Morgunblaðið - 29.11.1980, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
23
Ásmundur Stefánsson, nýkjörinn forseti ASÍ:
Samstarfið
mun veröa gott
„ÉG VIL leggja áherzlu á,
að ég heí staríað mjög náið
með forsetum sambandsins
á undanförnum árum,“
sagði Ásmundur Stefáns-
son, nýkjörinn forseti Al-
þýðusambands íslands í
samtali við Morgunblaðið í
gær, er hann var spurður að
því, hvort kjör hans myndi
valda miklum breytingum
innan ASÍ. „Ég var ráðinn
til sambandsins 1974 og var
kominn í starf stuttu áður
en Björn Jónsson kom til
baka úr ráðherrastól. Ég
starfaði því með Birni, en
þegar hann veiktist tók ég
við framkvæmdastjórastarfi
og starfaði með Snorra sem
forseta.“
„Þessir menn báðir hafa
verið miklir lærifeður og ég
hef á margan hátt verið í
skóla hjá þeim á undanförn-
um 7 árum. Þetta hlýtur að
hafa mótað mig og mín
vinnubrögð. Hitt er annað
mál að hver einstaklingur
hefur sitt starfsform og
vinnubrögð geta að einhverju
leyti orðið önnur."
Morgunblaðið spurði þá
Ásmund, hvernig honum lit-
ist á þá miðstjórn, sem hann
hefði með sér við þessi störf.
Hann svaraði: „Á það ber
auðvitað að benda, að á þessu
þingi er ekki aðeins skipt um
forystu sambandsins, heldur
láta nú 9 miðstjórnarmenn
af störfum. Þess vegna er ég
ekki eini nýliðinn, sem kem-
ur í miðstjórn. Þetta fólk er
engir nýgræðingar innan
sambandsins og ég hef góða
reynslu af samstarfi við það.
Ég hlýt því að geta fullyrt,
að samstarfið muni verða
gott. Ég vil sérstaklega
tengja þessi orð Birni Þór-
hallssyni, en með okkur hef-
ur verið náið samstarf.
Okkur hefur gengið mjög vel
að vinna saman við þau
verkefni, sem við höfum átt
við sameiginlega.
Morgunblaðið spurði Ás-
mund, hvað hann vildi segja
um þá fullyrðingu, að stjórn
ASÍ væri með sama mynstri
og stjórn landsmála. Hann
sagði: „Við Björn Þórhalls-
son fáum mjög svipað fylgi í
atkvæðagreiðslu og í þessu
sambandi er væntanlega ver-
ið að tala um kjör okkar
Björns. Það er mitt mat, að
við höfum báðir fengið fylgi
frá öllum pólitískum og fag-
legum hópum innan Alþýðu-
sambandsins, þannig að það
mikla atkvæðamagn, sem
okkur hefur fallið í skaut í
þessari kosningu endurspegl-
ar almennan vilja til sam-
starfs milli hópanna. Það er
fullkomlega ljóst, að meiri-
hluti alþýðuflokksmanna
hefur kosið Karvel Pálmason
gegn mér og Jón Helgason
gegn Birni, en ég tel ekki að
það muni valda neinum sam-
skiptaerfiðleikum. Ég hef átt
mjög gott samstarf við al-
þýðuflokksmenn innan sam-
bandsins. Mér er ljóst, að
ýmsir þeirra hafa kosið mig
og ég túlka úrslit kosn-
inganna sem kröfu alls þessa
fólks um að samtökunum
verði samfylkt, en ákvarðan-
ir hvorki teknar frá þröngum
faglegum né pólitískum sjón-
armiðum."
Að lokum var Ásmundur
spurður um efnahagsráðstaf-
anir ríkisstjórnarinnar og
hvernig hann liti á það, að
þær hefðu ekki fengizt lagð-
ar fyrir ASÍ-þing. Hann
sagði: „Mér finnst það miður.
Ég hefði talið það vera mjög
mikils virði, ef unnt hefði
verið að gera þingfulltrúum
grein fyrir, hvað stjórnvöld
ætlast fyrir í þeim efnum."
Sjö fyrirlestrar
á norrænu mál-
þingi um heimspeki
NORRÆNT málþing um heim-
speki hefst í Reykjavík i dag og
lýkur á mánudagskvöld eins og
sagt var frá í Mbl. í gær. Verða
þar fluttir ýmsir fyrirlestrar og
er dagskráin, sem er opin al-
menningi, sem hér segir:
Kl. 9:00 í dag flytur Mats
Furuberg fyrirlestur í hátíðasal _
Háskólans og kl. 16:30 flytur
Dagfinn Föllesdal fyrirlestur í
Norræna húsinu. Á sunnudag kl.
9:30 er fyrirlestur Uffe Juul Jen-
sen í stofu 101 í húsi lagadeildar
og kl. 14 er fyrirlestur Charles
Taylor í hátiðasal Háskólans.
Klukkan 16:15 er fyrirlestur
Þorsteins Gylfasonar í stofu 101 í
húsi lagadeildar. Á mánudag kl.
9:30 er fyrirlestur Lauri Routila í
Norræna húsinu og kl. 16:30 flytur
Charles Taylor fyrirlestur í
hátíðasal Háskólans.
Málverkauppboð
á Seltjarnarnesi
Á morgun kl. 15 verður haldið
málverkauppboð í Félagsheimil-
inu á Seltjarnarnesi og hefst það
kl. 15. Allur ágóði af sölu mál-
verkanna rennur í kirkjubygg-
ingarsjóð.
Það eru félagar úr Listaklúbbi
Seltjarnarness sem gefið hafa
verk sín á uppboðið til fjáröflunar
fyrir kirkjubyggingu í bænum.
Kirkjudagur á Sel-
tjarnarnesi á morgun
í kaupstaðnum kirkjulausa,
hinum eina á landinu, sem svo er
ástatt um, er engu að síður
haldinn kirkjudagur á sunnudag-
inn kcmur, hinn fyrsta í aðventu.
Það kann að mega segja, að
kaupstaðarbúar geti sótt sér við-
eigandi hugblæ í aðventubyrjun,
ef þeir vilja svo, í grannkirkju.
Hinsvegar hefur svo verið um
árabil, að kirkjulegt starf hefur
verið að festa rætur í kaupstaðn-
um sjálfum og er nú svo komið, að
upphaf kirkjusmíði er í augsýn.
Enn um sinn er það félagsheimil-
ið, sem gert er að kirkju hverju
sinni, með þvi orði sem þar er
flutt, en þeir eru ýmsir, sem álíta
að eins og Seltirningar voru sjálf-
um sér nógir um Guðshús um
aldir, á meðan kirkja stóð í Nesi,
þannig skuli kaupstaðurinn eign-
ast sinn eigin helgidóm að nýju,
ekki síst, þar sem byggðin er orðin
svo blómleg, sem raun ber vitni og
keppst er við að hýsa alla þá
þjónustu heimavið, sem hverju
bæjarfélagi er álitin nauðsyn.
Kirkjudagurinn í ár, er því sem
áskorun til bæjarbúa að sýna í
verki að trúariðkun skuli fá sitt
varanlega skjól í bænum aftur og
um leið eins og tákn þess hvað
menn vilja að hæst beri í skiptum
fólks í samfélaginu, ávextir af
boðun kristinnar trúar, eða eitt-
hvað annað, sem þarfara er að hlú
að og ná samstöðu um.
Kirkjudagurinn hefst með guðs-
þjónustu í félagsheimilinu kl. 11
árdegis. Kór sóknarinnar syngur
undir stjórn Sighvats Jónassonar.
Einsöngur: Þórður Búason. Nem-
endur úr Tónlistarskóla Seltjarn-
arn. leika á strengjahljóðfæri við
upphaf guðsþjónustunnar.
Árlegur basar byrjar í félagsh.
kl. 15 (Kl.3). Þar verður að venju
laufabrauð á boðstólum, auk fleira
gcðmetis, sem mörgum hefur und-
anfarin ár þótt hagkvæmt að
tryggja sér fyrir komandi hátíð.
Kvölddagskrá kirkjudagsins
hefst síðan á sama stað kl. 8.30.
Efnisskrá: Skólakór Seltjarnarn.
syngur. Stjórnandi: Hlín Torfa-
dóttir. Guðni Guðmundsson rekt-
or MR flytur erindi. Guðrún Ás-
mundsdóttir leikkona flytur hug-
vekju. Einsöngur: Frú Jóhanna
Möller, við undirleik Jónínu Gísla-
dóttur.
Að lokinni dagskrá er boðið upp
á veitingar.
Það er einlæg von þeirra vina-
samtaka, sem að verki standa
þennan dag, að sem flestir sjái sér
fært að njóta samveru og samfé-
lags og um leið leggja því máli lið,
sem megnar að veita auðnu og
blessun inn í framtíð vaxandi
byggðarlags.
Guð gefi okkur heill til að
fjölmenna.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Það er stutt
til jóla...
ef þú ætlar að mála áður!
Með Spred Satín færðu mjúka silkiáferð á veggina.
Málningu sem auðvelt er að mála með og auðvelt
er að þrífa. Málningu sem þekur vel og er sterk.