Morgunblaðið - 29.11.1980, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
Júgóslavar
óttast andóf
STANE Dolanc. einn valdamesti
maður jÚKÓslavneska kommún-
istaflokksins. beindi i dag varn-
aðarorðum til pólitískra andófs-
manna, satrði að kröfur þeirra
um aukið frelsi yrðu ekki látnar
viðgang&st og lýsti því yfir að
þeim yrði ekki látið haldast uppi
að ógna Krundvallarundirstöðum
stjórnmáía- og þjóðfélagskerfis
landsins.
Dolanc nefndi ekki andófsmenn-
ina, en átti greinilega við hóp
manna sem var synjað um leyfi
fyrr í vikunni um að gefa út
stjórnarandstöðutímarit. Dolanc
kvað tilgangslaust að ræða hve
mikið frelsi ríkti í Júgóslavíu, því
að allt vinnandi fólk gæti borið
vitni um það, að flokkurinn reyndi
aldrei að takmarka „skapandi
starf mannsins, starfið sem sann-
arlega þroskar frelsi mannsins".
Hélt velli
Frá frétUrltara Mbl. I Finnlandi.
RÍKISSTJÓRN Finnlands hélt velli
í atkvæðagreiðslu um vantraust á
hana með 118 atkvæðum gegn 63,
en aftur á móti hefur risið mikill
ágreiningur innan stjórnarinnar og
hann getur torveldað samstarf
þeirra fjögurra flokka sem standa
að henni.
Vantraustið var borið fram vegna
hins umdeilda reksturs Finnvalco-
verksmiðjunnar sem ríkisstjórnin
hefur haft afskipti af.
Hörmungarnar
aukast enn
LJÓTAR lýsingar berast enn af ástandinu á jarðskjálfta-
svæðinu á Ítalíu þar sem veikindi bætast nú ofan á aðrar
hörmungar fórnarlambanna. Á annari myndinni, sem hér
fylgja, er lík eins fórnarlambanna borið út úr kirkjunni í
þorpinu Balvano er hrundi í jarðskjálftanum þegar margir
þorpsbúar, aðallega konur og börn, voru við aftansöng. Hin
myndin var tekin úr lofti af þorpinu San Mango sul Salore,
sem einnig varð hart úti í jarðskjálftanum.
Viðurkennir ofsóknir
á hendur Liu Shaoqi
PekinK, 28. nóvember. AP.
CHEN Boda. er eitt sinn var
fjórði áhrifamesti maðurinn í
kinverska kommúnistaflokknum,
viðurkenndi fyrir rétti í dag. að
hann og ekkja Maos formanns
hefðu á sínum tíma sjálf fyrir-
skipað ofsóknir á Liu Shaoqi
fyrrum forseta, er lézt í fangelsi.
Chen svaraði öllum spurningum
dómara og viðurkenndi einnig, að
hann og fleiri hefðu jafnframt
ofsótt Lu Dingyi fyrrum áróðurs-
stjóra flokksins, og núverandi
miðnefndarmann.
Heimildir frá Peking hermdu að
Chen er varð fyrir barðinu á
hreinsunum 1973, væri nú við
slæma heilsu. Hefði hann þurft
heyrnartæki og hjálpa þurfti hon-
um inn og út úr dómsalnum. Talið
var af mörgum að hann væri
látinn.
Chen, Jian Quing og Kang
Sheng öryggismálaráðherra
brugguðu Liu Shaoqi launráð 1967
og fyrirskipuðu ofsóknir á hendur
honum. Gerð var leit á heimili
hans og þau hjónin urðu fyrir
líkamsmeiðingum. Voru þau út-
skúfuð og lézt Liu í fangelsi 1969.
Nafn hans var endurreist við
mikla viðhöfn í apríl sl.
Við aðrar vitnaleiðslur í Peking
í dag, viðurkenndu tveir fyrrver-
andi hershöfðingjar að hafa verið
með leynilegt ráðabrugg um að
myrða Mao formann og heimta
TVEIR ungir hryðjuverkamenn
skutu til hana iðjuhöld á fjölfar-
inni götu i miðborg Milano í
dag.
völdin í sínar hendur. Þeir eru
Huang Yongsheng fyrrum yfir-
maður heraflans og Li Zuopeng
einn æðsti maður í sjóher Kína á
sínum tíma. Þeir höfðu áður
viðurkennt samsekt sína í ráða-
bruggi Lin Biao fyrrum varnar-
málaráðherra, er ætlaði að reyna
stjórnarbyltingu 1971. Huang er
sagður hafa reynt að flýja til
Sovétríkjanna eftir að Lin fórst í
flugslysi í september 1971.
Þetta er í annað skipti sem
iðnrekandi er myrtur í Milano á
hálfum mánuði. Rauðu herdeild-
irnar hafa lýst yfir ábyrgð sinni á
báðum morðunum.
Veður
víða um heim
Amsterdam 4 rigníng
Aþena 19 rigning
Berlín 1 skýjaö
Brllssel 6 skýjaó
Chícago 3 skýjað
Frankfurt 5 skýjað
Genf 4 skýjað
Helsinki 0 snjókoma
Jerúsalem 18 sólskin
Jóhannesarborg 26 akýjað
Kaupmannahöfn 5 skýjað
Lissabon 12 heiðskírt
London 5 snjókoma
Los Angeles 30 heiðskírt
Madrid 10 sótskin
Miami 27 rigning
Moskva -3 rígning
New York 5 rigning
Osló -6 sólskin
París 6 skýjað
Ríó de Janeiro 29 heiðskírt
Rómaborg 9 rigning
San Fransisco 18 rigning
Stokkhólmur -S heiðskfrt
Tel Aviv 21 sólskin
Tókýó 15 skýjað
Vancouver 11 skýjað
Vínarborg 3 snjókoma
Myrti heila
hreppsnefnd
Santander. Spánn, 28. nóv. — AP.
LÖGREGLUMENN á Spáni leit-
uðu í dag í fjöliunum i Santand-
erhéraði á Spáni, að manni, sem
gekk berserksgang á fimmtudag
og skaut sjö sveitunga sína með
haglabyssu. Fórnarlömbin voru
öll i nefnd, sem hefur umsjón
með sameiginlegum eignum
sveitarfélagsins og sakaði hann
þau um að hafa tekið eignar-
námi óðal, sem hann gerir til-
kall til.
Morðinginn fór milli heimila
nefndarmannanna og skaut þá
hvern af öðrum. Að því búnu flúði
hann til fjalla ásamt eiginkonu
sinni og er hans nú leitað ákaft
með hjálp sporhunda.
Nágrannar hans lýsa honum
sem hatursfullum manni, sem
hafi gengið af vitinu þegar nefnd-
in ákvað að gera skemmtigarð úr
landi, sem hann fullyrti að væri
sín eign. Þá hafi hann hótað að
myrða alla nefndarmenn og nú
hafi hann gert þau orð að veru-
leika.
Rauðu herdeildirn
ar myrða iðjuhöld
MHano, 28. nóv. — AP.
Þetta cjerðist 29. nóvember
Virolainen greip inn í
Frá fréttaritara Mbl. I Finnlandi.
1508 — Francis Drake kemur úr
hnattsiglingu sinni.
1798 — Ferdinand IV af Napoli
segir Frökkum stríð á hendur og
sækir inn í Róm.
1880 — Fyrsta japanska þingið
kemur saman.
1916 — Hussein lýstur konungur
Araba.
1918 — Nikulási konungi steypt
af stóli í Montenegro, sem samein-
ast Serbíu.
1922 — Fornleifafræðingar til-
kynna, að þeir hafi fundið stór-
kostlega fjársjóði í grafhýsi Tut-
ankhamens í Egyptalandi.
1929 — Richard Byrd tilkynnir,
að hann hafi fyrstur manna flogið
yfir Suðurskautið.
1945 — Júgóslavía verður alþýðn-
lýðveldi. Konunpd^;- jagt njður
i eiur II sviptur öllum réttind-
um.
1947 — Áætlun SÞ um skiptingu
Palestínu og Jerúsalem undir
stjórn samtakanna kunngerð.
1962 — Samkomulag Frakka og
Breta um smíði hljóðfrárrar þotu,
„Concorde".
Afmæli. Giovanni Bellini, ítalskur
listmálari (1426—1516) — Louise
Mary Alcott, bandarískur rithöf-
undur (1832-1888).
Andlát. 1530 Wolsey kardináli,
stjórnmálaleiðtogi — 1682 Rupert
prins, hermaður — 1780 María
Theresía, keisaradrottning —
1872 Horace Greeley, ritstjóri —
1924 Giacomo Puccini, tónskáld.
Innlent. 1211 d. Páll bp Jónsson
— 1450 Kristján I dubbar Torfa
Arason til riddara og veitir hon-
um skjaldarmerki — 1681 d. Jón
Yigfússon sýslumaður — 1812 f.
Pétur Guðjónsson — 1906 „Til
fánans" eftir Einar Benediktsson
og Sigfús Einarsson fyrst sop.giö 4
fundi Stúdent^4'iag8 Reykjavíkur
— 1907 d. Árni Thorsteinsson
landfógeti — 1921 Síðasti dómur
Hæstaréttar Danmerkur í Is-
lenzku máli kveðinn upp — 1930
Kommúnistaflokkur íslands
stofnaður.
Orð dagsins. Betlaðu aldrei það
sem þú getur unnið þér inn —
Miguel Cervantes, spænskur rit-
höfundur (1547—1616).
Morðingjarnir komust undan á
reiðhjóli eftir að hafa skotið
iðjuhöldinn tveimur skotum í
höfuðið. Skömmu eftir morðið
barst eftirfarandi yfirlýsing til
fréttastofu einnar á Ítalíu: „Við
höfum drepið Mazzanti. Baráttan
gegn stjórnvöldum og iðnrekend-
unum heldur áfram. Krafan er
styttri vinnutími og atvinna fyrir
alla“.
FORSETI finnska þingsins,
Johannes Virolainen, hefur
gripið inn i verkfall blaða-
manna í Finnlandi.
Hann skoraði á deiluaðila
að hefja samningaviðræður
og Teuvo Kallio ríkissátta-
semjari kallaði þá strax sam-
an til fundar á morgun,
laugardag.
Virolainen kvaðst hafa
skorizt í leikinn vegna fjölda
áskorana einstaklinga og fé-
lagasamtaka.
Mikill viðbúnaður vegna
hótana kvennamorðingjans
I^ed8. 28. nóv. — AP.
MIKILL viðbúnaður er nú I
Leeds í Englandi vegna hótana
kvennamorðingjans illræmda,
Yorkshire-ripper um að láta til
skarar skríða þar bráðlega.
Varasveitir lögreglunnar fara
eftirlitsferðir um göturnar á
næturnar og yfirstjórn lögregl-
unnar hefur tilkynnt að allir geti
átt von á því að verða stöðvaðir
og látnir gera grein fyrir ferðum
sínum. Lögreglusveitir í fimm
öðrum borgum í norðurhluta
Englands eru einnig á varðbergi.
Sérstök nefnd, skipuð fimm
úrvals lögreglumönnum og
réttarlækni, kom saman í fyrsta
skipti í dag til þess að skipu-
leggja öryggisráðstafanirnar.
Formaður hennar, James
Hobbson, sem er jafnframt yfir-
maður leynilögreglunnar í
Leeds, sagði að rumlega 5000
lögreglumenn í vestur-Yorkshire
myndu taka þátt í aðgerðunum,
sem vonast er til að muni leiða
til handtöku Yorkshire-ripper,
eins þekktasta fjöldamorðingja
okkar tíma.