Morgunblaðið - 18.02.1981, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1981
Heimaeyjar-
strandið:
„Ömurlegt að horfa á
þetta og geta ekkert gert“
„ÞETTA var algjort fárviðri
og það gerir sér enjfinn grein
fyrir því hvernig var að vera á
sjónum i þessu veðri, hvað þá
stjórnlaus fyrir veðri og vind-
um. það myndi enginn trúa
slíkri frásögn ef maður reyndi
að lýsa því og því geri ég það
ekki,“ sagði Þórður Rafn Sig-
urðsson skipstjóri á Ölduljón-
inu VE í samtali við Morgun-
blaðið í gær en Ölduljónið
hafði verið með Heimaey í togi
i liðlega eina klukkustund þeg-
ar dráttartaugin á milli skip-
anna slitnaði eftir að myrkur
var skollið á.
„Það réðist hreinlega ekki
neitt við þetta fyrir veðrinu,
fárviðri, stórsjór og óhemjurek
á bátunum, enda taka stórir
yfirbyggðir bátar mikið á sig i
16—18 vindstigum eins og
voru þarna um kvöldið. Við
vorum með þriggja tomma
dráttarvír, fjögur hundruð
faðma langan, og hann söng i
sundur á einni kviku á hæg-
ustu ferð.
Þetta er sorglegur atburður,
en ekki við neinn að sakast, ég
tel að það hafi ekki verið tekin
nein áhætta er aðstoð varð-
skipsins var afturkölluð enda
Sindri kominn á staðinn, það
gerðu allir sitt besta, en við
fárviðrið varð ekki ráðið.“
„Þetta var ofsalegt óveður og
við vorum í fjóra klukkutíma að
berjast við þetta,“ sagði Helgi
Ágústsson skipstjóri á skuttog-
aranum Sindra. „Þrisvar sinn-
um náðu Heimaeyjarmenn leið-
aranum frá okkur en misstu
hann aftur. Við notuðum línu-
byssu, keyrðum hring í kring
um bátinn með langan enda, en
allt kom fyrir ekki, ég hef aldrei
vitað annað eins til sjós og í
þessum bardaga höfðum við
hreinlega ekki gert okkur grein
fyrir því hve skipin rak hratt
undan í átt til lands, en við
reyndum til hins ýtrasta, því
við vorum komnir inn í grunn-
brotin þegar við snerum við og
urðum að gefast upp. Þá feng-
um við feikilegt brot á okkur
yfir allt skipið, en það slapp.
Heimaey hafði verið undir
stanzlausum áföllum allan tím-
ann og það var ömurlegt að
horfa upp á þetta og geta ekkert
gert. Það var hins vegar ekki
fyrr en á eftir að maður gerði
sér grein fyrir því í hve mikla
hættu við vorum raunverulega
komnir, því það braut svo langt
út þar sem myrkur og særok
lögðust á eitt við að gera erfitt
fyrir um björgun."
Heimaey var djúpt í hafi
þegar skipið fékk net í skrúfuna
um sexleytið í fyrradag. Kom
Ölduljónið VE til hjálpar og
tókst skjótt að koma dráttar-
taug milli skipanna, þriggja
tomma sverum vír sem kubbað-
ist í sundur klukkustund síðar
eftir að stöðugt hafði þyngt í
sjó. Kallaði Ölduljónið þá á
aðstoð varðskips sem lá við
Eyjar og lagði það þegar af stað
kl. 20.10. Um tíu mínútum siðar
afþakkaði Heimaey aðstoð
varðskipsins þar sem skuttog-
arinn Sindri var þá kominn að
skipinu sem var þá um fjórar
sjómílur vestnorðvestan við
Þrídranga fjarri landi og ekki
talin það mikil hætta á ferðum
að fleiri skip þyrfti til aðstoðar.
Varðskipið Þór hætti við sigl-
ingu að stjórnlausu skipinu
þegar aðstoð var afþökkuð, en
veður fór hins vegar stöðugt
versnandi og voru um 18 vind-
stig á þessum slóðum í um það
bil þrjár klukkustundir.
Skömmu áður en Heimaey af-
þakkaði aðstoð Þórs höfðu kom-
ið skilaboð til Heimaeyjar um
að ekki mætti nota aðstoð
varðskips nema með leyfi trygg-
ingarfélags Heimaeyjar.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraun-
ir Sindramanna til að koma
taug yfir í Heimaey gekk það
ekki upp og nokkrum sinnum
misstu Heimaeyjarmenn leiðar-
ann frá Sindra, enda lá skipið
stanzlaust undir áföllum. Sam-
kvæmt upplýsingum frá varð-
skipinu Þór var veðurhæðin
komin í 80 hnúta um kl. 22 en
kl. 23.45 heyrði Þór í talstöð að
Sindri og Heimaey voru aðeins
2,7 sjómílur frá landi án þess að
tekizt hefði að koma taug í
skipið. Þá ákvað skipherrann á
Þór að halda ótilkvaddur, segir
í dagbók varðskipsins, að skip-
unum tveimur á fullri ferð og
kom varðskipið að Sindra
stundarkorni eftir að Heimaey
hafði rekið í brimgarðinn og í
strand, en skipverjarnir tveir
sem fórust munu hafa verið að
reyna að losa ankeri skipsins
þegar þá tók út.
ilKSSi
Heimaey VE 1 á strandstaðnum á Þykkvabæjaríjöru síðdegis í gær
IJósm. Mbl. Kristján.
Krefjast
allsherjar-
atkvæða-
greiðslu
AÐILAR innan Handalags
starfsmanna ríkis og bæja
hafa hafið undirskriftasöfn-
un, þar sem skorað er á stjórn
BSRB að efna til allsherjar-
atkvæðagreiðslu meðal félags-
manna um hinn nýgerða við-
aukasamning, sem undiritað-
ur var í síðustu viku milli
BSRB og íjármálaráðherra.
Pétur Pétursson, þulur, sem er
einn hvatamanna að þessari und-
irskriftasöfnun kvað það vera
hættulegt fordæmi, ef gengið er
frá samkomulagi af þessu tagi án
þess að hinn almenni félagsmað-
ur fái nokkuð um það að segja. Þá
kvað hann samtökin sem slík
einskis virði og spurði til hvers
þá væru langvarandi samning-
aumleitanir með miklum fund-
ahöldum og umræðum í félögun-
um. Hann kvað félaga innan
BSRB greiða 1% af launum
sínum til samtakanna og þótt
gott væri að fá Ásgarð með
skilum reglulega með- myndum
af Kristjáni Thorlacius og Ragn-
ari Arnalds, þá kvað hann það
ekki nægilegt fyrir félagsgjaldið.
vERZLANIR - VERKTAKAR -STOFNANIR -EINSTAKLINGAR
Einstakt vöruúrval á einum staö.
STILLONGS
ullar-nærfötin halda
á þér hita.
STIL-LOIMGS
ullarnærfötin eru hlý og
þægileg. Sterk, dökkblá að
lit og fást á alla fjölskyld-
una.
SOKKAR
— með
tvöföldum
botni.
HLIFÐARFATNADUR
KNIVAR
FLATNINGSHNIFAR
BEITUHNÍFAR
HAUSINGASVEÐJUR
FLÖKUNARHNÍFAR
DOLKAR — STÁLBRÝNI
STJORNULYKLAR
TOPPLYKLAR
LYKLASETT
TENGUR
ABA
SLÖNGUKLEMMUR
VIRAR — TOG
LANDFESTAR
VÉLATVISTUR
BÓMULLARGARN
MURVERKFÆRI
VERKFÆRI TIL PÍPULAGNA
SNJOYTUR - SKÓFLUR
SALTSKÓLFUR
ÍSSKÓFLUR
KLAKASKÖFUR
UTIDYRAMOTTUR
kókós — gúmmí
POLYFILLA —
FYLLINGAREFNI
Pdins-UIESSEX ^
SCHERfTlULY
LÍNUBYSSUR —
NEYDARMERKI
SKODUNARBUNADUR
Þetta er aðeins lítiö sýnishorn. Viö bjóöum einnig í ótrúlegu úrvali
VEIÐARFÆRI - ÚTGERÐARVÖRUR - VÉLAÞÉTTINGAR - VERKFÆRI - MÁLNINGARVÖRUR - TJÖRUR
BYGGINGAVORUR - SJÓFATNAÐ - VINNUFATNAÐ og ótalmargt fleira.
65 ára reynsla tryggir gæöin Heildsala - smásla
— ELZTA OG STÆRSTA VEIOARFÆRAVERZLUN LANDSINS —
Ánanaustum, Grandagaröi. Sími 28855.