Morgunblaðið - 29.11.1980, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. NÓVEMBER 1980
45
M N J í
S? I ? fa i *!!
___wkKMmxé
VELVAKANOI
SVARAR i SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
’uhj'u
merkingu þeirra orða. Her er
„aymból" hvort sem okkur líkar
það betur eða ver. Tákn fullveldis,
öryggisventill á hættustundu,
hvort sem hann starfar við mann-
björg í náttúruhamförum eða í
stríði. Gagn heimavarnarliðs fyrir
smáþjóð er ekki síst þetta: utanað-
komandi aðili, segjum stórveldi,
verður að reikna tvö dæmi, þ.e.
viðbrögð jafningjans, sem alltaf er
annað stórveldi, og í öðru lagi
viðbrögð smáþjóðarinnar með sín-
ar heimavarnir og samstöðu, sem
fylgir í kjölfar sjálfstæðra her-
varna, þótt litlar séu. í okkar
heimshluta er síðara dæmið erfið-
ara viðureignar. Að ætla að leysa
öll öryggismál okkar, styrjalda
vegna, með einni setningu: „tsland
úr NATO“, er hörmuleg einföldun
á alvarlegu máli. Við þurfum að
losna við herinn, bandaríska, um
NATO skal ég ekkert segja. Við
þurfum að losna við þetta setulið
þarna suðurfrá, til að geta ein-
hverju ráðið um það hvenær átök
risaveldanna kynnu að hefjast hér
á landi, eða hugsanlega hvort þau
yrðu hér nokkur.
Yrði undir ís-
lenskri stjórn
Ég gæti trúað því að besta ráðið
væri fyrir okkur að taka við öllum
þessum vörnum, sem á Keflavík-
urvelli eru eða hvað það nú heitir,
eftirlit, njósnir, varnir. Við fengj-
um viðurkenndan yfirráðarétt
okkar yfir öllu þar syðra, og rétt
til að beina byssum okkar í hvaða
átt sem er, þ.e.a.s. ef einhverjir
ætluðu að koma í óleyfi. Þar á ég
auðvitað við Bandaríkjamenn. Við
værum hins vegar í NATO áfram,
ynnum sem nokkurs konar mála-
liðar hjá öllum NATO-þjóðum en
ekki einni. Vegna sérstöðu lands-
ins, ekki vegna hins margumtal-
aða fámennis eða vopnleysis, nei,
vegna hernaðarlegrar sérstöðu,
væri það engin minnkun fyrir
okkur, þótt sameiginlegur sjóður
NATO kostaði þjálfun, uppihald
og herbúnað svo sem 3000 Islend-
inga. Að sögn Bandaríkjamanna
yrði slíkt lið á við 30 þús. þeirra
sjálfra. Þótt bandalagsriki okkar
fengju án undanbragða allar upp-
lýsingar frá þessu nýja islenska
liði, yrði það undir íslenskri
stjórn.
Verðum að íá eins
til tveggja daga frest
Ég á ekki við, að við tækjum
ekki að okkar hluta þátt í stríðs-
átökum. Við verðum einfaldlega
að fá eins til tveggja daga frest
áður en við leyfum bandalagsþjóð
að stíga fæti á íslenska grund án
þess að beita byssunum gegn
henni. Við geymum ekki % hluta
Islendinga undir helsprengju. All-
ir þeir ungu íslendingar, sem nú
flækjast um heiminn, gætu með
þessu móti orðið þjóð sinni sómi,
sverð og skjöldur."
Þessir hringdu . . .
Mega bílstjór-
ar hnýsast í
einkamál far-
þega?
Farþegi hringdi og bað Velvak-
anda að koma á framfæri eftirfar-
andi fyrirspurn til félags leigu-
bifreiðastjóra: Hafa leigubílstjór-
ar heimild til að hnýsast í einka-
mál farþega sinna, t.d. með því að
beiðast svars við nærgöngulum
spurningum, hefja viðræður að
fyrra bragði eða með því að
segjast muna eftir að hafa ekið
viðkomandi farþega á þennan og
þennan stað? — Eg vil taka það
skýrt fram, að langflestir leigubíl-
stjórar eru kurteisir og orðvarir
menn og yrða aldrei á farþega
sína að fyrra bragði.
Flökrar við
eigingirninni
og frekjunni
Smári Kristjánsson hringdi í
Velvakanda og kvað tíma til kom-
inn að einhver svaraði greinum
Kjartans Norðdals. — Gunnar
Þorvaldsson gerir það í dag, en
mjög svo hógværlega. Það mætti
spyrja Kjartan og þessa háu
herra, hvort ekki sé nóg að hafa
splundrað einu félagi í eigin-
hagsmunaskyni. Ég held að nær
væri fyrir þessa menn að snúa sér
að uppbyggingu sína eigin félags
en láta Arnarflug afskiptalaust.
Mér flökrar við eigingirninni og
frekjunni í þeim.
Músík á
Melavöll
Ungur skautamaður sem sækir
fast sína íþrótt á Melavellinum
hafði samband við Velvakanda og
bað hann að koma á framfæri ósk
um að músík yrði spiluð fyrir
iðkendur skautaíþróttarinnar á
Melavellinum. — Ég fer á hverj-
um einasta degi á skauta og mér
finnst svo dauflegt að hafa enga
músík þarna. Hún myndi lífga svo
mikið upp á. En það er óskaplega
gaman að skauta.
Málamiðlun
Stefánsdætur (Björg, Telma
og Linda) skrifa 26. nóv.:
„Kæri Velvakandi.
Við skorum á „þróunarkenn-
ingarmenn" og andstæðinga
að slíðra sverðin. Allir eru
uppfullir af: „Ég veit allt.“
Þetta er tilgangslaust kjaft-
æði, sem einungis særir fólk.
Það er of margt sem menn
ekki vita um þessi mál.
Við komum með málamiðl-
un sem menn geta velt fyrir
sér fram að jólum. Hún er
þessi: Köttur á heimilinu =
engar mýs. Enginn köttur á
heimilinu = fullt af músum.
Með kveðju."
Leiktækjasalur
til sölu
Einn glæsilegasti leiktækjasalurinn á Stór-Reykjavík-
ursvæöinu til sölu. Gott tækifæri fyrir duglegan aöila.
Uppl. á skrifstofunni.
Miðborg fasteignasala, Nýja bíó-húsinu.
Det danske Selskab
Film-eftermiddag
Nordens Hus
Söndag 30. nov. 15.00
Vi viser bl. a film om Færöerne og den danske
kunster Henry Heerup.
Alla velkomme.
Det Danske Selskab
Kvikmyndasýning
Norræna húsinu
sunnudaginn 30. nóv. kl. 15.00.
Sýnd verður m.a. mynd frá Færeyjum og mynd um danska listamanninn Henry
Heerup.
Allir velkomnir.
Hvíldarstólar
á góðu verði
Leöurhvíldarstóll
Kr. 191.500.-, nýkr. 1.915-
Leðurhvíldarstóll
án skammels kr. 84.500.-, nýkr. 845.-, með skamm-
eli kr. 126.300.-, nýkr. 1.263.-
Athugið: Laugardaginn 29. nóvember verður sýning
frá kl. 2—6, þar sem viö kynnum okkar glæsilega
húsgagnaúrval.
Sendum um land allt.
VörumarkaDurinn hf.
Sími86112