Morgunblaðið - 29.11.1980, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
39
Aðventuhátíð í
Bústaðakirkju
AÐVENTAN hefur fengið bjartan
og heiðan svip í hugum fjöl-
margra við það, að kirkjurnar
hafa cfnt til sérstakrar samveru
hinn fyrsta sunnudag i aðventu. í
Bústaðasöfnuði hafa slíkar sam-
komur verið haldnar allt frá
haustinu 1964 og unnið sér slikan
hefðarsess hjá fjölmörgum, að
erfitt hefur verið að finna öllum
sæti, þótt enginn hafi kvartað.
Hefur þetta ekki hvað sist átt við,
eftir að kirkjan var vigð hinn
fyrsta sunnudag i aðventu 1971.
Fyrst voru kertin litlu, sem tcndr-
uð voru við lok samkomunnar i
Réttarholtsskólanum eins og
fyrirboði þess, að kirkjan sjálf,
færðist nær með hverju árinu, en
nú eftir að Bústaðakirkja hefur
veitt hið fegursta svið fyrir til-
beiðslu og lotningu, hafa aðventu-
kertin i senn verið þakkaróður
sem fyrirheits, og því i hinu rétta
samræmi við tilgang jólaföstu. En
á sunnudaginn kemur er tiunda
aðventusamkoman i Bústaða-
kirkju.
Dagskráin er að vanda fjölbreytt
og hin vandaðasta. Um morguninn
kl. 11 er barnasamkoma ætluð allri
fjölskyldunni ekki síður en börnun-
um einum. Þar verður auk hefð-
bundinna þátta tekið á móti góðum
gestum. Síðan kl. 2 er guðsþjón-
usta, þar sem séra Auður Eir
Vilhjálmsdóttir prédikar og frú
Ingveldur Hjaltested syngur ein-
söng með kirkjukórnum. Eftir
messu býður Kvenfélagið til veislu-
borðs. Og er ekki að efa það, að
konurnar láta ekki sitt eftir liggja
til þess að gera þessi tíundu
aðventu hátíðarkvöld í kirkjunni
hin veglegastu. Eru konurnar beðn-
ar um að koma kökum sínum og
öðrum kræsingum upp í safnaðar-
heimili milli kl. 11 og 12 á sunnu-
dagsmorguninn, eða um leið og
barnasamkoman er sótt.
Aðventusamkoman sjálf hefst
síðan kl. 8.30 um kvöldið. Er þá
mikið um söng og hljóðfæraleik, en
undirbúningur og stjórn hvílir á
Guðna Þ. Guðmundssyni organista
kirkjunnar. Eru fjórir einsöngvar-
ar, sem flytja hljómlistina auk
kirkjukórsins og hljóðfæraleikara.
En ræðumaður kvöldsins er Krist-
ján skáld frá Djúpalæk, og er
fengur að því að fá hið norðlenska
skáld í borgarkirkjuna. Eftir helgi-
stundina eru síðan kertin tendruð,
en ávarpsorðin í upphafi flytur
formaður Bræðrafélagsins, Sigurð-
ur B. Magnússon.
Jólin undirbúum við í hugum
okkar, en hinn ytri undirbúningur
skiptir líka máli. Þar þarf hið rétta
jafnvægi að finnast. Aðventusam-
komur í söfnuðunum slá hina réttu
strengi og skapa þann samhljóm,
sem hámarki nær við komu sjálfr-
ar hátíðarinnar, þegar sálmarnir
óma um barnið, sem varð frelsari
manna. Verið velkomin í Bústaða-
kirkju á sunnudaginn kemur sem
endranær.
ólafur Skúlason.
Viljum kaupa síld
Erum kaupendur aö síld til frystingar. Getum lánaö
nót, ef um viöskipti er aö ræöa.
Upplýsingar í síma 99-3256.
Hraöfrystihús Stokkseyrar
Ókeypís PepSÍ btÓ
á morgun, sunnudag
I tilefni af 75 ára afmæli Sanitas veröur barnaskemmtun
30. nóvember n. k. í Regnboganum kl. 13 í sal A.
Sýndar veröa teiknimyndir ásamt myndum af Pele
og öörum Pepsi-fróðleik.
Ókeypis aögangur.
Ókeypis Pepsí.
Ókeypis happdrætti.
Vinmngar Pepsi svifdiskar o fl
Sanilay
lára
hljóp aö heiman
Marijke Reesink
Francoise Trésy gerði myndirnar
Þessi fallega og skemmtilega myndabók er
eins konar ævintýri um prinsessuna sem
ekki gat fellt sig við hefðbundinn klæönaö,
viöhorf og störf prinsessu og ekki heldur
viö skipanir síns stranga fööur, konungs-
ins. Þess vegna hljóp
hún aö heiman.
Helgi fer í göngur
Svend Otto S.
Svend Otto S. er víökunnur danskur teiknari
og barnabókahöfundur. Barnabækur hans
fara víösvegar um heiminn. Áriö 1979 gaf
AB út eftir hann barnabókina Mads og
Milalik, sögu frá Grænlandi, og hlaut hún
miklar vinsældir hinna ungu lesenda hér
sem annars staðar. Síðastliðið sumar dvald-
ist Svend Otto S. um tíma á íslandi og birtist
nú sú barnabók sem til varð í þeirri ferö.
Svend Otto S. er mikill náttúru- og
dýraunnandi eins og vel kemur fram í
bókinni um Helga, skagfirska strákinn sem
lendir í ævintýrum í göngunum viö að bjarga
kindinni. Aldrei heföi honum tekist það ef
hundurinn Lappi hefði ekki hjálpað honum.
Almenna
bókafélagid
Austurstræti 18. — Sími 25544.
Skemmuveg^6^íóp^íin^305^
Prinsessan sem