Morgunblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981 ÓVEÐRIÐ OG AFLEIÐINGAR ÞESS ha- i veðrinu og tveir búðarKluKK»r brotnuðu. MjöK hvasst var á tima- bili, en enKÍnn ofsi. Bíll fór héðan í gærkvöldi með farþega, er ætluðu með flugi frá Sauðárkróki. Þetta er ferð, sem yfirleitt tekur um eina klukkustund og stundarfjórðung að aka, en að þessu sinni var bíllinn í 5 tíma á leiðinni. Það varð þó ekki til þess að fólkið missti af flugvélinni því hún fór ekki frá Sauðárkróki fyrr en í gær vegna veðursins. Á Siglufirði er í dag sólskin og ágætis veður. — mj. Grímsey: Bátarnir þarfn- ast ailir viðgerðar Grimsey, 17. febrúar IIÉR var ofstopaveður og mældust yfir 90 hnútar upp úr miðnætti. fyrst á sunnan og svo suðvestan. 1 höfninni var ailt i einni kös og mildi að ekki skyldi allt fara niður. Stóru bátarnireru meira og minna skemmdir eftir að hafa lamist saman á bólinu. en legufærin héldu ekki í þessu veðri. Þriggja tonna trilla Einars Þor- geirssonar sökk og milli jóla og nýárs sökk trilla Sæmundar Traustasonar. I þessu veðri slitnaði önnur triila upp, en er hana rak að bryggjunni tókst að ná henni og koma í skjól, en hún var þó mikið brotin. Einn báturinn er brotinn að aftan, hann er nánast opinn eins og skuttogari. Ekki er nákvæmlega vitað hve tjónið er mikið en víst, að gera þarf við alla báta Grímseyinga meira og minna. Okkur þótti það lélegt hjá Al- mannavarnarráði ríkisins að láta loka fyrir útvarpið eftir að veðrið var að mestu gengið yfir syðra. Þá voru erfiðleikarnir að byrja hér nyrðra, en það virtist ekki skipta máli að þessu sinni. — Alfreð. Akureyri: Talsverðar skemmdir á stólalyftunni Akureyri 17. febrúar. frá blaAamanni Mbl. Hirti Gislasyni. í ofsaveðri. sem gekk yfir landið síðastliðna nótt fauk stólalyftan í Illíðarfjalli út af uppistöðum að norðanverðu og við það brotnuðu og eyðilögðust stólarnir meira og minna og hjólastell á einu mastr- inu bognaði verulega og þarf að taka það niður til viðgerðar. Að sögn Ivars Sigmundssonar hótelstjóra, er mikil vinna fram- undan við lagfæringuna. P’ara þarf með gálga upp í hvert mastur til að hífa vírinn upp, en auk þess að losa alla staurana af vírnum. Hann sagðist þó vonast til, að viðgerð lyki fyrir helgi og eðlileg starfsemi gæti þá hafist að nýju, en starfsemi í Fjallinu liggur nú að mestu niðri. Að öðru leyti urðu ekki skemmdir á Akureyri svo teljandi sé, smávæg- ileg óhöpp munu þó hafa orðið viða um Eyjafjörð, en ekki meiri háttar. Húsavík Ilú.savík. 17. febr. ÞETTA fór hér yfir. eins og annars staðar. Hér var hvasst en ekkert afspyrnuveður. Það tókst að bjarga hér öllu sem bjarga þurfti. Aðeins heyrði ég af einu þaki. sem leit út fyrir að myndi fjúka. Það var á nýbyggingu og tókst að koma í veg fyrir slíkt í tæka tíð. — Fréttaritari. Skinnastaðir, Axarfirði Skinnastöðum. Axarfirði. 17. febr. HJÁ okkur var mjög hvasst og byljótt, fyrst að sunnan siðan suðvestan. Ekki hefur þó orðið neitt teljandi tjón. þó veðurhamur- inn hafi verið mikill. — Sigurvin. Grímsstaðir, Fjöllum GrímsHtöðum, Fjölium. 17. febr. ÞAÐ varð aldrei neitt voðalegt hvassviðri hér i gær og engin óhöpp urðu. þó svo eitthvað blési. Það er þó mikil ótfð búin að vera hér upp á siðkastið og jarðleysi mikið. Kindur hafa staðið i húsum alveg síðan i nóvember og nokkuð af hrossum komin á gjöf. Hér er i dag hið bezta veður. — Benedikt. Raufarhöfn Raufarhofn. 17. febr. HÉR gerðist ekki neitt og við höfum fengið mun verri veður f vetur, t.d. gerði fyrr í vetur aftaka- veður af norðaustan og þá gekk ýmislegt hér á. Núna skeði ekki neitt, það var reyndar hvasst, en ekkert sem við höfum ekki marg- kynnst áður. — Helgi. Seyðisfjörður: Saxhamar kom inn á hliðinni AÐ sögn lögreglunnar á Seyðis- firði urðu engar skemmdir vegna veðurs þar. Veðrið var verst milli kl. 3 og 4 um nóttina en lægði aftur um kl. 5. Lina til endurvarpsstöð- varinnar slitnaði og lá niðri á heiðinni og var vegurinn lokaður um kvöldið og nóttina en í gærdag var búið að opna heiðina á ný. Bátar komu inn til Seyðisfjarðar í fyrrakvöld og kom einn bátur. Saxhamar. inn á hliðinni. Skilrúm gáfu sig i lest hans þannig að aflinn rann út í aðra hliðina. Neskaupstaður NeskaupNtaö. 17. febr. HÉR var ágætisveður og litið gekk á. Það var góður strekkingur, en þó aldrei stórviðri. Hér eru reynd- ar aldrei vond veður. þegar hann er að sunnan. — Ásgeir. Djúpivogur DjúpivoKur, 17. febr. HÉR var hvassviðri og rigning, en alls ekki svo slæmt. Við höfum oft séð hann svartari. Það var mikil hálka á vegum, en menn fóru gætilega og ég hef ekki frétt af neinum óhöppum né tjóni. — Ingimar. Höfn, Hornafirði Höfn, Hornafirði. 17. febr. HÉR gerðist mest lítið. Það var reyndar mikið rok, bylur og slydda f nótt og bylur í morgun, en það mældust hér mest 46 hnútar og hefur í mesta lagi losað 50 hnúta í verstu hviðunum, þannig að þetta var ekki svo slæmt, enda er það yfirleitt ekki. þegar hann er á suðvestan. — Einar. Hrunamannahreppur: Afkoma gróður- húsabænda eyðilögð Sydra-LanKholti. 17. febrúar MIKIÐ tjón varð hér um sveitir í þessum fellibyl eins og svo víða annars staðar á landinu. Mestur skaði varð f gróðurhúsahverfinu að Flúðum og er þar um hrikalegt tjón að ræða. Allt er ónýtt i sumum húsunum. bæði húsin sjálf og plonturnar. sem þar voru í uppeldi. Eftir þetta veður er ljóst að af- koma margra garðyrkjubænda þetta árið hefur verið eyðilögð að miklu leyti. Sem betur fer sluppu sumir þó að mestu leyti. Víða fuku þök af húsum. Að Hrafnkelsstöðum í Hrunamanna- hreppi fauk hluti af þaki íbúðarhúss og lenti á raflínu, þannig að'línurn- ar hjuggust í sundur. Að bænum Skyggni fauk fjárhús í heilu lagi og segja má að kindurnar hafi staðið eftir á bersvæði. Rafmagnið fór í gærkvöldi, en hefur verið að koma smátt og smátt aftur á í sveitinni í dag. Menn keppast við að gera við það sem hægt er að laga en tjón varð á mun fleiri bæjum heldur en hér hafa verið nefndir. — Sig. Sigm. HpIIí)' Tólf tonna bíll fauk út í Rangá Hellu, 17. febrúar. TÓLF tonna vörubill fauk um 100 metra f nótt og lenti tvær billengd- ir út i Rangá. Þar fannst hann i morgun en enginn varð var við þegar bíllinn fauk. Menn hér f sveit eru sammála um, að hvass- viðrið i nótt sé hið mesta er þeir hafa kynnst og sjálfur verð ég að segja, að ekki man ég eftir öðru eins veðri. Þrátt fyrir það varð Birgir Eggertsson á þaki húss sins. Á bak við hann má sjá sandpokana og ýmislegt sem sett var á þakið til að bjarga því sem bjargað varð. Garðabær: Flúðu með búslóð og innihurðir þegar þakið sviptist af í GARÐABÆ varð veður- hamurinn hvað mestur á tímabilinu frá kl. 10 til 11 i fyrrakvöld. Tjón varð nokkuð á húsum og mann- virkjum, mest bar á þak- skemmdum og rúðubrotum sem víðar. Björgunariið var kallað út síðari hluta kvölds og vann fjöldi manns við björgunar- og hjálparaðgerðir fram eftir nóttu. í gærmorgun mátti víða sjá fólk dytta að húsum sínum. í Skógarlundi hitti blaðamaður Mbl. tvo húseig- endur, sem voru ásamt hjálparliði á þökum húsa sinna. Ytra byrði húss ann- ars þeirra sviptist af í einu lagi í óveðrinu og hluti af þaki hins. Birgir A. Eggertsson Skógarlundi 17 sagði, að ástandið hefði verið hvað verst á milli kl. tíu og hálf ellefu. Hann sagði að það hefði líklega bjargað hluta af þakinu, að hann bar sandpoka o.fl. á þann hlut- ann sem ekki fauk í fyrstu atrennu. í Skógarlundi 15 búa Grétar Guðmundsson og Sigríður Þórisdóttir ásamt dóttur sinni Erlu Sigríði, en ytra byrði á þaki hússins fauk í einu lagi út í veður og vind í veðurhamnum. Sigríð- ur sagði: „Það varð mikill Erla Sigríður og Sigfriður voru búnar að ná gleði sinni á ný eftir viðburðarríka nótt. Ljúsm. Mbl. F.P. hávaði og titringur þegar þakið fauk, og við biðum eiginlega eftir, að það sem eftir var færi sömu leið, svo mikill var veðurhamurinn. Við flúðum til nágrannanna og bárum síðan mestalla búslóðina, innihurðirnar og allt lauslegt yfir í næsta hús, ef svo færi að húsið stæði eftir þaklaust. Við sváfum síðan í næsta húsi í nótt. Maður er rétt að jafna sig eftir þetta." Erla Sigríður sagðist hafa verið „svoldið hrædd“, en mamma hennar sagðist við- urkenna, að hún hefði verið dauðhrædd og t.a.m. rokið fáklædd yfir til nágrann- anna, þegar ósköpin dundu yfir. Hugsaði um það eitt að halda mér í bílnum - sagði Haukur Ingólfsson en sjúkrabifreið sem hann ók fauk og valt „EINA hugsunin var þegar billinn fór velturnar var að halda mér I bílnum. að detta ekki út úr honum. Það tókst og við komust síðan út um þá hurðina. sem snéri upp,“ sagði Haukur Ingólfsson frá Hofsósi, en sjúkrabíll, sem hann ók fauk út af veginum og valt. „Ég var að koma frá Sauð árkróki. Hafði farið þangað með sjúkling. Með mér í bílnum var bóndi úr sveitinni. Þegar við vorum í svokallaðri Keflavíkur- brekku, þá tókst bíllinn á loft og valt, að ég held 2 veltur, þó ég geri mér ekki fyllilega grein fyrir því.þetta var heldur rosa- legt og óskemmtileg reynsla. Það var lán í óláni, að aðeins kíló- meters spotti var til bæjarins Keflavíkur. Illstætt var úti og urðum við að krafla okkur áfram hluta leiðarinnar. Ég hef aldrei lent í sona veðri áður, en í veltunni þá rifbeinsbrotnaði ég og hlaut einhverjar skrámur. Bíllinn verður sjálfsagt ekki notaður meir en raunar stóð til, að leggja honum,“ sagði Haukur Ingólfsson. ekkert meiriháttar tjón hér á Hellu. Hins vegar fauk járn af húsum í Næfurholti, Hólum og Svínhaga en það eru efstu bæir á Rangárvöllum. Þá fauk þak af stórri heyhlöðu í Gunnarsholti. Segja má, að eitt- hvert tjón hafi orðið á flestum bæjum, en sem betur fer hvergi tilfinnanlegt utan það sem áður var talið. — Jón. Hveragerði: Tilfinnanlegt tjón hjá garð- yrkjubændum HveraKerði, 17. febrúar. HÉR I Hveragerði geisaði mikið óveður í gærkvöldi og framan af nóttu. Hjálparsveit skáta var köll- uð út til að liðsinna fólki, járnplöt- ur fuku og brutu rúður i íbúðar- og gróðurhúsum. Allt lauslegt fauk og voru sumar götur þorpsins eins og ruslahaugur á að líta í morgun. Rafmagnslaust varð um klukkan 19 og gerði það björgunarstarf erfiðara. Mest mun tjón hafa orðið hjá garðyrkjubænd- um því sum gróðurhúsin eru mikið brotin og auk skemmda á húsunum munu afurðir, sem í þeim eru hafa spillst af kulda en hér var komið fjögurra stiga frost í morgun. Á síðustu tveimur árum hafa margir eldri garðyrkjubændur selt gróðrarstöðvar sínar og ungir menn keypt þær. Margir þeirra efnalitlir og sumir með mörg börn á framfæri og er þeirra tjón því sérstaklega tilfinnanlegt. — Sigrún. Grindavík: Skemmdir á 13 húsum Grindavik. 17. febrúar. VITAÐ er um meiri eða minni skemmdir á 13 húsum hér i bænum, en þær eru þó ekki mjög stórvægi- legar. Nokkrar plötur hafa fokið af hverju húsi og valdið skemmdum er þær fuku um. Mestar skemmdir urðu á geymsluhúsi nokkru er þakið sviptist af þvi. Björgunarsveitin Þorbjörn og lögreglan voru á þönum fram til kl. 9 í morgun við hvers kyns hjálpar- störf, en verkefnin voru nánast ótæmandi. Ekki er vitað um alvar- leg slys, en maður fótbrotnaði er hann datt á svelli. Var hann fluttur í sjúkrabíl til aðgerðar og varð að manna bílinn fílefldum karl- mönnum til að hægt væri að hemja hann á veginum. Búist hafði verið við flóðum nú undir morguninn, en af því varð ekki þar sem vindátt snerist meira til vesturs og var því fremur kyrrt í höfninni. — Fréttaritari. Keflavík: Fólk taldi sér ekki vært í húsum sínum AÐ SÖGN lögreKÍunnar í Keflavik, muna menn þar syðra ekki eftir öðru eins veðri og gekk yfir i fyrrakvöld og aðfaranótt þriðju- dags. Járnplötur fuku um kaup- staðinn eins og skseðadrífa og viða brotnuöu rúður. Stór hluti þaksins á nýja fþróttahúsinu i Keflavík fauk, svo og á Félagsbíói. Tólf tonna bátur í Njarðvíkurhöfn sökk og skemmtibátur gjöreyðilagð- ist. Að sögn lögreglunnar litu menn eftir bátum sínum alla nóttina. Á hafnarbakkanum rifnuðu stór klakastykki upp og fuku út í veður og vind. Kona varð fyrir rúðu sem fauk inn í íbúðarhús og skarst hún. Að öðru leyti virðist sem fólk hafi ekki orðið fyrir meiðslum í kaup- staðnum en hins vegar bar á því, að fólk hringdi til lögreglunnar og vildi komast úr húsum sínum, þar sem það taldi sér ekki vært lengur vegna veðurofsans. í Garðinum fauk hálft þak af fiskverkunarhúsi og hvarf það á haf út. Þak fauk af heilu fjölbýlishúsi í Njarðvíkum. Þannig var ástandið svipað um öll Suðurnesin. Að sögn lögreglunnar bárust í allan gærdag tilkynningar um tjón. Hjálpar- og björgunarsveitir voru kallaðar út um öll Suðurnesin og var unnið sleitulaust að björgunarstarfi alla nóttina.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.