Morgunblaðið - 18.02.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
29
Brynhildur Sigurð-
ardóttir - Minning
Hinn 8. þ.m. andaðist í Borg-
arspítalanum Brynhildur Sigurð-
ardóttir til heimilis að Strönd við
Nesveg, Seltjarnarnesi.
Brynhildur Sigurðardóttir var
fædd á Fáskrúðsfirði þann 7. marz
1913. Foreldrar hennar voru hjón-
in Sigurður Björgólfsson kennari
og Svava Björgólfs.
Sigurður var fæddur að Kömb-
um í Stöðvarfirði 11. desember
1887 og ólst þar upp.
Frú Svava var fædd 20. nóvem-
ber 1888 að Stóru-Brekku í Hörg-
árdal. Hún var ung tekin til
fósturs af móðurbróður sínum,
Snorra Jónssyni kaupmanni á
Ákureyri, og konu hans, þar ólst
hún upp til fullorðinsára.
Snorri Jónsson var mikill at-
hafnamaður norðanlands og naut
Svava góðs uppeldis hjá þeim
hjónum, frú Lovísu og Snorra.
Sigurður Björgólfsson hlaut
góða menntun, hann útskrifaðist
úr Verzlunarskólanum 1908 og
sótti kennaranámskeið tvö ár að
loknu námi í Verzlunarskólanum.
Hann varð kennari í Fáskrúðs-
firði 1912, sama ár, 1. september,
gekk hann að eiga Svövu.
Hann kenndi aðeins tvö ár í
Fáskrúðsfirði og flutti þá til
Seyðisfjarðar, þar var hann kenn-
ari til 1919.
Árið 1920 flutti svo fjölskyldan
til Siglufjarðar og þar var Sigurð-
ur kennari við barnaskólann til
1946.
Sigurður og Svava fluttu frá
Siglufirði árið 1959. Sigurður and-
aðist í Reykjavík 10. desember
1964, en kona hans var þá látin,
hún andaðist í Reykjavík 29.
september 1960.
Ég tel það hafa verið happ fyrir
Siglufjörð að þessi fjölskylda
flutti þangað. Hvorttveggja var að
Sigurður var góður kennari —
kenndi aðallega landafræði, sögu
og teikningu — og hann var
leikari góður og stjórnaði allmörg-
um leiksýningum og málaði leik-
tjöld.
Svava Björgólfs studdi mann
sinn dyggilega enda sjálf góð
leikkona og áhugasöm um leiklist.
Sigurður Björgólfsson var mik-
ill málamaður og þýddi fjölda
bóka. Hann samdi og leikrit og
ljóð.
Hann stofnaði blaðið Einherja í
Siglufirði, hann var um nokkur ár
ritstjóri þess blaðs svo og blaðs
sjálfstæðismanna, Siglfirðings.
Einnig var hann ritstjóri Glett-
ings. Það var gamanblað og
skemmti mörgum í skammdeginu.
Þau hjón eignuðust 6 börn. Tvö
misstu þau í frumbernsku en
fjögur náðu fullorðinsaldri.
Élst var, eins og fyrr segir,
Brynhildur sem hér er minnst,
fædd 1913. Rögnvaldur, bókbind-
ari, f. í Reykjavík 20. ágúst 1914,
Snorri, f. 16. september 1916, hann
varð sjómaður og drukknaði 29.
september 1942.
Yngstur barnanna er Björgólfur
Kristinn, klæðskeri, Reykjavík, f.
13. ágúst 1924.
Ég hefi orðið nokkuð langorður
um foreldra Brynhildar en það er
nú svo, að þegar ég var að hugsa
um líf hennar og störf, þustu fram
minningarnar um foreldra hennar
og bræður, en við Snorri bróðir
hennar vorum gamlir nágrannar,
leikfélagar og fermingarbræður.
Það var mikil sorg í Siglufirði
29. september 1942, þegar bátur
hans og félaga hans fórst í fiski-
róðri á eftirminnilegum blíðviðris-
degi.
Brynhildur Sigurðardóttir var
sjö ára þegar hún flutti til Siglu-
fjarðar.
Hún hafði oft orð á því við mig
hversu góðrar æsku hún hefði
notið í Siglufirði, og taldi hún
Siglufjörð ætíð sinn heimabæ þótt
hún hafi ekki fæðst þar.
Árið 1940 flutti Brynhildur al-
farin frá Siglufirði til Reykjavík-
ur. Ári seinna hóf hún störf á
Hótel Borg þar sem hún kynntist
Jóhannesi Jósefssyni hóteleig-
anda, hinum fræga glímukappa,
sem varð lífsförunautur hennar
þar til hann lést 5. október 1968.
Heimili þeirra var að Svalbarða
á Seltjarnarnesi en árum saman
dvöldu þau sumarlangt að Lundi
við Hítará.
Brynhildur og Jóhannes voru að
sögn þeirra er best til þekktu
einstaklega hamingjusöm og sam-
hent hjón, gestrisin og rausnarleg.
Orð var á því haft hversu vel
Brynhildur annaðist Jóhannes hin
seinni ár þegar hann var farinn að
heilsu, sú umönnun einkenndist af
ástúð og umhyggju.
Þeim Jóhannesi varð ekki barna
auðið en Brynhildur hafði eignast
dóttur áður en hún kynntist Jó-
hannesi.
Eftir lát Jóhannesar flutti
Brynhildur frá Svalbarða og bjó
alla tíð síðan hjá dóttur sinni,
foreldra sinna með virðingu og
þakklæti.
Þegar til Reykjavíkur kom, beið
hennar hamingjan og hún kunni
með hana að fara. Hún var þannig
í stakk búin að velgengnin steig
henni aldrei til höfuðs, hún naut
hamingjuríkra ára með Jóhannesi
Jósefssyni en þegar hann féll frá
var lokið litríkum kafla í lífi
hennar, eftir það naut hún minn-
inganna og var í skjóli elskaðrar
dóttur og barnabarna til hinsta
dags.
Heim að Strönd sendi ég og fólk
mitt innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Jón Kjartansson
Svövu Björgólfs, og tengdasyni
sínum, Ingimundi Helgasyni lög-
regluvarðstjóra, að Strönd við
Nesveg.
Brynhildar er nú sárt saknað af
dóttur sinni og tengdasyni, börn-
um þeirra og tengdasyni og lang-
ömmubarninu svo og af bræðrun-
um Rögnvaldi og Björgólfi og öðru
skylduliði. Öllu þessu fólki sínu
hafði hún reynst hin ágætasta
móðir, tengdamóðir, amma, systir
og langamma.
Nú á kveðjustund er þess sér-
staklega minnst hversu einkar
kært var með þeim mæðgum
Brynhildi og Svövu.
Brynhildur naut þess síðustu
árin að búa í nálægð barnabarna
sinna og var þeim einstök amma.
Börn Svövu og Ingimundar
Helgasonar eru þessi, talin í
aldursröð:
Brynhildur, hjúkrunarfræðing-
ur, gift Haraldi Johannessen,
stud. jur. Þau eiga einn son,
Matthías, var hann augasteinn
langömmu sinnar, eigi síður en
barnabörnin.
Yngri dóttir Svövu og Ingi-
mundar er Ragna, hún stundar
nám í Myndlista- og handíðaskól-
anum. Yngstur er Jóhannes, hann
er nú í Valhúsaskóla.
Brynhildur Sigurðardóttir and-
aðist fyrir aldur fram. Hún verður
jafnan minnisstæð þeim er þekktu
hana best. Austurland fóstraði
hana fyrstu árin.
Ung kom hún til Siglufjarðar,
og unni þeim bæ.
í foreldrahúsum nutu hún og
bræður hennar uppeldis góðra
foreldra og minntist hún oft
Árlega á Þorláksmessu var ég
vanur að drepa á dyr hennar og
færa henni svolítið jólakerti á
grenigreinum. Hún tók mér ætíð
opnum örmum, kveikti strax á
kertinu, hellti kaffi í bollana
okkar og svo ræddum við drykk-
langa stund um liðna daga, um
upphaf kynna okkar og um hátíð
ljósanna, sem í vændum væri.
Þetta voru árvissir fundir okkar
Brynhildar, sem ekki brugðust
nema ef veikindi bönnuðu. En á
síðustu Þorláksmessu reyndist
mér gagnslaust að drepa á dyr
hennar. Ég skildi kertið eftir við
dyrnar hennar og hvarf á braut.
Það vottaði fyrir geig í hjarta
mínu. Hvar gat Brynhildur verið?
Brynhildur Sigurðardóttir hef-
ur nú hvatt okkur og sofnað
svefninum langa. Góð kona og
vinur er gengin yfir landamærin
miklu, gengin á vit vinar síns og
eiginmanns, Borgarbóndans
nafnkunna, Jóhannesar Jósefsson-
ar, hins víðfræga glímukappa,
veiðimanns og drengskapar-
manns. Jóhannes á Borg gaf mér
hina sérstöku og traustu vináttu
sína. Til þess lágu þau rök, að
faðir minn og Jóhannes voru
aldavinir frá bernskudögum
þeirra á Akureyri. Við Jóhannes
áttum sameiginleg áhugamál þar
sem veiðiskapurinn var, bæði með
byssu og stöng, og svo að sjálf-
sögðu íþróttamálin. Hin mikla og
góða vinátta okkar Jóhannesar
varð grunnurinn að kynnum og
vináttu okkar Brynhildar og færð-
ist þannig til okkar beggja í
gegnum Jóhannes. Og ég minnist
þess sérstaklega nú, við fráfall
Brynhildar, að hún hringdi til mín
árla dags og sagði við mig: „Jakob
— hann Jói er dáinn." „Já,“
svaraði ég, „hann bankaði í nátt-
borðið mitt klukkan hálfsex í
morgun.“ Þetta fór saman. Bryn-
hildi setti hljóða. Nú hefur hún
hitt vininn sinn stóra.
Ég vík að þessu vegna þess, að
við Brynhildur ræddum oft um
hin dulrænu málefni í langvarandi
veikindum Jóhannesar og eftir lát
hans.
Ekki gat það farið framhjá
neinum, sem gestur gerðist á
heimili þeirra Jóhannesar og
Brynhildar, hve mikla ást og
umhyggju hún sýndi bónda sínum
og hve nærgætnislega og smekk-
lega hún skóp umhverfi þeirra. Og
þá fór það heldur ekki framhjá
neinum, hve annt þau bæði létu
sér um heimili og börn Svövu,
dóttur Brynhildar, og Inga, eigin-
manns hennar og naut þar Jói litli
mest eftirlætis Jóhannesar, enda
bar hann nafn hans.
Umhyggja Brynhildar fyrir
heimili þeirra Jóhannesar var með
sérstökum hætti og til fyrirmynd-
ar. Þó var það enginn leikur að
vera eiginkona jafn skapríks
manns og Jóhannes var. En Bryn-
hildi fórst slíkt ákaflega fallega og
vel úr hendi og kom það bezt í ljós
í hinum löngu veikindum bónda
hennar hin síðustu árin, sem hann
lifði. Þess vegna, ásamt mörgu
öðru, eru minningarnar um sam-
verustundirnar með þeim hjónum
hjartfólgnar og kærar og þá ekki
hvað sízt er þau voru sótt heim í
Lundinn — veiðihús Jóhannesar
við Hítará — þegar allt lék í lyndi
og lífsljósið varpaði geislunum
fram á veginn. Brynhildur var þar
ekki eftirbátur bónda síns, glað-
vær, gáskafull og framúrskarandi
hreinskiptin.
Brynhildur hafði mikið yndi af
skáldskap, einkum þó og sérílagi,
af ferskeytlum og lausavísum,
enda hafði faðir hennar, Sigurður
Björgólfsson á Siglufirði, safnað
og eignast óvenjulegt safn af
slíkum alþýðukveðskap. Flugu oft
hinar fleygu vísur af vörum þeirra
hjóna þegar gesti bar að garði og
gleðin sat við völd.
Kvödd er góð kona og kær vinur.
Ferðum mínum til hennar á Þor-
láksmessu með jólakertið er lokið.
Hún kveikir ekki oftar á því kerti,
logi þess er slokknaður eins og
lífsljós Brynhildar.
Ég þakka Brynhildi Sigurðar-
dóttur fyrir samverustundirnar,
fyrir hina tryggu og miklu vináttu
við mig og mína, vináttu sem bar
ætíð einkenni nærgætni og hrein-
lyndi. Fólki hennar flyt ég samúð-
arkveðjur mínar í djúpri sorg
þess, því að mér var mæta vel
kunnugt um hve vel og sterklega
Brynhildur stóð að baki sínum.
Ég bið algóðan Guð að blessa
hana og styðja hana til góðrar
ferðar yfir hina „miklu móðu“.
Jakob V. Hafstein
Minning:
Guðbjörg Jónas-
döttir - Skíðbakka
Fædd 8. apríl 1907.
Dáin 28. desember 1980.
■Að hrytíiíjast og >{IW>jast,
hér um (áa datta.
Að heilsast ok kveðjast.
það er llísins satta ...“
Að morgni 28. des. sl. barst
okkur sú fregn að hún Guðbjörg í
austurbænum hefði orðið bráð-
kvödd þá um nóttina. Við áttum
erfitt með að trúa því sem orðið
var, þar sem hún hafði verið í
jólaboði hjá okkur kvöldið áður.
En það sannast hér, sem oft áður
að skammt er milli gleði og
sorgar.
Hún hafði að vísu búið við
lélega heilsu nokkuð lengi, en
alltaf verið kát og hress á að hitta,
þannig að okkur fannst hún eiga
ólifað með okkur mörg ár enn.
Guðbjörg Jónasdóttir var fædd í
Hólmahjáleigu í Austur-Landeyj-
um, dóttir hjónanna Ragnheiðar
Halldórsdóttur og Jónasar Jónas-
sonar sem þar bjuggu.
í Hólmahjáleigu ólst Guðbjörg
upp í giöðum systkinahópi og
dvaldist þar að mestu, þar til hún
giftist Erlendi Árnasyni á Skíð-
bakka þann 16. júní 1934, og átti
sitt heimili á Skíðbakka síðan.
í Hólmahjáleigu var myndar og
rausnar heimili og var það Guð-
björgu gott vegarnesti, því það
átti fyrir henni að'liggja að vera
húsmóðir á gestkvæmu heimili.
Þegar við hugsum um Guð-
björgu kemur fyrst og síðast upp í
hugann, hvað hún var alltaf glöð,
hlý og einlæg og hvað hún hafði
gaman af að gefa, ekki síst
börnum, og nutu drengirnir okkar
þess í ríku mæli.
Það má með sanni segja, að ekki
vissi hægri höndin hvað sú vinstri
gjörði.
Aldrei minnumst við þess að
hún talaði um það þó hún gæfi
einhverjum eitthvað, hún gaf af
því hún naut þess sjálf, en ekki til
að miklast í augum annarra.
Guðbjörg hafði létta lund og
átti gott með að umgangast fólk,
og aldrei sást hún skipta skapi, þó
á móti blési.
Guðbjörg og Erlendur eignuðust
þrjú börn. Þau eru: Árni, bóndi og
bifreiðarstjóri á Skíðbakka III,
kvæntur Laufeyju Hauksdóttur,
Ragna, húsfreyja í Þorlákshöfn,
gift Sigurði Helgasyni, Sigríður
Oddný húsfreyja, Skíðbakka I, gift
Albert Halldórssyni.
Nú að leiðarlokum viljum við öll
í vesturbænum þakka Guðbjörgu
vináttu og tryggð liðinna ára,
vináttu sem aldrei bar skugga á.
Eftirlifandi eiginmanni hennar
Erlendi Árnasyni, börnum þeirra,
tengdabörnum og barnabörnum,
vottum við innilega samúð.
„Far þú í friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
Rúna og Eyvindur
Fjárhagsáætlun Njarðvíkur:
Tæplega 50% hækk-
un frá fyrra ári
BÆJARSTJÓRN Njarðvíkur af-
greiddi á fundi sinum. þriðjudag-
inn 10. febrúar. fjárhagsáætlun
bæjarins fyrir árið 1981.
Aætlunin var lögð fram til fyrri
umræðu 22. des. sl. og almennur
borgarafundur um áætlunina var
i laugaruaginn i. ieoruar.
Niðurstöðutölur áætlunarinna
eru kr. 12.607.000,- og er hækkuni
frá fyrra ári tæp 50%. Helst
tekjuliðir eru þessi:
Otsvar kr. 6.615.000
AðstoðuKÍald kr. 2.240.000
FasteÍKnaKÍöld kr. 1.902.000
jöfnunarsiðður kr. 1.250.000
Wttbýlislé kr. 190.000
Vcxtiro.fl. kr. 270.000
Helstu gjaldaliðir eru:
Stjórn bæjarins kr. 924.100,-
AlmannatryKKÍnKar <>k
félaKshjálp
HeilbrÍKðismál
Fræðslumál
Æskulýðs- ok iþróttamál
Hreinlætismál
OatnaKerð <>k KanKstéttir
FÍKnahreytinKar
kr. 1.180.300,-
kr. 568.000,-
kr. 1.668.110,-
kr. 945.000,-
kr. 773.000.-
kr. 3.218.000,-
kr. 1.136.000,-
Á síðasta ári var lagt slitlag á
1165 metra af götum og hefur þá
verið lagt slitlag á 68,8% gatna-
kerfisins. Á síðasta ári voru í
byggingu 94 íbúðir, 67 bílgeymslur
og 12 byggingar til iðnaðar og fyrir
opinbera aðila. Meðalstærð full-
gerðra íbúða á árinu var 106 fm.
Ibúar í Njarðvík um siðustu áramót
voru tæplega 2.000 manns og hafði
fjölgað um 90 manns, eða 4,67% frá
fyrra án. Fréttatilkynning.
Lokað í dag
frá hádegi vegna jaröarfarar
GUDNA G. GUÐMUNDSSONAR.
Brimborg hf.,
Toyotavarahlutaumboðið hf.,
Ventill hf., Ármúla 23.