Morgunblaðið - 29.11.1980, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
SÍKurður Waa«e, sem Jenjíi var framkvæmdastjóri Sanitas, með nokkrum útkeyrslumönnum sínum fyrir
framan húsnæði fyrirtækisins að Lindargötu 9.
Sanitas 75 ára:
Eitt elzta starfandi
iðnfyrirtæki landsins
Hefur elzta Pepsiumboð í Evrópu
SANITAS, sem er eitt elzta starf-
andi iðnfyrirtæki landsins, átti
75 ára afmæli í gær, en það var
stofnað 28. nóvember 1905. Aðal-
hvatamaður að stofnun fyrirtæk-
isins var Gisli Guðmundsson,
gerlafræðingur. en meðstofnend-
ur voru þeir Guðmundur ólafs-
son, oðalsbondi i Nýjabæ og Jón
Jónsson. skipstjóri i Melshúsum
á Seltjarnarnesi. Gisli var ráðinn
fyrsti framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins og varð hann siðar meir
emkaeigandi. Morjjunhlaðið
ræddi við Ragnar Birgisson, nú-
verandi forstjóra fyrirtækisins, i
tilefni þessara merku timamóta.
Ragnar var i fyrstu beðinn að
Iýsa nokkuð þróun fyrirtækisins
frá upphafi.
Fyrstu árin í
Melhúsatúni
„Fyrstu árin var verksmiðjan
staðsett í Melhúsatúni á Seltjarn-
arnesi, en vöruafgreiðslan var í
Reykjavík, eða nánar tiltekið í
kjallara húss Þorsteins Tómasson:
ar, járnsmiðs við Lækjargötu 10. í
fyrstunni voru framieiddir gos-
drykkir, saftir og óáfengt öl, en
ölframleiðslan var lögð niður árið
1913. Hún var síðan ekki tekin upp
aftur fyrr en í fyrra með samein-
ingu Sanitas og Sana.
Það var svo árið 1916, sem
verksmiðjan var flutt af Seltjarn-
arnesi inn til Reykjavíkur. Henni
var þá komið fyrir í húsi Gísla
Guðmundssonar við Smiðjustíg
11. Það var svo þetta sama ár, sem
Gísli seldi fyrirtækið í hendur
bróður sínum Lofti Guðmundssyni
hinum þjóðkunna ljósmyndara.
Loftur rak verksmiðjuna í þessu
húsnæði fram til ársins 1923, en
þá byggði hann fyrsta áfanga af
því húsi sem síðar varð verk-
smiðjuhús fyrirtækisins, að Lind-
argötu 9.
Eigendaskipti urðu svo á nýjan
leik árið 1924, en þá keypti
Sigurður Waage fyrirtækið af
Lofti, en Sigurður hafði þá verið
starfsmaður Sanitas um árabil.
Sigurður Waage rak fyrirtækið,
sem einkafyrirtæki fram til ársins
1939, en þá var það gert að
hlutafélagi.
Hekla og Mímir keypt
í tíð Sigurðar, eða árið 1927,
keypti Sanitas gosdrykkjaverk-
smiðjuna Heklu, en með þeim
kaupum eignaðist fyrirtækið aðra,
nýrri og betri, vélasamstæðu til
gosdrykkjaframleiðslunnar. Síðan
var það árið 1932, að Sanitas festi
kaup á gosdrykkjaverksmiðjunni
Mími,“ sagði Ragnar.
Framleiðsla á
sultu hafin
Nú hljóta að hafa orðið miklar
breytingar á framleiðslu fyrirtæk-
isins í gegnum árin, hverjar eru
þær helztar? „Fyrst má nefna, að
til viðbótar við gosdrykkjafram-
leiðsluna, sem verið hafði uppi-
staðan í framleiðslu fyrirtækisins
frá upphafi, var árið. 1932 hafin
framleiðsla á sultum og marmel-
aði. Sá þáttur framleiðslunnar er
enn við lýði, í dag. Gosdrykkja-
framleiðslan var framan af frekar
einhæf, en tegundum hefur í
gegnum árin farið fjölgandi, sér-
staklega hin allra síðustu ár, en í
dag framleiðum við alls 12 tegund-
ir af gosdrykkjum og öli.
Pepsi einkaumboð
Annars má kannski segja að
einhver mestu þáttaskilin í fram-
leiðslu fyrirtækisins hafi orðið
1943 þegar Sanitas fékk einkaleyfi
á Islandi til framleiðslu á hinum
þekkta bandaríska kóladrykk,
Pepsi-Cola, sem í dag er einhver
mest seldi gosdrykkur í heimin-
um. I því sambandi má skjóta
inní, að Sanitas hefur elzta einka-
framleiðsluumboð á Pepsi í Evr-
ópu. Til viðbótar hinu hefðbundna
Pepsi, sem við höfum framleitt í
gegnum árin kom svo Diet Pepsi,
eða sykurlaust Pepsi á markaðinn
fyrir nokkrum misserum og hefur
hlotið góðar viðtökur.
Seven-up
Síðan má segja, að önnur stór
þáttaskil hafi orðið í framleiðsiu
fyrirtækisins 1961 þegar Sanitas
fékk einkaleyfi til framleiðslu á
hinum vinsæla bandaríska gos-
drykk Seven-Up, og í því sam-
bandi má geta þess, að Seven-Up
og Pepsi Cola eru tveir af þremur
mest seldu gosdrykkjum í heimin-
um í dag,“ sagði Ragnar.
Hvað gerðist svo í húsnæðis-
málum fyrirtækisins eftir 1938
þegar flutt var í fyrsta áfanga
hins nýja húss við Lindargötu 9?
„Næsta átak í byggingarmálum
fyrirtækisins varð svo árin
1942—1943, þegar byggðar voru
þrjár hæðir og ris ofan á verk-
smiðjuhúsið að Lindargötu 9. Á
svipuðum tíma var ennfremur
gert mikið átak í sambandi við
vélakost fyrirtækisins. Keypt var
ný vélasamstæða frá Bandaríkj-
unum til framleiðslu á gosdrykkj-
um og var þar um að ræða nánast
byltingu á framleiðsluþætti fyrir-
tækisins.
Núverandi húsnæði
Á þessum árum jókst fram-
leiðsla fyrirtækisins hröðum
skrefum, þannig að þegar komið
var fram á árið 1950 var orðið
ljóst, að afkastageta verksmiðj-
unnar var ekki lengur í neinu
samræmi við eftirspurnina á
markaðinum. Því var talið nauð-
synlegt að fjárfesta í nýjum full-
komnari og fljótvirkari tækjum,
jafnframt því sem talið var nauð-
synlegt að finna fyrirtækinu nýtt
og hentugra húsnæði. Húsnæðið
að Lindargötu 9 var með öllu orðið
úrelt og fráleitt að setja nýjar og
fullkomnar vélar þar inn. Fyrir-
tækið sótti um leyfi til nýbygg-
ingar árum saman án árangurs.
Það var svo fyrst árið 1958 að séð
var fyrir endann á þessum hús-
næðisvandræðum fyrirtækisins,
en þá voru fest kaup á verksmiðju-
húsi Lýsissamlags íslenzkra botn-
vörpuskipaeigandá við Köllun-
arklettsveg í Reykjavík, en þar
hefur fyrirtækið einmitt alla sína
Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas.
Úr Vélasal fyrirtækisins. Ljósmynd Mbl. Krislján.
Frá vélasal Sanitas upp úr 1930.
Bílakostur Sanitas á sjötta áratugnum fyrir framan húsna'ði
fyrirtækisins að Lindargötu 9.