Morgunblaðið - 29.11.1980, Page 12

Morgunblaðið - 29.11.1980, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 Fornum dyggðum hefur verið varpað fyrir róða — hraðgróðahyggja og kröfuharka komin í staðinn — 1 eina tíð báru andstæð- ingar Sjálfstæðisflokksins óttablandna virðingu fyrir skipulagi flokksins og „kosn- ingavél“ hans. Nú spyrja margir í ljósi tveggja kosn- inga 1978 og desemberkosn- inganna í fyrra, hvort þessi áhrifaríka „kosningavél“ sé ekki lengur til staðar og hvort skipulagi flokksins hafi hnignað. — í grundvallaratriðum er það ekki svo. Það sem áður fyrr var átt við með „kosn- ingavél", var kerfi, sem byggt hafði verið upp í Reykjavík vegna vinnu fyrir kjördag og á kjördegi og miðaði að því að ná hámarksþátttöku í kosn- ingum. Þetta kerfi er í góðu lagi. Það er að verða eðlis- breyting á þessu starfi vegna vaxtar höfuðborgarinnar og breytinga á samskiptum fólks innan borgarinnar. Vinnu- staðir eru orðnir meiri eining í félagslegum samskiptum manna en áður og af því hlýtur kosningaskipulag að taka mið. Á síðustu 10—12 árum hef- ur Sjálfstæðisflokkurinn eins og aðrir flokkar fengið að finna fyrir minnkandi áhuga fólks á þátttöku í stjórnmála- starfi, samkeppni um frítím- ann hefur aukizt og stjórn- málaflokkarnir standa að mörgu leyti illa að vígi í þeirri samkeppni, enda hefur starf- semi þeirra í fæstum tilvikum mikið afþreyingargildi. — Baráttuaðferðir Sjálf- stæðisflokksins í síðustu kosningum vöktu athygli. Sumum sýnist þar hafa verið teknir upp starfshættir, sem tíðkast erlendis og eiga við þar en síður hér í okkar umhverfi og einkennist af yfirborðsmennsku og gervi- mennsku eins og t.d. þegar frambjóðendur vilja undir- strika tengsl sín við hinn vinnandi mann með því að láta taka mynd af sér við stýri á vinnuvél. — Það er rétt að þetta er að nokkru leyti eftiröpun á er- lendum aðferðum. Eg held, að maður verði að skipta þessu í tvennt. í fyrsta lagi er ég eindregið þeirrar skoðunar, að frambjóðendur þurfi að rækta betur samband sitt við kjós- endur. Það er bezt gert í dag með heimsóknum á vinnu- staði, og jafnvel á heimili manna, ef því er að skipta. Það kann að vera rétt, að viss gervimennska sitji þó í fyrir- rúmi, þegar út í kosningabar- áttuna sjálfa er komið. Grundvallaratriði er hins veg- Kjartan Gunnarsson, lögfræðingur var ráðinn fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins sl. sumar. Kjartan hefur á undanförnum árum starfað mikið á vettvangi Sjálfstæðisflokksins og verið einn af forystumönnum ungra Sjálfstæðismanna, m.a. formaður Heimdallar um skeið. Hann hefur einnig átt sæti í miðstjórn Sjálfstæð- isflokksins frá landsfundi 1977. Morgunblaðið hefur átt samtal við Kjartan Gunnars- son um ýmsa þætti í starfi Sjálfstæðisflokksins og þá ekki sízt skipulagsmál og fer það hér á eftir. milli fleiri einstaklinga á framboðslistum en nú. — Telur þú reynsluna af prófkjörum slíka að ástæða sé til að halda þeim áfram? — Ég tel reynsluna af þeim ekki slæma. Við höfum eink- um reynslu úr Reykjavík við að styðjast bæði til Alþingis og borgarstjórnar í flestum kosningum sl. áratug. Það er ar að gefa fólki kost á að kynnast frambjóðendum per- sónulega. Þessi kynning fer nú aðallega fram í sjónvarpi, út- varpi og blöðum og er oft til þess fallin að gefa ranga mynd af viðkomandi stjórnmála- manni og ekki síður yfirborðs- lega, heldur en það sem menn telja yfirborðslegt við vinnu- staðaheimsóknir. Samband stjórnmálamanna og kjósenda verður að vera stöðugt og viðunandi. Það verður hrein yfirborðsmennska, ef það er bara stundað rétt fyrir kosn- ingar. Þetta hefur Davíð Oddsson, formaður borgar- stjórnarflokks sjálfstæð- ismanna, skilið og breytt skv. því. Hann hefur heimsótt fjöl- marga vinnustaði í Reykjavík að undanförnu og ég hef farið með honum í nokkrar slíkar heimsóknir. Honum er undan- tekningarlaust vel tékið og heimsóknir af þessu tagi tald- ar jákvæðar og æskilegar og til þess fallnar að auka tengsl milli kjörinna fulltrúa og al- mennings og þá ekki sízt milli kosninga en í kosningum vilja málefnin oft víkja í hita bar- áttunnar. En það er svo auðvitað rétt, að margar baráttuaðferðir, sem tíðkast í milljónaþjóðfé- lögum þar sem stjórnmála- menn eru margfalt fjarlægari almenningi en er hér á íslandi, eiga ekki allar heima hér. — Er unnið að einhverjum sérstökum verkefnum í skipu- lagsmálum Sjálfstæðisflokks- ins um þcssar mundir? — Það má segja, að það sé sérstakt verkefni, sem jafnan er unnið við, að sjá til þess að flokksfélögin séu virk í starfi. Flokksfélagakerfið er æða- kerfi flokksins og um þetta æðakerfi rennur það lífsblóð, sem heldur flokknum gang- andi. Sérstök afmörkuð verk- efni í sambandi við breytingar á skipulagi eru ekki á döfinni. Ég tel rétt að frekar reyni á þær breytingar, sem sam- þykktar voru á síðasta lands- fundi. — Það fara hins vegar fram verulegar umræður inn- an flokksins um prófkjör og val frambjóðenda. — Það er rétt, að samhliða umræðum um kosningarétt og kjördæmaskipan hafa verið töluverðar umræður um val frambjóðenda. Þar takast á nokkur sjónarmið, bæði með og móti prófkjörum og hjá þeim sem styðja prófkjör, hvernig þau eigi að vera, skyldubundin, samræmdar reglur eða sjálfdæmi um regl- ur og hvort prófkjörin eigi að vera bundin við flokksmenn eingöngu eða opin fyrir alla stuðningsmenn flokksins. Rætt við Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins — Á hvaða stigi eru þessar umræður? — Þessi mál verða tekin fyrir á flokksráðsfundi nú um helgina. Fyrir síðustu kosn- ingar voru samdar samræmd- ar prófkjörsreglur fyrir flokk- inn. Þar sem prófkjör fóru fram á annað borð voru þær reglur í gildi. Ákvarðanir, sem þarf að taka eru þær, hvort eigi að gera skylt að val frambjóð- enda fari alltaf fram með prófkjöri og þá hvaða reglur eigi að gilda um prófkjörin. Þessu tengjast hugmyndir um lögbindingu prófkjöra sam- tímis hjá öllum flokkum og sameiginlegan kjörstað, þann- ig að fólk flakki ekki milli flokka. Enn aðrir vilja leysa þessi mál með auknu persónu- kjöri, kjósendur hafi val á erfitt að segja um, hvort þau hafa tryggt eðlilega endurnýj- un á framboðslistum. í fyrsta lagi eru menn ekki sammála um, hvað er eðlileg endurnýj- un. I öðru lagi, hvernig hún hefði orðið, ef prófkjörin hefðu ekki verið. Það er ljóst, að prófkjörin opna meiri möguleika fyrir þá, sem eru tilbúnir til að fara út í harða baráttu til að komast á lista. Áður voru kjörnefndir valdar af flokksstofnunum og ekki hægt að hafa áhrif á val þeirra nema í gegnum flokkskerfið en í opnum prófkjörum eiga menn meiri möguleika á að hafa áhrif á niðurstöðuna. Það er líka ljóst, að með prófkjör- um geta vel orðið til fram- boðslistar, sem ekki uppfylla allar sömu kröfur og kjör- nefnd mundi hafa gert. Þá á ég við það, þegar reynt er að tryggja hlutfall á framboðs- lista milli stétta og starfs- hópa, milli kynja og aldurs- flokka. Hins vegar er það áreiðan- legt, að í Reykjavík hafa þessi opnu prófkjör með þátttöku mörg þúsund Reykvíkinga oft verið góður undirbúningur að öflugu kosningastarfi, þátt- taka í prófkjöri hefur orðið til þess að binda fólk böndum við Sjálfstæðisflokkinn sem ella hefðu ekki orðið til. Að þessu leyti eru prófkjörin jákvæð fyrir flokkinn. — Nú er það staðreynd, að Sjálfstæðisflokkurinn vann sinn mesta kosningasigur á síðasta áratug, þegar engin prófkjör voru viðhöfð, þ.e. 1974, en fékk slaka útkomu í öðrum þingkosningum. — Flokkurinn hefur líka unnið mjög glæsilegan sigur í borgarstjórnarkosningum að undangengnu prófkjöri, t.d. 1974, þegar flokkurinn fékk 9 borgarfulltrúa. Engum hefur komið til hugar að kenna prófkjörum um tap meirihlut- ans í Reykjavík 1978 og ég held, að prófkjör hafi ekki haft nein afgerandi áhrif á úrslit kosninga á síðasta ára- tug. í kosningunum 1974 hafði Sjálfstæðisflokkurinn sterkan meðbyr eftir vinstri stjórn Ólafs Jóhannessonar 1971— 1974. í viðbót við þetta mætti nefna, að aðrir flokkar en Sjálfstæðisflokkurinn hafa efnt til prófkjöra og unnið glæsilega kosningasigra. Það er rétt að undirstrika, að því miður fer ekki alltaf saman öflugt kosningastarf og góð útkoma í kosningum. Þá á ég við hina tæknilegu hlið starfsins. Þúsundir koma til starfa sem sjálfboðaliðar, mikill og góður hugur ríkir hjá þeim sem starfa, en þetta út af fyrir sig er ekki nægilegt til að vinna kosningasigur. Þar ræð- ur eðlilega miklu hin almenna staða í stjórnmálunum. — Reynslan erlendis er sú, þar sem forkosningar tíðk- ast, að þær leiða til þess, að einstakir frambjóðendur byggja upp öflugar kosninga- vélar og stefna síðan að því að halda þeim við, jafnframt því, sem þeir eru allt kjör- timabilið að undirbúa næsta prófkjör og hugsa því meira um eigin hag en flokkshag. Reynslan er líka sú, að hinar gömlu, hefðbundnu flokksvél- ar hrynja til grunna. Er hætta á því að þetta gerist hér? — Ég tel að það sé hætta á því og að það sé sitthvað til í þessu sérstaklega í fyrri hluta spurningarinnar. Margir þeir, sem ötullegast starfa í próf- kjörsbaráttu eru þeir hinir sömu, sem ætlast er til, að séu burðarásar í kosningabaráttu flokksins. Það er ekkert óeðli- legt við það, að þetta fólk veiti einstökum frambjóðendum stuðning, en það má líka búast við, að þetta fólk verði þreytt eftir þriggja — fjögurra vikna prófkjörsbaráttu. A móti kem- ur hins vegar að margir þeir frambjóðendur, sem drýgst taka til höndum í prófkjörs- baráttu eru ekki síður drjúgir í kosningabaráttunni sjálfri og virkja til starfa fólk, sem ella hefði ekki komið til starfa á vegum flokksins. Varðandi það, að einstakir frambjóðendur heyi kosn-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.