Morgunblaðið - 18.02.1981, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
17
Polanski og Redford
nefndir til Oskarsverð-
launa fyrir leikstjórn
Hollywood, 17. febrúar. — AP.
KVIKMYNDIRNAR „Coal Miner’s Daughter”. „The Elephant
Man“, „Ordinary People“, „Raging Bull“ og „Tess“ hafa verið
tilnefndar til Óskarsverðlauna i ár.
Robert de Niro (Raging Bull), Robert Duvall (The Great Santini),
John Hurt (The Elephant Man), Jack Lemmon (Tribute) og Peter
O’Toole (The Stunt Man) voru tilnefndir til óskarsverðlauna fyrir
besta aðalhlutverk karlmanns í ár.
Mary Tyler Moore (Ordinary
People), Ellen Burstyn (Resur-
rection), Goldie Hawn (Private
Benjamin), Gena Rowlands
(Gloria) og Sissy Space (Coal
Miner’s Daughter) voru nefndar
til verðlauna fyrir besta kven-
hlutverkið.
Meðal þeirra sem voru til-
nefndir til að hljóta óskarsverð-
launin fyrir bestu leikstjórnina
voru Roman Polanski (Tess) og
Robert Redford (Ordinary
people). Er þetta í þriðja sinn
sem Polanski er tilnefndur til
Óskarðsverðlauna en aðrir ieik-
stjórar voru tilnefndir í fyrsta
skipti, þar á meðal Redford. Er
það talið einkenna tilnefninguna
í ár hversu margir eru nefndir í
fyrsta skipti.
Jason Robards, sem hlaut
Óskarsverðlaun fyrir aukahlut-
verk 1976 og 1977 hefur verið
tilnefndur til verðlauna fyrir
aukahlutverk í ár fyrir að leika
auðkýfinginn Howard Huges í
kvikmyndinni „Melvin og How-
ard“. 1
Meðal þeirra laga sem voru
tilnefnd er lag Dolly Parton úr
kvikmyndinni „Nine to Five“.
Þær kvikmyndir sem hlutu
flestar tilnefningar eru „The
Elephant Man, The Story of a
Deforme Man’s Search for Dign-
ity“ og „Raging Bull", alls 8 hver.
Óskarðsverðlaunin verða afhent í
Hollywood 30. mars nk.
Noregur:
Ríkisstjórnin reynir að komast
að samkomulagi við samana
Frá Jan Erik Lauré, fréttarLara Mbl. í
Ósló, 17. febrúar
DEILAN UM byggingu Alta-
orkuversins í Norður-Noregi
heldur áfram af fullum krafti. í
dag og á morgun ræðir ríkis-
stjórnin við fulltrúa samanna og
reynt verður að finna lausn sem
báðir aðilar geta sætt sig við.
Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir
að hún vilji veita sömum ýmis
réttindi og stuðla að þvi að
lífskjör þeirra verði bætt en segir
jafnframt að ekki komi til greina
að hætta við byggingu orkuvers-
ins. Ekki er talið líklegt að
samarnir gangi til samninga við
rikisstjórnina ef ekki verður
hætt við byggingaráætlunina.
Sérstök samanefnd hefur starf-
að á vegum ríkisstjórnarinnar en
ekki orðið mikið ágengt. Stjórnin
hyggst ráða bót á því með því að
ráða formanninn til heilsdags-
starfs. Einnig vill stjórnin að
réttindi sama verði tryggð í
stjórnarskrárlögum og hefur þeg-
ar lýst sig reiðubúna að styðja það
að samar stofni með sér nokkurs
konar fulltrúaráð svipað sama-
þinginu svokallaða í Finnlandi.
Þá vill ríkisstjórnin einnig
binda endi á hungurverkfall sam-
anna 5 í Ósló. Einn þeirra hefur
svelt sig í þrjár vikur og í gær var
hann lagður inn á sjúkrahús, þar
sem hann var orðinn mjög mátt-
vana vegna vannæringar. Hann
liggur á gjörgæsludeild. Samarnir
hafa sagt að þeir ætli að halda
hungurverkfallinu áfram þar til
þeir deyja. Það eina sem geti
fengið þá til að hætta sé það að
ríkisstjórnin hætti við byggingu
Alta-orkuversins.
Páfi á Filippseyjum — Jóhannes Páll páfi 2. kom i gær til Filippseyja og var mjög vel fagnað af
þarlendum. Páfi sagði i sjónvarpsræðu skömmu eftir komuna að mannréttindabrot væru aldrei
réttlætanleg, jafnvel ekki við mjög óvenjulegar aðstæður. Þótti sem með þessum ummælum væri
sniðið að stjórn Marcosar á Filippseyjum. sem hefur sætt harðri gagnrýni kaþólsku kirkjunnar í
landinu fyrir að virða ekki mannréttindi andstæðinga sinna. Páfi verður sex daga á Filippseyjum, en
heldur þaðan til Guam og Japans. Á myndinni má sjá páfa veifa til mannfjölda á götum Manila i
(Simamynd-AP)
Spánn:
Tefst embættis-
taka Sotelos?
Madrid, 17. febrúar. — AP.
ALLT VAR með kyrrum kjörum í
Baskahéruðum Spánar í dag, en
þar hafa verið viðtæk mótmæli
undanfarna þrjá daga vegna
dauða ungs Baska. sem lögreglan
hefur verið sökuð um að hafa
pyndað til bana. Fimm lögreglu-
foringjar voru handteknir i dag
vegna rannsóknar málsins.
Um 140 meðlimir í aðskilnaðar-
samtökum Baska, ETA, sem sitja í
fangelsum, hafa verið í hungur-
verkfalli frá því um helgina.
Enginn þeirra hefur enn þurft á
sérstakri læknisaðstoð að halda.
Mál þetta er talið geta valdið
Sotelo verðandi forsætisráðherra
erfiðleikum í spánska þinginu og
jafnvel tafið fyrir því, að hann
hljóti staðfestingu þingsins í emb-
ætti forsætisráðherra. Búist er við
að Sotelo ávarpi þingið á morgun
og að atkvæðagreiðsla um emb-
ættistöku Sotelos fari fram á
föstudag.
prfiðustu vinnudeilur
Ihaldsstjórnarinnar
Frá Einari K. Guófinnssyni fréttaritara Mbl. í London, 17. feb.
LEIÐTOGAR breskra námumanna hafa gengið á hólm við
ríkisstjórn ihaldsflokksins i erfiðustu vinnudeilu sem stjórnin
hefur staðið frammi fyrir. Námuverkamcnn i Suður-Wales lögðu
niður vinnu i dag, allir sem einn. Búist er við að félagar þeirra i
Skotlandi, Derbyshire og Kent-héraði fylgi á eftir á mánudag. Einn
leiðtogi námumanna sagði í blaðaviðtali: „Eg vona að aðrir muni
styðja okkur í þessu verkfalli.“
Kolanámur í Bretlandi eru
þjóðnýttar og eru undir stjórn
sérstakrar nefndar. Fyrir
nokkru tilkynnti hún fyrirhug-
aða lokun allmargra náma. Leið-
togar námuverkamanna tóku
þeim tíðindum strax illa. Einn
hinn kunnasti þeirra, hinn rót-
tæki Arthur Scardill, sagði að ef
Thatcher kastaði stríðshanskan-
um myndu þeir grípa hann.
Lokanir á námum eru svo sem
ekki nýjar af nálinni. En undan-
farin ár hafa þær gengið frið-
samlega fyrir sig. Á síðustu sex
árum hefur námumannasam-
bandið fallist á lokun 40 náma.
Lokun náma er líka ofboð eðli-
legur hlutur. Námur hafa ákveð-
inn líftíma. Þegar ekki svarar
kostnaði að nýta þær er eðlilegt
að hætta vinnslu þeirra. Heims-
markaðsverð á kolum og birgða-
söfnun heima fyrir ræður öllu
um hversu lengi borgar sig að
nýta þær. Svipuð lögmál gilda
auðvitað um aðra orkuvinnslu,
svo sem oliuboranir.
Af þessum ástæðum var ljóst
fyrir þó nokkru að loka þyrfti
allmörgum námum í Bretlandi.
En fyrir nokkru tóku yfirmenn
kolanámanna ákvörðun um að
hætta starfsemi þeirra fyrr en
áætlað hafði verið.
Kolabirgðir
hafa aldrei verið meiri
Sir. Derek Ezra stjórnarfor-
maður bresku kolanámanna
sagði að nauðsynlegt væri að
draga úr framleiðslunni þar sem
eftirspurn eftir kolum hrykki
ekki til að mæta framleiðslunni.
Nú eru um 37 milljóna tonna
kolabirgða í Bretlandi og er það
algjört met. Birgðasöfnun á
sama tíma og vextir eru háir
veldur vandræðum. Ekkert útlit
er fyrir að verð á kolum hækki
og eftirspurn fer minnkandi.
„Það er því ekki annað að gera
en draga úr framleiðslunni,"
sagði Sir Derek.
Kolanámuverkfall er býsna al-
varlegt fyrir Breta. Orka er að
verulegu leyti framleidd með
kolum og því verða heimili og
fyrirtæki illa úti í kolanámu-
verkfalli. Óbein áhrif kolanámu-
verkfallsins á efnahagslífið eru
þar af leiðandi miklu meiri en
hin beinu.
Þrennt er það í viðbót sem
gera mun brag þessa verkfalls
sérstæðan.
Hið fyrsta er að kolanámu-
menn eru ekki samstiga nú. í
Wales urðu þeir fyrstir til enda
ljóst að þeir verða fyrst fyrir
barðinu á lokununum. Kola-
námur eru reknar þar með
bullandi tapi. Samkvæmt opin-
berum tölum þarf að greiða 7,8
sterlingspund (um það bil 11.800
gkr.) með hverju tonni sem þar
er framleitt. I Derbyshire er
hagnaður af hverju tonni sem
unnið er á milli 4 og 5 sterlings-
pund (6—7.500 ísl. gkr.).
Annað er að vofa fortíðarinn-
ar hangir yfir verkföllunum.
Öllum er í fersku minni að deila
Edward Heaths 1974 var upp-
hafið að endalokum ríkisstjórn-
ar hans.
Og hið þriðja er að Joe Gorm-
ley hinn hófsami leiðtogi námu-
verkamanna, mun hætta fyrir
aldurs sakir innan tíðar. Hat-
römm kosningabarátta er nú
hafin innan námumannasam-
bandsins og líklegt að frammá-
menn sem vilja setjast í sæti
Gorleys reyni að sýna hæfni sína
með kröfuhörku á hendur ríkis-
stjórninni.
Líta á verk-
fallið sem hápólitískt
David Howell orkumálaráð-
herra hefur boðað til fundar með
deiluaðilum á morgun en ljóst er
að námumannaleiðtogarnir
koma ekki í neinum sáttarhug.
Vitað er að ríkisstjórnin hefur
á prjónunum félagsmálapakka
af margvíslegri gerð en þeim
hefur Gormley hafnað með
fyrirlitningu.
„Ef þeir halda sig geta keypt
okkur til fylgis þá fara þeir villir
vegar," segir hann.
Hinir róttækustu meðal
námuverkamanna líta á verk-
fallið sem hápólitískt. Kommún-
istinn Michael McGahey, sem er
leiðtogi skoskra námuverka-
manna, segir að ef námumenn
njóti stuðnings stáliðnaðar-
manna og starfsmanna járn-
brautanna geti þeir skapað
þannig ástand að verkföllin árið
1974 virðist hreinn barnaleikur.
McGahey og félagi hans, fyrr-
nefndur Scardill, hafa líka talað
um að mikilvægt væri að skapa
þannig ástand að ríkisstjórnin
neyddist til að segja af sér svo
unnt væri að koma til valda
ríkisstjórn Verkamannaflokks-
ins er aðhylltist hreinræktaðan
sósíalisma.
Margrét Thatcher, forsætisráðherra, skoðar eina af kolanámum
Bretlands.