Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981 45 nokkrum árum lengur en skemur. Áður fyrr voru apótekin megin burðarás íslenzkrar lyfjaþjónustu, þau önnuðust innflutning lyfja, framleiðslu lyfja, rannsóknir o.fl. Með stöðugt og stórauknum kröf- um varðandi lyfjafraeðistörf og þjónustu alla hefur komið upp margbreytileg verkaskipting, sem er til framfara og til góðs fyrir þjóðina. Síst allra heilbrigð- ismálaráðherrann Apótekin hafa tekið þá stefnu að þau hafa sérhæft sig meir og meir á sviði lyfjadreifingar og upplýsingaþjónustu. Það ætti því sízt allra að vera heilbrigðismála- ráðherrann, sem vill snúa þróun- inni afturá bak og refsa hinum framsæknari og betur menntuðu og fjölreyndari lyfjafræðingum, eins og hann i raun stefnir að með höfðun til þesarar reglu um tíma- lengd við störf í apóteki, sem ráðuneytismenn og heilbrigðis- málaráðherrar hafa hingað til talið neikvæða. Fjölþætt reynsla, frábær hæfni og námsárangur Stúlkan, sem Svavar hafnaði, hefur fjölþætta reynslu í stjórnun og skipulagningu á ráðuneytis- stigi. Hún hefur einnig langa og nána reynslu af apóteksstörfum. Loks má nefna, að hún sannaði frábæra hæfni sína með námsár- angri sínum í Lyfjaháskólanum danska en þar lauk hún námi með einhverjum þeim glæsiiegasta námsárangri, sem nokkur íslend- ingur hefur náð við þann skóla. En kannski er meginatriðið hin gamla og nýja regla, að það er kostur á starfsmanni en ekki löstur, að hann hafi fjölþætta reynslu í starfi sínu og fræðigrein en sé ekki skoraður við einn þátt henn- ar. Taki Magnús Kjart- ansson sér til fyrirmyndar Ég er persónulega ekki í vafa um, að hinn skarpgáfaði og reyndi blaðamennskuvíkingur Svavar Gestsson, sem nú prýðir sæti nokkurra ráðherra í senn, hefur fyrirlöngu gert sér grein fyrir mistökum sínum í þessu máli. Ég á þá ósk bezta honum til handa, að í starfi heilbrigðismálaráðherra taki hann sér til fyrirmyndar flokksbróður sinn Magnús Kjart- ansson, sem rak ráðuneytið af skörungsskap og aðgæzlu og sýndi jákvæða afstöðu til starfa lyfja- stétta innar sem annarra heil- brigðisstétta og náði með því ótrúlega góðu samstarfi og merk- um árangri. En einlægasta von mín fyrir Svavar Gestsson er sú, að honum lærist strax, að konur eru líka menn, þótt þær séu ekki karlmenn og að þær eiga sinn rétt engu síður en þeir.“ þetta kostaði þónokkra peninga, sem ég hef ekki of mikið af, bæði fargjaldið í strætisvagninum og eins aðgangurinn í laugunum. Ég hlakk- aði því ekki Iítið til þess að fá nýju sundlaugina, geta sparað mér far- gjöldin og farið gangandi * þangað á hverjum morgni. Svo loksins þegar hún er komin, þá er hún bara opin frá kl. 9—11 fyrir almenning, eða réttara sagt fullorðið fólk. Hún er að vísu opnuð aftur síðdegis og ég prófaði einu sinni að fara á þeim tíma. En ég geri það ekki aftur. Ástandið minnti mig á Hong Kong, ekkert vatn, bara krakkar. Mér finnst það svolítið öfugsnúið að hafa laugina aðeins opna börnum mest- allan daginn, og svo þegar hún er loksins opnuð fullorðna fólkinu, þá er varla hægt að þverfóta þar fyrir krökkum. Erum við fullorðna fólkið algerlega sett hjá? Af hverju fáum við ekki sértíma eins og krakkarnir? Vinna hargreiðslukvenna í heimahúsum: „Ekki undir neinu eftirliti“ — segir Hárgreiðslu- meistarafélagið „Vegna bréfs „einnar bálvondr- ar“ til Velvakanda þ. 31. jan. sl. vill Hárgreiðslumeistarafélag íslands koma eftirfarandi á framfæri: Þær konur, sem kjósa að fara til hárgreiðslukvenna, sem vinna í heimahúsum, eru með því að velja sér annars flokks þjónustu, þar eð slík vinna er ekki undir neinu eftirliti hvað hreinlæti eða verðlag snertir, og er ekki háð þeim reglum, sem hárgreiðslustofur með leyfi þurfa að hlíta. Ennfremur geta heimavinnandi hárgreiðslu- konur ekki hagnýtt sér þá fræðslu eða sótt þau námskeið, sem Hár- greiðslumeistarafélagið býður upp á til að kynna nýjustu tísku og tækni. Getur komið heim og saman Viðskiptavinir þeirra verða því að sætta sig við þá afgreiðslu og verðlagningu, sem þar er, án þess að Hárgreiðslumeistarafélagið eða aðrir geti breytt nokkru þar um. Það getur komið heim og saman, að hárgreiðslukonur, sem vinna í heimahúsum, hafi svipaðar tekjur og tannlæknar. Af slíkri vinnu er ekki greiddur söluskattur og kannski ekki tekjuskattur, þó að sama eigi ekki við um tannlækna, sem væntanlega greiða sína skatta og skyldur. Á venjulegum hár- greiðslustofum er auk þess greidd- ur alls konar annar kostnaður svo sem laun og launatengd gjöld, húsaleiga, ljós og hiti, svo að eitthvað sé nefnt. Hárgreiðslumeistarafélagið mun með ánægju veita frekari upplýs- ingar sé þess óskað." Bolla, bolla - borgarstjórn Kjósandi skrifar: Skyldu kjósendur almennt gera sér grein fyrir því, þegar þeir velja borgarstjórn í kjörklefan- um, að þeir eru þá m.a. að fela nokkrum einstaklingum að ákveða hvar og á hvaða tíma sólarhrings þeir mega kaupa bolluvendi. Um það atriði hefur borgarstjórn Reykjavíkur nýlega fjallað og vitaskuld í fullri al- vöru. Þá hefur borgarstjórnin heimilað að selja blýanta við vissar aðstæður, en ekki kúlu- penna. Loks hefur raksápa (sem var algeng um aldamótin) fundið náð fyrir augum borgarstjórnar- innar, en handsápa er útilokuð, svo ekki sé talað um grænsápu. Harðfiskur, dömu- bindi, flugeldar Um þetta viðfangsefni „lýðræð- islega kjörinna fulltrúa" borgar- búa má lesa í nýlegum fundar- gerðum frá borgarstjórn Reykja- víkur, þar sem fjallað er um lokunartíma sölubúða. Þegar öll- um sölubúðum hefur verið skellt í lás á sama augnabliki að boði þessara yfirvalda, sem' enga verzlun eiga og aldrei kaupa bolluvendi og kemur því þetta mál ekkert við, setjast þau niður og ákveða af vizku sinni, að borgarbúi, sem á peninga, megi kaupa af manni, sem á sjoppu, þennan hlut en ekki hinn. Þannig verður til hið furðulegasta plagg, sem kallað er sjoppulisti og er um leið dómur stjórnmálamanna um það, hvað venjulega borgara van- hagar um, þegar degi hallar. Stjórnmálamönnum þykir fara vel á því að bjóða til sölu eftir klukkan sex á sama stað blöðrur, dömubindi, harðfisk og flugelda, en vei þeim, sem vantar smjörlíki eða rúsínur. Svoleiðis fólk getur bara fengið sér saltstengur, (salt- stólpa?), sem greinilega eru í meirihluta í borgarstjórn og því á sjoppulistanum. Mál er að þessum mömmuleik linni Engin von er til þess, að stjórnmálamönnum hugkvæmist, að einstaklingur viti betur en þeir, hvað hann vantar og vill kaupa hverju sinni. Þeir eru fyrir löngu orðnir gegnsósa af félags- legri forsjá fyrir allt og alla, þótt enginn kannist við að hafa beðið þá um slíkt. Markús Örn má víst eiga það að hafa eitthvað andæft í þessu sambandi, en auðvitað komst hann ekki upp með moð- reyk. Sjoppulistinn er bara eitt dæmi um óþolandi afskiptasemi stjórn- málamanna af þessum hlutum, sem þeir hafa ekki hundsvit á. Mál er að þessum mömmuleik linni og menn fái í friði að ráða sjálfsögðum hlutum og taka af- leiðingum gerða sinna. Brldge Runólfur Pálsson Bjarni Pétursson Svavar Björnsson 87 86 8-1 Umsjón: ARNÓR RAGNARSSON Bridgefélag Breiðholts Urslit í eins kvölds tvímenn- ingi sem spilaður var sl. þriðju- dag urðu þessi: Gísli Þorvaldsson — Reynir Bjarnason 267 Þórarinn Árnason — Guðlaugur Guðjónsson 237 Kjartan Kristófersson — Friðjón Margeirsson 228 Leifur Karlsson — Hreiðar Hansson 225 Nk. þriðjudag verður spilaður eins kvölds tvímenningur að venju og eru allir velkomnir. Spilað er í húsi Kjöts og fisks í Seljahverfi og hefst keppni kl. 19.30. Reykjanesmót í sveitakeppni Reykjanesmót í sveitakeppni, sem jafnframt er undankeppni fyrir íslandsmót hefst laugar- daginn 14. febrúar nk. og hefst klukkan 13. Spilað verður í Félagsheimili Kópavogs. Skráning er hafin í síma 92-2073 (Gestur Auðunsson) eða 91-51912 (Ólafur Gíslason). Bridgefólag Kópavogs Urslit í fimmtu umferð sveita- keppninnar: Jón A. — Sigurður 12-8 Jón Þ. — Sigrún 20-0 Ármann — Dröfn 20-0 Þórir — Svavar 14-6 Runólfur — Ásthildur 15-5 Bjarni — Aðalsteinn 18-2 Grímur — Sverrir 17-3 Úrslit í sjöttu umferð: Runólfur — Bjarni 11-9 Svavar — Ásthildur 20-0 Ármann — Þórir 17-3 Jón Þ. — Dröfn 18-2 Sigurður — Sigrún 14-6 Grímur — Jón A. 16—4 Sverrir — Aðalsteinn 14-6 Staðan: Jón Þorvarðarson 110 Ármann J. Lárusson 102 Nýja bridgeblaðið Fyrsta tölublað nýja bridge- blaðsins, BRIDGESPILARINN, er komið út. Blaðið er 40 síður og er Páll Bergsson útgefandi og ábyrgðarmaður. í ritstjórn eru Guðmundur Páll Arnarsson, Guðmundur Hermannsson. Jón Baldursson og Vigfús Pálsson. Af efni blaðsins má nefna m.a.: Rætt er við nýkjörinn forset.a Bridgesambands íslands, Þorgeir Eyjólfsson, Guðmundur Hermannsson skrifar um úr- slitaleik bikarkeppninnar. Þá er langt fréttabréf frá Stefáni Vil- hjálmssyni sem segir fréttir frá Bridgefélagi Akureyrar. Guð- mundur Páll skrifar grein um „bankið" sem fer í taugarnar á mörgum manninum. Heitir hún Viðvörunarreglan. Þá er grein eftir Guðmund Hermannsson sem hann kallar Er beljurnar fljúga með klaufir á kvið þar sem hann rekur eigin raunir og annarra. Þá eru í blaðinu ýmsar þraut- ir: Hvernig spilarðu og Hvað segirðu ásamt verðlaunaþraut BRIDGE SPILARINN Forsíða Bridgespilarans. þar sem fyrstu verðlaun eru 500 krónur. Loks má geta þess að aftast í blaðinu er sagnkeppni milli tveggja para frá Bridge- félagi Reykjavíkur. Þátturinn óskar aðstandendum blaðsins og þá sérstaklega Páli Bergssyni til hamingju með blaðið. Lindarbær Opiö 9—2 Gömlu dansarnir í kvöld. Þristar leika. Söngvarar Mattý Jó- hanns og Gunnar Páll. Miöa- og borðapantanir eftir kl. 20, sími 21971. Gömludansaklúbburinn Lindarbæ Haukur Morthens hinn sívinsæli söngvari skemmtir í kvöld ásamt hljóm- sveitinni Mezzoforte.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.