Morgunblaðið - 18.02.1981, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
ÓVEÐRIÐ OG AFLEIÐINGAR ÞESS
Jóel Jóelsson stendur hér hjá rústum gróðurhússins.
Ljósm. Mbl. Ól.K.M
200 fermetra gróður-
hús gjöreyðilagðist
„HÚSID laxóist á hliðina og
brotnaði siðan niður. Það er
gjörónýtt ok eitthvað brotnaði
af glerjum i öðrum húsum
vegna fjúks á glerbrotum, en
það er hægt að la«a“ saj{ði Jóel
Jóelsson garðyrkjubóndi í Mos-
fellssveit í gær, en 200 fermetra
líróðurhús gjöreyðilagðist hjá
honum i óveðrinu i fyrrakvöld.
í húsinu voru sex þúsund
páskaliljur og sagði Jóel, að
þær lægju undir rústunum og
ásamt 6 þús.
páskaliljum
væru allar ónýtar.
Við spurður Jóel, hvort hann
gæti nefnt tölur um það fjár-
hagslega tjón, sem hann hefði
orðið fyrir. „Þetta er mikið tjón.
Það myndi kosta um það bil 10
millj. gkr. að byggja nýtt hús, en
þetta var reyndar gamalt. Gróð-
urhús fást hvergi tryggð og eru
því ekki bætt. Eg ætla ekki að
reyna að byggja nýtt í staðinn
fyrir það ónýta." Jóel sagði í
lokin, að sér fyndist athugunar-
efni, hvort Viðlagatrygging, sem
fólki bæri skylda til að greiða í
árlega, ætti ekki að koma til
móts við fólk sem yrði fyrir
fjárhagslegu tjóni vegna slíkra
náttúruhamfara sem þessara.
Kjósarsýsla:
„Eitthvað mun
líka hafa fokið af
sumarbústöðum“
Kiðafelli Kjos. 17. febrúar.
TJÓN varð á flestum bæjum í Kjós
í óveðrinu sem geisaði á mánudags-
kvöldið og aðfararnótt þriðjudags-
ins. Járn fuku af húsum, m.a. á
Tindastöðum. Morastöðum, Eyjum
og á Hálsi. Eitthvað mun líka hafa
flokið af sumarbústöðum. Á Botnsá
fauk nýbyggt brúargólf, sem var
um 70 m. hærra en gamla brúin, og
ók fólksbifreið framaf og lenti i
Botnsá. Þótt ótrúlegt kunni að
virðast slasaðist ökumaður ekki
alvarlega.
Hér hjá mér á Kiðafelli fór ein
hliðin af risinu á hlöðunni og
stofuglugginn hreinlega sprakk inní
stofu til mín með miklum hávaða.
Það gerðist rétt eftir að rafmagnið
fór í gærkveldi. Rafmagnslaust hef-
ur verið hér í sveitinni síðan og
verður áfram, því á Kleifunum hér
skammt frá eru farnir 5 staurar á
Kjósarlínunni.
Staurar munu hafa farið víðar um
Kjós.
Þetta er langversta veður sem hér
hefur komið í manna minnum, oft
hefur það nú verið slæmt, en aldrei
eins og í fyrrakvöld og gærnótt.
— Hjalti.
Akranes:
Mikið tjón á
hafnargarðinum
Akranesi 17. febrúar.
ÞESSI stórskaðastormsveipur. sem
gekk yfir landið i gærkvöldi og
nótt, er vissulega sá harðasti, sem
farið hefur hér yfir Akranes. Hann
olli miklu tjóni á mannvirkjum, en
slasaði þó engan að öðru leyti en
þvi að kona fauk og féll og
meiddist litilsháttar. Þakskifur
fuku af mörgum húsum og hurfu af
sumum með öllu. Gróðurhús og
skjólgarðar skemmdust mikið og
rúður brotnuðu.
Mest tjónið varð þó á grjótgarði
utanvert við aðalhafnargarðinn sem
hefur verið hlaðinn til skjóls fyrir
sjógangi á undanförnum árum. Yzti
hluti hans hvarf í hafið og flattist út
í sandinn með öllu og er það talið
tugmilljóna tjón. Skip, sem voru í
höfninni urðu þó ekki fyrir neinum
skakkaföllum. Stór olíutankur við
Sementsverksmiðjuna beyglaðist og
lagðist inn í einni vindhviðunni. Bíl
var ekið ofan í Botnsá við brúna, en
pallur hennar, gólfið, hafði fokið af
rétt áður.
Hér á Akranesi var rafmagns-
laust öðru hvoru í gærkvöldi, en
Andakílsárstöðin reyndist þó furðu
traust og óaðfinnanlegur orkugjafi í
þessu mikla veðri. Björgunarsveitir
og lögreglan voru á ferðinni til
ðryggis og aðstoðar fram eftir
nóttu. Þakplata úr áli lenti hér á
blettinum hjá undirrituðum í einni
af verstu vindhviðunni um miðnætt-
ið. Gæti hún hafa komið alla leið frá
Reykjavík, þvtekki er vitað um
álklæðningu á húsum úr jæirri átt,
sem hún kom fljúgandi. — Júlíus.
Magnús Oddsson, bæjarstjóri á
Akranesi, sagði í samtali við Mbl. í
gær, að tjónið hefði orðið á hafnar-
garðinum þegar lágt var í sjó. Menn
hefðu grun um að ástæður þess að
garðurinn gaf sig nú fremst væru
óveðrið, sem gerði í desember. Þá
rofnaði stórt skarð í garðinn og
líklegt væri að þá hefði einnig orðið
bilun fremst á garðinum. Það væri
40—50 metra kafli, sem hefði farið
nú, en þetta hefði verið rammgerð-
asti hluti garðsins og björgin allt að
15 tonn á þyngd. Hann sagði að
menn frá Vita- og hafnamálastofn-
un væru væntaníegir til að líta á
garðinn og leggja á ráðin um
viðgerð. Engar varabirgðir eru til af
grjóti og því gæti viðgerð dregist
fram á sumar.
Borgarfjörður:
Gífurlegt tjón í
öllum hreppum
BorK«rflrfll. 17. fFbrúiir.
IIÉR f Borgarfirði varð gífurlegt
tjón í óveðrinu og á það jafnt við
um alla hreppa Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu. Það er sama hvar ég
hef keyrt i gegnum í dag, alls
staðar hafa þakplötur og húshlutar
tekizt á loft i óveðrinu og á flestum
bæjum hafa menn haft i nógu að
snúast i dag við að dytta að þvi,
sem gekk úr lagi i vcðrinu.
í gróðurhúsahverfinu að Klepp-
járnsreykjum í Reykholtsdal varð
mikið tjón og 2 gróðurhús lögðust
nánast saman er A-endi gekk inn.
Öll gróðurhús í hverfinu eru meira
og minna skemmd og þá um leið
plöntur í uppeldi í húsunum. Eig-
endur húsanna, sem skemmdust
mest eru þeir feðgar Bernharð
Jóhannesson og Jóhannes Jónsson.
Bernharð sagði mér í dag, að í hans
húsum hefðu 2 þúsund af -5 þúsund
tómatplöntum eyðilagst, en það
þýðir að hann sendir 8—10 tonnum
minna af tómötum á markað á bezta
sölutímanum í maí og júní í sumar
heldur en hann hafði ráðgert.
Ef litið er á eina einstaka sveit þá
hefur Bæjarsveitin orðið harðast
úti. Á Fossatúni varð gífurlegt tjón,
hlaða fauk alveg niður að jörðu og
veggir liggja flatir og af hlöðunni
við hliðina fauk allt járn þannig að
berar sþerrurnar standa eftir.
Helmingur járns á fjósi fauk í
veðrinu, hluti af fjárhúsþaki, hluti
af geymslu, 4 rúður brotnuðu í
íbúðarhúsi og þar fukp plötur af
þaki og hluti álklæðningar á íbúðar-
húsinu. Sem dæmi um veðurhaminn
þá sjást för á álklæðningunni eins
og eftir skot úr haglabyssu, en
skæðadrífu af smásteinum rigndi
yfir klæðninguna. í bæjarsveitinni
má telja upp bæjarröðina, alls
staðar varð eitthvað tjón og víða
mjög mikið.
Hjá Hesti brotnuðu 4 rafmagns-
staurar auk staurasamstæðu hjá
Vatnshömrum, sem kurlaðist í
sundur. Þá veit ég um fjóra síma-
staura, sem brotnuðu í Lundareykj-
ardal, en þó varð heldur minna tjón
þar en víða annarsstaðar.
Ef litið er á tjón í öðrum sveitum
Borgarfjarðar þá eru útihús að
Vatnsenda í Skorradal mikið
skemmd. Hlaða lagðist saman þar
og opnaðist inn í fjárhús, þar sem
féð var nýrúið og nýbaðað.
Að Þverholti í Álftaneshreppi fór
þak af húsum. í Munaðarnesi fór
þakhluti af íbúðarhúsi Þórðar
Kristjánssonar, umsjónarmanns
með orlofshúsunum. Suðurhluti
þaksins sviptist af þannig að í dag
hefur snjóað inn hjá honum.
Að Kvíum í Þverárhlíð urðu
verulegar skemmdir og að Norð-
tungu fór ný hlaða mjög illa. Að
Síðumúla í Hvítársíðu fauk hluti af
þaki og sömuleiðis á húsi einu í
Reykholti. Að Hvanneyri fauk bíll
og þegar ég kom út í morgun sá ég
rafmagnsstaur í ljósum logum, en 2
staurar brunnu í látunum. Þá brotn-
uðu rúður í heimavist bændaskólans
og hluti af þaki nautastöðvar Bún-
aðarfélags íslands fauk í veðrinu.
Að Skejlabrekku í Andakíl fór
þak í heilu lagi af fjósi og kurlaðist
það niður túnið eins og það hefði
lent í hakkavél.
í Borgarnesi varð ekki mikið tjón,
þó er ljóst að þar urðu skemmdir á
íbúðarhúsum og helmingur þaks
leikskólans fauk. Skemmdir urðu á
Borgarpakkhúsinu og sendiferðabíll
tókst á loft og lenti á öskubíl
staðarins.
Rafmagnslaust hefur verið að
miklu leyti í öllu héraðinu síðan í
gærkvöldi og því um leið hitaveitu-
laust á Hvanneyri og í Borgarnesi,
en mörg hús á þessum stöðum hafa
verið tengd við Hitaveitu Akraness
og Borgarfjarðar. — Ófeigur.
Ólafsvík:
Öll vinna lá
niðri í gærdag
Ólaísvfk 17. fi'bruar
STERKVIÐRI var hér mikið. en þe>
hefur það gerst áður og jafnvei
meira en var nú. Skemmdir urðu
samt nokkrar og helst þær, að
skreiðarskemma með nokkru af
skreið lagðist saman.
Skemman sjálf er ónýt talin og
skreiðin illa farin, en skemman
lagðist saman undan veðrinu. Raf-
magnslaust var í alla nótt, en í
morgun var rafmagn í 2 til 3 tíma,
en síðan aftur straumlaust. Er ekki
vitað hvenær rafmagn kemst á að
nýju, en nú er það skammtað og fá
þorpin á Snæfellsnesi rafmagn
nokkra tíma í senn.
Bátar voru flestir komnir inn um
klukkan 10 í gærkvöld og voru engir
erfiðleikar á ferðinni hjá þeim.
Vinna lá her alveg niðri í dag vegna
rafmagnsleysis þar sem atvinnufyr-
irtækin fengu ekki rafmagn.
- Helgi.
Grundarfjörður:
Allt fór á
tjá og tundur
að Naustum
Grundarfirði, 17. febrúar.
MIKLAR skemmdir urðu á íbúðar-
húsinu á Naustum I Eyrarsveit
þegar gluggar mót suðri brotnuðu
en þar er stofan. Veðurofsinn var
slíkur. að hurðarhúnaður gaf sig
og allt fór á tjá og tundur i
íbúðarhúsinu. Bóndinn á Naustum.
Páll Torfason, var staddur í
Grundarfirði þegar ósköpin gengu
yfir og var kona hans heima með
börnin. Hlaðan á bænum fór svo að
segja 1 heilu lagi og er tjón Páls
tilfinnanlegt.
Hér í þorpinu urðu verulegar
skemmdir enda varð veður mjög
hvasst. Rúður brotnuðu í húsum,
járnplötur fuku af húsum og fóru
vinnuflokkar um þorpið í dag til að
vinna að viðgerðum. Þá gjöreyði-
lagðist nýlegur bíll. Hann kastaðist
yfir á lóð næsta húss og er. Fleiri
bílar fuku hér í Grundarfirði en
skemmdir urðu ekki miklar. Allt
rafmagn fór af þorpinu klukkan
17.30 í gær og kom rafmagn ekki
fyrr en undir klukkan átta í
kvöld. — Emil.
Stykkishólmur:
Skemmdir á
um 20 húsum
Stykkishólmi 17. frbrúar.
VEÐRIÐ hér tók að versna mjög
kvöldmatarleytið, en það var ekki
fyrr en siðar að menn áttuðu sig á
veðurhæðinni og var kallað á
hjálparsveitir um miðnættið. Um
það bil 20 hús hafa skemmst af
völdum veðursins meira eða minna
og má segja mestar skemmdir á
fiskgeymsluhúsi sem nánast
splundraðist.
Milli 30 og 40 menn unnu við
ýmiss konar aðstoð og lagfæringar,
trésmiðir, björgunarsveitir og
slökkviliðið og náðu þeir að forða
miklum skemmdum. Rafmagn fór af
um kl. 19 í gærkvöld. Var þá sett í
gang dísilrafstöð, sem ekki hefur
verið notuð lengi, en hún annar ekki
öðru en nauðsynlegri þjónustu.
Hafa því sumir ekki haft rafmagn
frá því í gærkvöldi og eru hús nú að
kólna upp. Fáir bílar hafa skemmst
og má það undarlegt heita þar sem
nokkur umferð var. Frá sveitunum í
kring berast þær fregnir, að þök
hafi fokið af útihúsum.
— Fréttaritari.
Hellissandur
Hellisíiandi, 17. febrúar.
IIANN var stinningshvass hérna á
Ilellissandi. en varla mikið meira
en það. Þá má segja að veðrið hafi
farið framhjá okkur að þessu sinni.
Hér varð ekkert tjón sem nokkru
nemur i veðrinu og bátarnir, sem
flestir voru i Vikurál, héldu inn til
Patreksfjarðar. Það var allt í lagi
hjá þeim biessuðum.
— Rögnvaldur.
Dalasýsla:
Staðarhóls-
kirkja fauk
í heilu lagi
KIRKJAN að Staðarhóli i Saurhæ í
Dölum fauk i heilu lagi af grunni
sinum í óveðrinu og skall á félags-
heimilinu þar skammt frá. Kirkjan
skemmdist verulega og svo fór
einnig um félagsheimilið. Þá
skemmdist verzlunarhús Saur-
bæinga og almennt talað, þá urðu
miklar skemmdir i Dalasýslu. „Það
sem er þó fréttnæmt 1 þessu er, að
fréttir um skaðana víðs vegar um
sýsluna bárust ekki til Almanna-
varnanefndarinnar á Búðardal
fyrr en seinni partinn i dag,“ sagði
Skjoldur Stefánsson i Búðardal i
gær i samtali við Mbl. Allar
samgOngur innan sýslunnar lágu
að miklu leyti niðri og þá var
simasamband mjog erfitt.
Almannavarnanefnd undir for-
ustu Péturs Þorsteinssonar sýslu-
manns var kölluð út undir miðnætti
þegar veðrið var að rjúka upp.
Veðurofsinn náði hámarki í Dölum
um miðnætti. Að minnsta kosti 20
ibúðarhús í Búðardal og nágrenni
urðu fyrir tjóni. Skemmdir urðu á
Grunnskólanum í Búðardal og sama
gilti um Laugaskóla.
Víða um sveitir í Dölum urðu
skemmdir en þó mestar að Svína-
koti í Miðdölum. Þar fauk þakið af
nýlegum fjárhúsum og hvarf út í
veður og vind. Bóndinn á bænum
hafði nýlega lokið vetrarrúningi.
Björgunarsveitir voru kallaðar út
skömmu fyrir miðnætti og í gær var
unnið að viðgerðum eftir skemmd-
irnar.
Látrar:
Ótíð frá því í
miðjum desember
Látrum. 17. febrúar.
HÉR hefur verið allsherjar ótiðar-
timabil frá miðjum desembermán-
uði og er þessi kafli einn sá versti,
sem ég man. Veðrið í nótt var þó
ekki mjög slæmt hjá okkur. Snarp-
ar hryðjur dundu þó yfir og um og
eftir miðnættið var veðurhseðin
kringum 11 vindstig. Ekki er vitað
til að nein sérstök óhöpp eða slys
hafi orðið hér i sveitinni. Hins
vegar eru vegir viðast ófærir og er
nú reynt að opna. í vetur hafa
vegir iðulega verið lokaðir, tekist
hefur kannski að opna i 1 til 2
daga, en siðan hefur allt lokast á
ný i marga daga og sem fyrr segir
er þetta einn versti harðindakafli,
sem ég man í lengri tið. — Þórður.
Patreksfjörður:
Fólk flytur
úr húsum vegna
snjóflóðahættu
Patreksfiröi. 17. febrúar.
HÉR var mikill stormur í gær-
kvöldi og í nótt, en enginn ofstopi.
Hins vegar er hér meiri snjór núna
en siðastliðin 30 ár og hefur
snjónum kyngt niður síðustu daga.
Utarlega i þnrpinu er 2—300
metra langur kafii, sem ekki er
byggt á vegna snjóflóðahættu.
Undanfarna daga hefur fólk óttast
snjóflóð úr fjallinu og jafnvel flutt
úr húsum sinum vegna þess. Fyrir
nokkrum dögum féll snjóflóð úr
fjallinu, en það var lítið og olli
engum skaða.