Morgunblaðið - 29.11.1980, Síða 24

Morgunblaðið - 29.11.1980, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 Útgefandi wrWafoifo hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 5.500.00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 280 kr. eintakið. Styrkur sjálfstæðismanna í launþegasamtpkum kom fram á ASI-þingi Niðurstöður kosninga á ASÍ-þingi í fyrrakvöld voru athyglisverðar á ýmsan hátt. Stuðningsmenn þeirra tveggja stjórnmálaflokka, Alþýðubandalags og Alþýðuflokks, sem stóðu fyrir herferðinni „samning- ana í gildi“ 1978 hafa nú tveimur fulltrúum færra í miðstjórn ASI en þeir höfðu áður. Annar helzti persónugervingur þeirrar herferðar, Karl Steinar Guðnason, á ekki lengur sæti í miðstjórn Alþýðusambands Islands. Þá vekur athygli, að Alþýðubandalagið er nú ótvírætt í minnihluta í miðstjórn Alþýðusambands Islands, stuðningsmenn lýðræð- isflokkanna þriggja eru þar í meirihluta og geta beitt honum, ef þörf krefur. Þau tíðindi gerðust nú á ASÍ-þingi, að sjálfstæðismaður er í fyrsta sinn kjörinn í aðra af tveimur æðstu trúnaðarstöðum ASI. Björn Þórhallsson, sem kjörinn var varaforseti Alþýðusambands íslands, á að baki langt starf í launþegahreyfingunni, í félagasamtökum verzlunarmanna og hann á einnig sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins. í miðstjórn ASI voru einnig kjörnir tveir framámenn sjálfstæðismanna í verkalýðshreyfingunni, þeir Guðmundur Hallvarðsson, varaformaður Sjómannasambands Islands, og fulltrúi verkamanna, Hilmar Jónasson, sem er náinn samstarfsmaður Sigurðar Óskarssonar, formanns Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins. Mikill styrkur sjálfstæðismanna í verkalýðshreyfingunni kemur fram í þessari kosningu og fjölda stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins á ASÍ-þingi, þar sem þeir voru annar fjölmennasti hópurinn. Staða Sjálfstæðisflokksins sem annars stærsta launþegaflokks þjóðarinnar stendur óhögguð. Þessi sterka staða er ekki sízt komin til vegna mikils starfs nokkurra forystumanna Sjálfstæðisflokksins í verkalýðshreyfing- unni. A engan er hallað þótt þar séu nefndir þeir Pétur Sigurðsson, sem veriö hefur forystumaður sjómanna um áratugaskeið og hlaut mikla traustsyfirlýsingu á þingi Sjómannasambands Islands á dögunum, og Guðmundur H. Garðarsson, sem gegndi forystustörfum í stærsta launþegafélagi landsins á þriðja áratug og hefur óumdeilanlega haft forystu um að bæta úr mesta misrétti okkar tíma, misréttinu í lífeyrismálum. Báðir þessir menn hafa áður átt sæti í miðstjórn ASÍ og framlag þeirra beggja til launþegastarfs sjálfstæðismanna er ómetanlegt. Skiptar skoðanir voru meðal sjálfstæðisn anna á ASI-þingi um það, hvort vinna ætti með alþýðubandalagsmönnum eða alþýðuflokksmönnum í kosningum á ASI-þingi. Þessi skoðanamunur endurspeglar á margan hátt viðbrögð margra sjálfstæðismanna, þegar hreyft var hér í Morgunblaðinu fyrir tæpu ári hugmynaum um stjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks og Alþýðubandalags. Forsendur slíks samstarfs af hálfu sjálfstæðismanna hlutu alltaf að vera þær, að sjálfstæðismenn tækju þátt í því með fullum styrk. Svo er ekki í núverandi ríkisstjórn og niðurstaðan er sú, að kommúnistar ráða þar ferðinni í einu og öllu. Reynslan af þátttöku Alþýðuban'Salagsins í ríkisstjórn bendir ótvírætt til þess, að það sé ekki til viðtals um raunhæfar aðgerðir í efnahagsmálum og margt bendir til, að pólitísk einangrun þess sé skammt undan. Reynslan á eftir að sýna, hvernig alþýðubandalagsmenn í miðstjórn ASI munu starfa undir forystu Asmundar Stefánssonar. Fyrirfram er ástæðulaust að ganga út frá því sem vísu, að hinn nýkjörni forseti ASÍ verði handbendi ráðherra Alþýðubandalagsins á eyðimerkurgöngu þeirra. Raunar er vitað, að engir kærleikar eru með honum og nýkjörnum formanni Alþýðuband- alagsins, Svavari Gestssyni. En alla vega er til staðar í miðstjórn ASI meirihluti lýðræðissinna, ef þörf krefur og forseti ASI gerir tilraun til að misnota samtökin í þágu flokkshagsmuna Alþýðubandalagsins. Þeir sjálfstæðismenn á ASÍ-þingi, sem vildu samstarf við Alþýðuflokk- inn í kosningum höfðu, fyrir því sterk rök og langa hefð. Sameiginlega hafa sjálfstæðismenn og alþýðuflokksmenn skapað mótvægi gegn áhrifum kommúnista í verkalýðssamtökunum. Full samstaða milli stuðnings- manna þessara tveggja flokka á ASÍ-þingi hefði komizt langt með að tryggja kjör lýðræðissinna í forsetastól ASÍ. Alþýðuflokksmenn höfðu mikinn hug á slíku samstarfi nú. En á ASÍ-þingi fyrir fjórum árum, árið 1976, var afstaða þeirra önnur. Þá rufu þeir áratugasamstarf við sjálfstæðismenn í verkalýðshreyfingunni og gerðu bandalag við kommún- ista með þeim hætti að eftir er munað. Þetta samstarf náði hámarki með stjórnarmynduninni 1978. Þeir atburðir allir voru með þeim hætti, að margir sjálfstæðismenn í verkalýðshreyfingunni hafa verið tregir til samstarfs við alþýðuflokksmenn á þessu þingi ASÍ. Það er hins vegar gagnlegt fyrir bæði sjálfstæðismenn og alþýðuflokksmenn í verkalýðs- samtökunum að hafa í huga, að staða kommúnista í verkalýðshreyfing- unni er að verða svo veik, að þeir halda tæpast stöðu sinni þar nema annað hvort í samstarfi við sjálfstæðismenn eða alþýðuflokksmenn. Meginstefn- an hlýtur að vera sú, að lýðræðissinnar taki höndum saman í verkalýðssamtökunum, þótt mal hafi skipast svo nú og fyrir fjórum árum að stuðningsmenn beggja þessara flokka hafi hver með sínum hætti gengið til samstarfs við alþýðubandalagsmenn. Því mun verða haldið fram í umræðum um kosningar á ASÍ-þingi, að skoðanamunur meðal sjálfstæðismanna þar endurspegli mismunandi afstöðu þeirra til núverandi ríkisstjórnar. Sú skýring er út í hött en þessari staðhæfingu verður bezt svarað með því að vitna til ummæla Björns Þórhallssonar, varaforseta ASÍ, í samtali við Morgunblaðið í gær er hann segir að þessar kosningar til ASÍ séu í engum tengslum við ríkisstjórnarmynztrið. Um það þarf ekki að hafa fleiri orð. A næstu mánuðum reynir mikið á nýkjörna forystu ASÍ. Framundan eru örlagaríkir tímar í efnahagsmálum landsmanna. Búast má við aðgerðum ríkisstjórnarinnar eftir áramót. Þá kemur í ljós, hvort Alþýðusamband íslands •*r sjálfu sér samkvæmt eða ekki. Fyrir tæpum þremur árum skipulagði ASÍ herferð gegn löglega kjörinni ríkisstjórn og náði þeim árangri að koma henni frá völdum. Síðan hafa setið ríkisstjórnir, sem skert hafa kaupgjaldsvísitöluna án þess að ASÍ hafi hreyft mótmælum. Nú eftir áramótin verðum við komin í heilan hring. Ráðherrar stærsta stjórnarflokksins hafa krafizt skerðingar á kaup- gjaldsvísitölu. Hver verða viðbrögð ASÍ? Þá kemur í ljós, hvort stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar í miðstjórn ASÍ taka faglega afstöðu til mála eða hvort flokkspólitisk afstaða ræður ferðinni. Pálmi Hloðversson hefur á siðustu vikum skipulagt mat- væladreifingu i um 30 skóla i Karamoja-héraðinu i Uganda og þessa mynd tók hann i einum þeirra. þess, að í henni er greinilega ruglað saman hjálparstofnun- um eins og Rauða krossinum, og svo stofnunum á borð við Matvælaaðstoðina við þróun- arlöndin, World Food Pro- gram. Hún er líka villandi vegna þess, að í henni eru fullyrðingar á borð við þá, sem fram kemur í undirfyrirsögn hennar, fullyrðingar, sem eng- an veginn fá staðist. Loks er þess að geta, að núna, tveimur mánuðum eftir tilefni „fréttarinnar" í Aft- enposten gafst blaðamönnun- um norsku, hefur tekist að koma á allgóðu skipulagi í Uganda, meira að segja í Kara- moja-héraðinu, og á Pálmi Hlöðversson ekki hvað minnst- an þátt í því, að nú fá skóla- börn þar reglulega mat, og annast Pálmi sjálfur matvæla- dreifinguna á þessum slóðum. Hann hefur síðustu vikur séð um að færa skólabörnum í um 30 skólum mat, og segir í einu Jón Ásgeirsson: .. — ■ ■ ■ - % Ósanngjörn og villandi frétt ÞAÐ hendir ekki Morgunblað- ið oft að birta gamlar fréttir, en i gær bar svo við, að á forsiðu blaðsins er siegið upp slíkri frétt frá fréttaritara Mbl. i Ósló. Þar er vitnað í „samtal" Pálma Hlöðverssonar, starfs- manns Rauða krossins, sem norskir blaðamenn við Aften- posten eiga að hafa átt við hann þar sem ’nann er við hjálparstörf í Uganda. í undirfyrirsögn greinarinn- ar er kveðið svo sterkt að orði, að nauðsynlegt er að gera athugasemd. Fréttin er gömul. Pálmi Hlöðversson var nýkominn til Uganda þegar norskir blaða- menn frá Aftenposten komu þar við. Hefur Pálmi sagt frá komu þeirra í bréfum til Rauða kross Islands. Fyrst eftir komu Pálma til Karamoja-héraðsins í Uganda var neyðin þar gífurleg, og allt hjálparstarf ilia skipulagt og ófullnægjandi. Það er einmitt þá, sem blaðamennina ber að garði, þegar Pálmi er önnum kafinn við að koma á skipulagi á þessum slóðum, en eins og reyndar kom fram í frétt Mbl. í gær, þá eru allar aðstæður afar erfiðar á þessum slóðum og samgöngur vondar. Það er auð- vitað hverjum þeim ljóst, sem les greinina af athygli, að einmitt vegna þess að ástandið er ófullnægjandi, og þúsundir svelta, lagði Rauði kross Is- lands á það höfuðáherslu þegar í upphafi söfnunarinnar hér, að héðan færi sendifulltrúi til þess, annars vegar að vinna hörðum höndum að sjálfu hjálparstarfinu, og hins vegar til þess að koma á betra skipulagi en ríkti þarna áður. Þetta var margítrekað í upp- hafi söfnunarinnar, og oft síð- an. Fréttin er ósanngjörn. Hún er það fyrst og fremst vegna allra þeirra, sem lögðu fram fé til Afríkuhjálparinnar í þeirri vissu að hjálpin bærist til réttra aðila, en draga nú ef til vill í efa eftir lestur greinar- innar, að svo sé í raun og veru. Fréttin er villandi vegna bréfa sinna til Rauða kross íslands, að enda þótt allt gangi vonum framar, þá sé hann enn á eftir áætlun — það vanti meiri mat, og það vantar fleira fólk til hjálparstarfanna. Að endingu má svo bæta því hér við, að stundum þarf að taka „fréttir" frá sultarsvæð- unum í Afríku með fyrirvara. Þannig var t.d. eigi alls fyrir löngu fólk frá vestur-þýskri sjónvarpsstöð statt í Kara- moja, og sem Pálmi kom þar með fullan bíl af korni þá tóku sjónvarpsmenn í lófa sína korn af bílpallinum og hentu fyrir framan börnin, sem drifið hafði þar að. Eins og fyrir hænsni. Þessir banhungruðu vesalingar slógust auðvitað um kornið á götunni, og kvikmynd- uðu þá sjónvarpsmenn í gríð og erg og hentu gaman að. Við íslendingar getum verið stoltir af því að hafa lagt fram fé til handa sveltandi fólki, og við getum líka verið vissir um það, að með því hefur mörgum verið bjargað frá því að verða hungurmorða. Þetta er húsið sem Pálmi býr í. Hann byrjar daginn klukkan hálf sjö á morgnana með því að þvo þvott. Síðan er morgunbæn hjá föðru Elia, og siðan eru verkefni dagsins undirbúin. Venjulega fer Pæalmi til 4—6 þorpa á dag með mat handa skólabörnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.