Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981 41 félk í fréttum Ekkjan og sonurinn hljóðrita + Yoko Ono, ekkja John Lennons, hyggst nú taka upp samstarf við Julian Lennon, son Johns af fyrra hjónabandi. Fyrst í stað ætla þau að ljúka við upptökur á LP-plötunni sem Lennon og Yoko voru að vinna að þegar John var myrtur í byrjun desember. Síðan hyggjast þau gera plötu saman til að halda minningunni um John Lennon lifandi og halda áfram með þá tónlist sem þau skópu saman. Sú plata verður tekin upp í sama „stúdíóinu" og platan „Double Fantasy" sem nú nýtur mikilla vinsælda út um allan heim. Julian Lennon, sem er aðeins 17 ára, hefur búið í Englandi hjá móður sinni Cynthiu. Nú segist hann ákveðinn í að flytja til Yoko í New York. Gestur Odd- fellowa + Yfirmaður Alheims- regludeildar Oddfellowa, sem er Bandaríkjamaður og heitir Lewis G. McKee, var hér nú í vikunni í nokkurra daga heimsókn hjá íslenskum reglu- bræðrum. — Héðan hélt hann för sinni áfram til Danmerkur. Friðrik prins fermist + Krónprins Dana, Friðrik, sem nú er 12 ára verður fermdur að vori skömmu áður en hann verður 13 ára. Fermingardagur- inn verður um helgina 23. eða 24. maí næstkomandi. Er gert ráð fyrir því að krónprinsinn verði fermdur í kirkju Fredensborgarhallar. Muni fermingarathöfnin verða einföld og ekki aðrir í fermingarveislunni en nánustu ættingjar. Krónprinsinn gengur nú til prestsins, þ.e.a.s. að prestur dönsku hirðarinnar, konunglegur konfessionarius prof. dr. phil Christian Todberg, kemur einu sinni í viku til konungshallarinnar vegna fermingarundirbúnings hins unga ríkisarfa. Móðir hans, Margrét drottning, var 14 ára er hún var fermd í þessari sömu kirkju. Þá var henni jafnframt sett til trausts og halds hirðmey, komtessa Wawa Armfeldt, sem enn starfar við hirðina. Síðan Margrét Danadrottning var fermd eru liðin 26 ár á vori komanda. Frá aðalfundi Myntsafnarafélagsins Aðalfundur Myntsafnarafé- lagsins var haldinn í Norræna húsinu síðastliðinn sunnudag. Fór hann fram að hefðbundnum hætti. Formaður Anton Holt flutti skýrslu stjórnar. Kom þar fram velgengi félagsins. Haldnir voru 10 almennir félagsfundir með uppboðum, kaffidrykkju og tilheyrandi. Auk þess voru átta klúbbfundir í hinu nýja húsnæði félagsins að Amtmannsstíg 2. Allir voru þessir fundir vel sóttir. Um 50—70 ^manns á laugardagsfundunum en um 20 á klúbbfundunum, sem eru á hverjum fimmtudegi. Er rétt að vekja athyli á því, að á hverjum fimmtudegi koma myntsafnarar upp úr hálf níu um kvöldið á Amtmannnsstíg 2. Ræða menn þar saman um sín áhugaefni, glugga í bækur og tímarit úr bókasafni félagsins, skiptast á mynt og upphefja hið gamla máltæki, að maður er manns gaman. Gjaldkeri'félagsins gaf skýrslu um hag félagsins. Öll félög eiga í vandræðum í óða- verðbólgu, en þetta hefir ein- hvern veginn slampast hjá Myntsafnarafélaginu þrátt fyrir að lagt var í myntsýningu og sleginn var minnispeningur. Af minnispeningunum eru enn óseld 29 stykki og ættu þeir, sem enn hafa ekki fengið hann, að koma á næsta fund og kaupa hann. Verðið er 450 krónur. Búin verður til ný félagaskrá bráðlega. Verða þeir félagar strikaðir út, sem skulda árs- gjaldið og fá ekki að taka þátt í uppboðum hjá félaginu. Skora ég þvi á þá, sem enn skulda að gera upp strax. Peninga má senda til gjaldkera í pósthólf 5024 eða greiða honum á næsta fundi. eftir RAGNAR BORG Það kom fram á aðalfundinum að margir vilja leggja hönd á plóginn og eru í stjórn og nefndum féiagsins. Anton Holt gaf þó ekki kost á sér til endurkjörs og í hans stað var kjörinn formaður Freyr Jóhann- esson, sem verið hefir í stjórn frá 1971 og þar af gjaldkeri í 7 ár. Aðrir í stjórn eru Jón Guðbjörnsson, gjaldkeri, Tryggvi Ólafsson, ritari. Erlend- ur bréfritari: Marteinn Krist- insson. Varamenn: Kristján E. Halldórsson og Valdimar Frið- riksson. Endurskoðendur: Trausti Finnbogason og Indriði Indriðason. Meðstjórnandi: Gunnlaugur Gunnarsson. I uppboðsnefnd voru svo kjörnir á aðalfundinum þeir Anton Holt, Freyr Jóhannesson og Þorsteinn Pálsson. í Mynt- safnarafélaginu eru nú um 300 virkir félagar. Félagsblaðið MYNT kemur út mánaðarlega og eru í því merkar greinar mynt- fræðilegs eðlis. Félagsstarfsem- in stendur í blóma og ég er fullviss um það, að sú stjórn sem nú var kjörin lætur ekki sitt eftir.liggja, enda er þarna ein- valalið áhugasamra myntsafn- ara sem nánast allir hafa verið í fyrri stjórnum félagsins. Korktöflur í kvenstærðum. Yfirleður, ekta skinn með skinnfóðruðum korkinn- leggjum. Sérlega léttar. 4þp Domus Medica. VIÐTALSTÍMI Alþingismanna og borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Alþingiamenn og borgarfulltrúar Sjéllatæöisflokkains verös til viötals i Valhöll, HAaleitisbraut 1 é laugardögum Iré kl. 14.00 til 10.00. Er þer tekiö é móti hvers kyns fyrirspurnum og ébendingum og er öllum borgarbúum boöið aö notfaara sér viötalstíma þessa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.