Morgunblaðið - 29.11.1980, Page 38

Morgunblaðið - 29.11.1980, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980 Minning: Finnbogi Bemódus- son Bolungarvík Mánudaginn 17. nóvember var gerð frá Hólskirkju í Bolungarvík útför Finnboga Bernódussonar, en hann lést í Landakotsspítala 6 dögum fyrr, 88 ára að aldri. Mig bar fyrst að garði Finnboga fyrir tveim áratugum og tókust þá þegar með okkur góð kynni, sem urðu nánari síðar með heimsókn- um og tíðum bréfaskiptum. Haustið 1967 dvaldi ég um þriggja vikna skeið hjá Finnboga við að lesa og kanna dagbækur hans, sem hann hafði þá haldið í 53 ár. Sesselja Sturludóttir, kona hans, var þá látin fyrir 4 árum, öll börnin flogin úr hreiðrinu og hann orðinn einbúi. Það kom því eins og af sjálfu sér, að við tækjum upp spjall hvert kvöld að lokinni dags- önn. Margs varð ég vísari um Finn- boga og æviferil hans af dagbók- unum, en í þá mynd af honum bættust margir drættir á kvöld- vökum okkar, svo að hún var auðgreinileg, enda manninum annað geðþekkara en að fara að tjaldabaki. — Ég hafði orð á því við Finnboga, að hjá honum hefði hlotið að vera þrautabarningur við að koma öllum hópnum vel til manns, en börn þeirra hjóna urðu 13. Hann vildi lítið úr því gera, sagði aðeins, að Sesselja sín hefði dugað svo vel undir árum, að hann hefði aldrei örvænt um slysalausa lendingu, þrátt fyrir treggjaldana. Finnbogi var bráðvel gefinn, hafði stálminni, sagði vel og skipulega frá og átti svo auðvelt með að halda á penna, að telja mátti, að hann hefði góðan stíl. Hann byrjaði ungur „að fara í rag“ — heimsækja vermenn í verbðum og nema af vörum þeirra margs konar fróðleik. Dagbók sinni trúir hann m.a. fyrir svo felldri lýsingu: „Mjög stunduðu margir búðar- ráp og setur. Sagðar voru sögur, kveðist á, lesnar sögur og kveðnar Hrafnhildur Sigurð- ardóttir - Minning Fædd 3. ágúst 1939. Dáin 9. nóvember 1980. Það var hringt til mín fimmtu- dagskvöldið 20. nóvember, það var elsta dóttir mín sem býr í Ólafs- vík, hún sagði: „Ég var að lesa í dagblaði í gær, að Dissa skólasyst- ir þín væri dáin.“ Eins og fleirum varð mér á að segja: „Það getur ekki verið satt, þú hlýtur að vera að taka feil.“ Þá las hún fyrir mig greinina og það var ekki undan því komist að trúa því sem þar stóð, það var hún. Síðan hef ég ekki getað fest hugann við neitt annað svo mér kom í hug að minnast vinkonu minnar og skólasystur með nokkrum orðum, þó orð verði aldrei annað en veikur tónn af þeim minningum sem mér eru efst í huga, en það voru þær ógleyman- legu móttökur og greiðasemi sem einkenndu alla hennar framkomu. A hennar heimili gat maður verið eins og heima hjá sér, hún kom til dyranna eins og hún var klædd, var ég oft næturgestur á hennar heimili ýmist ein eða með alla fjölskylduna, því þar sem er nóg hjartarúm er ávallt rúm. Eins var þegar ég kom út af sjúkrahúsi í Hafnarfirði í mínum veikindum, þá sendi hún nágrannakonu sína eftir mér því hún komst ekki sjálf, þannig var hún alltaf tilbúin að hjálpa þeim sem til hennar leit- uðu. Leiðir okkar lágu fyrst saman í húsmæðraskólanum Ósk á ísa- firði, þar var hún yngsti nemand- inn, aðeins sextán ára. Tókst þar með okkur góður vinskapur, síðan skildu leiðir um tíma, seinna þegar við vorum báðar giftar og búsettar í Reykjavík heimsóttum við oft hvor aðra. Við áttum jafn mörg börn sem öll voru á svipuð- um aldri og minnist ég þess þegar drengirnir okkar voru að striplast og sulla saman í ánni, við húsið sem ég bjó í um tíma. Eftir að ég fluttist út á land og lengra varð á milli okkar héldum við alltaf sambandi með heimsóknum öðru hvoru. Alltaf var jafn gott að koma til Dissu og gista eftir erilsaman dag t Elskuleg systir okkar, SOLVEIG ARNADOTTIR Byggöarenda 22, lézt á Landspítalanum aöfaranótt 28. nóvember. Margrót Árnadóttir, örn Arnason, Jón Árnason, Ólafur Árnason. - t Faöir okkar, EINAR G. SKÚLASON fró ísafiröi, andaöist 27. nóvember sl. á Borgarspítalanum Geir Einarsson, Skúli Einarsson. t Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og hlýhug við andlát og jaröarför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, ODDNYJAR ÁSGEIRSDÓTTUR Árni Sófusson, Edda Olafsdóttir, Stefanía Sófusdóttir, Jón Guömundsson, Höröur Sófusson, Geirlaug Karlsdóttir, Asgeröur Sófusdóttir, Guðjón Pólsson, Jóhann Sófusson, Vala Jakobsdóttir, og barnabörn. rímur. Og í rökkrinu sagðar draugasögur og fyrirburðarsögur. Menn sögðu þætti úr eigin lífssögu eða annarra, er þeir þekktu. I öllu þessu var geipilegur fróðleikur um menn og atburði. Helsta frásagn- arefnið var um svaðilfarir á sjó og landi, ástalífssögur, hesta- og skipasögur og ferðasögur. Og ein- staka menn gátu sagt frá sigling- um sínum til annarra landa. í stuttu máli, sögur um allt í jörðu í bænum og rabba saman fram eftir nóttu. Ég hef margs að minnast frá þeim stundum, margt að þakka, og mikils að sakna. Það er erfitt að hugsa til þess að eiga aldrei eftir að sjá hana oftar. Seinast er við hittumst var hún að og á, að ógleymdum draumunum, en margir þeirra voru fróðlegir og skemmtilegir, og hef ég skrifað suma þeirra. Það var hreinasti skóli að hlýða á alla þessa menn segja frá. Ég var snemma forvit- inn og drakk í mig ógrynni af alls konar frásögnum, kvæðum og vís- um. Mér var gefið gott minni, og hefur sumt af því, sem ég hlýddi á í þessum „alþýðuskóla", loðað í minni mínu síðan. En hitt er þó stórum meira, sem ég hef gleymt, enda hefði þurft óhemju minni til að muna það allt, svo margvíslegt og margbrotið var það.“ Finnbogi hafði mjög næmt eyra fyrir torgætum orðum og orða- samböndum og sér þess víða deili í dagbókum hans. Þá er í þeim fjölmörgu bréfum, sem ég á frá honum, margt orða, einkum úr sjómannamáli, er ég þekki ekki af bókum. Þau eru ekki öll vestfirsk, því að Finnboga var einnig um- hugað að halda til haga orðafari annars staðar að. Dagbækur Finnboga, sem ná yfir 66 ár, eru ekki einungis meiri að vöxtum en flestra annarra, er sinnt hafa slíkum skrifum, því að efni þeirra sitngur einnig í stúf, svo fjölbreytt sem það er. Ég heimsótti Finnboga þrem búa sig undir að flytja til Svíþjóð- ar ásamt eiginmanni og börnum. Hún gaf mér blóm úr garðinum sínum sem hafa dafnað vel og ætlaði ég að sýna henni þau þegar hún kæmi heim aftur. Nú verða þessi blóm mér ávallt minning um stutta kvöldstund að Miðvangi 87 sem varð okkar síðasti fundur. Þó þetta sé leiðin okkar allra er alltaf jafn erfitt að sætta sig við þegar ungar og atorkumiklar manneskj- ur sem eru manni kærar hverfa svo snögglega af sjónarsviðinu. Svo enda ég þessi fátæklegu orð mín með því að votta eiginmanni hennar, börnum og ástvinum öll- um okkar innilegustu samúð og biðjum guð að styrkja þau og hugga. Af eilifdar Ijówi bjarma ber sem brautina þungu grreiðir. Vort lif, sem svo stutt og stopult er, þad stefnir á æðri leidir ok upphiminn fegr\ en augað sér mót öllum 08S faðminn breiðir. (E.B.) Gunnhildur Magnúsdóttir Minning: Jónína Arnadótt ir Sauðárkróki Fædd 4. ágúst 1893. Dáin 18. nóvember 1980. Kynslóðir koma, kynslóðir fara. Enn ein kona af aldamótakyn- slóðinni hefur kvatt þennan heim, Jónína Árnadóttir, húsfreyja í áratugi að Freyjugötu 19, Sauð- árkróki. Hana prýddu bestu eiginleikar þessarar kynslóðar, dugnaður, trúmennska, fórnfýsi, sparneytni og reglusemi. Jónína og hennar jafnaldrar hafa lifað tímana tvenna og þrenna. Engin kynslóð á Islandi hefur lifað aðrar eins breytingar og umrót á öllum sviðum, en hefur ekki látið hagg- ast og gefið lofsvert fordæmi með dyggðugu líferni. Jónína fæddist 4. ágúst 1893 að Lundi í Fljótum. Foreldrar hennar voru Árni Magnússon og Baldvina Ásgrímsdóttir. Þau fluttust síðar frá Lundi að Enni á Höfðaströnd, síðan að Kétu á Skaga og þaðan að Marlandi í sömu sveit, þar sem þau bjuggu síðast. Börn þeirra urðu 9, allt vel gefið atgervisfólk, þekktust af þeim mun vera Guð- rún frá Lundi, sem látin er fyrir allmörgum árum. Svo sem títt var þá, hlaut Jónína uppfræðslu sína og undir- búning undir lífið • að mestu í heimahúsum. Sá undirbúningur dugði henni vel. Hún var vel menntuð til hugar og handa, fylgdist af áhuga með mönnum og málefnum, las mikið, er tími gafst til og lét einarðlega í ljósi skoðan- ir sínar. Hún var fríð kona, svipmikil, rösk í hreyfingum, alúð- leg og glaðleg í viðmóti. Ung giftist hún Gísla Jóhann- essyni. Samferð þeirra varð löng og farsæl, því að jafnræði var með þeim, hvað mannkosti snerti, en Gísli lést 1974. Þau hófu búskap að Neðra-Nesi á Skaga, en fluttust fljótlega að Kleif í sömu sveit. Á þessum árum fæddust þeim þrír synir, Lýður, sem andaðist á fyrsta ári, Jóhann- es og Leifur, sem lifa móður sína. Þótt allt væri frumstætt og þau þyrftu að vinna hörðum höndum, leið þeim vel á Kleif. Þau vildu kaupa jörðina og byggja upp, en hún var ekki föl. Varð þá að ráði, að þau flyttust til Sauðárkróks. Þetta var á kreppu- og atvinnu- leysistímum, en með samstilltum dugnaði og atorku tókst þeim að hasla sér þar völl og byggja sér hús að Freyjugötu 19, þar sem þau bjuggu æ síðan meðan bæði lifðu og Jónína ein til skamms tíma. Allan þeirra búskap dvaldi hjá þeim bróðir Gísla, einnig móðir Jónínu og móðir Gísla um árabil og eftir að þau komu upp húsi sínu á Sauðárkróki, átti þar hjá þeim heimili sitt systir Jónínu. Það kom í hlut Jónínu að hjúkra öllu þessu dögum fyrir andlát hans. Hann vissi auðvitað að hverju fór og þráði umskiptin. Enn var hann þá að skrifa í dagbók sína og sagðist einungis gera það til þess að sjást mætti, hvað hann væri orðinn djöfull aumur, eins og hann orðaði það. Oft hef ég leitað í smiðju til Finnboga Bernódussonar og jafn- an farið þaðan fróðari en ég kom, og munu þess víða sjást merki í sjávarháttariti því, sem ég hef á prjónum. Ég kveð því þennan gamla og veitula vin minn með hlýrri þökk. Lúðvík Kristjánsson Bókagjöf frá erfingjum Ingvars Brynjólfssonar INGVAR G. Brynjólfsson yfir- kennari við Menntaskólann v/Hamrahlíð andaðist 28. jan. 1979, tæpra 65 ára að aldri. Hann var þýskukennari við skólann frá stofnun hans 1968, en hafði áður yerið kennari áratugum saman við Menntaskól- ann i Reykjavík. Ingvar bar hag hins nýja skóla, M.H., mjög fyrir brjósti og gaf skólanum dýrmætar bókagjafir, meðal annars þýskar þýðingar allra Islendingasagna. Að Ingvari látnum gáfu erfingj- ar hans skólanum mikið og gott safn bóka úr eigu hans, alls nær 600 bindi. Flestar eru þær á þýsku, og eru þær um margvísleg efni. Stærstur er flokkur orðabóka og ýmissa rita til þýskukennslu, einnig rit þýskra öndvegishöfunda og bækur um þýskar bókmenntir. Bækurnar voru afhentar skól- anum á síðastliðinni vorönn. Þær hafa nú verið flokkaðar og skráðar og hefur hluta þeirra verið komið upp í sýningarskápum við bóka- safn Menntaskólans við Hamra- hlíð. Verður sýningin höfð uppi fram yfir áramót og er hinum fjölmörgu nemendum Ingvars sér- staklega boðið að koma og sjá sýninguna meðan skólahúsið er opið. fólki, er heilsu þess tók að hraka, og fylgja því síðasta spölinn. Það má með sanni segja, að heimili Jónínu og Gísla lægi um þjóðbraut þvera. Vart leið sá dagur, að eigi bæri gest að garði. Kom þar hvorttveggja til, að frændlið var margt og hópur gamalla sveitunga og vina all- nokkur og svo hitt, að öllum var tekið opnum örmum. Heimilis- bragur var og þannig, að gott var þar að dvelja. Jónína var trúuð kona og lét ekki bugast af mótlæti. Fyrir nokkru fékk hún að vita, að hún ætti skammt eftir. Hún tók því með rósemi og beið örugg þess, er verða vildi. Jónína hefur nú lokið jarðlífs- göngu sinni. Gata hennar, sem flestra, var bæði rósum og þyrnum stráð. I hugum samferðamanna sinna skilur hún aðeins eftir góðar minningar og þakklæti. Sigríður Jónsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.