Krist- ján Ásgeirsson, Kristján Ottósson, Sigfinnur Karlsson, Pétur Sigurðsson, ísafirði, Sigurður Sigmundsson og Skúli Guðjónsson. Varamenn í sambandsstjórn voru kjörnir: Ása Helgadóttir, Björgvin Jónsson, Bragi Haraldsson, Flóra Baldvinsdóttir, Guð- mundur Friðgeir Magnússon, Guðmundur V. Sigurðsson, Guðrún Sigfúsdóttir, Hálfdán Kristjánsson, Haraldur Borg- ar Pétursson, Hilmar Jósefs- son, Hlaðgerður Oddgeirsdótt- ir, Jóhann Möller, Jón Ó. Kjartansson, Jónas Stefáns- son, Kristján Jóhannsson, Ragna Bergmann, Sverrir Guðnason og Vilborg Jóns- dóttir. Kosning varð um stjórn Menningar- og fræðslusam- bands alþýðu og var kjörin uppstilling kjörnefndar. Kosn- ingu hlutu: Guðmundur Hilm- arsson, Helgi Guðmundsson, Karl Steinar Guðnason, Krist- ín Eggertsdóttir og Sigfinnur Sigurðsson. Auður Guð- brandsdóttir hlaut ekki nægi- legt atkvæðamagn til þess að ná kjöri. Þá var og samþykkt tillaga kjörnefndar um menn í skipu- lagsnefnd fyrir næsta kjör- tímabil. Kosningu hlutu: Grét- ar Þorsteinsson, Gunnar Kristmundsson, Gunnar Már Kristófersson, Hákon Hákon- arson, Hannes Þ. Sigurðsson, Jón Kr. Ágústsson og Þórir Daníelsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.