Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRUAR 1981 37 Guðjón Pdll Arnar- son — Minningarorð Fæddur 9. desember 1967. IMinn 29. janúar 1981. Hann Guðjón er dáinn! Þessi harmþrungnu orð, þó þau séu ekki mörg, lama mann gjörsamlega og draga úr manni allan mátt. Ljósið hefur verið slökkt, maður getur ekki mælt orð og finnst sem lífið hafi tapað tilgangi sínum, aðeins myrkur framundan. En við verð- um að vera styrk og horfa fram á veginn, biðja þann sem öllu ræður hér á jörðu um styrk til að mæta þessu áfalli sem kom svo skyndi- lega. Guðjón var fæddur á Hvamms- tanga 9. desember 1967, sonur hjónanna Arnar Guðjónssonar málarameistara og Siguróskar Garðarsdóttur, var elstur af þrem sonum þeirra. Mánaðar gamall fluttist hann með foreldrum sín- um til Bolungarvíkur, þar sem þau voru vetrarlangt og faðir hans stundaði sjómennsku, en fluttust síðan til Blönduóss og bjuggu þar í nokkur ár. Fluttust síðan til Reykjavíkur, þar sem þau keyptu íbúð að Bergstaðastræti 64, þar sem föðurforeldrar Guðjóns bjuggu þá, þau Kristín Ólafsdóttir og Guðbjartur Oddsson málari. í Reykjavík áttu þau siðan heima til 1973, er þau fluttust til Hvamms- tanga og þar byggðu Öddi og Sigga sér einbýlishús og Öddi stofnaði sitt málningarfyrirtæki ásamt Vilhelm bróður sínum og hefur starfað við það síðan. Það sækja að mér ljúfar minn- ingar um Guðjón, þennan mynd- arlega dreng sem ég er búinn að fylgjast með allt frá því er ég flutti hann nýfæddan af sjúkra- húsinu á Hvammstanga þegar hann fæddist, í vondri færð út í Hlíð á Vatnsnesi þar sem móður- foreldrar hans bjuggu þá. Ég sótti líka þennan litla hnokka til Reykjavíkur, þegar foreldrar hans komu frá Bolungarvík og fluttust á Blönduós og síðan 1975 hefur hann átt heima í næsta húsi við mig og verið daglega inni á mínu heimili. Oft kom hann til að spjalla eða fá eitthvað í hjólið sitt, hann var börnunum mínum sann- ur vinur, eins og öllum er hann kynntist. Hann las mikið og fékk oft hjá mér bækur til að lesa, hann stundaði íþróttir og vann til verðlauna í hlaupum á síðasta ári. Hann var rólegur, en ávallt kátur og brosandi, eyddi oft miklum tíma í að grúska ýmislegt eins og títt er með unga drengi. Sjórinn heillaði hann og fylgdist hann mikið með útgerð hér á staðnum. Oft fór hann með mér á vörubíln- um mínum út um sveitirnar, til Akraness eða þá vestur í Dali, hafði gaman af að sitja í bílnum og ferðast og oft var hann búinn að rétta mér hjálparhönd við þessi störf eða þá við húsið meðan ég var að byggja, var alltaf svo ljúfur og tilbúinn að hjálpa. Það er mikill harmur að okkur kveðinn, sem þekktum Guðjón. Afi og amma á Asbrautinni hafa misst mikið, hann var svo mikið hjá þeim, fór með þeim í ferðalög í sumarfríunum þeirra eða þá í fjárhúsin með afa, þar sem hann átti sína kind. Einnig amma og stjúpafi, sem hann var svo lengi samvistum við á Blönduósi og í Bergstaðastrætinu og þá ekki síð- ur Guðjón afi hans og nafni í Gnoðarvoginum, sem hann hélt svo mikið upp á og allt hans fólk. Ég bið guð að gefa foreldrum hans og bræðrum styrk til að mæta þessum harmi, svo og öllum aðstandendum og vinum, en ver- um þakklát fyrir að hafa fengið að vera með honum, þó svo að árin yrðu aðeins þrettán. Nú skilja leiðir um stundarsakir og eftir lifir minning um góðan og elsku- legan dreng. Hvíli hann í guðsfriði. Eggert Garðarsson nnDáinn, horíinn“! Harma-fregn! Hvilikt orÖ mig dynur yfir! En ég veit, aÖ látinn lifir, þaÖ er huggun harmi gegn.“ í dag, laugardag 7. febrúar, verður til moldar borinn frá Hvammstangakirkju Guðjón Páll Arnarson, er lést af slysförum fimmtudaginn 29. janúar aðeins 13 ára að aldri. Ég kynntist Guðjóni fyrst sem og öðrum nemendum mínum er ég réðst að Grunnskóla Hvamms- tanga haustið 1979. hann kom mér strax fyrir sjónir sem sviphreinn ungur sveinn, þó örlítið dulur og fámáll, en bros hans snart mann, frá því geislaði hið bjarta, fagra og barnslega sakleysi er yljaði um hjartarætur. Guðjón var prúður og háttvís nemandi í orðsins fyllstu merkingu. Minningar um góðan dreng leita fram í hugann á þessari sorgarstundu. Það er margs að minnast, fátt eitt skal upp talið hér, þær lifa. Ég minnist samverustundanna er við áttum saman í skólanum í starfi og leik, þennan stutta tíma er við áttum saman hér á Hvammstanga. Áhugamál hans voru fjölmörg eins og annarra barna á mótun- arskeiði. Mér er þó efst í huga, að hugur hans hafi leitað út á hið mikla haf. — Ég minnist þess, hve augu hans urðu skær og leiftrandi er talið barst að sjó og sjósókn. Út á hafið horfði hann vonaraugum. Andlátsfregn: Frances M. Barry SÚ FREGN barst hingað til lands i síðasta mánuði, að Frances M. Barry hefði orðið bráðkvödd að heimili sínu í West Haven, Con- necticut, síðastliðið gamlárskvöld. Frances M. Barry starfaði hér á landi á árunum 1942—1945 á vegum stjórnar Bandaríkjanna og kynntist mörgum hér í starfi sínu. Henni lét mjög vel að starfa hér, hún eignaðist marga vini og kunningja og ferðaðist talsvert um tsland, enda hafði hún ætíð mikið yndi af ferðalögum og var víðförul. Eftir að hún lét af störfum hér, kom hún oft til landsins til þess að hitta vini og kunningja og endur- nýja kynni sín af landi og þjóð, enda var hún einlægur aðdáandi íslands. Útför hennar var gerð 5. janúar 1981 frá Saint Lawrence-kirkjunni í New Haven. J.B. ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn 'átna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Nú er hann farinn yfir „móðuna miklu" í þeim knerri er við öll ferðumst með fyrr eða síðar. .Ginum <>r snemma hinn alvitri kallar- Nú er jarðvist hans lokið. Guð- jón Páll Arnarson er horfinn sjónum okkar, ljósgeisli augna hans slokknaður. En megi það ljós, er hann tendraði í brjóstum foreldra sinna, bræðra, skóla- systkina, kennara, skyldmenna og vina, verða að gróðursprota fyrir betra mannlíf á þessari jörð. Frá þeirri jörð er hann hvarf alltof fljótt, frá þeirri mold er allir eru sprottnir frá og hverfa til að lokum. _Sá unxur xndast er unxur (ullorAinn~ Ég undirritaður, nemendur og starfsfólk skólans, vottum ástvin- um hans okkar dýpstu samúð. Megi Guð styrkja þau í hinni þungbæru sorg þeirra. Guðjón Páll hvíli í friði. Eyjólfur Magnússon skólastjóri. Hvammstanga. SVAR MITT EFTIR BILLY GRAHAM Ég óttast dauðann. Ilvernig get ég sigrazt á þcssum ótta? Ég er orðinn gamall og hugsa með skelfingu til dauðastundarinnar. Ég legg til, að þér flettið upp 15. kapítula fyrra bréfsins til Korintumanna og lesið hann aftur og aftur. Ef þér hafið sett traust yðar á Krist, hefur broddur dauðans verið brotinn. Broddur grafarinnar er synd, sem ekki hefur verið játuð eða fyrirgefin. Kristnum manni er dauðinn dásamleg umbreyting. Hann fer á augabragði inn í návist frelsarans. Ég veit ekki, hvort þér eruð kristinn eða ekki. Þess vegna get ég aðeins hvatt yður til að festa trú á Jesú Kristi — það er nauðsynlegt — og fela yður honum á vald. Flettið upp 23. sálmi Davíðs og lesið þessi huggunarorð: „Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt.“ Þetta er ekki orðagjálfur, heldur trú, því að Davíð heldur áfram og segir: „Því að þú ert hjá mér.“ Þegar þér hafið í trúnni lagt hönd yðar í hönd hans, hafið þér ekkert að óttast. Sársauka? Má vera. Aðskilnað frá ástvinum? Já, en allt verður þetta skammvinnt, því að Kristur kom til að taka í burtu ótta og brodd dauðans og gefa okkur í staðinn frið, sem er ofar öllum skilningi. Páll postuli hafði orðið að þola margs konar þrengingar vegna Drottins. Hann talaði um, að sig langaði til að vera með Drottni. Þetta getur líka orðið dásamlegt tilhlökkunarefni yðar. + Bróöir minn ÓLAFUR JENSSON, frá Litlu-Hóeyri, Eyrarbakka, lést í Borgarspítalanum aöfararnótt 6. febrúar. Sigríöur Jensdóttir. ©. Pýskir dagar Nú efnum við til þýskra daga og bjóðum heita og kalda þýska þjóðarrétti á hlaðborði. Við bjóðum marineruð grísalæri með djúpsteiktum hrísgrjónum. Svínaskanka með súrkáli (Sauerkraut). Svínarif með kartöflusalati og spínati, þýskar bjórpylsur með kartöflusalati. Ljúffenga Bæheimsskinku með baconsalati og kornsalati. Hangikjöt að þýskum hætti og svona mætti lengi telja. Einnig bjóðum við þýsk kornbrauð, áleggspylsur, fjölbreyttar tegundir ábætisosta og salatbar. Ókeypis fyrir börn 10 ára og yngri. Esjutríóið leikur fyrir matargesti í kvöld. írsi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.