Morgunblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981 V > t Faöir okkar, SKÚLI ÞORKELSSON frá Smóradölum í Flóa, Framnesvegi 17, Rvk, andaöist að Hrafnistu 16. febrúar. Sigríftur Skúladóttir, Þorkell Skúlason. t Móðir okkar, HALLDÓRA EINARSDÓTTIR, Meöalholti 10, lézt aö heimili sínu 16. febrúar. Synir hinnar látnu. t Eiginmaöur minn, faöir okkar og afi, REYNIR SNJÓLFSSON, andaöist að morgni 17. febrúar í Borgarspítalanum. Jónína Guftjónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Móöir okkar, GUÐLAUG BRYNJÓLFSDÓTTIR, Granaskjólí 7, lézt á öldrunardeild Landspítala íslands 16. febrúar. Þorsteinn Ingólfsson, Elín Ingólfsdóttir, Auftur Ingólfsdóttir, Sverrir Ingólfsson. t Faöir okkar og tengdafaöir, HALLDÓR DAVÍOSSON, fyrrum bóndi á Syftri-Steinsmýri, Meftallandi, lést í Landspítalanum aö kvöldi 12. febrúar. Jaröarförin veröur auglýst síöar. Börn og tengdabörn. Minning: Guðni Grétar Guðmundsson Guðmundur Kristmundsson Guðni G. Guðmundsson Fæddur 22. september 1946. Dáinn 7. febrúar 1981. Guðmundur Kristmundsson Fæddur 25. maí 1901. Dáinn 14. desember 1979. í dag kveðjum við bróður okkar, Guðna Grétar. Við slíkan skilnað sem svo snögglega skeður, er erfitt að hugsa til þess að við fáum aldrei að sjá hann framar. Minn- ingarnar streyma fram í hugann. Dugnaðurinn og hjálpsemin sem var svo ríkur þáttur í fari hans. Hann sem hafði brugðið sér á skíði til að taka þátt í leik með börnum sínum, sem hann lagði sig allan fram um að sinna. í þeirri ferð lauk hann sinni jarðvist. Guð styrki Þóru og börnin þeirra í þessari miklu sorg. Það er þungur harmur kveðinn að móður okkar að sjá nú á eftir fimmta barni sínu, rétt rúmu ári eftir lát föður okkar, Guðmundar Kristmundssonar, fyrrum verk- stjóra hjá Reykjavíkurborg. Hann var ættaður frá Gýgjarhólskoti í Biskupstungum og kvæntist móð- ur okkar, Guðfinnu Guðnadóttur, úr sömu sveit. Varð þeim tíu barna auðið. Við biðjum góðan Guð að styrkja elsku mömmu okkar. Við vitum að Guðni á góða heimkomu, þar sem pabbi og systkini okkar taka á móti honum. Systkinin Við sviplegt fráfall Guðna Guð- mundssonar laugardaginn 7. febr- úar sl. setur mann hljóðan og ýmsar spurningar vakna. Kvöldið áður að loknum starfsdegi kvaddi hann okkur brosandi og hlakkaði til að eyða helginni á skiðum með fjölskyldu sinni. Hví er ungur maður á besta aldri burtkvaddur frá konu og ungum börnum, er framtíðin blasir við, búið að koma sér upp fallegu heimili og mestu örðugleikarnir að baki? Við þess- ari og öðrum spurningum fáum við aldrei svar. Guðni var fæddur í Reykjavík 22. september 1946, sonur hjón- anna Guðmundar Kristmundsson- ar og Guðfinnu Guðnadóttur. Guðmundur var verkstjóri hjá Reykjavíkurborg og andaðist 14. desember 1979. Guðni var fjórði í röðinni af 10 systkinum, en fjögur þeirra létust í barnæsku. Ungur að árum fór hann í sveit á sumrin og var m.a. einn vetur vetrarmað- ur í Skálholti. Þá vann hann í um 10 ár hjá Sanitas hf. Hann kvæntist unnustu sinni Þóru Pétursdóttur 4. maí 1974. Attu þau tvö börn, Ragnheiði 7 ára og Viðar 4 ára. Kynni okkar hófust í janúar 1975, er hann hóf störf hjá Toy- ota-varahlutaumboðinu hf. Hann vann sér fljótt hylli samstarfs- manna og viðskiptavina með glað- legri framkomu sinni, bjartsýni og' starfsorku. Það var sama, hvað honum var falið að gera, allt leysti hann af hendi samviskusamlega og umyrðalaust. í júlí 1979 upphófst mikill anna- tími í sölu Daihatsu-bílanna. Fluttist hann þá yfir í söludeild þeirra. Kom þá vel í ljós, hve gott hann átti með að umgangast fólk. í þessu starfi kynntist hann t Móöir okkar, dóttir, tengdamóöir og amma, HULDA EGILSDÓTTIR, Hverfisgötu 32 B, sem andaöist 12. febrúar á Landspítalanum, veröur jarösett frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 19. febrúar kl. 10.30. Börn, foreldrar, tengdabörn og barnabörn. Móöir okkar og tengdamóöir, SOFÍA LÁRA THORS, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 19. febrúar kl. 3. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagiö eöa aörar líknarstofnanir. Ragnheiður Hafstein, Margrét og örn Ó. Johnson, Katrfn Thors, Sofía og Dieter Wendler Jóhannsson. + Þökkum hlýhug og vináttu viö fráfall DAOA EIDSSONAR. Guö blessi ykkur. Valgerftur Jónsdóttir, bftrn og tengdabörn. t Eiginmaöur minn og faöir okkar, SIGURBJÖRN ELÍASSON, Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirfti, veröur jarösunginn frá Hafnarfjaröarkirkju fimmtudaginn 19. febrúar kl. 14. Blóm afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagiö. Ingibjörg Guftjónsdóttir og börn. Kveðjuorð: Vigdís Kristjánsdóttir listvefnaöarkona „Vertu óhádur. þvl sjálfKtæóió er fáKfftast allra «æóa ok undirrót haminfcrjunnar" Camille Flammarion. MUraniaM. Vigdís var fædd að Korpúlfs- stöðum í Mosfellssveit. Foreldrar hennar voru Kristján Magnússon bóndi þar, ættaður frá Hofstöðum í Garðahreppi, sem nú heitir Garðabær og kona hans Sveinsína Rannveig Þórðardóttir Svein- björnssonar, sem var kvæntur Rannveigu Vigfúsdóttur sýslu- manns Thorarensen, systur Bjarna Thorarensen skálds. Þau hjón, Rannveig og Kristján, voru mikils virt af öllum þeim, sem áttu viðskipti við þau og kunningsskap vegna framsýni þeirra, heiðarleiks og afburða dugnaðar. Þeim hjónum varð sjö barna auðið. Fjögur þeirra létuzt í frumbernsku, eins og þá var títt um Evrópu alla. Þrjú komust til fullorðins ára. Elstur þeirra er Þorsteinn Kristjánsson, sem enn • er á lífi, fæddur 1901. Hann var afburða glímumaður, sem sannar bezt að hann var valinn sem einn þeirra beztu á íslandi, þegar kynna skyldi hina fornu íþrótt fyrir tugum þúsunda erlendra og innlendra manna á Alþingishátíð- inni á Þingvöllum 1930 og hlaut hann tvenn verðlaun fyrir framlag sitt. Hann var kvæntur og átti fjögur börn, eitt þeirra er látið, Kristín Kristjánsdóttir giftist, hún er Iátin fyrir fám árum, þau hjón áttu tvær dætur, sem báðar eru á lífi, er þetta allt myndarfólk. Vigdís var yngst þessara merku hjóna. Þegar hún var fjögurra ára syrti snögglega í álinn hjá þessari fjölskyldu, þar sem móðirin og húsfreyjan, sterk og stórbrotin féll í valinn úr barnsfararsótt. En „þegar neyðin er stærst, er hjálpin næst“. Þá voru tímarnir aðrir en við búum við í dag, þar sem til undantekninga má teljast að fólk af sjálfsdáðum rétti náunga sínum í nauðum staddan, hjálparhönd nema fyrir þóknun í bláköldum peningum. Kristján Magnússon stóð því ekki einn síns liðs, því mágfólk hans, systkini Rannveig- ar, reyndist honum svo vel að til fyrirmyndar má teljast, með því að bjóðast til að taka að sér börnin, þegar honum þóknaðist. Bróðir Rannveigar var Bogi Þórð- arson óðalsbóndi á Lágafelli í Mosfellssveit, hann var fram- kvæmdamaður mikill og forkur duglegur, hann stofnaði m.a. ull- arverksmiðjuna Framtíðina í Reykjavík og var forstjóri J>ar um áraraðir, einnig átti hann Alafoss- verksmiðjuna um tíma og seldi síðan Sigurjóni Péturssyni. Bogi tók Þorstein frænda sinn í fóstur, þá komu systurnar, Steinsa, gift Kára bónda í Lambhaga í sömu sveit, ólu upp Kristínu, og Sigríður Þórðardóttir, sem rak mjólkur- og brauðsölu á Laugavegi 46 í mörg ár, hún var ógift og barnlaus, hún tók Vigdísi í fóstur, og reyndist henni sem bezta móðir. Vigdísi varð tíðrætt við undirritaða hvað hún í fyrstu, eftir vistskiptin átti erfitt með að aðlagast hinu fá- hundruðum manna og reyndi eftir bestu getu að leysa allra vanda. Mikil bílasala á skömmum tíma krefst mikillar skipulagningar og nákvæmni, ef vel og árekstralaust á að fara. Við getum fullyrt fyrir hönd viðskiptavina okkar, að Guðni leysti sinn hluta af hendi með mestu prýði. Okkur er djúpur söknuður í huga að kveðja kæran vin og starfsfélaga, en margar góðar minningar munu ylja okkur í framtíðinni um glaðværan félaga. Við sendum eiginkonu hans, börnum og ættingjum innilegustu samúðarkveðjur. Jóhann og Sigtryggur „Kallið er komið, komin er nú stundin, vina skilnaður viðkvæm stund. Vinirnir kveðja, vininn sinn látna, er sefur hér hinn siðasta blund.“ (Sálmur). í dag er kvaddur hinstu kveðju mágur minn Guðni Grétar Guð- mundsson, sölumaður, en hann lést mjög snögglega laugardaginn 7. febrúar 1981. Guðni var fæddur á Eiði á Seltjarnarnesi 22. september 1946, sonur hjónanna Guðfinnu Guð- mundsdóttur og Guðmundar Kristmundssonar, og ólst hann menna heimili frænku sinnar, og umhverfi öllu, sem var í beinni andstöðu við hennar eigið, þar sem systkinin léku sér úti og inni í skjóli mömmu og pabba. Ekkert lyng og engin blóm utan dyra í Reykjavík eins og í sveitinni, en snemma kom í ljós hjá Vigdísi óvenju sterkur fegurðarsmekkur og hrifnæmi fyrir gróðri jarðar og ljósbrigðum loftsins, svo athygli vakti. Fyrstu kynni okkar Vigdísar voru á barnaleikvellinum við Grettisgötuna 1915. Vakti það fljótlega athygli mína hvað hún var natin við yngri börnin að fylgjast með þeim og kenna þeim leiki, gera þau að þátttakendum. Varð hún af þessu mjög vinsæl meðal barnanna. Leið mín lá að staðaldri þennan vetur í búð Sigríðar að kaupa mjólk og brauð og var þar Vigdís farin að hjálpa fóstru sinni við afgreiðsluna og tókst henni það prýðilega svo \

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.