Morgunblaðið - 29.11.1980, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
13
ingabaráttu allt kjörtímabilið,
þá er það alvarlegri þáttur
málsins. Sú'staða getur komið
upp, að samstarf og samheldni
þeirra, sem þurfa að vinna
saman fyrir flokkinn bresti.
Þessar ástæður eru m.a. rök
þeirra, sem telja að tryggja
beri í almennum kosningalög-
um aukið valfrelsi kjósenda og
komast þannig framhjá próf-
kjörum en tryggja samt, að
kjósendur geti sjálfir átt
drjúgan hlut að vali þeirra,
sem veljast til starfa á þing og
í sveitarstjórnir.
— Það hefur komið til
umræðu í blöðum, að Sjálf-
stæðisflokkurinn standi höll-
um fæti fjárhagslega.
— Það er rétt, að flokkur-
inn á við mikla fjárhagsörð-
ugleika að stríða og hefur átt
sl. 20 ár a.m.k. Þessir fjár-
hagserfiðleikar felast í skorti
á lausafé, rekstrarfé, en eigna-
lega stendur flokkurinn vel.
Valhöll og aðrar eignir flokks-
ins eru mikils virði en það fer
ekki hjá því, að eftir fjárfrek-
ar framkvæmdir og kosningar
á 15 mánaða fresti að meðal-
tali síðustu 7 ár, stendur
flokkurinn ekki vel að vígi
fjárhagslega. Raunar hygg ég,
að því sé svo farið með hina
flokkana líka, að þeir liggi
ekki á gulleggjum.
Sá misskilningur er algeng-
ur hjá almenningi og flokks-
fólki að Sjálfstæðisflokkurinn
hafi fullar hendur fjár, og fé
streymi til hans úr öllum
áttum. Þessu er alls ekki svo
farið. Flokkurinn hefur á síð-
ustu árum orðið illa fyrir
barðinu á verðbólgunni. Það er
erfitt og raunar ókleyft að fá
framlög styrktarmanna til að
haldast í hendur við verðbólg-
una. Jafnhliða verður allt
starf flokksins kostnaðarsam-
ara. Ég er þeirrar skoðunar að
gera þurfi flokksfólki almennt
betur grein fyrir þessum stað-
reyndum. Menn verða að
skilja það í eitt skipti fyrir öll,
að fjárhagsvandinn verður
ekki leystur nema með sam-
eiginlegu átaki allra flokks-
manna.
Ég vil sérstaklega undir-
strika, að þeir, sem vilja
stuðla að frelsi einstaklingsins
og frjálsu athafnalífi í landinu
eigi ekki hvað sízt að skilja
nauðsyn þess að búa fjárhags-
lega vel að Sjálfstæðisflokkn-
um sem er eini málsvari þess-
ara skoðana.
Það má geta þess í þessu
sambandi að stjórnmálaflokk-
arnir fá enga styrki til starf-
semi sinnar frá ríkinu, ef
undan eru skyldar fjárhæðir
til þingflokkanna fyrir sér-
fræðilega aðstoð. Hér í
Reykjavík er stjórnmálaflokk-
unum t.d. gert að greiða full
fasteignagjöld af því húsnæði,
sem flokkarnir nota einungis
til eigin starfsemi. Ég teldi
eðlilegt, að sveitarfélögin léttu
þessum gjöldum af flokkunum
á sama hátt og þeim er létt af
fjölmörgum félögum, sem eru
talin starfa í þágu almanna-
heilla, svo sem íþróttafélögum,
bindindisfélögum, skátafélög-
um o.s.frv. Það er mótsögn hjá
valdstjórninni að sækja völd
sín til flokkanna en telja svo
hins vegar, að þeir starfi ekki í
þágu almannaheillar.
- Sagt er, að upplausnin í
samfélagi okkr endurspeglist
í upplausn í Sjálfstæðis-
flokknum. Er þetta rétt?
— Ég held, að það sé út af
fyrir sig rétt að það er upp-
lausn á mörgum sviðum, bæði
efnahagsleg og siðferðileg. Án
efa á óðaverðbólgan stóran
þátt í því, þar sem fornum
dyggðum, eins og nýtni og
sparsemi, hófsemi og sann-
girni hefur verið varpað fyrir
róða en hraðgróðahyggja og
kröfuharka koma í staðinn.
Mér dettur ekki í hug að
undanskilja Sjálfstæðisflokk-
inn eða sjálfstæðismenn í
þessu. Þetta upplausnarástand
hefur ekki farið eftir flokks-
línum. Hvort það hefur haft
áhrif á innanflokksmál Sjálf-
stæðisflokksins þori ég ekki að
fullyrða. Að einhverju leyti
hefur sá þjóðfélagsveruleiki,
sem menn þrífast í sjálfsagt
áhrif á einhverja stjórnmála-
menn og hvað þeir leyfa sér.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
á síðustu 10 árum orðið fyrir
mörgum alvarlegum áföllum. í
fyrsta lagi fellur Bjarni Bene-
diktsson frá á sviplegan hátt
og skilur tvímælalaust eftir
sig mikið tómarúm í flokkn-
um. Síðan nýtur flokkurinn
aðeins um skamma hríð
starfskrafta næsta formanns,
Jóhanns Hafstein, og enn á ný
kveðja örlögin dyra, þegar
Magnús Jónsson, fyrrverandi
varaformaður flokksins varð
af heilsufarsástæðum að
draga sig í hlé frá stjórnmála-
störfum. Allir þessir atburðir
og umrót í stjórnmálalífinu
hafa að mínum dómi veikt
kjölfestu flokksins. Að nokkru
leyti hafa komið skörð í þá
samheldni, sem nauðsynlega
þarf að vera í stórum og
áhrifamiklum flokki og þegar
við bætist að ekki hefur ríkt
eining um það hverjir gegna
skuli æðstu trúnaðarstörfum
flokksins eins og sýndi sig á
landsfundum 1971 og 1979 þá
fer auðvitað ekki hjá því, að
flokkurinn allur beri þess
nokkur merki.
— Hefur kjölfesta flokks-
ins veikst svo mjög að hann
geti ekki gegnt því forystu-
hlutverki, sem hann hefur
haft með höndum?
— Ég vil alls ekki fallast á,
að neitt upplausnarástand
hafi náð tökum á Sjálfstæðis-
flokknum eða ríki innan hans.
Það er langt bil á milli þess,
sem kallað er upplausn og
tiltekins innri óróleika, sem
flokkurinn hefur að margra
mati búið við hin síðustu ár.
Það er rétt, að ég sagði að
kjölfestan hefði veikst, en höf-
um í huga að oft má draga úr
eða minnka kjölfestu án þess
að sjái á siglingu. Kjölfestan
getur verið svo traust að
eitthvað megi af henni taka
a.m.k. um stundarsakir og það
á við um Sjálfstæðisflokkinn.
Ég er sannfærður um að
stefna Sjálfstæðisflokksins
um frelsi og framfarir ein-
staklingshyggju og mannúð, er
samgróin íslenzkri þjóðarsál
og þessi stefna verður áfram
kjölfesta þessa þjóðfélags og
ég tel að Sjálfstæðisflokknum
muni takast á komandi árum,
eins og áður að ná eyrum
þjóðarinnar og sannfæra hana
um að sjálfstæðisstefnan er
affarasælust fyrir þjóðina og
mun leiða okkur Islendinga
áfram inn í bjarta og gæfuríka
framtíð.
Stg.
í dag kl. 2—6
Viö kynnum úrval heimilistækja, reiö-
hjóla, húsgagna, barnafatnaöar, leik-
fanga, pottablóma, gjafavöru, kerta og
sælgætis.
Vinsamlegast athugiö aö aöeins er um sýningu
aö ræöa á þessum tíma.
Verslunin er hins vegar opin frá kl. 9—12, eins
og venjulega.
fxl Vörumarkaðurinn hf.
Sími 86117