Morgunblaðið - 29.11.1980, Síða 19

Morgunblaðið - 29.11.1980, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 19 Landspítali 50 ára: Ráðstefna — af mælisrit — hátíð — móttaka Á SÍÐARI hluta þriðja áratugarins reis á Grænuborgartúni i Reykjavik eitt stærsta og veglegasta hús landsins, þriggja hæða bygging með þremur burstum, byggð eftir teikningu Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins. Þetta var fyrsta mannvirki Landspitalans. Þar hóf spitalinn starfsemi sina i desember árið 1930 og er starfstimi hans talinn frá 20. þess mánaðar. Landspítali íslands á þvi senn hálfrar aldar afmæli. Af þessu tilefni munu stjórnarnefnd rikisspitalanna og starfsmannaráð Landspitala gangast fyrir ráðstefnu: Landspitaiinn til aldamóta; útgáfu bókar um sögu spitalans, sem Gunnar M. Magnúss rithöfundur ritstýrir; móttöku i Landspitala fyrir starfsfólk og velunnara stofnunarinn- ar og 50 ára afmælishátið að Hótel Sögu. Þá hefur Póstþjónustan, i samráði við Landspítalann. gefið út sérstakt frimerki i tilefni afmælisins. formaður Landssambands sjúkrahúsa. Móttaka í Landspítala Síðdegis þennan sama dag (milli kl. 17 og 19) verður mót- taka fyrir gesti (starfsfólk og velunnara, en fjölmargir ein- staklingar og félagasamtök eru í þeirra hópi). í móttökunni mun heilbrigðismálaráðherra, Svavar Gestsson, flytja ávarp. Þar gefst og þeim er þess óska kostur á að koma afmælisóskum á framfæri. Saga Landspítala Gunnar M. Magnúss rithöfund- ur hefur tekið saman sögu Land- spítala: aðdraganda, byggingu, stofnun og rekstur í 50 ár. Hér er um að ræða merkilegan þátt í þjóðarsögu; þátt stærstu heil- brigðisstofnunar okkar, sem í senn er kennsluspítali í tengslum við Háskóla íslands og Landspít- ali í þágu alþjóðar. Þetta er saga tímamóta þegar fámenn fátæk þjóð hverfur frá frumstæðum þjóðfélagsháttum inn í tækniöld, einnig á sviði heilbrigðismála. Gunnar M. Magnúss er réttur maður á réttum stað þegar setja á sagnfræði af þessu tagi 1 ramma alþýðlegrar, læsilegrar og skemmtilegrar frásagnar. Ekki er hægt að tímasetja nákvæmlega hvenær bók þessi kemur á sölumarkað. Væntanlega verður það þó ekki fyrr en á fyrstu mánuðum næsta árs. Afmælishátið starfsmannaráðs Stjórnarnefnd og starfsmanna- ráð efna til 50 ára afmælishátíð- ar Landspítala að Hótel Sögu laugardaginn 13. desember nk. kl. 19 síðdegis. Veizlustjóri verður Jón Þ. Hallgrímsson, sérfræðing- ur. Skemmtiatriði verða saman sett og flutt af starfsfólki Land- spítala, auk þess sem hinn kunni skemmtikraftur, Ómar Ragnars- son, kemur við sögu. Ávarp þessa hátíðarkvölds flytur Sigurður Samúelsson, prófessor. Elzta byggingin: Elzta mannvirki Landspítala, sem hér sést, hefur þjónaö heilsugæzlu landsmanna í hálfa öld. Guöjón Samúelsson, húsameistari ríkisins, teiknaöi bygginguna. Landspítalinn til aldamóta Ráðstefnan, Landspítalinn til aldamóta, verður haldin í Há- skólabíói föstudaginn 12. desem- ber nk. Ráðstefnuna, sem hefst kl. 9 árdegis, setur Páil Sigurðs- son, ráðuneytisstjóri, formaður stjórnarnefndar. Þá fer fram hljómlistaratriði sem Helga Ing- ólfsdóttir og Manuela Wiesler annast. Hátíðardagskráin verður að öðru leyti sem hér segir: 09:30 Hlutvark Landspítalans í þjóö- félaginu til aldamóta. Davíö Á. Gunnarsson, forstjóri. LaakniafrsaAin — þarfir — Isekn- ingaaófaröir, hlutverk Landspít- alans til aldamóta. Grétar Ólafsson, yfirlæknir for- maöur læknaráös Landspítalans Bjarni Þjóöleifsson, fulltrúi starfsm.ráös í stjórnarnefnd. 10:10 KAFFI 10:40 Hlutverk Landspítalans sem rannsóknar- og frsaóslustofnun til aldamóta. Víkingur H. Arnórsson, forseti læknadeildar. Alfreö Árnason, líffræðingur. Ragnheiöur Haraldsdóttir, hjúkr- unarfræölngur. 11:20 Landspítalinn — sjúklingurinn og umönnun hans, breytingar til aldamóta. Vigdís Magnúsdóttir, hjúkrunar- forstjóri, Sævar Guöbergsson, félagsráögjafi, Séra Karl Sigur- björnsson, Helga Hannesdóttir, læknir. 12:10 Léttur hédegisveröur í anddyri Háskólabíós. 13:40 Landspitalinn — aðstaóa starfs- fólks — breytingar til aldamóta. Aöalheiöur Bjarnfreösdóttir, form. Starfsmannafél. Sóknar, Krlstín Tómasdóttir, yfirljósmóð- ir. 14:35 Landspitalinn — tæknin til alda- móta. Gunnar Ingimundarson, verk- fræöingur, Símon Steingrímsson, tæknilegur framkvæmdastjóri, Guömundur S. Jónsson, for- stööum. Eöllsfr. og tæknideildar. 15:15 Samkomunni slitiö, Páll Sig- urðsson, formaöur stjórnar- nefndar Ríkisspítalanna. Fundarstjórar ráðstefn- unnar verða: Gunnlaugur Snædal, yfirlæknir, Svan- laug Árnadóttir, formaður Hjúkrunarfélags íslands, og Haukur Benediktsson, Westinghouse hitavatnsdunkar Höfum fyrirliggjandi Westinghouse hitavatnsdunka í 4 stæróum: TR 221 20 gallon - 80 lítrar TL 522 52 gallon - 200 lítrar TL 622 66 gallon - 250 lítrar TL 822 82 gallon - 300 lítrar Vandlátir velja Westinghouse KOMIÐ-HRINGIÐ-SKRIFIÐ vió veitum allar nánari upplýsingar. Kaupfélögin um allt land Véladeild Sambandsins Ármúla 3 Reykiavik Simi 38900 athuga að þú sparar bensín með því að aka á réttum dekkjum? Goodyear hjólbarðar eru hannaðir með það í huga, a þeir veiti minnsta hugsanlegt snúningsviðnám, sem þýðir öruggt vegagrip, minni bensín eyðslu og betri endingu. C*'/' GOODWYEAR GEFUR 0'RÉTTA GRIPIÐ PRISMA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.