Morgunblaðið - 07.02.1981, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1981
32
Sigurður Þórir við eitt verkanna á sýningunni.
IJósm. Kristinn.
KJARVALSSTAÐIR:
VINNAN - FÓLK-
IÐ - LANDIÐ
Samsýning tveggja listamanna
„VINNAN — fólkið — landið.“
nefnist sýning sem opnuð verð-
ur í dag kl. 16 i vestursal
Kjarvalsstaða. Tveir myndlist-
armenn, Guðmundur Armann
ok Sigurður Þórir, standa að
sýningunni og eru á henni um
90 myndir — málverk. grafik
og teikningar. Þessi sýning hef-
ur þá sérstöðu, eins og nafnið
bendir til, að meginhluti
verkanna sýnir fólk við vinnu
— í fiskvinnslu, uppskipun,
verksmiðjuvinnu, skipasmiði
o.fl. Einnig eru á sýningunni
nokkrar landslagsmyndir.
Guðmundur Ármann er fædd-
ur árið 1944. Hann gekk í Mynd-
lista- og Handíðaskólann og nam
siðan við Valands-listaskólann í
Svíþjóð þar sem hann lauk námi
1972. Guðmundur hefur haldið
tvær einkasýningar á Mokka-
kaffi 1971 og Gallery Súm 1972,
og einnig tekið þátt í nokkrum
samsýningum bæði hér heima og
erlendis. Hann er búsettur á
Akureyri.
Sigurður Þórir er fæddur í
Reykjavík 1958. Hann stundaði
nám við Myndlista- og handíða-
skólann og síðan við Konunglegu
akademíuna í Kaupmannahöfn
til ársloka 1978. Hann hefur
haldið tvær einkasýningar í
Gallery Súm, árin 1976 og 1979,
og einnig verið með einkasýn-
ingar í Kaupmannahöfn og Þórs-
höfn, auk þess sem hann hefur
tekið þátt í samsýningum. Sig-
urður er búsettur í Reykjavík og
starfar sem kennari við^ Mynd-
listaskólann í Reykjavík.
Sýningin „Vinnan — fólkið —
iandið" er opin frá kl. 14—22 alla
daga en henni lýkur 22. febrúar.
TÓNLIST
Klassík á
Hlíðarenda
Annað kvöld kl. 20
syngja hjónin Hjálmtýr
E. Hjálmtýsson og Mar-
grét Matthíasdóttir við
undirleik Steinunnar B.
Ragnarsdóttur á veitinga-
staðnum Hlíðarenda. Þau
munu flytja óperuaríur og
lög úr söngleikjum.
IIÁSKÓLATÓNLEIKAR:
Frönsk tónlist frá
upphafi þessarar aldar
Manuela YViesler.
í DAp kl. 17 verða þriðju
háskólatónleikar vetrarins i Fé-
lagsstofnun stúdenta við Hring-
braut. Flytjendur eru Manueia
Wiesler flautuleikari og Julian
Dawson-Lyell píanóleikari.
Á efnisskránni er frönsk tón-
list frá upphafi þessarar aldar og
eiga tónverkin það sameiginlegt
að vera fyrst og fremst til
skemmtunar, bæði flytjendum og
áheyrendum. Sumt af tónlistinni
mætti flokka sem skemmtitónlist
eða kaffihúsatónlist. Flutt verða
verk eftir F. Borne, G. Fauré, J.
Mouquet, A. Roussel og P.A.
Génin.
Þau Manuela Wiesler og Julian
Dawson-Lyell þarf ekki að kynna
fyrir íslenskum tónleikagestum
en þau hafa bæði komið fram á
fjölda tónleika hér á landi og
erlendis. Þau hafa einnig leikið
mikið saman á undanförnum ár-
um og má nefna tónleika þeirra á
Listahátíð í Reykjavík 1978, í
Wigmore Hall í London 1979 og
tónleikaferð til Noregs á sl.
hausti. Viðtökur hafa verið mjög
góðar.
LUÐRASVEIT HAFNARFJARÐAR:
Hljómleikar i
Iþróttahúsinu
LÚÐRASVEIT Hafnarfjarð-
ar heldur sína árlegu hljóm-
leika í íþróttahúsinu í Hafn-
arfirði á morgun og hefjast
þeir klukkan 16.
Starf lúðrasveitarinnar
stendur með miklum blóma
um þessar mundir. 40 félagar
eru í sveitinni og eru æfingar
vel sóttar. Stjórnandi er
Hans Ploder Fransson.
Efnisskrá hljómleikanna er
fjölbreytt að vanda og bæði
verða flutt íslenzk og erlend
lög. Kynnir verður Steinþór
Einarsson.
Það er von lúðrasveitarinn-
ar að Hafnfirðingar fjöl-
menni á hljómleikana á
morgun og sýni þar með
stuðning sjnn í verki, segir í
fréttatilkynningu frá sveit-
inni.
AKUREYRI:
Berkofsky
með píanó-
tónleika
Akurevri, 5. febrúar.
PÍANOLEIKARINN Martin
Berkofsky leikur í Borgarbiói
laugardaginn 7. febrúar kl. 17 á
vegum Tónlistarfélags Akureyr-
ar. Á efnisskránni verða 5 sónöt-
ur eftir Beethoven þ. á m.
Tunglskinssónatan. Er þetta í
fjórða sinn sem listamaðurinn
kemur fram á Akureyri, en auk
þess mun hann leika á Sauðár-
króki sunnudaginn 8. febrúar
kl. 16.
Berkofsky á nú heima í París
og hefur haldið marga tónleika
undanfarið svo sem í Vín, Búda-
pest og í Englandi. Sl. haust lék
hann ásamt Önnu Málfríði Sig-
urðardóttur konsert fyrir tvö
píanó og hljómsveit eftir Max
Bruch í Trier í Þýzkalandi. Berk-
ofsky kemur hingað á vegum
Tónlistarskóla Akureyrar og
heldur námskeið fyrir píanónem-
endur og kennara skólans dagana
9. til 14. febrúar.
Sv.P.
Úr gamanleiknum Ys og þys út af engu, sem Herranótt sýnir um þessar mundir í Félagsheimili
Seltjarnarness.
YS OG ÞYS ÚT AF ENGU:
Sýningar hefj-
ast að nýju
Á morgun hefjast að nýju
sýningar Herranætur, leikfé-
lags MR, á gamanleiknum „Ys
og þys út af engu“ eftir nokkurt
hlé, sem varð vegna illvígrar
inflúensu. Nú eru allir komnir
til heilsu á ný og albúnir að
hefja leik af tviefldum kraft.
Leikritið var frumsýnt hinn 30.
janúar við góðar undirtektir
áhorfenda, „og gekk fólk vart
óstutt út að sýningu lokinni,"
segir í fréttatilkynningu frá
Herranótt.
• Sýningar verða eins og áður í
Félagsheimilinu á Seltjarnarnesi
og hefjast kl. 20.30. Uppselt er á
sýninguna á morgun en næstu
sýningar þar á eftir eru á
mánudag, þriðjudag og fimmtu-
dag. Miðasala er á staðnum milli
kl. 17 og 19 sýningardagana.