Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 33
HVAD ER AÐ GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981
33
Á FríkirkjuveKÍ 11 eru hafnar sýninKar á brúðuleiknum „Sálinni hans
Jóns míns“. Næsta sýninK er á morKun kl. 15. Á myndinni sjáum vió
kerlinKu við dyr himnaríkis. með skjóðuna sem Keymir „sálina hans Jóns"
<>k er kerlinK að biðja Mariu að hleypa honum inn. Leikstjóri er Bríet
Iléðinsdóttir. Messiana Tómasdóttir Kerði brúður ok tjöld með aðstoð
Leikbrúðulands. Davið Walters sá um lýsinKuna. Mar^ir þekktir leikarar
Ijá brúðunum raddir sínar.
PLÚTUS í FELLASKÓLA
„Sýningarn-
ar virðast
falla í góð-
an jarðveg“
- jm
Úr Kamanleiknum Plútusi. sem
Breiðholtsleikhúsið sýnir annað
kvöld kl. 20.30.
„Olíupalla-
ránið“
í daK frumsýnir LauKarásbió
nýja bandariska mynd, Oliupalla-
ránið. sem Kerð er eftir skáld-
söku Jack Davis. Leikstjóri er
Andrew McLaKÍne, en i aðalhlut-
verkum eru RoKer Moore, James
Mason ok Anthony Perkins.
Myndin fjallar um harðsnúið
björKunarlið sem tiltækt er á
Norðursjó, þjálfun þess ok loks
átök við misindismenn, sem hóta
að sprengja olíuborpallinn Ruth
og dælupallinn Jennifer í loft upp.
Annað kvöld sýnir Breið-
holtsleikhúsið gamanleikinn
Plútus í „gryfjunni“ í Fella-
skóla í Efra-Breiðholti og
hefst sýningin kl. 20.30.
Leikritið fjallar um æva-
gamalt vandamál, sem við
erum enn að karpa um af engu
minni ákafa en á dögum
Aristofanesar, höfundar
leiksins, fyrir um 2500 árum,
sem sé skiptingu lífsins gæða.
— Persónurnar sem koma við
sögu eru ekki eins fjarlægar
okkur og ætla mætti eftir
aldri verksins, heldur eiga
þær erindi við nútímafólk,
sagði Jakob S. Jónsson, — og
hvað þá fullyrðingu varðar, að
þetta verkefni leikhússins
hentaði ekki Breiðhyltingum,
vil ég aðeins benda á að
sýningarnar virðast falla í
góðan jarðveg hjá áhorfend-
um og skemmta þeim ágæt-
lega.
Tekið er á móti miðapönt-
unum í síma 73838. Leið 12 frá
Hlemmi og leið 13 frá Lækj-
artorgi (hraðferð) stansa fyrir
utan Fellaskóla.
Um þessar mundir stendur yfir i
Galleri Langbrók sýning Val-
gerðar Bergsdóttur. Þar sýnir
hún 15 blýantsteikningar, flestar
unnar árið 1980.
Alþýðuleikhúsið:
Hljómleik-
ar og leik-
sýning
Úr leikritinu Pæld'í’ðí sem Alþýðuleikhúsið sýnir annað kvöld.
MENNTASKÓLINN VIÐ SUND:
Sýning á Gum og Goo
Annað kvöld verður önnur
sýninK Talíu, leiklistarsviðs
Menntaskólans við Sund, á ein-
þáttunKnum Gum <>k Goo eftir
Doward Brenton, ok hefst hún kl.
20.30 en frumsýninK fór fram i
Kærkvöldi. Leikurinn verður
sýndur á svonefndri „borravöku"
skólans í Skálholti. en svo nefnist
samkomusalur SkólafélaKS
Menntaskólans við Sund að
FerjuvoKÍ.
Howard Brenton er kunnur
breskur leikritahöfundur og vekja
leikrit hans alla jafna mikla
athyKli fyrir djarflega og nýstár-
lega umfjöllun. Rúnar Guð-
brandsson þýddi verkið og er
jafnframt leikstjóri, en leikendur
eru Örbrún Guðmundsdóttir, Sig-
ríður Anna Ásgeirsdóttir og Soffía
Gunnarsdóttir.
Þriðja sýning Talíu á Gum og
Goo verður á þriðjudagskvöldið.
Miðar eru seldir daglega í skólan-
um milli kl. 12 og 14, og enn
fremur við innganginn.
LEIKFELAG REYKJAVIKUR:
Grettir, Rommí
og Ótemjan
Annað kvöld klukkan 20.00
býður Alþýðuleikhúsið upp á
tvöfalt prógramm í Hafnarbíói
— hið umdeilda unglingabikrit
„Pæld'í’ðí" ásamt Utangarðs-
monnum með Bubba Morthens í
broddi fylkingar.
Pæld’í’ðí" hefur nú verið sýnt
yfir 40 sinnum í langflestum
skólum á höfuðborgarsvæðinu og
byggðarlögunum í kring og hafa
um 10.000 manns, aðallega ungl-
ingar, séð sýninguna. Á næstunni
eru svo svo fyrirhugaðar leikferðir
í fjarlægari byggðarlög, hin fyrsta
á Austfirði vikuna 9,—13. febrúar.
Vegna anna við sýningar í
skólum út um borg og bý hefur
ekki verið hægt að sýna verkið svo
neinu nemur á almennum sýning-
um, en vegna mikillar eftirspurn-
ar er nú fyrirhugað að vera með
örfáar sýningar í Hafnarbíói á
næstu vikum.
Það hefur mikið verið rætt og
ritað um þetta innlegg Alþýðu-
leikhússins í málefni unglinga
landsins og þá aðallega frá hendi
hinna fullorðnu. En unglingarnir
hfa ótvírætt kunnað að meta
þessa umfjöllun um hluti, sem
allir lenda í einhverntíman —
nefnilega að verða ástfanginn í
fyrsta sinn. Utangarðsmenn hafa
og ekki síður verið umdeildir þrátt
fyrir vinsældir sínar og rétt er að
taka fram að „Pæld’í'ðí" og Utan-
garðsmenn verða með sameigin-
legt prógramm aðeins í þetta eina
sinn.
Söngleikurinn Grettir verður á
fjölunum hjá LeikfélaKÍ Reykjavik-
ur i Austurbæjarbiói um miðnæt-
urleytið i kvöld. en vegna mikillar
aðsóknar hefur verið ákveðið að
bæta við sýningum á þessu verki á
miðvikudagskvöldum kl. 21.
í kvöld verður í Iðnó sýning á
bandariska verðlaunaleikritinu
Rommi eftir D.L. Coburn með þeim
Gísla Halldórssyni og Sigríði Haga-
lín í aðalhlutverkum.
Annað kvöld verður svo 6. sýning á
sígildum gamanleik Shakespeares,
Ótemjunni, sem frumsýndur var nú
fyrir skömmu. Óhemjan er meðal
vinsælustu leikrita höfundar og
byggir á fjörlegri leikfléttu, mis-
skilningi og dulargervum, en leikur-
inn fjallar sem kunnugt er um
ævintýramanninn Petrútsíó og skap-
konuna Katrínu, og hvernig hann
beygir hana til hlýðni við sig í
hjúskap. Alls koma 15 leikarar og
hljóðfæraleikarar fram í sýning-
unni, en aðalhlutverkin eru í hönd-
um Lilju Guðrúnar Þorvaldsdóttur
og Þorsteins Gunnarssonar. Sýning-
in hefur fengið mjög góða dóma og
viðtökur og hefur verið uppselt á
allar sýningarnar fram að þessu.
GERMANÍA:
Mynd úr
stríðinu
f dag kl. 14 verður sýnd í Nýja
bíói á vegum Germaníu þýska
kvikmyndin Winterspelt, byggð
á skáldsögu Alfreds Andersch og
fjallar um atburð i siðari heims-
styrjöldinni.
Þýskur herforingi vildi ganga á
vald bandariska hersins með alla
herdeild sína, skömmu eftir að
uppreisnin gegn Hitler 20. júlí
1944 fór út um þúfur. Uppgjöf kom
þó ekki til greina vegna þess að
hún stóðst ekki þær kröfur sem
fánaeiðurinn gerir til herforingja
í heiminum.
Skömmu siðar hófst Ardenna-
sóknin, síðasta tilraun Hitlers til
að komast úr herkví bandamanna.
Einar Þorsteinn Ásgeirsson og Haukur Halldórsson á sýningu
sinni i Djúpinu.
DJUPIÐ:
Upplyfting á þorra
Upplyfting á þorranum
nefnist samsýning tveggja
listamanna í Djúpinu sem
opnar kl. 15.00 í dag og
stendur til 22. þ.m.
Það eru þeir Einar Þorsteinn
Ásgeirsson hönnuður og Hauk-
ur Halldórsson teiknari, sem
sýna þar. Þeir hafa áður sýnt
verk sín, m.a. nokkrum sinnum
á haustsýningum FÍM og á
samsýningum á Kjarvalsstöð-
um vegna Listahátíðar 1976.
Einar Þorsteinn hefur einnig
sýnt að Kjarvalsstöðum í boði
Listiðnar. Að þessu sinni sýna
þeir félagarnir um þrjátíu
myndverk: Teikningar, mál-
verk, konsept og skúlptúr.