Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 48
-^^Síminn á afgreiðslunni er 83033 JHtreunbbtbib Síminn á afgreióslunni er 83033 3M*r0unbbtÍ>i( LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981 Flugleiðir: Hluthafafundur í lok febrúar HLl 'TH AFAFUNDUR verður va-ntanleKa haldinn hjá Flujíleið- um í lok febrúar til þess m.a. að fullna-gja skilyrðum rikisstjórn- arinnar fyrir ríkisábyriíð til handa FluKleiðum. en þá verður aftrreidd hlutafjáraukninK ríkis- valdsins í FluKleiðum <>k sam- kva-mt upplýsinKum sem MorK- unhlaðið hefur aflað sér er gert ráð fyrir að ríkissjóður tilnefni tvo menn i stjórn FluKleiða án þess að fa-kkað verði i stjórn miðað við það sem nú er. MorKunblaðið hafði samband við Örn 0. Johnson stjórnarfor- Spariskír- teinin seljast treglega „ÞVÍ er ekki að neita, að spariskírteinin hafa selzt treRleKar nú en endra nœr,“ saKði Jón Friðsteinsson. i Seðlabanka íslands, í samtali við Mbl. í gærdaK- Byrjað var að selja skírtein- in 26. janúar sl. og voru boðin skírteini fyrir 20 milljónir nýkróna og sagði Jón, að lík- lega væri búið að selja skír- teini í dag fyrir liðlega 6 milljónir nýkróna. Jón sagði, að nú væri á markaðnum ný gerð af skír- teinum, sem væru háð láns- kjaravísitölu og hækkuðu því mánaðarlega við útreikning nýrrar vísitölu. „Ástandið er því orðið þannig, að þeir sem ætla að kaupa bréfin, kaupa þau nokkrum dögum fyrir mánaðamót, þ.e. stuttu fyrir hækkun. Viðkomandi hafa því að sjálfsögðu frekar látið pen- inga liggja inni á reikningum með 36% vöxtum eða meira fram að þessum tíma,“ sagði Jón. Það kom ennfremur fram hjá Jóni, að sjálfsagt héldu margir að sér höndum nú og biðu eftir því hvernig hinir verðtryggðu sparireikningar verða, en búizt er við að þeir verði auglýstir innan tíðar. mann Flugleiða í gær og innti álits á þeim orðræðum sem bæði Steingrímur Hermannsson sam- gönguráðherra og Ragnar Arnalds fjármálaráðherra hafa viðhaft undanfarna daga að setja ætti bremsu á ríkisábyrgðina til Flug- leiða vegna þess að ekki hefði verið staðið við að halda fund með hluthöfum. Örn sagði að á undan- förnum vikum hefðu farið fram umræður milli sín og samgöngu- ráðherra um það að hluthafafund- ur yrði haldinn í febrúarlok, „og þetta er í fullu samráði við fjármálaráðherra", sagði Örn. Fundardagurinn verður ákveðinn næstu daga, en fyrir fundinum þarf að liggja afgreiðsla á aukinni hlutafjáraðild ríkissjóðs að Flug- leiðum. Skólakrökkum kynntur nýi strætisvagninn Farið var með nemendur í Hólabrekkuskóla í ökuferð í nýja strætisvagninum í gær um leið og brýnt var fyrir þeim að ganga vel um hann. Með í ferðinni voru Sigurjón Fjeldsted skólastjóri og Eiríkur Ásgeirsson forstjóri SVR. Sjá nánar bls. 27. U'*™. Mbl.: Emilía. Ríkisverksmiðjusamningarnir: Grunnkaupshækkanir á samningstíma 36 til 42% SNEMMA í gærmorgun tókust samningar milli þeirra 12 aðildar- félaga Alþýðusambands tslands. sem tekið hafa þátt í samningum við rikisverksmiðjurnar og Kísil- iðjuna fyrir umbjóðendur sína. Samningar tókust hins vegar ekki við 13. félagið, Vélstjórafélag ís- lands. sem boðað hefur verkfall frá og með mánudeginum <>k stöðvazt því verksmiðjurnar tak- ist ekki samningar við vélstjóra. Sáttafundur i deilu þeirra hefur ekki verið boðaður. Samningurinn, sem tókst í gærmorgun, gefur starfsfólki verk- smiðjanna þriggja, Áburðarverk- smiðjunnar, Sementsverksmiðj- unnar og Kísiliðjunnar við Mývatn, verulegar grunnkaupshækkanir, sem á samningstímanum eru á bilinu frá 36 til 42%. Samningur- inn felur í sér 11% grunnkaups- hækkun frá því í nóvember síðast- liðnum til undirskriftardags, sem var í gær, en við undirskrift samnings hækka grunnlaun á bil- inu 15 til 20%. Þá hækkar grunn- kaup aftur 1. nóvember 1981 um 5% og hinn 1. maí 1982 um 4%. Hækkanir þessar eru þannig upp byggðar, að nú við undirskrift samninganna, fer starfsfólkið á byrjunarlaun Grundartangasamn- ings. Hinn 1. nóvember næst- komandi, fer starfsfólkið á starfs- aldur eftir eitt ár og 1. maí nær það 3ja ára starfsaldri og er þá sam- ræmingu við Grundartangasamn- ing að fullu náð. Þess ber að geta, að áfangahækkanirnar tvær, eru báðar hlutfallshækkanir á byrjun- arlaunin. Ekki hefur verið ákveðið, hvenær samningurinn verður undirritaður, en búizt er við að það verði gert eftir helgi, þegar búið er að vélrita hann upp og fínpússa. Sjá viðtal við Ingólf Ingólfsson formann Vélstjórafélagsins á bls. 2. Flutningar milli lifeyríssjóða úr sögunni: Iðgjaldaréttindi metin og greitt samkvæmt þeim LlFEYRISSJÓÐUR starfsmanna ríkisins auglýsti fyrir liðlega ári síðan, að hann tæki ekki við iÖKjaldaflutningum úr öðrum sjóð- um frá 1. apríl sl. í kjölfar þess spunnust miklar umræður milli sjManna um þessi mál, en ekkert var ákveðið. Sjóðirnir, sem tóku iðgj<>ld frá ríkinu. urðu því að feta i fótspor þess <>k hafna flutningi úr öðrum sjóðum þar scm þeir fengju aðeins 4% vexti af iðgjöld- unum, en enKar verðbætur. Þetta kom fram í samtali Mbl. við Pétur Blöndal. framkvæmdastjóra Líí- eyrissjóðs verzlunarmanna. Starfsmannafélag rikisstofnana: Verkalýðshreyfingin snúist til varn ar með samræmdum Fordæmir „samningsrof og kjararán“ ríkisstjórnarinnar „STARFSMANNAFÉLAG ríkis- stofnana þykir einsýnt, að svo halda meKÍ friði ok eðlilegu samstafi samningsaðila, hljóti fjármálaráðuneytið að ganga nú þeKar til móts við félagsmenn BSRB með leiðréttinKU launa- kjara er leiði til eðlilegs jafnvæg- is við aðra þjóðfélaKshópa. svo mjöK sem það hefur raskazt síðustu mánuðina.“ betta segir í ályktun trúnaðarmannaráðs SFR, sem samþykkt var á fundi i fyrradaK. Fundurinn fordæmdi samningsrof og kjararán ríkis- stjórnarinnar ok hvetur verka- lýðshreyfinguna alla til sam- ræmdra aðgerða. snúast til varn- ar og beita til þess afli. sem hún býr yfir. í ályktuninni segir, að samning- ar fjármálaráðherra og BSRB hafi verið viðurkenndur af ráðherra að vera launajöfnunarsamningur, þar sem fullt tillit hafi verið tekið til efnahagsástæðna í landinu. í kjölfar þessa samnings hafi fylgt samningar velflestra stéttarfélaga landsins og þar sem þá þraut, kjaradómur. Einkenni þessara samninga og dóma hafi verið fólgin í launahækkun allra starfs- hópa langt umfram það sem BSRB hafi samið um. Síðan segir í ályktun SFR: „Bráðabirgðalög þau, sem hæst- virt ríkisstjórn gaf út í jólaleyfi þingmanna gerir ráð fyrir veru- legri kjaraskerðingu 1. marz nk. og það sVb mikilli, að verulegum hluta þeirra launahækkana er um var samið eða dæmdar voru að afloknum samningum BSRB verð- ur kippt til baka. Kjaraskerðing feiagsmanna BSRB verður því þeim mun meiri sem þeirra hlutur var minni en annarra." Þá segir í lok ályktunar SFR, að í leiðréttingu þessara mála verði gætt að það innbyrðis jafnvægi, er mótað var í launastiga BSRB við síðustu kjarasamninga, raskist ekki. Starfsmannafélag ríkisstofnana tekur til um það bil þriðjungs ríkisstarfsmanna innan BSRB og eru félagsmenn þess liðlega 4 þúsund talsins. „Fyrir áramótin var svo komizt að samkomulagi í þessu máli. Sam- komulagið felur í sér, að engin iðgjöld skuli flutt milli sjóða, en hver sjóður veiti lífeyrisrétt í sam- ræmi við þau iðgjöld, sem hafa verið greidd til hans. í sambandi við lánamálin, sem flestir hafa nú eflaust áhuga á, þá er það þannig, að hver sjóður á að meta réttindi iðgjalds frá öðrum sjóðum, án þess að flytja þau. Sjóðurinn, sem við- komandi maður er í veitir síðan lán í samræmi við þetta mat, án þess að flytja peninga á milli. Maðurinn á sem sagt lífeyrisréttindi í þeim sjóði sem hann var í áður,“ sagði Pétur Blöndal. Um þessar mundir er í smíðum samkomulagsrammi, sem gerir ráð fyrir því, að eigi menn „smástubba hér og þar, þá verði þeir fluttir á milli þegar að töku lífeyris kemur. Að sögn Péturs olli þessi staða töluverðum vandræðum fyrir marga á síðasta ári, en eftir að samkomulagið var gert fyrir ára- mót ætti ástandið að verða mjög þolanlegt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.