Morgunblaðið - 07.02.1981, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981
25
Nýr BÚR-togari:
Ottó N. Þorláks-
son RE-203 er 25.
skip Stálvíkur
NÝR SKUTTOGARI Bæjarútgerðar Reykjavíkur var í gær gefið
nafn við hátíðlega athöfn í skipasmíðastöð Stálvíkur hf. i Garðabæ.
Frú Margrét Ottósdóttir gaf skipinu nafn föður síns Ottós N.
Nikulássonar, fyrsta forseta Alþýðusambands íslands. Ottó N.
Þorláksson RE-203 er alfarið íslenskur að gerð, 499 brúttórúmlestir,
57 metra langur, 10,3 metra breiður og 7,3 metra djúpur.
Ottó N. Þorláksson hinn nýji skuttogari
Bæjarúttferðar Reykjavikur. Á innsettu
myndinni mundar frú Margrét Ottósdóttir
kampavínsflöskuna: Jón Sveinsson og
BjörKvin Guðmundsson fyÍKjast með.
Ljósm. Rax.
Ottó N. Þorláksson er 25. skipið sem
Stálvík smíðar. Skipslag togarans er
frábrugðið því sem almennt gerist, og
sagðist Jón Sveinsson forstjóri Stál-
víkur hf. vilja kalla þetta skipslag
„búrgerð", því lögun búrhvelis hefði
verið haft í huga við teikninguna. Og
fyrirspurnir eru þegar teknar að
berast til Stálvíkur erlendis frá um
þetta nýja skipslag.
Jón sagði Stálvík hf. einkum hafa
haft þrjú markmið í huga við smíði
skipsins: I fyrsta lagi að smíða vandað
skip, sem hentaði vel til fiskveiða við
íslenskar aðstæður. í öðru lagi að
skipslagið leiddi til olíusparnaðar, og í
þriðja lagi öruggara skip; sérstakt að
því leyti að togvírar eru ekki á
aðalþilfari. Togarinn er alfarið teikn-
aður af íslenskum tæknifræðingum
undir stjórn Sigurðar Ingvasonar,
skipatæknifræðings.
Skipið er með búnað fyrir veiðar
með botn- og flotvörpu, og búið
fullkomnum siglinga- og fiskleitar-
tækjum til botnvörpu- og flotvörpu-
veiða. Þá er í skipinu Loran
staðsetningarkerfi með leiðarrita svo
og veðurkortamóttaka. Lestarrými er
660 rúmmmetrar. Aðalvél er MaK2400
hestöfl við 500 snúninga á mínútu,
með skipsskrúfu sem snýst 163 snún-
inga á mínútu og fjarstjórnun úr brú.
Vélin er útbúin til svartolíubrennslu.
Stálvík hf. annaðist stál- og ál-
vinnslu, svo og niðursetningu véla og
tækja. Rafboði hf. í Garðabæ sér um
raflagnir, Nökkvi hf. í Garðabæ um
innréttingar, og Börkur hf. í Hafnar-
firði einangraði fisklestir.
Ottó N. Þorláksson er mjög dýr
togari; áætlaður kostnaður er a.m.k.
50 milljónir eða 5 milljarðar gamalla
króna.
Eftir að Jón Sveinsson forstjóri,
hafði lýst smíði skipsins, talaði Björg-
vin Guðmundsson, borgarfulltrúi í tíu
mínútur, og svo færði Jón frú Mar-
gréti Ottósdóttur gullfesti að gjöf til
staðfestingar nafngiftinni. Loks voru
bornar fram veitingar handa gestum,
og Hornaflokkur Kópavogs flutti lög
undir stjórn Björns Guðjónssonar.
Fjölmenni var við athöfnina, og meðal
annarra forsætisráðherra, borgar-
stjóri og borgarfulltrúar.
Ottó N. Þorláksson RE-203 verður
sjósettur í dag kl. 8 f.h., og lokið
verður við frágang skipsins og prófan-
ir við bryggju í Hafnarfirði.
20 loðnuskip
á þorskanet
FRESTUR loðnuskipa til að sækja
um leyfi til þorskveiða í net rann
út í gær og höfðu þá 20 skip sótt
um og fengið leyfi. Miðað er við
800 tonna aflahámark hjá hverju
þessara skipa.
Að sögn Þórðar Eyþórssonar í
sjávarútvegsráðuneytinu munu
flest þessara skipa fara á þorsk-
veiðar strax upp úr 10. þessa
mánaðar, en einkum eru það
minni loðnuskipin, sem ætla á net.
Þau loðnuskip, sem ætla á troli
þurfa ekki sérstakt leyfi, en þurfa
hins vegar að tilkynna sig til
sjávarútvegsráðuneytisins þar
sem þau falla undir skrapdaga-
kerfið.
Enginn sátta-
fundur með
fiskimönnum
ENGINN sáttafundur hefur verið
boðaður í togara- og bátakjara-
samningum, en verkfall hefur
verið boðað á togaraflotanum frá
og með mánudeginum. Ekki hefur
verið full samstaða meðal allra
sjómanna um þessa verkfallsboð-
un, en meðal vélstjóra mun algjör
samstaða, þannig að togararnir
stöðvazt sumir hverjir aðeins
vegna verkfalls þeirra. Mun þar
vera um að ræða 37 togara af 85
togurum samtals. Sáttafundir,
sem haldnir hafa verið undanfarið
hafa allir reynzt vita árangurs-
lausir.
Tveir árang-
urslausir
sáttafundir
farmanna
SÁTTAFUNDIR voru haldnir
bæði í gær og fyrradag með
undirmönnum á farskipum, sem
felldu kjarasamning, sem undir-
ritaður var 19. desember síðastlið-
inn. Báðir fundirnir urðu árang-
urslausir. Undirmenn á farskipum
hafa veitt stjórn og trúnaðar-
mannaráðum Sjómannafélags
Reykjavíkur verkfallsheimild.
Ekki hefur verið boðaður nýr
sáttafundur, en þess er vænzt að
hann verði strax eftir helgina.
155 fá listamannalaun 1981
ÚTHLUTUNARNEFND lista-
mannalauna hélt i gærdag
hlaöamannafund og tilkynnti
hverjir listamenn skipuðu efri og
neðri flokka listamannalauna í
ár, 1981. Áður hafði Alþingi
veitt 12 mönnum heiðurslaun að
upphæð kr. 22.500. Kom fram ó
blaðamannafundi nefndarinnar.
að hún hefði i þetta sinn haft
minna fé til úthlutunar; ráðstöf-
unarfé hennar hefði raunar farið
silækkandi með árunum, og nú
var svo komið að nefndarmenn
töldu sig nauðbeygða til að
fækka verulega i neðri flokki
listamannalauna.
155 listamenn hljóta lista-
mannalaun í þetta sinn, þar af 12
heiðurslaun, sem áður segir. Sex
nýir finnast í efri flokknum: Árni
Björnsson, tónskáld, Einar Há-
konarson, myndlistarmaður, Jón
Dan, rith., Sigurður A. Magnús-
son rith., Þuríður Pálsdóttir,
óperusöngkona, og Örlygur Sig-
urðsson, listmálari. Nú skipa 89
manns efri flokk listamanna-
launa.
í neðri flokknum var fækkað
um 26, ekki minna, og voru
nefndarmenn ekki á einu máli um
ágæti slíks. Sumir vildu fækka
enn meir, aðrir virtust taka það
nærri' sér að geta ekki veitt öllum
listamönnum laun úr ríkissjóði.
Þrátt fyrir þessa fækkun, munu
nokkrir einstaklingar fá lista-
mannalaun í fyrsta sinn 1981.
Þeir eru: Björgvin Halldórsson,
Egill Friðleifsson, Einar Jóhann-
esson, Helgi Vilberg, Hilmar
Jónsson, Ingibjörg Pálsdóttir, Jó-
hann Björnsson frá Húsavík,
Kjartan Ólafsson, Roar Kvam,
Sigrún Eldjárn, Snorri Sigfús
Birgisson og Þórður Tómasson. 52
skipa neðri flokkinn og fær hver
þeirra 3.300 krónur úr ríkissjóði
þetta árið. Það mun vera lögbund-
ið að listamannalaun í neðri
flokki séu helmingur þess sem
veitt er í efri flokki.
Úthlutunarnefnd listamanna-
launa skipa nú eftirtaldir: Magn-
ús Þórðarson, form., Jón R.
Hjálmarsson, Bessí Jóhannsdótt-
ir, Bolli Gústavsson, Gunnar Stef-
ánsson, Halldór Blöndal og Sverr-
ir Hólmarsson.
Hér á eftir fer listinn yfir það
fólk, sem þiggur listamannalaun
árið 1981:
Áður veitt af Alþingi 22.500
krónur hver:
Ásmundur Sveinsson, Finnur
Jónsson, Guðmundur Daníelsson,
Guðmundur G. Hagalín, Halldór
Laxness, Indriði G. Þorsteinsson,
Kristmann Guðmundsson, Maria
Markan, Snorri Hjartarson, Tómas
Guðmundsson, Valur Gíslason,
Þorvaldur Skúlason.
Veitt af nefndinni:
6.600 krónur hver:
Agnar Þórðarson, Alfreð Flóki,
Atli Heimir Sveinsson, Ágúst Pet-
ersen, Ármann Kr. Einarsson,
Árni Björnsson, Árni Kristjáns-
son, Benedikt Gunnarsson, Björn
J. Blöndal, Björn Ólafsson, Bragi
Ásgeirsson, Bragi Sigurjónsson,
Einar Bragi, Einar Hákonarson,
Eiríkur Smith, Eyþór Stefánsson,
Gísli Halldórsson, Guðbergur
Bergsson, Guðmunda Andrésdótt-
ir, Guðmundur L. Friðfinnsson,
Guðmundur Frímann, Guðmundur
Jónsson, Guðmundur Ingi Krist-
jánsson, Guðrún Á. Símonar,
Gunnar Dal., Gunnar Eyjólfsson,
Gunnar M. Magnúss, Hallgrímur
Helgason, Hannes Pétursson,
Hannes Sigfússon, Heiðrekur Guð-
mundsson, Hringur Jóhannesson,
Ingimar Erlendur Sigurðsson, Jak-
obína Sigurðardóttir, Jóhann
Briem, Jóhann Hjálmarsson, Jó-
hannes Geir, Jóhannes Helgi, Jó-
hannes Jóhannesson, Jón Ásgeirs-
son, Jón Björnsson, Jón Dan, Jón
Helgason, prófessor, Jón Helgason,
ritstjóri, Jón Nordal, Jón Oskar,
Jón Þórarinsson, Jón úr Vör, Jónas
Árnason, Jórunn Viðar, Karl
Kvaran, Kjartan Guðjónsson,
Kristján Albertsson, Kristján
Davíðsson, Kristján frá Djúpalæk,
Leifur Þórarinsson, Manuela Wies-
ler, Matthías Johannessen, Oddur
Björnsson, Ólafur Jóh. Sigurðsson,
Ólöf Pálsdóttir, Pétur Friðrik,
Ragnheiður Jónsdóttir, Róbert
Arnfinnsson, Rúrik Haraldson,
Rögnvaldur Sigurjónsson, Sigfús
Daðason, Sigfús Halldórson, Sig-
urður A. Magnússon, Sigurður
Sigurðsson, Sigurjón Ólafsson,
Skúli Halldórsson, Stefán Hörður
Grímsson, Stefán Islandi, Stefán
Júlíusson, Steinþór Sigurðsson,
Svavar Guðnason, Sverrir Har-
aldsson, Thor Vilhjálmsson,
Tryggvi Emilsson, Valtýr Péturs-
son, Veturliði Gunnarsson, Vé-
steinn Lúðvíksson, Þorkell Sigur-
björnsson, Þorsteinn frá Hamri,
Þorsteinn Ö. Stephensen, Þórleifur
Bjarnason, Þóroddur Guðmunds-
son, Þuríður Pálsdóttir, Örlygur
Sigurðsson.
3.300 krónur hver:
Baldur Óskarsson, Baltazar,
Björg Þorsteinsdóttir, Björgvin
Halldórsson, Eggert Guðmunds-
son, Egill Friðleifsson, Einar Bald-
vinsson, Einar Jóhannesson, Einar
Þorláksson, Filippía Kristjáns-
dóttir (Hugrún), Gísli J. Ástþórs-
son, Gísli Magnússon, Gísli Sig-
urðsson, Gréta Sigfúsdóttir, Guð-
laugur Arason, Guðmundur
Steinsson, Guðný Guðmundsdóttir,
Hafliði Hallgrímsson, Hafsteinn
Austmann, Helga Ingólfsdóttir,
Helgi Sæmundsson, Helgi Vilberg,
Hilmar Jónsson, Hjörleifur Sig-
urðsson, Hjörtur Pálsson, Hrafn
Gunnlaugsson, Hrólfur Sigurðs-
son, Ingibjörg Pálsdóttir, Jakob
Jónasson, Jóhann Björnsson frá
Húsavík, Jónas Guðmundsson,
Karen Agnete Þórarinsson, Kári
Tryggvason, Kjartan Ólafsson,
Kristinn Hallsson, Kristinn Pét-
ursson, Kristján Guðmundsson,
Óskar Aðalsteinn, Pétur Gunn-
arsson, Roar Kvam, Rut Ingólfs-
dóttir, Rut L. Magnússon, Sigríður
Ella Magnúsdóttir, Sigrún Eld-
járn, Snorri Birgisson, Steingerður
Guðmundsdóttir, Steinunn Mar-
teinsdóttir, Svava Jakobsdóttir,
Sveinn Björnsson, Þorsteinn Stef-
ánsson, Þóra Jónsdóttir, Þórður
Tómasson, Þórunn Elfa Magnús-
dóttir.