Morgunblaðið - 29.11.1980, Page 31
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
31
Arnar Jónsson, Hákon Waage og Gunnar Eyjólfsson í hlutverkum
sinum í „Nóttu og degi“.
A FJOLUNUM:
,JVótt og dagur“
í Þjóðleikhúsinu
Pepsi-skemmtun
í Regnboganum
Á MORGUN kl. 13 gengst gos-
drykkja- og aldingerðin Sanitas
hf. fyrir barnaskemmtun —
Pepsí-skemmtun — í A-sal Regn-
bogans í tilefni af 75 ára afmæli
fyrirtækisins.
Boðið verður upp á teiknimynd-
ir og myndir um knattspyrnuhetj-
una Pele.
Aðgangur er ókeypis. Við inn-
ganginn fá börnin ókeypis happ-
drættismiða og í hléi fá þau
veitingar sér að kostnaðarlausu.
NÝJA GALLERÍIÐ:
Magnús Þórarins-
son opnar sýningu
í DAG opnar Magnús Þórarins-
son sýningu á verkum sinum í
Nýja galleriinu að Laugavegi 12.
Á sýningunni eru rúmlega 50
olíu- og vatnslitamyndir, aðallega
landslagsmyndir. Áð auki sýnir
Magnús 60 ámálaða platta úr tré
úr Hallormsstaðarskógi — í til-
efni af ári trésins. Sýningin stend-
ur til 12. desember og er opin frá
kl. 10—12 og 13—17 daglega, nema
fimmtudaga, en þá er opið til kl.
22.
Frá sýningu Magnúsar Þórar-
inssonar sem opnuð verður i dag
í Nýja galleriinu, Laugavegi 12.
1 KVÖLD og annað kvöld sýnir
Þjóðleikhúsið Nótt og dag eftir
Tom Stoppard, en það var frum-
sýnt á fimmtudagskvöld.
Leikritið er spennandi og hnytt-
ið, en það fjallar í aðalatriðum um
blaðamennsku og gerist í ímynd-
uðu Afríkuríki þar sem borgara-
styrjöld er á næsta leiti. Gísli
Alfreðsson er leikstjóri og leik-
myndin er eftir Gunnar Bjarna-
son. Með hlutverk fara Arnar
Jónsson, Hákon Waage, Gunnar
Rafn Guðmundsson, Anna Kristín
Arngrímsdóttir, Gunnar Eyjólfs-
son, Róbert Arnfinnsson, Randver
Þorláksson og Valdimar Hannes-
son.
Þá sýnir Þjóðleikhúsið á Litla
sviðinu leikrit Valgarðs Egilsson-
ar sem vakið hefur mikla athygli
og hefur verið uppselt á allar
sýningarnar hingað til. „Dags
hríðar spor“ nefnist leikritið.
Leikstjóri er Brynja Benedikts-
dóttir en leikmynd gerði Sigurjón
Jóhannson.
Síðustu sýning-
ar á Óvitum
I dag og á morgun verða síðustu
sýningarnar á Óvitum, barna-
leikriti Guðrúnar Helgadóttur.
Leikritið var frumsýnt fyrir réttu
ári síðan og hafa einungis leikir
Torbjörns Egners fundið meiri
hljómgrunn meðal íslenskra
barna til þessa. Foreldrar og
annað fullorðið fólk hefur.einnig
sótt þessa sýningu vel, enda á
leikritið erindi til allra með boð-
skap sinn. Leikstjóri Óvita er
Brynja Benediktsdóttir og leik-
myndin er eftir Gylfa Gíslason.
Með stærstu hlutverkin fara Sig-
urður Skúlason, Randver Þor-
láksson, Saga Jónsdóttir, Halldóra
Geirharðsdóttir, Hreiðar Ingi
Júlíusson, Margrét Örnólfsdóttir,
Hermann Stefánsson, Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir, Guðrún
Glódís Gunnarsdóttir og Benedikt
Erlingsson.
VISNAVINIR A AKUREYRI:
Halda tónleika og vísnakvöld
Þessi mynd var tekin af fjórum Vísnavinum á Austfjarðareisu 1978, f.v.:
Gisli Helgason, Jakob S. Jónsson, Guðmundur Árnason og Hanne Juul, en
hún var aðalhvatamaður að stofnun félags Vísnavina.
í KVÖLD kl. 20 gangast Vísnavin-
ir fyrir tónleikum og visnakvöldi i
Dynheimum á Akureyri.
Önnur samkoma þeirra nyrðra
verður í Sjálfstæðishúsinu kl. 16 á
morgun. Ferð þessi er öðrum þræði
farin í því skyni að stofna félag
vísnavina á Akureyri, ef áhugi
heimamanna reynist vera fyrir
hendi.
Meðal þeirra sem fram koma á
þessum samkomum Vísnavina eru
Bergþóra Árnadóttir, Texas-tríóið
sem leikur sveitasöngva, Jóhannes
Hilmisson sem syngur gamanvísur
eftir föður sinn, Hilmi Jóhannes-
son, og væntanlega eftir sjálfan sig
einnig, og Ásberg Sigurðsson sem
flytur frumsamið efni.
Jerker Engblom
NORRÆNA IIÚSIÐ:
Sœnskur vísnasöngv-
ari í Norræna húsinu
SÆNSKI vísnasöngvarinn Jerker Engblom kcmur fram i Norræna húsinu
á morgun kl. 17, og syngur þá m.a. lög eftir Bellmann, Evert Taube og
Birger Sjöberg.
Jerker Engblom býr í Karlstad og kennir sænsku við menntaskóla þar.
Hann var lengi lektor í sænsku við háskólann í Pennsylvaníu. En jafnframt
kennarastarfi sínu hefur hann lengi komið fram sem vísnasöngvari og er
þekktur í heimalandi sínu og erlendis sem ágætur Bellmann- og Birger
Sjöberg-túlkandi. Hann hefur sungið inn á hljómplötur og oft komið fram í
útvarpi og sjónvarpi í Svíþjóð.
Súningar um helgina
Kjarvalsstaðir: Jón E. Guð-
mundsson sýnir höggmyndir
úr tré, málverk, vatnslita-
myndir og teikningar í austur-
sal. Sýningunni lýkur annað
kvöld. Guðmundur Björgvins-
son sýnir 55 pastelteikningar
og 45 prentlita- og tússmyndir
í vestursal. Sýningunni lýkur
annað kvöld.
Listasafn íslands: Yfirlits-
sýning á verkum Svavars Guð-
nasonar. Sýningunni lýkur
annað kvöld.
Norræna húsið: Finninn
Pentti Kaskipuro sýnir grafík-
myndir í anddyri. Sýningunni
lýkur annað kvö.d.
Galleri Langbrók: Sigrún
Eldjárn sýnir blýantsteikn-
ingar með vatnslitaívafi. Sýn-
ingin er opin virka daga frá kl.
12—18 og stendur til 5. des-
ember. Ennfremur verður opið
þar í dag og á morgun frá kl.
• 14-18.
Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3B.
Bókasýning. Sýndar bækur
eftir 100 listamenn, bæði úrval
íslenskra bóka sem Árni Ing-
ólfsson hefur valið, og úrval
frá „Other books an so,“ safn-
búð í Amsterdam. Opið frá kl.
16—20 á virkum dögum, en
14—20 um helgar. Sýningin
stendur til 14. desember.
Asmundarsalur: Jörundur
Pálsson sýnir 40 vatnslitam-
yndir og 5 eftirprentanir. Sýn-
ingin er opin frá kl. 14—21
daglega og stendur til þriðju-
dags, 2. desember.
Epal, Síðumúla 20. Textil-
hópurinn sýnir tauþrykk. Sýn-
ingin stendur fram í miðjan
desember. Opið í dag frá 10—
12, en annars á verslunartíma.
Bergstaðastræti 15: Þýski
myndlistamaðurinn Rudolf
Weissauer sýnir vatnslita-,
pastel- og grafíkmyndir. Sýn-
ingin er opin frá kl. 14—18 alla
daga um óákveðinn tíma.
Eitt af verkum Sigrúnar Eldjárn á sýningu hennar i Galleri
Langbrók. Um myndir sinar segir Sigrún m.a.: „Grunntónninn á
bak við myndirnar er þó kannski sá að draga fram jákvæðar og
bjartsýnislegar hliðar á umhverfinu og smáatriðum sem koma
fólki við
Sýningu Jóns E. Guðmundsson-
ar í austursal Kjarvalsstaða
lýkur um helgina. Hann sýnir
þar höggmyndir úr tré, mál-
verk, vatnslitamyndir og teikn-
ingar. En þekktastur er Jón
fyrir brúðuleikhúsið. Um það
sagði hann m.a. í viðtali við
Mbl.: „Ég byrjaði að sýna hér
heima i Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu, árið 1954, og átti
erfitt uppdráttar í byrjun.
Menn héldu að ég væri eitthvað
skrýtinn að vera að stússa i
þessu. En úr þvi hefur ræst, og
ég vona að brúðuleikhús fái
fastan sess i framtiðinni hérna
hjá okkur. Hvarvetna erlendis
þykir sjálfsagt að hafa sérstak-
an sal fyrir slika starfsemi i
öllum meiri háttar myndlistar-
húsum.“
Guðmundur Björgvinsson á sýningu sinni í vestursal Kjarvals-
staöa.