Morgunblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.02.1981, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981 Til útgáfu Skarðsbókar hefur verið vandað eftir bestu föngum og notuð besta og fullkomnasta taekni sem völ er á, allt frá ljósmyndun til bókbands. Við litgreiningu handritsins, sem verður prentað í 4—6 litum, var notaður laser-geisli, sem er ný- mæli hérlendis. Pappír í bókina (Ikonofix matt 170 gr) var fram- leiddur í Þýskalandi sérstaklega fyrir þetta verk. Skarðsbók verður bundin í pergament á kjöl og horn, en á það efni voru íslensku miðaldahandritin skrifuð eins og kunnugt er. Pergamentið er unnið í Bretlandi. Bókin verður hand- saumuð og handbundin. Sverrir Kristinsson bókarinnar og annað sem útgáfu þessa snertir. Hringur Jóhannes- son listmálari teiknaði merki rit- raðarinnar sem gert er eftir stafa- skrauti í Staðarhólsbók Grágásar, AM 334 fol. A fundi með blm. í fyrradag sagði dr. Jónas Kristjánsson, for- stöðumaður Arnastofnunar, að snemma á árum Stofnunar Árna Magnússonar á íslandi hafi komið upp sú hugmynd að ljósprenta eitthvert fallegt handrit með full- kominni nútímatækni. „Hugur okkar beindist að Skarðsbók," sagði Jónas. „Við leituðum til prentsmiðju og fengum lauslega áætlun um kostnað við slíka út- gáfu. Kom þá í ljós að slík útgáfa mundi vera stofnuninni með öllu óviðráðanleg, kostnaður yrði margföld sú upphæð sem okkur væri ætluð til allrar útgáfustarf- semi á heilu ári. Féll svo þessi ráðagerð niður um langa hríð. Gamall draum- Svo sem greindi frá á baksíðu Morgunblaðsins í gær, er nú verið að leggja síðustu hönd á ljósprentun Skarðsbókar í hennar réttu litum. Sverrir Kristinsson og Stofnun Árna Magnús- sonar á íslandi standa að útgáfunni; er frumkvæðið Sverris og mun hann standa straum af öllum kostnaði við verkið. Er ætl- unin að Skarðsbók verði fyrsta bindið í ritröðinni „íslensk miðaldahandrit- Manuscripta Islandica Medii Aevi“. Fjöldi fyrirtækja og einstakl- inga vinnur að útgáfunni. Kassa- gerð Reykjavíkur vinnur einn stærsta þátt verksins og hafa ráðamenn fyrirtækisins veitt þessu verkefni sérstakan forgang, tilraunaprent hefur tekið margar Aöstandendur útgáfunnar i Árnastofnun. vikur og síðustu mánuði hefur verið unnið sleitulaust að prentun bókarinnar. Leifur Þorsteinsson ljósmyndaði handritið og Prent- myndastofan hf. annaðist litgrein- ingu, Isafoldarprentsmiðja hf. sá um setningu og umbrot formála, Bókfell hf. bindur bókina inn, Hilmar Einarsson bókbindari er helsti ráðgjafi um bókband og útlit en einnig hefur Ólafur Pálmason bókavörður gefið mörg góð ráð um val leturs, ytra útlit ur rætist... Dr. Kristján Eldjárn: Heimkoma handrit- anna 1971 Bókmenntir miðalda eru blóminn í þjóðlegri íslenskri menningu, og handritin sem geyma þær eru frægustu ger- semarnar meðal íslenskra menningarminja. Lengi voru þau í útlegð í fjarlægu landi og löng varð barátta íslend- inga fyrir því að endurheimta þau hingað til lands. En þar kom, að sigur vannst. Dönsk stjórnvöld gengu til samninga um afhendingu íslenskra handrita eftir settum reglum. Fyrstu handritin bárust hingað hinn 21. apríl 1971 og voru afherit íslenskum stjórn- völdum með viðhöfn. Sá dag- ur varð einn af merkisdögum íslenskrar sögu. En ekki var nóg að fagna unnum sigri. Það varð að sýna í verki að íslensk þjóð skildi ábyrgðina sem fylgdi heimkomu handritanna. Stofnun Árna Magnússonar á ísiandi var komið á fót og henni búin tilhlýðileg húsa- kynni með öruggum geymsl- um og einvalaliði handrita- könnuða og bókmenntafræð- inga. Rannsóknir þeirra hafa borið góðan ávöxt í fjölmörg- um vísindalegum útgáfum. Nú er hér á landi fullkom- tæknibúnaður til ljós- ínn myndunar og eftirprentunar hinna fornu listaverka sem mörg handritin eru, með fag- urri skrift sinni og skreyting- um, fjölskrúðugustu heimild- um sem til eru um íslenska miðaldalist. Nú er efnt til ljósprentaðrar útgáfu á einu tilkomumesta handritinu, Skarðsbók Jónsbókar frá 14. öld. Ekkert er til sparað að útgáfan sýni hið gamla lista- verk í öllu sínu skrúði. Vel fer á að slík útgáfa komi fyrir almenningssjónir um þær mundir sem þess er minnst að liðin eru tíu ár síðan fyrstu handritin komu heim eftir aldalangar fjarvistir. Jónsbók 1281 Á þessu ári eru liðnar réttar sjö aldir frá því að hin forna lögbók íslendinga, Jónsbók, var lögtekin. Jóns- bók var kóróna á merkilegu löggjafarstarfi Magnúsar Hákonarsonar Noregskon- ungs, sem íslendingar nefndu síðan lagabæti. Lögbókin var mjög sniðin eftir landslögum Magnúsar konungs, sem tóku gildi í Noregi á árunum 1271—74, auk þess sem hún geymir ákvæði úr þjóðveldislögum íslendinga, Grágás. Lögbók- in var að fullu samin, áður en Magnús konungur andað- ist vorið 1280, en þá um sumarið komu þeir með hana út til íslands, Loðinn leppur og Jón Einarsson lögmaður, sem bókin er við kennd. Ári síðar var bókin lögtekin. Jónsbók eða Lögbók Is- lendinga, eins og hún er nefnd í flestum handritum, var síðan meginundirstaða íslensks réttar allt þar til farið var að beita hér norsk- um og dönskum lögum á 17du og 18du öld, og enn eru ákvæði úr 46 köflum Jóns- bókar gildandi lög hér á landi. Öldum saman voru ís- lendingar handgengnari Jónsbók en flestum ritum öðrum. Ungir lærðu að lesa á hana, fullorðnum var hún skilningstré góðs og ills og mótaði þannig réttarvitund þjóðarinnar. Omæld eru þau áhrif, sem hún hefur haft á íslenskt lagamál og varð- veislu íslenskrar tungu. Fyrir þá, sem störfuðu að 1981 skriftum, hafði Jónsbók sér- stætt gildi, því að hún hefur verið skrifuð upp oftar og varðveist í fleiri handritum en önnur miðaldarit vor. Það var því síst að undra, að Jónsbók var fyrsta ver- aldlegt rit, sem ástæða þótti til að prenta á íslensku (Hólum 1578). Þegar gerð var vönduð fræðileg útgáfa Jónsbókar árið 1904, voru rannsökuð í því skyni alls 193 handrit. Meðal hinna allra merkustu þeirra er lögbókarhandritið mikla frá Skarði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.