Morgunblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR
40. tbl. 69. árg.
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Á STRANDSTAÐ
Netaflækjan í skrúfu Heimaeyjar VE 1 varð þess valdandi að báturinn hraktist
stjórnlaus upp í Þykkvabæjarfjöru. Frá óveðrinu og afleiðingum þess segir í máli
og myndum á blaðsiðum 2, 3,18.19. 22, 23, 24, 25 og baksiðu. Ljómnynd rax.
Howell orkumálaráðherra um verkfall í brezkum kolanámum:
„Óhjákvæmilegt er
að loka 20 námum“
I»ndon. 17. febrúar. — AP.
UM 30 þúsund brezkir námamenn af 230 þúsund lögðu niður vinnu i
dag til að mótmæla áformum um að loka 20 námum i landinu, sem
ekki er lengur hagkvæmt að reka. Thatcher forsætisráðherra boðaði i
dag að ráðherrar hennar myndu á morgun eiga fund með leiötogum
námamanna og embættismönnum kolanámufyrírtækis brezka ríkis-
ins. Upphaflega átti ekki að halda þennan fund fyrr en á mánudag, en
honum hefur nú verið flýtt vegna verkfallanna.
Thatcher sætti í dag harðri
gagnrýni þingmanna verka-
mannaflokksins fyrir meðferð
hennar á málinu, en hún vísaði
algerlega á bug öllum hugmynd-
um um að kolanámuverkfallið
mundi hafa áhrif á stjórn hennar.
David Howell orkumálaráðherra
sagði í dag í þinginu, að óhjá-
kvæmilegt væri að loka þeim
námum, sem um ræddi. Yngsta
náman af þeim, sem nú er ráðgert
að loka, var tekin í notkun árið
1882.
Það voru námamenn í Suður-
Wales, sem fyrstir lögðu niður
vinnu í dag, en námamenn í Kent
fylgdu í kjölfarið. Starfsbræður
þeirra í Derbyshire og Skotlandi
hafa einnig hótað verkföllum, en
allsherjaratkvæðagreiðsla verður
i samtökum námamanna á
fimmtudag, um hvort boða skuli
yerkfall í kolanámum um land
allt. Joe Gormley leiðtogi sam-
bands námamanna hafði hvatt
menn til að fresta verkföllum
fram yfir atkvæðagreiðsluna en
árangurslaust.
Margir leiðtogar námamanna
telja að komast megi hjá því að
loka námum í Bretlandi með því
að banna innflutning á kolum frá
öðrum löndum.
Sjá nánar á bls. 17 i Mbl. i dag.
Kania í skyndiheim-
sókn til A-Í>ýzkalands
Varsjá, 17. febrúar. AP.
KANIA, leiðtogi pólska kommún-
istaflokksins. fór í dag í óvænta
heimsókn til A-Þýskalands og
átti fund með Erich Honecker
leiðtoga a-þýzkra kommúnista.
Er talið að Kania hafi viljað
greina starfsbróður sinum frá
áformum hinnar nýju rikisstjórn-
ar i Póllandi og reyna að sann-
færa hann um að pólski kommún-
istaflokkurinn geti einn ráðið við
þau vandamál sem við er að fást
innan landamæra Póllands.
Kania fór i sömu erindagjörðum
til Prag fyrir tveimur dögum og
ræddi þá við Gustav Husak leið-
toga tékkneska kommúnista-
flokksins.
Seint í kvöld bárust fréttir um
að stjórnin í Póllandi hefði samið
við stúdenta, sem verið hafa í
verkfalli, um að skrásetja megi
sjálfstæð stúdentafélög. Var í
kvöld búist við því að með þessu
yrði endi bundinn á verkföll stúd-
enta í landinu.
Bændur í Rzeszow létu í kvöld í
ljósi bjartsýni um að samkomulag
næðist á morgun í deilu þeirra og
stjórnvalda og sjö vikna verkfalli
þeirra lyki þar með. Sögðust
bændurnir sætta sig við alls-
herjarumbætur í landbúnaði en
draga til baka kröfur um sjálfstætt
verkalýðsfélag og launahækkanir.
Stanislaw Kania
Mikið mann-
fall í E1
Salvador
San Salvador. Briissel. 17. fcbrúar. — AP.
ÞRJÁTÍU og sjö manns biðu
bana i átökum milli hersins i Ei
Salvador og vinstri sinnaðra
skæruliða á siðasta sólarhring.
Alls hafa um 13 þúsund manns
látið lífið í borgarastyrjöldinni i
landinu undanfarna 14 mánuði.
Ríkisstjórn Ronald Reagans í
Bandaríkjunum telur að ríki í
Austur-Evrópu og Kúba standi að
baki skæruliðunum í E1 Salvador.
I dag var tilkynnt í Brússel, að
Efnahagsbandalag Evrópu hefði
frestað að senda hjálpargögn og
fjármuni til landsins, þar til
fullyrðingar Bandaríkjastjórnar
um þessi mál hafa verið kannaðar.
Miklar umræður fara nú fram í
Brússel milli fulltrúa Efnahags-
bandalagsins og Bandaríkjanna
um ástandið í E1 Salvador.
Reagan kynnir
ráðstafanir
WashinKton. 17. febrúar. — AP.
RONALD Reagan Bandaríkjafor-
seti mun í kvöld kynna þjóð sinni
væntanlegar efnahagsráðstafanir
sínar, en eftir þeim hefur verið
beðið með mikilli eftirvæntingu
víða um heim. Sjónvarpsræða
forsetans hefst kl. 02 að íslenzkum
tíma aðfaranótt fimmtudags.
Enn blaðaverk-
fall í Svíþjóð
Stokkhólmi. 17. fcbrúar. — AP.
NOKKUR hundruð blaða-
menn í Svíþjóð héldu áfram
verkfalli í dag hjá sjö af
stærstu dagblöðum landsins.
Verkfallið bitnaði harðast á
síðdegisblöðunum. sem sam-
lagt gefa út nær milljón
eintök daglega við eðlilegar
aðstæður.
Blaðamenn höfnuðu í gær
málamiðlunartillögu sátta-
semjara, sem útgefendur
höfðu fallist á. Sáttasemjarar
höfðu í dag ekki boðað til
nýrra funda og ríkisstjórnin
hefur ákveðið að hafa ekki
afskipti af deilunni a.m.k. ekki
fyrsi stað. ^etta er í fyrsta
sinn svin hlaðamenn í Svíþjóð,
sem alls eru um 11 þúsund
talsins, fara í verkfall.