Morgunblaðið - 18.02.1981, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
23
ÓVEÐRIÐ OG AFLEIÐINGAR ÞESS
„Þá værum við kannski
ekki til frásagnar...“
,VIÐ lentum ekki í aðalhylnum.
sem betur fer. Ef svo hefði verið
værum við kannski ekki til
frásagnar", sagði Steinn Pét-
ursson í Botnsskála i Hvalfirði i
samtali við Morgunblaðið í gær.
Um klukkan 7í Kærmorgun fór
Bronco-biíreið í Botnsá og var
Steinn i bílnum ásamt föður
sinum, Pétri Geirsyni, og Jóni
bróður sinum. Þeim feðgum
tókst að bjargast út um aftur-
glugga, Steinn slapp skrámað-
ur, en að öðru leyti ómeiddur,
Jón viðbeinsbrtotnaði, en
meiðsli Péturs voru ekki full-
könnuð siðdegis i gær.
Við spurðum Stein um aðdrag-
anda þessa óhapps: „Við vorum
að koma frá Reykjavík og kom-
um að brúnni yfir Botnsá um
Þrír feðgar
lentu í Botnsá
í gærmorgun
sjöleytið. Við uggðum ekki að
okkur, en keyrðum út á brúnna
eins og venjulega. Þá skipti
engum togum að bíllinn skall
niður eina 60—70 sentimetra
niður á steingólf brúarinnar og
síðan út í ána. I óveðrinu um
nóttina hafði trégólf, sem sett
var á brúnna fyrir nokkrum
árum, og handrið tekið af brúnni
í heilu lagi.
Afturgluggin stóð upp úr
krapaðri ánni og við komumst
fljótlega út um.hann og upp á
bakkann. Við vorum ekki nema
1—2 mínútur í vatninu og síðan
komumst við í upphitaða bíla,
sem komu skömmu síðar að
Botnsá. Þegar við litum í kring-
um okkur sáum við brúargólfið
og handriðið um 20—30 metrum
neðar við ána,“ sagði Steinn
Pétursson.
Hann sagði ennfremur, að
gert hefði verið við veginn yfir
brúna til bráðabirgða í gær. Um
tjón af völdum veðursins á
húsum í Hvalfirði sagði hann, að
þakplötur hefðu fokið meira og
minna af útihúsum á bæjum og í
Botnsskála hefðu tvær rúður
brotnað.
Á dögunum sótti vélbáturinn
Vestri veikt barn til Bíldudals þar
sem ekki var um aðrar samgöngur
að ræða.
Mjög góður afli hefur undanfarið
fengizt á línu og allt upp í 18 tonn.
Margt íslenzkt aðkomufólk er nú í
vinnu hér og í vetur er hér lítið um
verkafólk frá Ástralíu og Nýja-
Sjálandi, en hins vegar hafa þrír
ungir menn héðan tekið sig upp og
flutt með unnustum sínum til þess-
ara landa. Vél vélbátsins Birgis
hefur verið dæmd ónýt og hefur
verið ákveðið að setja ekki nýja vél í
bátinn, en eigendur hans hafa und-
anfarið leitað fyrir sér með kaup á
nýjum báti í Færeyjum og Noregi,
en bátar eins og þeir vilja virðast
ekki vera falir hér á landi. — Páll.
Bíldudalur:
Hvasst yfir
blánóttina
Blldudal, 17. lebrúar.
HÉR var ekkert aftakaverður i
nótt. en þó var mjög hvasst í 2—3
klukkustundir yfir blánóttina. í
gærkvöldi var vindur af suðaustri,
en snerist síðan í suðvestrið. Ekk-
ert tjón varð i þessu veðri, en það
sem helzt hrjáir okkur Bilddælinga
þessa dagana eru samgönguerfið-
leikar og er þá sama hvort um er
að ræða í lofti, á landi eða a sjó.
Þraft fyrir erfiða tíð í langan
tíma hefur sjómönnum gengið
þokkalega að sækja björg í bú og
hefur fengist góður rækju- og
hörpudisksafli undanfarið. Þá hefur
Sölvi Bjarnason, sem landar afla
sínum hér, aflað þokkalega miðað
við tíðarfar. — Páll.
Þingeyri:
Togarinn hefur
aldrei áður geng-
ið eins hratt
Þingeyri, 17. febrúar.
SUÐVESTANÁTTIN er venjulega
versta áttin hérna og hér var mjög
hvasst 1 2—3 tíma upp úr klukkan
2 i nótt. Ekki var þó um ofsaveður
að ræða og ég veit ekki um neitt
tjón i plássinu i þessu veðri. Við
Þingeyringar erum hins vegar
komnir á bólakaf i snjó og ég
minnist ekki annars eins fannferg-
is hér. Hjá mér er snjór upp á
stofuglugga og slikt hefur ekki
gerzt áður.
í veðrinu í gærkvöldi og fyrrinótt
gekk Framnesið, togarinn okkar,
hraðar en nokkru sinni. Þeir voru að
koma úr skraptúr á Grindavíkur-
djúpi og reiknuðu með að vera hérna
um hádegisbilið í dag. Þeir fylgdu
lægðinni nokkur veginn og höfðu
vindinn á eftir sér. Þegar bezt lét
gekk togarinn 16 mílur undan rok-
inu, en hann gengur að öllu jöfnu 11
mílur. Á leiðinni mættu þeir skipi,
sem búið var að streða á móti í 7
tíma og hafði aðeins farið 35 mílur.
Litla Framnesið er á línu og var á
sjó þegar veðrið skall á. Hjá þeim
gekk allt þolanlega og engin óhöpp
urðu. — Hulda.
Orkubú Vestfjarða:
Staurar brotn-
uðu og aðrir
rifnuðu upp
„BÁÐAR línurnar slitnuðu svo að
segja við bæjarveginn á Mjólká. !
þeirri gömlu fóru 16 staurar og 6
stæður í hinni nýju en i þeim eru 12
staurar. Það var aftaka strengur
þarna niður og staurarnir brotn-
uðu og aðrir rifnuðu upp með
rótum, ef svo má að orði komast,“
sagði ólafur Helgi ólafsson, deild-
arstjóri hjá Orkubúi Vestfjarða í
samtali við Mbl.
„Þessar bilanir hafa valdið tals-
verðum erfiðleikum. Við höfum orð-
ið að grípa til rafmagnsskömmtun-
ar. Þannig hafa frystihúsin á ísa-
firði, Hnífsdal og Bolungarvík ekki
fengið neitt rafmagn í dag. Þá hefur
einnig orðið að grípa til raf-
magnsskömmtunar á suðurfjörðun-
um.
Dieselstöðvar hafa verið keyrðar
á öllum fjörðunum og hefur það haft
verulegan kostnað í för með sér en
við höfum á að giska helming
þeirrar orku sem eðlileg getur talist.
Undir kvöldið fóru viðgerðar-
flokkar frá ísafirði og Bolungarvík
með varðskipi áleiðis að Mjólkár-
virkjun til viðgerða. Við vonumst til
að hægt verði að lappa svo upp á
aðra línuna, að hún komist í gagnið.
Það er lán í óláni, að bilunin er svo
að segja við bæjarveginn á 600 til
800 metra löngum kafla,“ sagði
Ólafur Helgi.
Bolungarvík:
Þakið sviptist
aí í heilu lagi
Bolungarvík, 17. febrúar.
MESTA tjónið hér i bæ varð er
hluti þaks frystihússins sviptist af
i heilu lagi. Sá hluti þaksins, sem
fauk var yfir matsal á efstu hæð
hússins og voru það um 180 fer-
metrar af þakinu, sem fuku i
óveðrinu. Átta tommu sperrur
kubbuðust sundur í látunum og i
morgun sá upp í heiðan himininn i
gegnum þakið.
Talið er að þakplötur af rækju-
vinnslunni hafi brotið rúður í mat-
salnum og þannig hafi myndast
þrýstingur, sem að lokum svipti
þakinu af húsinu. í dag sást ekkert
af þakinu, sem trúlega hefur fokið á
haf út.
Hér er rafmagn skammtað í dag
og fær fólkið rafmagn í 2 tíma, en er
án þess í 4 tíma. Gert er ráð fyrir
nokkurra daga rafmagnsskömmtun,
en ekki er búið að kanna nákvæm-
lega hversu mikið tjón varð á
raflínum og staurum.
Plötur fuku af tveimur húsum og
af Verzlunarhúsi Einars Guðfinns-
sonar. Flutningavagn fauk um koll
og traktorskerra tók mikla rispu.
— Gunnar.
ísafjörður:
Rækjubátur rak
upp í grjótagarð
TÓLF tonna rækjubátur slitnaði
upp frá byrggju i Sundahöfn á
ísafirði i nótt og rak hann upp i
grjótgarðinn. um 100 metra spöl
án þess að nokkur fengi rönd við
reist. Þar brotnaði báturinn og að
sögn lögreglunnar á ísafirði, sást
nú bara möstur bátsins upp úr
sjónum.
Um tíma voru aðrir bátar í
smábátahöfninni i hættu en eigend-
um og björgunarsveitarmönnum úr
Slysavarnarfélaginu og Hálparsveit
skáta tókst að binda þá og tókst
þannig að komast í veg fyrir frekara
tjón.
Á Hnífsdal fauk flutningabíll á
stæði. Enginn var í bílnum þegar
hann fauk og valt en hann er
talsvert skemmdur. I Æðey siitnaði
upp trilla Jónasar Helgasonar,
bónda og fóru menn í dag áleiðis til
að reyna að bjarga trillunni með
flóðinu.
Hólmavík:
Bátar skemmd-
ust í höfninni
Hólmavík, 17. febrúar.
ÓVEÐRIÐ sem gekk yfir landið í
gærkvöld kom hér við sögu eins og
annars staðar. Rækjubátar frá
Hólmavik og Drangsnesi voru allir
á sjó í gær, en voru flestir komnir
að landi þegar óveðrið skall á.
Eftir kvöldmat fór að hvessa veru-
lega af suðri með miklum sjógangi
og gerði ofsaveður, eitt hið versta.
sem menn muna eftir hér um
slóðir.
Nokkrir bátar skemmdust í höfn-
inni og einhverjir urðu að fara frá
bryggju og halda sjó í alla nótt úti á
firði.
Skemmdir urðu á landgangi haf-
skipabryggjunnar. Verið er að gera
við það í dag. Rafmagnslaust hefur
verið hér að mestu leyti síðan í
gærkvöld og er enn, en skammtað í
tvo tíma í senn. Byggðalínan fór í
sundur og er ekki lokið viðgerð
ennþá. Eftir miðnætti snerist vind-
ur í suðvestan og hvessti þá enn.
Fóru þá að fjúka þakplötur af
húsum og gömul hlaða fauk eitthvað
út í buskann. Skemmdir urðu líka á
húsum á Drangsnesi. Fregnir hafa
ekki borist úr sveitunum vegna
símabilana. Er þetta eitt versta
veður, sem menn muna hér um
slóðir. — Andrés.
Hvammstangi:
Rækjubátar
í barningi
Hvammstanga, 17. febrúar
ÞAÐ var snarvitlaust veður hér á
Ilvammstanga i gærkvöldi og var
veðrið verst frá miðnætti til um
klukkan tvö. Rækjubátarnir voru
úti er veðrið skall á og lentu í
barningi. en voru komnir inn um
tiuleytið. Um miðnætti slitnaði
einn báturinn frá og rak frá
bryggju upp á grunn. Ilann
skemmdist nokkuð, en aðrir bátar
sluppu.
Járn fauk af öðrum helmingi
þaksins á Sparisjóðnum og dreifðist
um plássið, en olli samt ekki
teljandi tjóni. Rúður brotnuðu í
sjúkrahúsinu og tók þak af einni
lítilli byggingu við sjúkrahúsið. Á
Stað í Hrútafirði fauk þak í heilu
lagi af fjárhúsi og sömuleiðis einn
veggur þess. Stóð féð eftir í tóftinni,
en sakaði ekki. Einnig fauk þak af
gömlu íbúðarhúsi á Stað, Á Bjarg-
húsum í Vestur-Hópi fór þak af
íbúðarhúsi og á Torfastöðum í
Miðfirði fór hálft þakið af íbúðar-
húsi. — Karl.
Sauðárkrókur:
Fjórir vörubílar
héldu flugvélinni
SauðárkrAki. 17. febrúar.
OFSAVEÐUR var hér í gær og nótt
og á flugvellinum mældist vind-
hraðinn 110 hnútar þegar hvassast
var Nitján manna Twin Otter
flugvél Árnarflugs var í áætlunar-
ferð til Siglufjarðar. en hún lenti
hér í gær og er hér ennþá. Varð að
fá 4 vörubíla til að binda vélina við
svo hún fyki ekki í verstu hryðjun-
um. Tókst vélin reyndar á loft
stundum. en kaðlarnir héldu.
Farþegar fóru með bíl áleiðis til
Varmahlíðar, en þegar komið var til
móts við Hafsteinsstaði fauk hann
útaf og varð fólkið að vera um kyrrt
í bílnum í nokkra tíma áður en
óhætt var talið að ganga til næsta
bæjar. Tveir menn héldu þó á næsta
bæ tl að láta vita og urðu þeir að
skríða. Sjúkrabíll frá Hofsósi fauk í
Tröllaskarði íHegranesi og
skemmdist mikið. Tveir menn kom-
ust við illan leik til Keflavíkur eftir
að hafa skriðið mestan hluta leiðar-
innar.
Skemmdir urðu talsverðar hér á
Sauðárkróki, þök fuku og skemmdir
urðu á nokkrum byggingum, m.a.
mjólkursamlaginu, frystihúsinu.
Skildi og skemmdir urðu einnig á
stálgrindahúsum í eigu Fiskiðju
Sauðárkróks og Útgerðarfélags
Skagfirðinga. Styttan hesturinn eft-
ir Ragnar Kjartansson á Faxatorgi
fauk af stalli sínum en skemmdist
ekki miið. Að sögn Jóns Halls
Jóhannssonar lögregluvarðstjóra
voru lögreglumenn á vakt alla
nóttina til að aðstoða fólk og er ekki
vitað um slys á fólki. Þá voru
félagar í björgunarsveitum kallaðir
út og höfðu ærinn starfa fram á
morgun bæði í bænum og sveitun-
um.
Þök fuku af útihúsum og
skemmdir urðu á mörgum bæjum,
en ekki er vitað hversu miklar.
Leifur Þórarinsson á Keldulandi í
Hegranesi sagði þetta vera mesta
veður, sem hann myndi eftir hér um
slóðir. Rafmagnstruflanir urðu
nokkrar og útvarp á FM-bylgju datt
út og síminn var lítt nothæfur
langtímum saman sennilega vegna
mikils álags. — Kári.
Björn í Bæ:
Versta veður
síðan 1933
Bæ á HófAastrond. 17. febrúar 1981.
HÉR varð mikið tjón á hverju
einasta heimili í ofsaveðrinu, bæði i
Fosshreppi og víðar þar sem ég hef
haft spurnir af. Þök af útihúsum
og ibúðarhúsum skemmdust víða.
en ekki urðu skaðar á fólki nema
hvað eftir að sjúkrahíll hafði ekið
fólki til Sauðárkróks, fauk hann
um koll á bakaleiðinni. Þetta gerð-
ist i Ilegranesi. og slasaðist öku-
maðurinn talsvert. siðubrotnaði og
marðist. Varð hann og annar
maður úr bílnum að skriða heim að
bænum Keflavik, þar sem ekki var
stætt vegna veðurha>ðarinnar.
Hér um kring skemmdist svö
mikið, hey fauk til dæmis og allt
lauslegt, en búpeningur annar en
hross voru inni við. Ekki er enn
vitað til að hross hafi skaðast í
veðrinu. Rafmagn fór af og til og
símasambandslaust var um tíma.
Veðrið skall á um klukkan 22 og
var síðan verst um miðnætti og
fram til klukkan tvö, en útvarpið
hætti einmitt útsendingum er mest
gekk á, og þótti mörgum undarlegt
svo ekki sé meira sagt.
Ég er að verða áttræður, og hef
aðeins vitað til að svona vont veður
hafi komið einu sinni áður. Þá var
ég á sjó á Skagafirði, var í samfloti
með tveimur öðrum bátum. Einn
báturinn fórst og menn tók út af
hinum. Þetta var 2. desember 1933,
mannskaðaveður. — Björn í Bæ.
Siglufjörður:
Mjög hvasst,
en enginn ofsi
SÍKlufirði, 17. febrúar.
SMÁPARTUR fauk af þaki hér í
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
Það var ekki mikið skjól i flugskýli Bjarna Jónssonar i Vestmannaeyjum þegar óveðrinu hafði slotað.
Ljósm. Mbl. Kristján.