Morgunblaðið - 07.02.1981, Page 22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981
22
Flugrán
Bo^ota, 6. febrúar. — AP.
ÞRÍR druslulcKa klæddir menn
vopnadir vélbyssum rændu í da«
Boeing-727 farþeKaþotu Avianca-
fluKÍélaKsins skömmu eftir ÍIuk-
tak á BuearmanKa i noröaustur-
hluta Cólumhíu.
Neyddu þremenningarnir flug-
stjórann að fljúga þotunni til Cuc-
uta við landamæri Venezuela. Hafa
þeir nú hótað að taka áhöfnina af
Íífi ef 300 hermenn og fjölmargir
hervagna yfirgefa ekki flugvöllinn
þar, en um leið og þotan lenti í
Cucuta umkringdu hermennirnir
þotuna.
í Cucuta var 60 farþegum leyft að
fara frá borði, og talið er að þeir
hafi ekki verið fleiri auk
áhafnarinnar, sem telur flugstjóra,
flugmann, flugvélstjóra eg tvær
flugfreyjur. Önnur flugfreyjan
sleppti sér við komuna til Cucuta.
Nýja ríkisstjórnin i Noregi fyrir utan konungshöllina í Ósló. Gro Harlem Brundtland. forsætisráðherra er niunda frá vinstri,
Þetta gerðist
1554 — Herlið sir Thomas Wyatt
sækir til Lundúna.
1793 — Austurríkismenn og
Prússar gera með sér bandalag
gegn Frðkkum.
1816 — Símoni Bolivar falið af
þingi Nýju Granada að stjórna
innrás í Venezuela frá Haiti.
1831 — Stjórnarskrá Beigiu birt.
1849 — Stórhertoginn af Toscana
flýr til Gaeta, Ítalíu.
1878 — Leo páfi XIII kjörinn.
1920 — Bolsévíkar taka Alexand-
er Koltchak aðmírál af lífi.
1932 — Norðurlönd, Belgía og
Holiand taka upp efnahagssam-
vinnu.
1941 — Bretar taka Benghazi.
1947 — Arabar og gyðingar hafna
tillögum Breta um skiptingu Pal-
estínu.
1962 — 298 námamenn farast í
kolanámusprengingu í Saarbruck-
en.
1969 — Rúmlega 200 falla í
loftárás Nígeríumanna á markað í
þorpi í Biafra.
1971 — Geimfararnir í Appolio 14
ienda á Kyrrahafi eftir tunglferð.
1974 — Bretar veita eynni Gren-
ada á Karibahafi sjálfstæði.
1976 — Kunngert að Hua Kuo-
feng hafi verið skipaður forsætis-
ráðherra Kína.
Aímæli. Charles Dickens, brezkur
rithöfundur (1812—1870) — Sir
Thomas More, enskur stjórnmála-
leiðtogi (1478—1535) — Dimitri
Mendeleyev, rússneskur efnafræð-
ingur (1834—1907) — Alban Berg,
austurrískt tónskáld (1885—1935)
— Sinciair Lewis, bandarískur
rithöfundur (1885—1951).
Innlent. 1826 Amtmannshúsið á
Möðruvöllum brennur — 1848
Auglýsing Stefáns Gunnlaugsson-
,ar landfógeta um íslenzka tungu í
íslenskum kaupstað, „hvað aiiir
athugi!" — 1911 Fiskifélag íslands
stofnað — 1950Alþingi samþykkir
aðild að Evrópuráðinu —
19590fviðrið á Nýfundnalands-
miðum. Fyrsti togarinn dæmdur
eftir útfærslu í 12 mílur. 1974
Concorde kemur til íslands —
1980 Tveir Sjálfstæðismenn lýsa
yfir stuðningi við stjórnarmyndun
— 1904 f. Ragnar Jónsson í
Smára. — 1908 f. Sverrir Krist-
jánsson sagnfr. 1917 f. Gylfi Þ.
Gíslason.
Orð dagsins. Hugmyndaflug hans
minnti á strútsfjaðrir. Með þeim
gat hann hlaupið, en ekki hafið sig
til flugs — Macaulay lávarður,
brezkur sagnfræðingur (1800—
1859).
WaHhington, 6. febrúar. — AP.
BANDARÍSKA leyniþjónustan,
CIA heldur því fram í skýrslu,
sem birt var i Washington í dag,
að Sovétmenn hefðu varið 40%
meira til hernaðarupphygg-
ingar en Bandarikin á síðasta
áratugnum. Samanburður CIA
var byggður á útgjöldum í doll-
urum. CIA heldur því fram. að
Sovétmenn hefðu varið 175 millj-
örðum dollara til hernaðarupp-
byggingar á árinu 1980 miðað
við 115 milljarða dollara sem
Bandaríkjamenn vörðu til hern-
aðaruppbyggingar.
Þá hélt CIA því fram, að
Sovétmenn hefðu á síðasta ára-
tug farið fram úr Bandaríkja-
mönnum í nýsmíði vopna. Stofn-
unin heldur því fram, að á
árunum 1971 til 1976 hefðu
Bandaríkjamenn minnkað fé til
hernaðarútgjalda að meðaltali
um 6% á ári á meðan Sovétmenn
sífellt vörðu meira fé til hernað-
aruppbyggingar. Þegar kom fram
á árið 1976 vörðu Sovétmenn
helmingi meira fé til hernaðar-
uppbyggingar en Bandaríkin en
eftir það hefur munurinn minnk-
að. Þó sagði stofnunin, að séð
væri fram á sömu þróun fram á
miðjan þennan áratug að
minnsta kosti. Þá sagði stofnunin
að örust hefði uppbygging Sovét-
manna verið á sviði eldflauga,
flugvéla og herskipa.
Harðar deilur um
sparnaðaráætlun
Rússar vörðu 40%
meira fé til hernað-
aruppbyggingar en
Bandaríkin sl. 10 ár
Stokkhólmi, 6. febrúar, frá Guðfinnu
Ragnarsdóttur fréttaritara Mbl.
MIKILL hiti var í umræðunum í
sænska þinginu i fyrradag eftir að
rikisstjórnin hafði lagt fram sparn-
aðartillögu sina. Ein aðaltillagan
var lækkun skatta og bauð forsætis-
ráðherra, Thorbjörn Fálldin, hags-
munafélögunum, jafnaðarmönnum
og Olof Palme til viðræðna um
skattana i vor. Olof Palme var i
fyrstu mjög andvigur slíkum við-
ræðum en sagðist sfðar skyldu
athuga málið ef hann fengi skrif-
iegt boð um að koma. Áður hafði
hann ráðist harkaleKa á rikis-
stjórnina út af sparnaðaráætiun-
inni ok sakað hana um að hafa legið
í launsátri ok tekið af launþegum
allt sem þeim hafði tekist að semja
um. áður en 17 klukkustundir voru
liðnar frá undirritun samninua
„Þið takið frá þeim allar kaup
hækkanir <>k meira í viðbót með þvi
að hækka mat, ferðir, leÍKU <>k
fleira,“ saKði hann. „Með þvi að
banna skattafrádrátt á ferðum til
<>K frá vinnu tapar hinn almenni
launþcKÍ 500 krónum. Ilerra Buh-
man Klottir yfir þvi. Hann getur
glott. slikur frádráttur skiptir
hann ekki máli,“ sagði Olof Palme.
Forsætisráðherrann, Thorbjörn
Fálldin, var aftur á móti mjög blíður
og samvinnuþýður í umræðunum."
Launþegar og atvinnurekendur hafa
gengið á undan með góðu fordæmi.
Við stjórnmálamenn verðum að sýna
sama vilja.
Ola Ullsten formaður Þjóðaflokks-
ins var einnig mjög jákvæður í
sínum umræðum og hallaði sér að
Jafnaðarmönnum: „Við höfum
kannski ekki alltaf hlustaö af nægri
athygli á jafnaðarmenn þegar þeir í
andófsstefnu sinni hafa komið með
góðar tillögur," sagði hann.
Formaður Hægri flokksins, Gösta
Bohman, var aftur á móti kuldalegur
í orðum við jafnaðarmenn eftir ræðu
Olof Palme. „Það virðist sem jafnað-
armenn séu með stríðsæsing". Og
Ftlldln
að
virtist mátulega hrifinn af því
hefja skattaviðræður við Palme.
Gunnar Nilsson alþingismaður
jafnaðarmanna og formaður sænska
alþýðusambandsins (LO) sagði í um-
ræðunum í fyrradag að það væri vel
skiljanlegt að iaunþegar væru
áhyggjufullir þegar ríkisstjórnin
kæmi með slikar sparnaðartillögur.
Hann fór mörgum hörðum orðum
um aðgerðir ríkisstjórnarinnar og
sagði: „Við í hagsmunahreyfingunni
getum ekki lengur ábyrgst að laun-
þegar fái óskertan kaupmátt. Það er
nú hlutverk ríkisstjórnarinnar. Eftir
fimm ára borgaralega stjórn er
efnahagsástandið þannig að það þarf
meira en lítið átak til að ná sér á
strik aftur. Þetta er ekki í fyrsta
sinn sem LO hefur orðið að þola
siíkan yfirgang af hálfu ríkisstjórn-
arinnar. Aður fyrr hefur hún oft
eyðilagt kaupsamningana með geng-
isfellingum eða öðrum slíkum að-
gerðum."
Tveir herlögreglu-
menn myrtir á Italíu
Padua, italiu, 6. febrúar. — AP.
TVEIR herlögreglumenn voru
skotnir til bana í horginni
Padua á Ítalíu í gær. Morðin á
herlögreglumönnunum eru
fyrstu pólitísku morðin á Ítalíu
i ár. Talið er að nýfasistar
standi að baki morðunum.
Tveir ónafngreindir aðilar
hringdu til blaða á ítaliu og
lýstu ábyrgðinni á hendur
þriðju fylkingunni — ný-fas-
istasamtök.
Að sögn þeirra, þá komu
herlögregiumennirnir nýfasist-
um að óvörum og kom til skot-
bardaga. Lögreglumennirnir
biðu bana. Lögreglan handtók í
dag Valerio Fioravanti, hermd-
arverkamann, sem særðist í
átökunum í Padua. Hann hefur
verið eftirlýstur um skeið, talinn
viðriðinn morð á dómara og
einnig er hann talinn viðriðinn
sprengjutilræðið í Bologníu
þann 2. ágúst síðastliðinn en þá
biðu 85 manns bana.
Finnland:
Tillögur ríkisstjórnarinn-
ar um launamál fá meðbyr
Frá Harry Granberg, fréttaritara Mbl.
í Finnlandi, 6. febrúar.
TILLÖGUR finnsku rikisstjórn-
arinnar um launamál hafa mælst
vel fyrir. Ekki er þó búist við að
þær verði samþykktar og komi til
framkvæmda fyrr en i lok mánað-
arins. Aðeins einn hópur innan
launþegahreyfingarinnar er á
móti tillögunum, en skoðanir eru
skiptar innan finnska alþýðu-
sambandsins FFC.
í tillögunum er gert ráð fyrir
12% launahækkun á næstu 2
árum, að bændur fái 1,5 milljón
finnskra marka og að ríkið hefji
aðgerðir á sviði skatta- og félags-
mála.
Opinberir starfsmenn, TCO, eru
á móti tillögunum. Telja þeir að
þær skerði hlut útivipnandi
mæðra. Um 300.000 manns eru í
TCO en um 100.000 opinberir
starfsmenn eru í FFC og eru þeir
fylgjandi tillögunum.
í dag greiddi stjórn FFC at-
kvæði um tillögurnar. 14 jafnað-
armenn voru fylgjandi þeim en
átta kommúnistar á móti. Bændur
hafa þegar lýst sig samþykka
tillögunum.
RíkÍ8stjórnin mun nú athuga
tillögurnar nánar og ef til vill
breyta þeim eitthvað. Síðan kem-
ur það í hlut hinna mörgu laun-
þegasamtaka og atvinnurekenda
að semja i anda tillagnanna.
Eddu-
kvæðin á
finnsku
Frá Harry Granber# fréttarltara
Mbl. 1 Finnlandi. 6. febrúar.
EDDUKVÆÐIþí hafa nú ver-
iö þýdd á finnsku. Aale
Tynni byrjaði fyrir 20 árum
að þýða fyrstu kvæði verks-
ins. Síðustu tvö árin hefur
hún eingöngu unnið að þýð-
ingunni og hafa kvæðin nú
verið gefin út hjá stærsta
útgáfufyrirtæki Finnlands,
Wsoy.
Tynni segir að Finnar beri
Eddukvæðin eðlilega saman
við finnsku Kalevala-kvæðin.
„En við verðum að muna
eftir því að Edda var skrifuð
700 árum áður en Kalevala-
kvæðin voru ort,“ segir hún.
„1 íslensku kvæðunum er
meiri grimmd, barátta og
frumstæðni en í þeim
finnsku."
Aale Tynni þýddi kvæðin
úr gömlu norsku máli og ber
textann jafnframt saman við
norsku, sænsku, íslensku,
þýsku og ensku útgáfurnar.