Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981 •
Ingólfur Ingólfsson um samkomulag-
ið í rikisverksmiðjunum:
„Svo allt í einu
guggnaði liðið“
SAMKOMULAG tókst ekki í
íyrrinótt við vélstjóra í ríkis-
verksmiðjusamninKunum og
Guðmundur Steinsson
Þjóðleikhúsið:
Fyrsti höfund-
urinn ráðinn
GUÐMUNDUR Steinsson hefur
verið ráðinn fyrsti leikritahöf-
undurinn sem er á launum hjá
Þjóöleikhúsinu. í lögum um
Þjóðleikhús frá maí 1978 er veitt
heimild til að ráða, eftir því sem
aðstæður leyfa, leikritahöfund
eða aðra höfunda og mun þar
einkum átt við tónskáld eða
dansasmiði. í fjárlögum fyrir
árið 1981 er í fyrsta skipti gert
ráð fyrir fjárveitingu til að
fylgja þessu ákvæði laganna.
Guðmundur Steinsson er nú'
með nýtt leikrit í smíðum fyrir
Þjóðleikhúsið.
boðuðu þeir verkfall með
þriggja daga fyrirvara um leið
og samkomuiag tókst við aðra
starfshópa rikisverksmiðjanna
og Kísiliðjunnar við Mývatn.
Verkfall vélstjóranna kcmur til
framkvæmda á miðnætti annað
kvöld, sunnudagskvöld.
„Það bar svo lítið á milli okkar
vélstjóranna og vinnumálanefnd-
ar ríkisins, að undur eru, að ekki
skyldi nást saman," sagði Ingólf-
ur Ingólfsson, formaður Vél-
stjórafélags íslands í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Að vísu
láta menn sig muna um allt, en
ef farið hefði verið að kröfu
viðsemjenda okkar, þá hefðu
vaktstjórarnir, vélstjórarnir,
sem vinna á vöktum allan sólar-
hringinn, búið við skert vakta-
álag. Þetta var formdeila um
útreikning vaktaálags, sem er í
peningum um 3%, en á móti
hefði það komið að fæðisgreiðsl-
ur þessara manna lækkar út-
borguð laun þeirra á milli 3 og
4%, þannig að þar hefði verið um
að ræða nokkurn veginn slétt
skipti."
„Þetta var það eina, sem bar í
milli," sagði Ingólfur, „og við
fengum aldrei að ræða þetta. Að
öðru leyti höfðum við sætt okkur
við meginefni málsins. Að vísu
voru settir fyrirvarar af allra
hálfu varðandi t.d. ákvæði um
boðunarfrest og tilhögun verk-
falls, sem eru mjög vond ákvæði
að mínum dómi, en menn vildu
þola það að því tilskyldu að
samkomulag yrði um annað. Svo
allt í einu guggnaði bara liðið. En
verksmiðjurnar stöðvazt því á
mánudag."
Sveinn B. Valfells látinn
SVEINN B. Valfells iðnrekandi
lézt i Reykjavik aðfaranótt sl.
föstudags, 78 ára að aldri. Ilann
stofnaði Vinnufatagerð Íslands
árið 1932 og var forstjóri hennar
og meðeigandi frá upphafi.
Sveinn B. Valfells var fæddur á
Grenjum í Alftaneshreppi í Mýr-
arsýslu 26. september 1902. Hann
stundaði verzlunarstörf í Borg-
arnesi á árunum 1917 til 1920 og
brautskráðist úr Verzlunarskóla
íslands 1921. Þá stundaði hann
verzlunarstörf í Reykjavík til 1931
og stofnaði síðan Vinnufatagerð-
ina. Sveinn var formaður Félags
ísl. iðnrekenda árin 1956 til 1963,
formaður bankaráðs Iðnaðarbank-
ans frá 1962 til 1974 og formaður
stjórnar Iðngarða hf. frá stofnun
1962 og voru honum falin ýmis
trúnaðarstörf af hálfu samtaka
iðnrekenda.
Kona hans var Helga Ágústs-
dóttir og er hún látin fyrir nokkr-
um árum.
Björg Einars-
dóttir stígur
í stólinn í
Dómkirkjunni
í MESSU í Dómkirkjunni
kl. 2 e.h. á morgun, sunnu-
dag, mun Björg Einarsdótt-
ir flytja stólræöuna, en sr.
Þórir Stephensen þjónar
fyrir altari. Svala Nielsen
óperusöngkona mun og
syngja Faðirvorið, en
Dómkórinn leiðir messu-
sönginn og Marteinn II.
Friðriksson leikur á orgel-
íð.
Það er ekki nýtt, að konur
stígi í stól í íslenskum kirkj-
um en í Dómkirkjunni er sr.
Auður Eir Vilhjálmsdóttir
eina konan, sem þar hefur
Björg Einarsdóttir
prédikað hingað til, en hún
steig í stól þar á vígsludegi
sínum. Björg verður því
fyrst óvígðra kvenna til að
stíga í stólinn í dómkirkju
landsins og flytja þar ræðu
út af guðspjalli dagsins.
Kirkjunefnd kvenna Dóm-
kirkjunnar verður með
kaffisölu eftir messu á Hótel
Loftleiðum.
Það sem mannfólkið leifir, nýta málleysingjarnir. Hann var fljótur á vettvang þessi litli þröstur,
þegar hann sá manninn kasta pylsuafgangnum i götuna... Ljónm. óiafur K. MaxnúsNun.
Steingrímur Hermannsson sjávarútvegsráðherra:
Dollarinn um 4%
yfir meðalgengi
SKRIÐUR hefur komist á ýmis
mál varðandi fiskverðsákvörðun
siðustu daga, en fundir hafa
verið haldnir daglega. Fulltrúar
í Y firneínd verðlagsráðsins
sögðu í samtali við Morgunblaðið
í gær að nú stæði aðeins á
stjórnvöldum að gera upp við sig
hvernig tekið verður á málum til
að tryggja vinnslunni viðunandi
rekstrargrundvöll. Steingrímur
Hermannsson, sjávarútvegsráð-
herra, sagði hins vegar í gær, að
hann gæti ekki tekið undir þetta.
Hann sagðist hafa átt marga
fundi með þeim er hlut ættu að
máli. „Mín skoðun er sú, að betra
sé að leysa þetta mál í kyrrþey
heidur en í fjölmiðlum. Það væri
betra, að fleiri segðu minna og
byndu ekki hendur sínar,“ sagði
Steingrimur.
Hann var spurður hvort það
væri ein af leiðunum til að ákveða
nýtt fiskverð að setja krónuna á
meðalgengi.
„Seðlabankinn hefur skrifað
okkur og bent á hve mikið dollar-
inn hefur hækkað undanfarið og
hann hefur gert það að tillögu
sinni að gengi krónunnar verði
sett nær meðalgengi en nú er,“
sagði Steingrímur. „Svissneski
frankinn er kominn niður um
8,20% gagnvart dollar og v-þýzka
markið svipað og þó við íslend-
ingar séum stæltir er ég ekki viss
um að við þolum slíkt. Það er mín
persónulega skoðun, og raunar
óháð fiskverðinu, að það sé mjög
vafasamt að miða við doilarann
Davið Markús örn Magnús
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins:
Síðasti hverfafundurinn er
í Breiðholtshverfum i dag
SÍÐASTI hverfafundurinn i funda-
röð borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, verður haldinn í dag,
laugardag. Fundurinn er fyrir
Breiðholtshverfin, Bakka- og
Stekkjahverfi, Fella- og Hólahverfi
og Skóga- og Seljahverfi. Hann
verður haldinn að Seljabraut 54, og
hefst klukkan 14 miðdegis.
Framsögumenná fundinum verða
þeir Davíð Oddsson leiðtogi sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn, Mark-
ús örn Antonsson og Magnús L.
Sveinsson. Frummælendur munu
fjalla um borgarmálin í framsögu-
ræðum sínum, en að þeim loknum
verður orðið gefið frjálst til um-
ræðna og fyrirspurna. Öll borgar-
málefni verða á dagskrá, hvort
heldur um er að ræða málefni
borgarinnar í heild eða einstakra
hverfa, gatna eða málefna. Fundur-
inn er öllum opinn.
Fundarstjóri á fundinum í dag
verður Hreiðar Jónsson, en fundar-
ritarar þeir Kristján Guðbjartsson
og Guðmundur H. Sigmundsson.
þegar hann rýkur svona upp.
Dollarinn er kominn í um 4% yfir
meðalgengi og hvað mikið það
verður talið nauðsynlegt að leið-
rétta skal ég ekki segja um, en það
er einhvérs staðar í kringum þá
tölu“, sagði Steingrímur.
Þá var sjávarútvegsráðherra
spurður á hvern hátt Verðjöfnun-
arsjóður yrði notaður til að
tryggja rekstur frystingarinnar:
„Það eru mörg fordæmi fyrir
því, að ríkissjóður hafi samþykkt
að gera Verðjöfunarsjóði kleift að
yfirdraga í vissan tíma. Ef um
styrk ætti að vera að ræða, þá eru
aðrar greinar því mótfallnar, þó
svo að frystingin kunni að sam-
þykkja það og ég er ekki undrandi
á því, að þær skuli vera andvígar
því að ein grein sé styrkt en aðrar
ekki,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson að lokum.
INNLENTV
Ofsköttun á
atvinnurekstur:
Gert ráð fyr-
ir samkomulagi
„ÞAÐ HEFUR þegar farið fram
einn fundur með fulltrúuhi ráðu-
neytisins og Vinnuveitenda-
sambandsins og ég geri fyllilega
ráð fyrir því að við náum
samkomulagi um þetta mál,“
sagði Páll Sigurðsson ráðuneyt-
isstjóri í heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneytinu, í samtali við
Mbl. er hann var inntur álits á
framkomnum skoðunum at-
vinnurekenda, að þeir eigi nú
inni hjá ríkinu um það bil 7
milljarða gkróna vegna veru-
legrar ofsköttunar á lífeyris- og
slysatryggingariðgjöldum, sem
atvinnurekendur greiddu til
Tryggingastofnunar ríkisins á
árunum 1979 og 1980.