Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.02.1981, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981 Fréttaskýring Ævintýri steinsteypunnar Almenna veðlánakerfið og Hús- næðismálastjórn hafa verið grundvöllur opinberra aðgerða til fjármögnunar íbúðarbygg- inga í landinu í aldarfjórðung. A þessum tíma hefur gerst ævintýri í húsakosti þjóðarinn- ar, húsnæðisbylting, sem hvarvetna blasir við augum í byggðum bólum landsins. Al- menna veðlánakerfið og Bygg- ingarsjóður rikisins hafa lánað til 90—95% af íbúðarhúsa- byggingum í landinu á þessum tíma. Endurskoðun húsnæðislöggjafar á þessum tíma hefur fyrst og fremst snúizt um fjármagns- útvegun, enda fjármagnið, hér sem annarsstaðar, afl þeirra hluta sem gera skal. Bygg- ingarsjóðnum voru tryggðir fastir fjármagnsstofnar þar sem voru launaskatturinn og skyldusparnaður ungs fólks. Lán í hlutfalli af bygginarkostn- aði voru um 30% árið 1959. Á sjöunda áratugnum, 1960— 1970, miðaði nokkuð í hækkun þessa lánahlutfalls, og árið 1971 var það rúm 40%. Á áttunda áratugnum, 1970— 1980, lækkaði Iánahlutfallið aftur og var á liðnu ári 1980 aðeins rúm 30% eða litlu hærra en það var tveimur áratugum áður. Upphaflega var hlutverk Bygg- ingarsjóðs ríkisins bundið við íbúðarlán til einstaklinga út á nýbyggingar. Síðan hafa hon- um bætzt viðbótarverkefni, án samsvarandi tekjuöflunar: framkvæmdaáætlun í Breið- holti, leiguíbúðir sveitarfélaga og lán til kaupa á eldri íbúðum. Allt nauðsynleg og aðkallandi verkefni, hliðar á steinsteypu- ævintýrinu, en það breytir ekki hinu, að sjóðnum voru ekki Breiðholtið — bygg- ingarsögulegt afrek. opinberu starfi og launþega á almennum vinnumarkaði. Afleiðingar þessarar lagabreyt- ingar fyrir Byggingarsjóðinn verður augljoslega sú að hann er veiktur verulega. Honum er jafnvel stefnt í fyrirsjáanlegan voða með því að gera honum að taka lán á 3,25% vöxtum til að lána út á 2% vöxtum. Engu er líkara en stefnt sé að því að höggva að rótum hins almenna lánakerfis í byggingariðnaðin- um. Byggingarsjóður verkamanna Skerðing hins almenna lánakerf- is, sem risið hefur undir rúm- lega 90% lána til íbúðarbygg- inga á liðnum áratugum, er afsökuð með eflingu Bygg- ingarsjóðs verkamanna. Sú skýring nær þó skammt er grannt er gáð. Byggingarsjóður verkamanna hefur haft það hlutverk að mæta þörfum þeirra, sem áttu undir þyngst högg að sækja í húsnæðismálum. Fjármögnun hans var því þann veg fyrir- komið frá upphafi að hann gæti veitt löng lán á hagstæð- ari kjörum en almennt gerðizt. Þetta hefur verið framkvæmt þann veg að ríkissjóður og sveitarsjóðir hafa lagt fram allt fjármagn sjóðsins, sem lánað hefur verið til verka- mannabústaða. Þessi óaftur- kræfu framlög hafa skapað grundvöll fyrir löngum láns- tíma, lágum vöxtum og háum hlutfallslánum miðað við bygg- ingarkostnað. Er höggvið að rótum almenna Mnakerfisins í byggingariðnaði? Fjárfestingarsjóðir til ibúðabygginga veiktir fryggðir tekjustofnar til sam- ræmis við aukin verkefni. Lækkun lánahlutfalls á m.a. rætur til þessa að rekja. í Breiðholti reis 15 til 20 þúsund manna byggð á réttum áratug. Það var stórvirki, sem framtak fólks og almenna veðlánakerfið axlaði. Hlutur Reykjavíkur-' borgar: lóðir, götur, heita vatn- ið, kalda vatnið, raflagnir, auk þjónustustofnana, (skólar o.sv.fv.) var og kapituli út af fyrir sig, sem var byggingar- sögulegt afrek á sinni tíð. Fleiri baggar á klakk Byggingarsjóðsins Alþingi samþykkti breytingar á húsnæðislöggjöfinni vorið 1980. Þar með voru stóraukin verkefni enn lögð á Bygg- ingarsjóðinn, án þess að hon- um væri séð fyrir tekjum. Þessi viðbótarverkefni voru: 1) Lán til tækninýjungar í byggingariðnaði. 2) Lán til orkusparandi breyt- inga á húsnæði (húshitun). 3) Aukin lán til meiriháttar viðbygginga og endurbóta og endurnýjunar á eldra íbúðar- húsnæði. í greinargerð með frumvarpi að þessum breytingum á húsnæð- islöggjöfinni var gert ráð fyrir því að árlega þyrfti 10 millj- arða gamalkróna, á verðlagi ársins 1978, til að mæta þess- um útgjaldaauka þegar lögin væru að fullu komin til fram- kvæmda. I greinargerðinni var hingsvegar hvergi drepið á hvern veg tryggja skuli þetta fjármagn. borvaldur Garðar Kristjánsson, alþingismaður, sem mjög hefur látið húsnæðismál til sín taka á Alþingi, gagnrýndi þetta ósamræmi verkefnaaukningar og fjármagnsútvegunar, er hann mælti fyrir tillögu þing- manna úr Sjálfstæðisflokknum að launaskatturinn allur, sem allir launagreiðendum er gert að gjalda, (3‘/í% af greiddum vinnulaunum), skyldi renna til Byggingarsjóðsins; ekki ein- ungis 2% eins og verið hefði, en lxk% rann í ríkissjóð. Þetta hefði tryggt sjóðnum um 26 milljarði gamalkróna á árinu 1981 (á verðlagi í árslok 1980). Þessu hafnaði stjórnarliðið, „þó að launaskatturinn hafi upphaflega verið lagður á ein- göngu til fjáröflunar fyrir Byggingarsjóð ríkisins", eins og Þorvaldur Garðar tók fram í ræðu sinni, sem hér er til vitnað. Tekjur almenna kerfisins stórskertar Ríkisstjórnin hafnaði ekki að- eins þeirri leið að launaskatt- urinn færi allur í Byggingar- sjóð ríkisins heldur hefur hún nú svipt sjóðinn öllum tekjum af þessum skatti, svo sem fram kom í afgreiðslu fjárlagafrum- varps fyrir árið 1981. Um þetta efni sagði Þorvaldur Garðar í þingræðu: „Hér er um bein fjörráð að ræða við hinn almenna húsbyggj- anda í landinu. Það er beinlínis verið að grafa undan þeim lánasjóði, sem lánað hefur til meginhluta allra íbúðarbygg- inga í Iandinu. En hér er um meira að tefla en sjóðinn. bað er vegið að þeim viðhorfum og þeirri lifsskoðun, sem er grundvöllur þess átaks, sem þjóðin hefur gert í húsnæð- ismálum á undanförnum ára- tugum. bað er vegið að þeirri sjáifsbjargarviðleitni og einkaframtaki, sem skilað hef- ur okkar glæsiiega árangri í húsnaðismálum". Treysta verður nú enn meir en áður á lántökur hjá lífeyris- sjóðum til að fjármagna sjóð- inn, — og möguleikum hans til að gegna hlutverki sínu er teflt í meiri óvissu en áðpr. Þetta lánahlutverk lífeyrissjóða flýt- ir heldur ekki fyrir gegn- umstreymiskerfi lífeyrissjóða, sem talið hefur verlð forsenda þess að koma megi á jafnrétti í lífeyrismáium milli launþega í Nú er þessu breytt. Ríki og sveitarfélög eiga einungis að leggja fram 40% af því fjár- magni, sem Byggingarsjóður verkamanna á að lána. Sam- kvæmt lögunum (d-liður 37. greinar) á annað fjármagn að koma með sérstökum lántök- um, sem ákveðnar verða í fjárfestingar- og lánsfjáráætl- un hverju sinni. Þannig á að leita á hinn almenna lána- markað (eftir 60% umsetn- ingarfjármagns) með þeim lánskjörum, sem þar eru eða verða, og sjóðnum síðan gert að endurlána með 0,5% vöxt- um. Um þetta efni sagði Þor- valdur Garðar Kristjánsson í þingræðu: „Með þessu fyrir- komulagi er raskað grundvell- inum fyrir starfsemi Bygg- ingarsjóðs verkamanna, nema breytt verði þeim útlánakjör- um, sem lögin gera ráð fyrir. Þessi lánakjör eru miðuð við þarfir hinna verst settu. Ef þau eru gerð lakari þá er kippt fótunum undan aðstoð við þetta fólk. Blikur eru á lofti í þessum efnum.“ Valfrelsi er af hinu góða „Félagslegar" byggingar eiga fullan rétt á sér að vissu marki. Nauðsynlegt er að leiguíbúðir séu til staðar. Ekki aðeins til að mæta þörfum þeirra, sem ekki ráða við að koma sér eigin þaki yfir höfuð- ið, heldur einnig til að tryggja valfrelsi fólks, sem heldur kýs að verja fjármunum sínum í annað en íbúðareign, og þarf þar af leiðandi að leigja hús- næði. Hver og einn á að hafa rétt og möguleika á að velja sér lífsform einnig að þessu leyti. Annað mál er að möguleikar, sem skapaðir eru á þessum vettvangi, mega ekki vera stór- skerðing á hinum kostinum, almenna veðlánakerfinu, eins og nú er að stefnt, og heggur að hornsteini þeirrar húsnæðis- byltingar, sem orðið hefur með þjóðinni á liðnum áratugum, fyrst og fremst fyrir samvirkj- un framtaks einstaklinganna í landinu og almenna veðlána- kerfisins. Breytingin, sem varð með lögum frá liðnu vori, þýðir: 1) Byggingarsjóður verka- manna fær framlag úr ríkis- sjóði sem nemur tekjum hans af 1% launaskatti, þó aldrei meira en 30% af fjármögnun- arþörf sjóðsins. Framlag sveit- arfélaga er ákveðið 10%. Að öðru leyti skal bæta fjár- magnsþörf sjóðsins með lán- um. 2) Stefnt er að því að húsbygg- ingar, tengdar þessum sjóði, verði þriðjungur heildarbygg- inga íbúðarhúsnæðis í stað 5-10%. 3) Starfsgrundvöllur sjóðsins veikist þar sem hann, í stað þess að njóta óafturkræfra framlaga, þarf nú að sækja 60% af fjármagnsþörf sinni á almennan lánamarkað (með al- raennum vaxtakjörum) en veita byggingarlán með 0,5% vöxtum. Áhrifin á byggingariðnaðinn Hér verður ekki gerð tilraun til að meta áhrif þessara breyt- inga á heildarhraða eða afköst í íbúðabyggingum. Sýnt virðist þó að almenna lánakerfið sé rýrt umtalsvert og framtíð- arstöðu beggja fjármögnun- arsjóðanna teflt í tvísýnu, að ekki sé meira sagt. Ýmsir hafa látið ugg í ljósi vegna þess, ekki sízt þeir sem hagsmuna hafa að gæta í byggingariðnaðinum. Rétt þyk- ir að ljúka þessari lauslegu samantekt á kafla úr áramóta- hugleiðingu Sigurðar Krist- inssonar, formanns Lands- sambands iðnaðarmanna, en hann sagði orðrétt: „Félagsmálaráðherra tók fyrir skömmu fyrstu skóflustunguna að félagslegum byggingum á Eiðsgranda, og lýsti því um leið yfir, án þess svo mikið sem drepla auga, að nú verði al- mennar íbúðarbyggingar að sitja á hakanum, þær félags- legu verði að hafa forgang. Þar hjó sá, er síst skyldi. Með þessari skóflustungu hefur ráðherrann gert sig líklegan til að jarðsetja hluta hinna al- mennu byggingarfyrirtækja, og virðist jafnframt hafa gleymt hinum þögla meirihluta þjóðarinnar, sem eignast þak yfir höfuðið með aðstoð hins „frjálsa" byggingariðnaðar. Álmenningur hefur ekki hingað til verið ofsæll af þeirri fyrirgreiðslu, sem honum hef- ur staðið til boða til að eignast íbúðarhúsnæði. Lán Húsnæð- isstofnunar ríkisins hafa und- anfarið farið lækkandi sem hlutfall af byggingarkostnaði, þrátt fyrir sífelldar yfirlýs- ingar um að efla beri Bygg- ingarsjóð ríkisins. En hvert verður lánshlutfallið nú, þegar því hefur beinlínis verið lýst yfir, að enn skuli þrengja kost hins almenna borgara, vilji hann eignast þak yfir höfuðið? Hvernig verður lóðaframboðið í kjölfar þesarar yfirlýsingar? Svör við þessu þætti mér fróð- legt að vita.“ sf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.