Morgunblaðið - 18.02.1981, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
19
ÓVEÐRIÐ OG AFLEIÐINGAR ÞESS
Rafmagnsskömmtunin í höfuðborginni:
Skemmdir urðu milli
Geitháls og Elliðaáa
RAFMAGN var skammtað
til skiptis í hin ýmsu
hverfi Reykjavíkur og á
Reykjanesi í gær, meðan
unnið var að viðgerðum á
skemmdum er urðu í fár-
viðrinu í fyrrinótt. Við-
gerð lauk milli klukkan 16
og 17 í gær og var hætt að
skammta rafmagn
klukkan 16.30.
Björn Haraldsson kerfis-
stjóri hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í
gær, að bilun hefði orðið á
linunni milli Geitháls og Ell-
iðaáa, en samkvæmt upplýs-
um ingum Morgunblaðsins fuku
járnplötur á línuna í óveðrinu.
Sagði Björn að á meðan á
viðgerð stóð hafi þurft að taka
línuna út, og til skömmtunar
varð að grípa þar sem ekki var
unnt að flytja nægilegt raf-
magn inn í borgina á þeim
tíma.
Heita vatninu
hleypt á Breið-
holtshverf i á ný
Á SJÖTTA tímanum í gærdag
var heitu vatni á ný hleypt á
Breiðholtshverfin í Reykjavík
en þar hafði þá verið heita-
vatnslaust i tæpan sóiarhring
vegna bilunar. Jóhannes
Zöega hitaveitustjóri tjáði
blaðamanni í gær að einhvern
tima tæki að koma öllu í samt
lag aftur og vildi hann sér-
staklega benda fólki á að
tæma loft af ofnum í íbúðum
sínum því kerfið væri meira
og minna fullt af lofti.
Jóhannes Zoega sagði að
allar dælur Hitaveitunnar
hefðu farið úr sambandi um
níuleytið á mánudagskvöldið
þegar rafmagnið fór af og
komust þær ekki í gang aftur
fyrr en í gærmorgun. Afleið-
ingarnar urðu þær að allir
heitavatnsgeymar tæmdust.
Engu að síður fengu öll
hverfi vatn nema Breiðholts-
hverfin og var ástæðan sú að
þenslustykki í safnæð við
Stekkjabakka í Breiðholti fór í
sundur og lauk viðgerð ekki
fyrr en síðdegis í gær. Tæring
var í þenslustykkinu og þegar
það kólnaði gaf stykkið sig með
fyrrgreindum afleiðingum.
En á meðan á viðgerð stóð
var rafmagn flutt um streng
frá Korpustöðinni að Borgar-
túnsaðveitustöðinni um sæ-
streng, og síðan þaðan í nýju
aðveitustöðina við Barónstíg.
Með þessu móti sagði Björn að
fengist hefði einn þriðji þess
rafmagns sem borgin þarfnað-
ist, en alls væri rafmagnsnotk-
un 74 til 75 megawött um
miðjan daginn á þessum árs-
tíma.
Björn sagði að gamla Elliða-
árstöðin væri nú í gangi og
hefði verið það að undanförnu í
orkuskortinum, og í gær var
varaaflsstöðin við Elliðaár
einnig keyrð.
Járnplöturnar fuku viða i óveðrinu eins og sjá má.
I.jósm, Mbl. AS.
Ástand raforkumála eftir fárviðrið:
Ðilanir í öllum landshlutum
og víða enn rafmagnslaust
UM SEXTÍU menn hafa unnið og
vinna enn að viðgerðum á raf-
magnslinum viða um land, eftir
óveðrið i fyrrinótt. Vel gekk að
gera við í gærdag og í gærkvöldi.
en þó er enn víða um að ræða
bilanir sem ekki hefur unnist timi
til að gera við, bseði vegna veðurs
og manneklu. enda takmörk fyrir
Strætisvagnar Reykjavikur:
Milli 10 og 20
vagnar skemmdir
MILLI 10 og 20 vagnar Strætis-
vagna Reykjavikur skemmdust i
óveðrinu á mánudagskvöldið, en i
7 vögnum brotnuðu framrúður,
þaklúgur fuku af 8 vögnum og
afturrúður hrotnuðu i nokkrum
vögnum. Hættu vagnarnir akstri
undir kl. 11 um kvöldið.
— Strax þegar vagnarnir fóru að
skemmast ákváðum við að hætta
að aka og var síðan unnið að
viðgerðum alla nóttina á verkstæði
okkar við slæm skilyrði þar sem
rafmagn var af skornum skammti,
en menn reyndu að koma nýjum
rúðum í við ljós frá rafgeymum.
Og okkur tókst að koma nægilega
mörgum vögnum af stað í morgun
til að halda áætlun nokkurn veg-
inn, sagði Eiríkur Ásgeirsson for-
Löndunin gekk
vel úr Karlsefni
LOKIÐ VAR að landa úr togaran-
um Kalsefni í Cuxhaven i gær.
Samtals seldi skipið 268,1 lest fyrir
1.386 þúsund krónur. meðalverð á
kíló 5,17 krónur. Vel gekk að landa
úr skipinu og kom ekki til mót-
mæla v-þýzkra sjómanna eins og
jafnvel hafði verið búist við. A
fimmtudag landar togarinn Bjarni
Herjólfsson i Cuxhaven.
stjóri SVR í samtali við Mbl. í gær.
Sagði hann fjarskiptasamband við
vagnana hafa dottið út þegar
rafmagnslaust varð. — Við sáum
okkur ekki fært að aka lengur,
enda mikil slysahætta þegar svo
hvasst er að fólk getur hreinlega
fokið undir þá og illa sést til í
myrkrinu, enda fauk einn starfs-
maður hér eftir stæðinu og undir
vagn, en hann slapp þó ómeiddur.
þvi hve vinnuflokkar halda lengi
út í einu. að þvi er Guðjón Guð-
mundsson rekstrarstjóri hjá Raf-
magnsveitum ríkisins tjáði blaða-
manni Morgunblaðsins i gær-
kvoldi.
Guðjón sagði einnig hafa valdið
erfiðleikum. hve símasamhand hef-
ur verið erfitt, en af þeim sokum
hefur bæði reynst erfitt að sam-
stilla aðgerðir og fá upplýsingar
um bilanir.
Byggðalínurnar sagði Guðjón
hafa farið út eins og flestar aðrar
línur, einkum vegna veðurofsans er
orsakaði samslátt í mesta hamnum.
Bilanir voru þó einnig víða, en unnt
reyndist þó að hleypa straum á
flestar byggðalínurnar, nema Vest-
fjarðarlínu frá Glerárskógum í
Dölum og línuna milli Vatnshamra í
Borgarfirði og Hrútatungu. Á þeiri
línu hefðu reynst brotnar tvær
staursamstæður neðarlega í Borgar-
firði. Veðurhæðinni hefði einnig
verið um að kenna, því ísing hefði
engin verið. Á Vestfjarðarlínunni
frá Glerárskógum í Mjólká sagði
Guðjón vitað um eina staursam-
stæðu brotna, í Gilsfirði. Það gerði
þó í sjálfu sér ekki mikið til í
augnablikinu, vegna þess að línan
frá Mjólkárvirkjun norður til ísa-
fjarðar hefði brotnað mikið þannig
að orkan kæmist ekki frá virkjun-
inni. Þyí væru keyrðar dieselstöðvar
á svæðinu og óvíst hvenær viðgerð
gæti farið fram. Viðgerðum í
Borgarfirði átti hins vegar að ljúka
í nótt, ef veður leyfði.
Á Reykjanesi var rafmagnslaust
vegna samsláttar fram undir kl. 9.30
í gærmorgun, nema hvað Grindavík
hafði rafmagn frá Svartsengi.
í sveitum Borgarfjarðar var í gær
vandræðaástand, miklar skemmdir
um nær allan Borgarfjörð á dreifi-
veitunum, og lítið samband var
Tveir bílar
ónýtir eft-
ir eldsvoða
TVEIR bílar eru ónýtir eftir elds-
voða, sem varð í bílskúr húss við
Stórahjalla í Kópavogi um ellefu-
leytið sl. mánudagskvöld. Bílarnir
voru af gerðinni Chevrolet Malibu
árgerð 1979 og gamall Taunus.
Slökkvistarf gekk erfiðlega vegna
ofsaveðurs. Tjónið er metið á annað
hundrað þúsund krónur.
komið á í gærkvöldi. Sunnan
Skarðsheiðar voru sveitir einnig
rafmagnslausar að verulegum hluta,
aðeins kominn straumur á inn
Hvalfjörð. Skemmdir er þarna um
að ræða fremur en samslátt á
línum, sín ögnin á hverjum stað og
viðgerðir tafsamar. Ekki er búist við
straum á þessar línur fyrr en
síðdegis í dag að sögn Guðjóns.
Á Snæfellsnesi urðu ekki miklar
skemmdir nema hvað aðallínan frá
Vatnshömrum til Vegamóta bilaði,
en viðgerð lauk undir kvöld í gær.
Rafmagnslaust varð þó ekki á þessu
svæði vegna keyrslu dieselvéla,
heldur aðeins skömmtun.
í Dölum var einnig rafmagnslaust
fram á dag í gær, í Húnavatns-
sýslum voru miklar rafmagnstrufl-
anir,skárra ástand var í Skagafirði,
ekki urðu umtalsverð óhöpp á
Norðurlandi eystra.
Á Austfjörðum varð að grípa til
olíustöðva vegna slitinna lína, og
ekki kom til vandræðaástands, ekki
kom til rafmagnsleysis í Austur-
Skaftafellssýslu, en víða á Suður-
landi var rafmagnslaust í gær vegna
bilana og samsláttar á línum, ein-
kum á sveitaveitunum. Þéttbýlis-
staðir fengu hins vegar rafmagns
flestir í gærmorgun.
Skemmdir á flug-
skýlum og vélum
Þessi flugvél fór i ótimabæra flugferð í óveðrinu og hafnaði á hvolfi i
snjóskaíli. Ljósm. Mbi. Kristján örn Eliasson.
— VIÐ vorum með fjóra menn
af vaktinni i störfum og auk
þeirra voru kallaðir út starfs-
menn vélaverksta'ðis og tré-
smiðjunnar til aðstoðar. en
nokkrar skemmdir urðu á flug-
vélum og flugskýlum, sagði
Guðmundur Guðmundsson
slökkviliðsstjóri á Reykjavik-
urflugvelli í samtali við Mbl.
— Ein flugvél fauk og lenti á
hvolfi og urðu á henni talsverð-
ar skemmdir, þá fauk hluti af
hurð á flugskýli 1, syðri endan-
um, en flugvélarnar sluppu þó
við skemmdir. Hins vegar fauk
flugvélarflak á svokallað Andra-
skýli og braut af því hurðina.
Lenti hún á flugvélum, sem þar
voru inni og skemmdi þær
nokkuð. Þetta eru helstu
skemmdirnar, en auk þess má
nefna rúðubrot á skrifstofu-
byggingu flugmálastjóra, og
skúrar, sem verið var að smíða
undir radíóvita, fuku um koll.