Morgunblaðið - 18.02.1981, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
Peninga-
markadurinn
- \
GENGISSKRANING
Nr. 33 — 17. febrúar 1981 Ný kr. Ný kr.
Eining Kl. 13.00 Kaup S.I.
1 Bandaríkjadollar 6,568 6,586
1 Starlingapund 14,900 14,940
1 Kanadadollar 5,450 5,465
1 Dónsk króna 0,9763 0,9790
1 Norsk króna 1,2045 1,2078
1 Sasnsk króna 1,4042 1,4080
1 Finnskt mark 1,5661 1,5904
1 Franskur franki 1»7 1,3003
1 Belg. (r.nki 0,1860 0,1865
1 Svissn. franki 3,3005 3,3095
1 Hollansk florina 2,7461 2,7556
1 V.-þýzkt mark 3,0005 3,0087
1 hW.klfra 0,00633 0,00634
1 Austurr. Sch. 0,4240 0,4252
1 Portug. Escudo 0,1141 0,1144
1 Spánskur pasati 0,0748 0,0750
1 Japansktyan 0,03184 0,03193
1 írskt pund SDR (sórstök 11,105 11,135
dréttarr.) 13/2 8,0287 8,0505
GENGISSKRANING
FERÐAMANNAGJALDEYRIS
17. febrúar 1981
Ný kr. Ný kr.
Eining Kl. 13.00 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 7,224 7,244
1 Starlingspund 16,390 16,434
1 Kanadadollar 5,995 6,011
1 Dónak króna 1,0739 1,0769
1 Norsk króna 1,3249 1,3285
1 Saanak króna 1,5446 1,5468
1 Finnskt msrk 1,7447 1,7496
1 Franskur franki 1,4263 1,4303
1 Balg. frsnki 0,2046 0,2051
1 Svissn. franki 3,6305 3,6404
1 Hollansk florina 3,0229 3,0311
1 V.-þýzkl m.rk 3,3000 3,3008
1 Itöl.k líra 0,00690 0,00690
1 Austurr. Sch. 0,4664 0,4677
1 Portug. Escudo 0,1255 0,1258
1 Spánskur pasati 0,0622 0,0625
1 J.pan.kty.n 0,03490 0,03580
1 írskt pund 12,215 12.248
V
Vextir:
INNLÁNSVEXTIR:.
(ársvextir)
1. Almennar sparisjóðsbækur....35,0%
2.6 mán. sparisjóösbækur .......36,0%
3.12 mán. og 10 ára sparisjóösb.37,5%
4. Vaxlaaukareikningar, 3 mán...40,5%
5. Vaxtaaukareikningar, 12 mán...46,0%
6. Ávísana- og hlaupareikningur.19,0%
7. Vísitölubundmr sparitjárreikn. 1,0%
ÚTLÁNSVEXTIR:
(ársvextir)
1. Víxlar, forvextir ...........34,0%
2. Hlaupareikningar.............36,0%
3. Lán vegna útflutningsafuröa... 8,5%
4. Önnur endurseljanleg afuröalán .. 29,0%
5. Lán meö ríkisábyrgö .........37,0%
6. Almenn skuldabréf............38,0%
7. Vaxtaaukalán.................45,0%
8. Vísitölubundin skuldabréf ..... W%
9. Vanskilavextir á mán.........4,75%
Þess ber aö geta, að lán vegna
útflutningsafuröa eru verötryggö
miöað viö gengi Bandaríkjadollars.
Lífeyrissjódslán:
LífeyrÍMjóður starfsmanna rikis-
ins: Lánsupphæö er nú 80 púsund
nýkrónur og er lániö visitölubundiö
meö lánskjaravísitölu, en ársvextir
eru 2%. Lánstimi er allt aö 25 ár, en
getur verið skemmri, óski lántakandi
þess, og eins ef eign sú, sem veö er í
er lítilfjörleg, pá getur sjóöurinn stytt
lánstimann.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna:
Lánsupphæö er nú eftir 3ja ára aöild
aö lífeyrissjóönum 48.000 nýkrónur,
en fyrir hvern ársfjóröung umfram 3
ár bætast viö lániö 4 þúsund ný-
krónur, unz sjóösfélagi hefur náö 5
ára aöild aö sjóðnum. Á tímabilinu
frá 5 til 10 ára sjóösaöild bætast viö
höfuöstól leyfilegrar lánsupphæöar 2
þúsund nýkrónur á hverjum ársfjórö-
ungi, en eftir 10 ára sjóösaöild er
lánsupphæöin oröin 120.000 nýkrón-
ur. Eftir 10 ára aöild bætast viö eitt
þúsund nýkrónur fyrir hvern ársfjórö-
ung sem líöur. Því er í raun ekkert
hámarkslán í sjóönum. Fimm ár
veröa aö líöa milli lána.
Höfuöstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin
ber 2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til
25 ár að vali lántakanda.
Lánskjaravísitala fyrir febrúar-
mánuö 1981 er 215 stig og er þá
miðaö viö 100 1. júní '79.
Byggingavísitala var hinn 1. janú-
ar síöastliöinn 626 stig og er þá
miöaö viö 100 í október 1975.
Handhafaskuldabráf í fasteigna-
viðskiptum. Algengustu ársvextir eru
nú 18—20%.
Morgunstund barnanna kl. 9.05:
„Lísa
í Óláta-
garði“
Á dagskrá hljóðvarps kl. 9.05 er
Morgunstund barnanna. Guörún
Lillý Guðbjörnsdóttir byrjar að lesa
söguna „Lisu í Ólátagarði" eftir
Astrid Lindgren í þýðingu Eiríks
Sigurðssonar.
— Þemað í sögunni er leikir
æskunnar, sagði Guðrún Lillý, —
börnin kunna að gleðjast yfir hinu
smáa í umhverfinu, sem við full-
orðna fólkið höfum, a.m.k. flest
okkar tapað hæfileikanum til að
njóta vegna þess að við erum svo
upptekin af brauðstritinu . Börnun-
um í Ólátagarði finnst að ekki geti
verið til betri staður í öllum heim-
inum en Ólátagarður. Þau una sér
allan daginn við alls konar leiki og
uppátæki, sem fullorðna fólkið er
ekki alltaf hrifið af. Þau eiga sér
sinn ævintýraheim og öll náttúran
er þeim eitt stórt ævintýri, sem þau
eru virkir þátttakendur í ásamt
dýrunum á bænum. Þau hafa
óþrjótandi ímyndunarafl, sem
opnar þeim sífellt nýjar leiðir í
leikjum sínum. Smávegis togstreitu
gætir milli kynjanna, en hún verður
aðeins til að auka spenninginn í
sögunni.
„Lísa í Ólátagarði" er þriðja bók
höfundarins í bókaflokknum um
börnin í Ólátagarði. Fyrsta bókin
var einmitt „Börnin í Ólátagarði"
og önnur í röðinni var svo „Alltaf
gaman í Ólátagarði“. Astrid Lind-
gren er fædd árið 1907 í Vimmer-
þorpi í Smálöndum. Árið 1945 vakti
hún fyrst athygli með bók sinni
„Lína langsokkur". Fleiri bækur um
Línu fylgdu á eftir og hafa verið
þýddar á íslensku, svo og bækurnar
um Emil í Kattholti og sakamála-
sögurnar um Kalla Blómkvist. Af
nýrri bókum hennar má nefna
„Bróður minn Ljónshjarta", sem
lesin var hér í útvarp fyrir nokkrum
árum og vakti mikla athygli. Þá má
geta þess að kvikmyndir hafa verið
gerðar eftir verkum hennar, svo og
leikrit og hefur hvort tveggja birst
hér, bæði í útvarpi, sjónvarpi og á
sviði (Leikfélag Kópavogs). Astrid
Lindgren hefur hlotið fjölda viður-
kenninga og verðlauna fyrir bók-
menntastörf sín og er ennþá að
skrifa.
Gunnar Björnsson
Skrattinn
skrifar
bréf
í hljóðvarpi kl. 11.05 er
dagskrárliður er nefnist Skratt-
inn skrifar bréf. Séra Gunnar
Björnsson í Bolungarvík les þýð-
ingu sína á bókarköflum eftir
breska bókmenntafræðinginn
C.C. Lewis: 1. og 2. bréf.
H1 jóðvarp kl.11.05:
— Þessir bókarkaflar eru
ákaflega skemmtilegir sagði
Gunnar, og alveg óhemjuvel
skrifaðir. Höfundur þeirra er
aftur kominn í tísku. Skrattinn
skrifar bréf, The Screwtape
Letters á frummálinu, er fræg-
asta bók breska rithöfundarins
og bókmenntafræðingsins C.C.
Lewis, sem raunar var írskur að
ætt og uppruna. Bókin inniheld-
ur bréfaskriftir tveggja illra
anda, sem eru að leggja á ráðin
um það, hversu best megi leiða
sálir mannanna í glötun. Það er
mjög góður húmor í bókinni og
ég vona, að hann komist til skila
í þýðingu minni. Lúther sagði
einhvern tíma, að best væri að
reka djöfulinn út með ritningar-
orði, en ef það dygði ekki þá væri
þjóðráð að skopast að honum. En
þrátt fyrir léttan og aðgengi-
legan búning bókarinnar þá
fjallar hún í raun um það, sem
varðar okkur mennina mestu í
lífi og dauða, þ.e. sáluhjálpina.
Áður hafa birst eftir sama
höfund tvær bækur í þýðingu
Andrésar Björnssonar útvarps-
stjóra. Þær heita Rétt og rangt
og Guð og menn, og voru út-
varpserindi höfundarins á
stríðsárunum.
sem sigla um og lepja olíuna af
sjónum. Fjórða og síðasta mynd-
in er frá Indlandi og segir frá því
hvernig Indverjar eru farnir að
framleiða methan-gas í talsvert
stórum stíl úr nautgripaskít og
öðrum lífrænum úrgangsefnum.
Þeir láta þessi efni gerjast í
sérstökum tönkum. Við það
myndast þetta methan-gas, sem
þeir safna saman og nota til
eldunar o.fl. Síðan geta þeir eftir
gastökuna notað þessi úrgangs-
efni sem áburð á akrana. Og
tæknin til að ná gasinu úr
skítnum er tiltölulega einföld.
Nýjasta tækni og vísindi kl. 20.35:
Þrýstilof tshreyf lar í skip
og tölvustýringumferðar
Á dagskrá sjónvarps kl. 20.35
er þátturinn Nýjasta tækni og
vísindi. Umsjónarmaður Sigurð-
ur H. Richter.
— Það verða fjórar myndir í
þessum þætti, sagði Sigurður. —
Hin fyrsta fjallar um þrýsti-
loftshreyfla í skip. Byrjað er á að
setja slíka hreyfla í skip upp úr
1960, aðallega í herskip af minni
og miðlungsgerð. En nú er svo
komið að farið er að setja
þrýstiloftshreyfla í 9kip sem eru
allt að 16000 tonn og í framtíð-
inni gæti farið svo að jafnvel
stærstu farþegaskip yrðu knúin
slíkum hreyflum. Önnur Myndin
fjallar um tölvustýringu á um-
ferð. Tokyo er stærsta borg í
heimi og þar er umferðaröng-
þveitið gífurlegt. Japanir eru nú
að gera tilraunir með að tölvu-
stýra umferðinni. Tölvuskjár er
settur í bílinn og hann er í
þráðlausu sambandi við miðstöð.
Þegar maður sest inn i bílinn,
gefur maður upp staðsetningu og
hvert ferðinni er heitið. Síðan
finnur tölvan í miðstöðinni
greiðfærustu leiðina, miðað við
umferðarþunga og önnur skil-
yrði á hverjum stað og svarið
sést á tölvuskjánum í bílnum,
píla sýnir hvort aka á beint
áfram, beygja til vinstri eða
hægri o.s.frv. Þriðja myndin
fjallar um nýjustu tækni í
hreinsun olíubrákar af sjó. Þar
er bæði um að ræða skip og báta
Útvarp Reykjavík
/MIÐMIKUDtxGUR
18. febrúar
MORGUNINN
7.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. 7.15 Leikfimi
7.25 Morgunpósturinn
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr.
daghl. (útdr.). Dagskrá.
Morgunorð: Gunnlaugur A.
Jónsson talar. Tónleikar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
Guöriður Liilý Guðbjörns-
dóttir byrjar að lesa söguna
„Lísu i Ólátagarði" eftir
Astrid Lindgren i þýðingu
Eiriks Sigurðssonar.
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Kirkjutónlist
Michacl Schneider leikur
orgelverk eftir Bach á orgel
Dómkirkjunnar í Reykjavík.
11.05 Skrattinn skrifar bréf
Séra Gunnar Björnsson i
Bolungarvik les þýðingu
sina á bókarköflum eftir
breska bókmenntafræðing-
inn og rithöíundinn C.C.
Lewis; 1. og 2. bréf.
11.30 Morguntónleikar
Alicia de Larrocha og Fil-
harmoniusveitin i Lundún-
um leika Fantasiu i G-dúr
op. 111 eftir Gabriel Fauré;
Rafael Frúbeck de Burgos
stj. / Parisarhljómsveitin
leikur „Stúlkuna frá Arles",
svitu nr. 1 eftir Georges
Bizet; Daniel Barenboim stj. ^
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Miðvikudagssyrpa
— Svavar Gests.
SÍDDEGIÐ
15.20 Miðdegissagan: „Dans-
mærin frá Laos" eftir Louis
Charles Royer
Gissur Ó. Erlingsson les þýð-
ingu sina (7).
18.00 Herramenn
Herra Nískur
Þýðandi Þrándur Thorodd-
sen.
Lesari Guðni Kolbeinsson.
18.10 Börn i mannkynssög-
unni
Smaladrengurinn
Þýðandi ólöf Pétursdóttir.
18.30 Vetrargaman
Skíðafimleikar
Þýðandi Eirikur Haralds-
son.
18.55 Hlé
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dag-
skrá
20.35 Nýjasta tækni og vís-
indi
Umsjónarmaöur örnólfur
Thorlacius.
21.05 Vændisborg
15.50 Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Siðdegistónleikar
Wilhelm Kempff leikur á
píanó Sinfóniskar etýður op.
13 eftir Robert Schumann /
Elly Ameling syngur lög úr
„ítölsku Ijóðabókinni" eftir
Hugo Wolf; Dalton Baldwin
lcikur með á pianó / Julian
Lloyd Webber og Clifford
Benson leika Sellósónötu eft-
ir Frederick Delius.
17.20 Útvarpssaga barnanna:
Sjöundi og siðasti þáttur
Efni sjötta þáttar:
Fitz tekur þátt i verkfaili,
þótt hann viti að það muni
kosta hann atvinnuna.
Lciguhjallar Bradshaws
hrynja. og margir týna
lífinu. Mulhall deyr af völd-
um slyssins, og Mary lætur
af hendi sparifé sitt. svo aó
hann fái veglega útför.
Þýðandi Dóra Ilafsteins-
dóttir.
22.00 Spjallað við Margréti
drottningu
Margrét Þórhildur Dana-
drottning varð fertug í
fyrravor, og minntist
danska sjónvarpið þess
með viðtalsþætti. þar sem
hún segir írá bernsku
sinni, hjónahandi. konung-
dæminu og ýmsu fleiru.
Þýðandi Sonja Diego.
(Nordvision — Danska
sjónvarpið)
„Á flótta með farandleikur-
um“ eftir Geoffrey Trease
Silja Aðalsteinsdóttir les
þýðingu sina (2).
17.40 Tónhornið
Sverrir Gauti Diego stjórnar
þættinum.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá •
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Á vettvangi
KVÖLDID______________________
20.00 Úr skólalifinu
Umsjón: Kristján E. Guð-
mundsson. Rætt við Hrafn
Hallgrímsson um Norræna
sumarháskólann og einnig
nokkra nemendur.
20.35 Áfangar
Umsjónarmenn: Ásmundur
Jónsson og Guðni Rúnar
Agnarsson.
21.15 Nútímatónlist
Þorkeil Sigurbjörnsson
kynnlr.
21.45 Útvarpssagan: „Rósin
rjóð" eftir Ragnheiði Jóns-
dóttur
Sigrún Guðjónsdóttir les (7).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Lestur Passiusáima (3).
22.40 Ein af þjóðum norður-
hjarans
Dagskrá um Sama. Hjörtur
Pálsson spjallar um mál
þeirra og menningu við Að-
alstein Daviðsson og Harald
ólafsson, og Anna Einars-
dóttir, Illin Torfadóttir og
Einar Bragi lesa úr þýðing-
um Einars á bókmenntum
Sama i bundnu og óbundnu
máli og gera grein fyrir
efninu.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
SKJÁNUM
MIÐVIKUDAGUR
18. febrúar