Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRUAR 1981 DÓMKIRKJAN: Kl. 11 messa. Sr. Óskar J. Þorláksson. Kl. 2 messa. Björg Einarsdóttlr flytur stólræö- una. Svala Nielsen óperusöngkona syngur faðirvoriö. Fermingarbörn flytja bæn og texta. Sr. Þórir Stephensen þjónar fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti Mar- teinn H. Friöriksson. ARBÆ J ARPREST AK ALL: Barna- samkoma í safnaöarheimili Árbæj- arsóknar kl. 10:30 árd. Guös- þjónusta í safnaöarheimilinu kl. 2. Altarisganga. Æskulýössamkoma á sama staö mánudagskvöld 9. febr. kl. 20:30. Sr. Guömundur Þor- steinsson. ASPRESTAK ALL: Messa aö Norö- urbrún 1 kl. 2. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BREIDHOLTSPRESTAKALL: Sunnudagaskóli kl. 10:30. Messa kl. 14 í Breiöholtsskóla. Æskulýös- félagsfundur kl. 20:30 aö Selja- braut 54. Sr. Lárus Halldórsson. BÚST AÐAKIRK JA: Barnasam- koma kl. 11. Guösþjónusta kl. 2. Helgi Elíasson bankaútibússtjóri flytur stólræöuna. Organleikari Guöni Þ. Guömundsson. Félags- starf aldraöra er á miövikudögum milli kl. 2 og 5. Sr. Ólafur Skúlason. DIGRANESPRE STAKALL: Barna- samkoma í safnaöarheimilinu viö Bjarnhólastíg kl. 11. Guösþjónusta í Kópavogskirkju kl. 2. Sr. Þorberg- ur Kristjánsson. LANDAKOTSSPÍTALI: Guösþjón- usta kl. 10. Skírt veröur í guösþjón- ustunni. Organleikari Birgir Ás Guömundsson. Sr. Þórir Stephen- sen. FELLA- OG HOLAPRESTAKALL: Laugardagur: Barnasamkoma í Hólabrekkuskóla kl. 2 e.h. Sunnu- dagur: Barnasamkoma í Fellaskóla kl. 11 f.h. Guösþjónusta í safnaöar- heimilinu aö Keilufelli 1 kl. 2 e.h. Sr. Hreinn Hjartarson. GRENSASKIRK JA: Barnasam- koma kl. 11. Guösþjónusta kl. 2. Organleikari Jón G. Þórarinsson. Almenn samkoma nk. fimmtudag kl. 20:30. Sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Karl Sigurbjörnsson. Engin messa kl. 2. Þriðjud. kl. 20:30 fyrirbænaguösþjónusta. Beðiö fyrir sjúkum. Kirkjuskóli barnanna er á Guðspjall dagsins: Matt. 13.: Illgresi meðal hveitisins. laugardögum kl. 2 i gömlu kirkj- unni. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. HATEIGSKIRKJA: Barnaguösþjón- usta kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl. 2. Bragi Skúlason guö- fræöinemi predikar. Sr. Arngrímur Jónsson. Messa og fyrirbænir fimmtudagskvöld kl. 20:30. Sr. Arngrímur Jónsson. KARSNESPRESTAK ALL: Barna- samkoma í Kársnesskóla kl. 11 árd. Guösþjónusta í Kópavogs- kirkju kl. 11 árd. Sr. Árni Pálsson. LANGHOLTSKIRKJA: Barnasam- koma kl. 11. Söngur, sögur. mynd- ir. Jón Stefánsson og sr. Sig. Haukur Guöjónsson. Guösþjónusta kl. 2. Organleikari Jón Stefánsson. Prestur sr. Sig. Haukur Guöjóns- son. Sóknarnefndin. LAUGARNESKIRKJA: Barna- guösþjónusta kl. 11 árd. Messa kl. 2 síöd. Altarisganga. Næstkomandi þriöjudagskvöld kl. 18 verður bænaguösþjónusta. Einnig verður æskulýösfundur kl. 20:30. Sókn- arprestur. NESKIRKJA: Barnasamkoma kl. 10:30. Guösþjónusta kl. 2. Sr. Frank M. Halldórsson. Kirkjukaffi. Bænaguösþjónustur á hverju fimmtudagskvöldi kl. 20:30. SELJASÓKN: Barnaguösþjónusta í Ölduselsskóla kl. 10:30 árd. Barna- samkoma aó Seljabraut 54 kl. 10:30 árd. Guösþjónusta aö Selja- braut 54 kl. 2. Sóknarprestur. SELTJARNARNESSÓKN: Barna- samkoma kl. 11 í Félajsheimilinu. Sr. Guömundur Óskar Olafsson. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Messa kl. 2. Organleikari Siguróur ísólfs- son. Prestur sr. Kristján Róberts- son. DÓMKIRKJA KRISTS konungs Landakoti: Lágmessa kl. 8.30 árd. Hámessa kl. 10.30 árd. Lágmessa kl. 2 síöd. Alla rúmhelga daga er lágmessa kl. 6 síöd., nema á laugardögum þá kl. 2 síöd. FELLAHELLIR: Kaþólsk messa kl. 11 árd. FÍLADELFÍUKIRKJAN: Almenn guösþjónusta kl. 8 síöd. Ræöu- menn Guöni Einarsson og Samúel Ingimarsson. Organisti Árni Arin- bjarnarson. Einar J. Gíslason. GRUND elli og hjúkrunarheimili: Messa kl. 10 árd. KFUM & K: Samkoma kl. 20.30 aö Amtmannsstíg 2 B. Ólafur Jóhann- esson stud. theol. talar. HJALPRÆDISHERINN: Fjölskyldu- fundur kl. 10.30 árd. Bæn kl. 20 og hjálpræöissamkoma kl. 20.30. Jó- hann Guömundsson talar. NÝJA POSTULAKIRKJAN: Messur kl. 11 og kl. 17. Gestur frá Kanada sr. Storer, prédikar. BESSASTAÐAKIRKJA Guós- þjónusta kl. 2 síöd. Skólakór Breiöageröisskóla syngur undir stjórn Þorvaldar Björnssonar . Sr. Bragi Friöriksson. KAPELLA St. Jósefetystra ( Garóabæ: Hámessa kl. 2 síöd. VÍDIST ADASÓKN: Barnaguös- þjónusta kl. 11 árd. Guösþjónusta kl. 14. Sr. Siguröur H. Guömunds- son. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Fjöl- skylduguösþjónusta kl. 2 síöd. Fé- lagar úr „Ungt fólk með hlutverk" aöstoöar. Sóknarprestur. FRÍKIRKJAN i Hafnarfirói: Barna- tíminn er kl. 10:30. Guösþjónusta kl. 14. Fundur meö fermingarfólki eftir messu. Starfsmenn kirkjunnar greina frá störfum sínum. Safnaö- arstjórn. KARMELKLAUSTUR: Hámessa kl. 8.30 árd. Rúmhelga daga messa kl. 8 árd. KAPELLA St. Jóaefsspítala Hafn- arf.: Messa kl. 10 árd. KÁLFATJARNARSÓKN: Sunnu- dagaskóli í Stóru-Vogaskóla kl. 2 síöd. Sr. Bragi Friðriksson. INNRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Barnaguösþjónusta í dag, laugar- dag kl. 11 árd. Sóknarprestur. YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Sókn- arprestur. KEFLAVÍKURKIRKJA: Sunnu- dagaskóli kl. 11 árd. Muniö skóla- bílinn. Messa kl. 14. Tekiö á móti framlögum til kristniboös. Síöustu samkomur Kristniboösvikunnar laugardagskvöld og sunnudags- kvöld kl. 20.30. Sóknarprestur. GRINDAVIKURKIRKJA: Messa kl. 2 síðd. Sóknarprestur. AKRANESKIRKJA: Barnasam- koma kl. 10.30 árd. Messa kl. 5 síöd. Ath. breyttan messutíma. Sr. Björn Jónsson. Frímerkjauppboð F.F. 14 janúar í síðasta þætti fyrir viku var vakin athygli á frímerkjaupp- boði Félags frímerkjasafnara, sem haldið verður 14. þ.m., þ.e. eftir viku. Efni þessa uppboðs verður til sýnis í dag að Amt- mannsstíg 2 og svo að venju á sjálfan uppboðsdaginn á Hótel Loftleiðum við ráðstefnusalinn, þar sem uppboðið hefst kl. 13.30. Samkv. auglýsingu uppboðs- nefndar í uppboðsskránni heldur FF tvö frímerkjauppboð á vetri, hið fyrra í nóvember og hið síðara í apríl. Þetta febrúarupp- boð hlýtur þess vegna að vera aukauppboð. Nokkra furðu vek- ur, að ekkert lágmarksverð er tekið fram að þessu sinni, svo sem venja hefur verið. Verð er hins vegar tilgreint og þar farið eftir sænska Facit-listanum og breytt í nýkrónur eftir gengi. Hér gefst mönnum því tækifæri til þess að ákveða alveg sjálfir, hvað þeir vilja bjóða í einstök númer. Verður vissulega fróðlegt að sjá, hvert mat menn leggja þannig á uppboðsefnið og hvern- ig það kemur heim og saman við listaverðið. Þegar þetta er skrifað, hef ég ekki átt þess kost að sjá frí- merkjaefnið, sem í boði verður, en samkv. skránni virðist það margvíslegt, en vissulega mjög misjafnt að gæðum. Alls eru númerin 455 og síðan eitt auka- númer. Allur frágangur upp- boðsskrár er til fyrirmyndar, og lýsing efnisins virðist vel unnin. Ber að þakka uppboðsnefnd það alveg sérstaklega og þá ekkj sízt vegna þeirra, sem geta ekki sótt uppboðið og verða þess vegna að senda skrifleg boð, ef þeir hafa hug á að bjóða í eitthvað af því, sem hér er á boðstólum. Fyrst verða boðin upp nokkur skildingafrímerki, en heldur er það efni fátæklegt og flest merkin eitthvað gölluð. Þau fá áreiðanlega ekki háa einkunn sum hver eftir einkunnastiga þeim, sem rakinn var í síðasta þætti mínum. Þrátt fyrir það má vera, að einhverjir bjóði í þessa hluti, en ekki á ég von á mjög háu verði og þá allra sízt, þegar merki eru rifin. Allmörg auramerki eru á þessu uppboði, bæði stimpluð og óstimpluð, og eins ýmsar prent- anir þeirra. I seinni tíð hafa safnarar einmitt sótzt mjög eftir mismunandi prentunum, enda oft verulegur munur á milli þeirra, bæði um lit og pappír, og sumar býsna sjaldgæfar, ekki sízt óstimplaðar og með ósnortnu lími. Kæmi mér ekki á óvart, að nokkuð vel yrði boðið í sumt af þessu. Af svonefndu þrír-merki frá 1897 verða boðin upp tvö eintök. Annað þeirra er mjög sjaldgæft, svo sem sjá má af listaverði þess, 13.585 nýkrón- um. Þetta eintak er því miður hornskellt og takkar sljóir. Verður gaman að vita, hvort það selst í þessu ástandi og þá fyrir hvað mikið. Um hitt eintakið er skemmst að segja, að það er engan veginn boðlegt að mínum dómi, enda hef ég ekki trú á, að nokkur safnari vilji eiga það í safni sínu. „Vantar horntakka, rifið inn í merkið á tveimur stöðum," segir í lýsingu þess. Enda þótt uppboðsnefnd gangi vafalaust gott eitt til, eru vissu- lega takmörk fyrir, hversu lélega hluti á að taka til uppboðs. Ekki er ástæða til að rekja nákvæmlega allt uppboðsefnið, en það nær alveg fram á síðustu ár. Má þar m.a. nefna merki með mynd af Ásgeiri Ásgeirssyni frá 1973 með öfugu vatnsmerki. Eru þau afbrigði nú þegar orðin eftirsótt af sérsöfnurum. Töluvert er af margs konar stimplum, upprunastimplum, kórónu- og tölustimplum, enda sumir þeirra næsta torgætir og því eftirsóttir. Þá er allmikið af umslögum og kortum á uppboð- inu, en Svíar skrá mikið af þessu efni nokkuð hátt. Hefði það þótt fyrirsögn, þegar maður var að fá jólakort á æskuárunum fyrir 1930, þar sem burðargjald var 8 eða 10 aurar, að slík kort yrðu á því herrans ári 1980 metin á 358 nýkrónur! Ástæðan er auðvitað meðfram sú, að mikið af þessum jólakortum hefur farið forgörð- um. Hér þykir mér samt rétt að nota tækifærið og benda þeim, sem eiga jólakort eða önnur kort með álimdum íslenzkum frí- merkjum, á að athuga, hvað slík kort fara hátt á uppboðum, og hafa það yerð til hliðsjónar, ef þeir vilja selja þessa hluti. Sann- leikurinn er sem sé sá, að þeir, sem safna kortum sérstaklega, hafa tilhneigingu til að meta kortin einungis eftir framhlið og borga fyrir vikið oft allt of lítið fyrir þau, sem eru með frímerkj- um og stimplum. Engu að síður hygg ég, að verðið sé of hátt í listum — en hver veit? Fyrstu frímerki árs- ins 24. febrúar nk. Póst- og símamálastofnunin sendi nýlega út tilkynningu um ný frímerki, sem út koma 24. þ.m. Eru það tvö merki í flokkn- um Merkir íslendingar. Hafa að þessu sinni orðið fyrir valinu tveir víðkunnir menn á sinni tíð og raunar vel þekktir enn í islenzkri bókmenntasögu, Magn- ús Stephensen, dómstjóri við landsyfirdóminn (1762—1833) og Finnur Magnússon, prófessor í Kaupmannahöfn (1781—1847). Eru verðgildin 170 aurar (blátt) og 190 aurar (brúnt). Þröstur Magnússon hefur teiknað merkin eftir gömlum myndum, en Frímerkjaprentsmiðja frönsku póstþjónustunnar hefur prentað þau í stálstungu. 25 merki eru í örkinni. Önnur frí- merki ársins Svo er að sjá sem póststjórnin geti aldrei komið frá sér áætlun um ný frímerki hvers árs með tilhlýðilegum fyrirvara. Stendur hún þar langt að baki póst- stjórnum nágrannalanda okkar. Hún sendi loks frá sér tilkynn- ingu 28. f.m. um ný frímerki. Fyrst verða þá þau merki, sem þegar hafa verið nefnd. Orðrétt segir svo: „Næstu frímerki verða hin svonefndu Evrópufrímerki, sem fyrirhugað er að komi út í byrjun maí. Myndefni þeirra verður að þessu sinni sótt í þjóðsögur. önnur frímerki, sem ákvörðun hefur verið tekin um, eru frímerki í tilefni af Alþjóða- ári fatlaðra, frímerki af 1000 ára afmæli kristniboðs á íslandi og frímerki með jarðstöðina „Skyggni" að myndefni, en í haust verða liðin 75 ár frá því ísland komst í símasamband við önnur lönd. í undirbúningi eru ennfremur frímerki með íslensk dýr að myndefni og verður nánar tilkynnt um þau síðar.“ Eins og tilkynningin ber sjálf með sér, er allt heldur lauát í reipum hjá póststjórninni, hvorki nefndir útgáfudagar né myndefni lýst rækilega og verð- gildi ekki nefnd. Hið siðasta getur verið afsakanlegt á verð- bólgutímum, enda þótt verð- stöðvun eigi að heita svona á yfirborðinu. Er þetta næsta lítil þjónusta við viðskiptavini pósts- ins og þá einkum safnara, sem íslenzka póststjórnin fær veru- legar fjárhæðir frá og oft fyrir litla sem enga fyrirhöfn. Ferð á WIPA 1981 Eitt sinn minntist ég lauslega á væntanlega ferð íslenzkra frí- merkjasafnara á alþjóðafrí- merkjasýninguna WIPA 1981, sem haldin verður í Vínarborg dagana 22,—31. maí nk. Nú hefur ferðaáætlun verið samin, enda hafa margir sýnt málinu mikinn áhuga. Ætlunin er, að þetta verði um leið sumarleyfis- ferð. Að sýningu lokinni verður farið í vikuferðalag um Austur- ríki og Þýzkaland. Þar sem fljótlega þarf að fastákveða ferð þessa, vill ég benda félögum í FF og eins innan LIF, sem vildu slást í hópinn, á að hafa sam- band annaðhvort við mig (s. 74977 og 29221) eða Pál Ás- geirsson, formann FF (s. 42872). Annars verða allar upplýsingar sendar félagsmönnum við fyrstu hentugleika.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.