Morgunblaðið - 18.02.1981, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
í bæjarstjórnarkosningum í
Reykjavík 1946 var meirihluti
sjálfstæðismanna í bæjarstjórn í
mikilli hættu. Upplausn í kjölfar
styrjaldar, verðbólga, gerðar-
dómslög og bandalag Sovétríkj-
anna og bandamanna vesturveld-
anna hafði búið vinstri öflum
undir forystu Socialistaflokksins
betri jarðveg fylgisaukningar, en
nokkru sinni áður.
Sjálfstæðismenn snerust fyrst
til varnar og síðan öflugrar sókn-
ar gegn vinstri öflunum undir
forystu Bjarna Benediktssonar,
þáverandi borgarstjóra. Meðal
nýmæla í þeirri kosningabaráttu
var prófkjör um val frambjóðenda
á bæjarstjórnarlista Sjálfstæðis-
flokksins.
Auður Auðuns, ung húsmóðir og
iögfræðingur, valdist þá í framboð
ásamt fleiru góðu fólki og með
samhæfðu átaki sjálfstæðismanna
og bæjarbúa var sigur unninn.
Mér er minnisstætt hve miklar
vonir voru þá bundnar við þátt-
töku Auðar Auðuns í stjórnmál-
um. Það er ánægjulegt eftir 35 ár
að líta yfir farinn veg og stað-
reyna að allar þær vonir hafa ræzt
með glæsibrag.
---X-----
Auður Auðuns átti góða að,
dóttir Margrétar G. Jónsdóttur og
Jóns Auðuns Jónssonar alþm. á
ísafirði. Stjórnmálabaráttan var
harðvítug í gamla daga og einkum
var viðbrugðið, að ísfirðingar
stæðu sízt öðrum að baki í þeim
efnum. Jón Auðunn Jónsson alþm.
var mikilsvirtur og auðvitað í
bardaganum miðjum í þá daga.
Slík reynsla í föðurgarði gat bæði
hvatt og latt dóttur hans til
stjórnmálaþátttöku.
Segir það væntanlega nokkra
sögu um skapgerð Auðar Auðuns,
að hún haslaði sér völl á vettvangi
stjórnmálanna, þegar þátttaka
kvenna á þeim vettvangi heyrði til
undantekninga og var raunar al-
gert brautryðjendastarf.
Auður Auðuns tók fyrst ís-
lenzkra kvenna embættispróf í
lögfræði 1935 og vann iögfræði-
störf m.a. á ísafirði og á vegum
mæðrastyrksnefndar í Reykjavík
samhliða heimilisstörfum.
Eftir að Auður Auðuns varð
bæjarfulltrúi varð hún fyrst var-
amaður í bæjarráði en aðalmaður
frá 1952 og þar til 1970.
I fræðsluráði Reykjavíkur sat
Auður frá 1947 til 1970 og lengst
af sem formaður ráðsins. Á þess-
um árum'var mest fjölgun nem-
enda í skólum borgarinnar og flest
nýmæli tekin upp í skólastarfi.
Skipti því miklu máli að njóta
festu Auðar Auðuns sem for-
manns fræðsluráðs.
Ég man, þegar ég var fyrst
kosinn bæjarfulltrúi 1954, að Auð-
ur Auðuns þótti sjálfkjörin forseti
bæjarstjórnar, fyrsta og eina kon-
an, sem það embætti hefur skipað.
Auður Auðuns gegndi starfi for-
seta borgarstjórnar með þeim
hætti að andstæðingar jafnt sem
samherjar báru óskorað traust til
sanngirni hennar, stjórnsemi og
dómgreindar.
Forseti borgarstjórnar hefur til
skamms tíma verið ásamt borgar-
stjóra fulltrúi höfuðborgarinnar
og borgarbúa erlendis sem innan-
lands t.d. við gestamóttöku.
I því starfi naut reisn og
glæsimennska Auðar Auðuns sín
ákaflega vel, en Auði er lagið
fyrirvaralaust að bregða fyrir sig
jafnt alvöruorðum og gamanmál-
um, ef því er að skipta, hvort
tveggja af stakri smekkvísi.
Við starfsfélagar forsetans í
borgarstjórn vorum stoltir að eiga
slikan oddvita og kynnast þeirri
virðingu, er hún naut.
í nóvembermánuði 1959 var
Auður Auðuns borgarstjóri, eina
konan sem því starfi hefur gegnt.
Auður gegndi þá borgarstjóra-
störfum í menntamálum, heil-
brigðis- og félagsmálum, en það
féll í minn hiut að vera borgar-
stjóri fjármála- og verklegra
framkvæmda.
Ymsir spáðu ekki vel fyrir slíku
samstarfi, en það er skemmst frá
að segja, að frá mínu sjónarmiði
féll ekki skuggi á samstarf okkar
Auðar það ár, sem þessi starfs-
skipting hélzt. Ég geri mér grein
fyrir, að það var Auði Auðuns að
þakka.
Siðan störfuðum við Auður
áfram saman, um áratugaskeið,
hún sem forseti borgarstjórnar og
ég sem borgarstjóri. Ég fæ seint
fullþakkað samstarfið, þann
stuðning og styrk, sem forseti
borgarstjórnar veitti mér þá sem
borgarstjóra. Það fór ekki fram-
hjá okkur reykvísku borgarfull-
trúunum, að í nágrannalöndum
okkar sumum var samkomulag
borgarstjóra og forseta borgar-
stjórnar misgott en því var ekki til
að dreifa hér sem betur fór.
---X-----
Auður Auðuns gaf ekki kost á
sér til endurkjörs í borgarstjórn
1970. En varaþingmaður hafði hún
einnig verið 1947 og 1948, og síðan
kosin þingmaður Reykvíkinga
1959 og allt til 1974 er hún hvarf
frá þingmennsku að eigin ósk.
Þegar Jóhann Hafstein myndaði
ríkisstjórn sína 1970 varð Auður
Auðuns dómsmálaráðherra, fyrsta
og eina íslenzka konan, sem gegnt
hefur ráðherrastörfum.
Hlutur Auðar Auðuns sem þing-
manns og ráðherra var ekki síðri,
en á vettvangi borgarmála. Hvergi
lét hún hlut sinn eftir liggja og
beitti sér fyrir margvíslegum
þjóðþrifa- og mannúðarmálum.
Allir, sem vinna með Auði
Auðuns, kynnast fljótt festu,
kjarki og glöggskyggní hennar,
sem byggð er á víðtækari þekk-
ingu á mönnum og málefnum.
Auður Auðuns er hreinskilin og
hreinskiptin og vísar allri tvö-
feldni og tvínóni á bug með
einarðri háttvísi.
----X----
Stjórnmálasagan mun skipa
Auði Auðuns veglegan sess meðal
íslenzkra forystumanna. En auk
þess verður ekki framhjá því
gengið, að Auður Auðuns hefur
tvímælalaust sérstöðu í íslenzkri
stjórnmálasögu, vegna þess hve
oft hún verður til þess að marka
nýja áfanga í stjórnmálaþátttöku
kvenna og með hvíiíkum sóma
henni tekst það. Fyrsti lögfræð-
ingurinn, fyrsti forseti borgar-
stjórnar, fyrsti borgarstjórinn og
fyrsti ráðherrann úr hópi ís-
lenzkra kvenna.
Fordæmi Auðar hefur aukið
konum kjark og mönnum aimennt
skiining á nauðsyn þess að nýta þá
hæfileika, sem í landsins börnum
búa, konum jafnt sem körium.
Svipur Sjálfstæðisflokksins
hefði verið annar og minni, ef
Auður Auðuns hefði ekki verið
meðal þeirra, sem voru í fylk-
ingarbrjósti. Fyrir atbeina hennar
og skynsemi flokksmanna má með
sanni halda fram þeirri staðreynd,
að svo stóð lengi vel, að Sjálfstæð-
isflokkurinn var sá stjórnmála-
flokkur á íslandi, sem sýndi kon-
um mest traust til pólitískra
trúnaðarstarfa.
Þessi afstaða Sjálfstæðisflokksins
var og rökrétt, og halda verður
hana í heiðri þar sem grundvöllur
sjálfstæðisstefnunnar, einstakl-
ingsfrelsið, er jafnrétti í reynd.
----X----
Það er undravert hve mikið
starf liggur eftir Auði Auðuns á
opinberum vettvangi, þótt ekki sé
einnig höfð i huga heimilis og
húsmóðurstörf hennar.
Auður Auðuns var gift Her-
manni Jónssyni, fulltrúa tollstjóra
og hæstaréttarlögmanni, er lézt
1969. Börn þeirra eru: Jón, kvik-
myndagerðarmaður, Einar, skipa-
verkfræðingur, Margrét, forn-
leifafræðingur, og Árni, kennari.
Á þessum hátíðisdegi í lífi
Auðar Auðuns veit ég að ham-
ingjuóskir streyma til hennar og
fjölskyldu hennar. Margir eiga
henni gott upp að unna og þakk-
arskuld að gjalda.
I nafni sjálfstæðismanna vil ég
sérstakiega þakka Auði Auðuns
fyrir fórnfús forystustörf í þágu
sameiginlegra hugsjóna og per-
sónulega þakka ég lærdómsríkt
samstarf, hollráð og vináttu um
leið og ég óska Auði Auðuns allra
heilla í framtíðinni og vona að við
megum njóta starfskrafta hennar
sem lengst.
Geir Ilallgrimsson
í tilefni af sjötíu ára afmæli
Auðar Auðuns sendir Hvöt, félag
sjálfstæðiskvenna í Reykjavík,
henni árnaðaróskir og þakkar
frábært samstarf í áratugi.
Auður var formaður Hvatar
1967—1968, hún hefur gegnt
margvíslegum trúnaðarstörfum
fyrir félagið og er enn virk í
félagsstarfinu. Hún á að baki
langa starfsævi á vettvangi lands-
mála og félagsmála, reynsluforði
hennar er mikill og til hennar má
jafnan leita um hollráð. Slíkur
bakhjarl er ómetanlegur í félags-
lífi.
í kjölfar skipulagsbreytinga
Sjálfstæðisflokksins, laust eftir
miðjan fjórða áratuginn, hófu
konur í röðum sjálfstæðismanna
að mynda með sér samtök. Fram-
sæknar konur urðu fyrstar til og
stofnuðu Hvöt 19. febrúar 1937 og
á næstu tveimur árum voru
stofnsett átta önnur félög sjálf-
stæðiskvenna viðsvegar um land-
ið. Nú mynda þessi félög og mörg
önnur, er síðar hafa komið til
skjalanna, landssamtök.
Lög Hvatar hafa jafnan tekið
mið af skipulagsreglum Sjálfstæð-
isflokksins og félagið starfað und-
ir merkjum hans. Stjórnir setja
siðan starfsreglur og voru þær
fyrstu lítið breyttar í þrjá áratugi.
Þegar Auður varð formaður, var
það hennar fyrsta verk að endur-
skoða félagslög Hvatar og standa
fyrir breytingum, sem tryggðu
markvissa endurnýjun fólks í for-
ystu félagsins. Þannig taldi hún
félagið betur uppfylla það mark-
mið að vera vettvangur fyrir
konur í flokks- og félagsstarfi og
jafnframt stuðla að framgangi
kvenna á vettvangi þjóðmála.
Þessara breytinga sér á margan
hátt stað í félagsstarfinu, fjöldi
nýrra kvenna hefur komið til
starfa, með nýjar hugmyndir og
starfsaðferðir og félagið í heild
orðið með nútímasniði.
Sjálf er Auður brautryðjandi —
og öðrum konum lýsandi fordæmi
— á sviði menntunar og í stjórn-
málastarfi. Þegar hún tók stúd-
entspróf 1929, var sá hópur
kvenna ekki stór, er þann flokk
fyllti. En er Auður lauk embætt-
isprófi í lögum frá Háskóla ís-
lands 1935, var hún fyrst kvenna
er það gerði.
Auður á að baki aldarfjórðungs
setu í borgarstjórn Reykjavíkur,
þar af forseti borgarstjórnar í
fimmtán ár. Hún sat óslitið á
Alþingi sem þingmaður Reykvík-
inga í sextán ár, hún var fyrst
kvenna hér á landi til að gegna
starfi borgarstjóra og embætti
ráðherra.
Hér hefur verið getið um þau
atriði, sem mynda augljósa tinda
á starfsævi Auðar og sem munu
skipa henni sess í sögunni sem
brautryðjanda og forystumanni.
En ævinlega er örðugt, að sjá fyrir,
hvar þau spor markast er mestu
varða, þegar fram líða stundir.
Saga baráttumannsins Auðar
Auðuns fyrir réttindum kvenna til
jafns við karla á öllum sviðum
þjóðlífsins er lítil skil í ,þessu
samhengi. Tveggja áratuga starf
sem lögfræðingur Mæðrastyrks-
nefndar, starf um árabil hjá
Kvenréttindafélagi íslands, starf
að bættri sifjalöggjöf, almanna-
tryggingalögum, framfærslulög-
gjöf og ótal margt annað, er til
samans hefur þokað fram jafnt og
þétt bættri stöðu fólks, verður
ekki síður þungt á metunum.
En að hverju sem Auður Auð-
uns hefur gefið sig og á hvaða
vettvangi sem er, hefur farið
heilsteyptur sjálfstæðismaður,
kurteis kona og einbeitt, með
fágaðan lífsstíl, sem lyfti hverju
máli er hún gaf sig að.
Samtök sjálfstæðiskvenna vilja
fyrir sitt leyti staðfesta viðhorf
sín til starfa Auðar Auðuns með
því að efna til bókaútgáfu henni
til heiðurs, og er sú bók væntanleg
í sumarbyrjun.
Björg Einarsdóttir
form Hvatar.
Frú Auður Auðuns fyrrverandi
ráðherra er 70 ára í dag. Þær eru
áreiðanlega ófár sjálfstæðiskon-
urnar víðsvegar um landið, sem
hugsa hlýtt til Auðar í dag á
þessum tímamótum í lífi hennar.
Það eru eflaust ekki margir Is-
lendingar sem ekki þekkja nafnið
Auður Auðuns og það ekki að
ástæðulausu. Auður braut ung af
sér fjötra hinna hefðbundnu
kvennastarfa og hélt ótrauð inn á
námsbraut, sem áður hafði verið
eingöngu skipuð karlmönnum.
Hún lauk sinu námi með glæsi-
brag í lögfræði og lét ekki þar við
sitja. Það voru fleiri vegir sem
þessa dugmiklu konu fýsti að
kanna, vegir sem fáar kynsystur
hennar höfðu áður fetað. Hún
virðist hafa hugsað réttilega að
stjórnmál eru ekki einangrað
fyrirbæri heldur þáttur í hinu
daglega lífi, lífsbarátta okkar
allra. Inn í slíka baráttu hlutu
konur að eiga erindi ekki síður en
karlar. Auður náði langt á sviði
stjórnmálanna og hefur löngum
verið annáluð af þeim sem með
henni hafa unnið, fyrir dugnað,
festu og ósérhlifni í þeim málum
sem hún hefur tekið sér fyrir
hendur. Það kom líka á daginn að
flokkur hennar, Sjálfstæðisflokk-
urinn, treysti henni fyrir viða-
miklum verkefnum og ábyrgðar-
stöðum. Hún er fyrsta og eina
konan hingað til sem gegnt hefur
embætti borgarstjóra í Reykjavík
og ráðherraembætti. Það hefur
stundum verið haft á orði að
málflutningur kvenframbjóðenda
fyrir kosningar sé of einhliða.
Þeim hætti til að karpa um stöðu
konunnar í þjóðfélaginu en láti sig
litlu skipta þjóðfélagsmál al-
mennt. Þessi fullyrðing á ekki við
um Auði Auðuns, hún hefur alla
tíð farið hér bil beggja, látið sig
varða öll þjóðfélagsmál og tekið á
hverju máli af festu, glöggsýni og
stillingu. En hún hefur heldur
ekki gleymt að leggja hönd á
plóginn í baráttu kvenna fyrir
auknum jafnréttindum. í fjölda
ára starfaði Auður með Kvenrétt-
indafélagi íslands og lætur enn í
dag ekki sitt eftir liggja.
Auður hefur frá fyrstu dögum
Landssambands Sjálfstæðis-
kvenna verið þar í fararbroddi og
átti sæti í stjórn sambandsins frá
stofnun þess 1958 og sem formað-
ur frá 1973-1975.
Landssamband Sjálfstæðis-
kvenna sendir Auði Auðuns hug-
heilar árnaðaróskir á þessu
merkisafmæli og lætur fylgja með
þá ósk að við megum enn um
ókomin ár njóta nærveru hennar
og heilræða.
F.h. Landssambands Sjálf-
stæðiskvenna,
Margrét S. Einarsdóttir,
formaður.