Morgunblaðið - 18.02.1981, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
• Björn Björnsson lætur sig ekki muna um aö renna sér á einu skiði i
brekkunum á Akureyri. Ljosni. s«r.
Einfættur á skíóum
„ÁIIUGINN varð að báli á vetrarólympíuleikum fatl-
aðra í Norejfi sl. vetur,“ sagði Björn Björnsson, ungur
Akureyringur, sem við undirritaðir hittum að máli í
Illíðarfjalli um helgina. Björn er einn af fáum
einfættum mönnum á landinu sem stundar skíðaíþrótt-
ina af miklum áhuga.
„Útbúnaðurinn
úr drasli“
Eg byrjaði á þessu í mars í fyrra
en þá var ég nýkominn heim af
vetrarólympíuleikunum í Noregi,
en þangað fór ég ásamt Þresti
Guðjónssyni sem er þjálfari minn.
Við fórum á leikana til þess að
kynna okkur skíðaíþróttir fatlaðra
og útbúnað þann sem þeir nota.
Þegar heim kom smíðaði ég ásamt
Guðmundi Gíslasyni félaga mín-
um, sem á við svipaða fötlun og ég
að stríða, líkan útbúnað og má
segja að hann hafi aðallega verið
úr „drasli". Áður hafði Guðmund-
ur þó verið á skíðum hérna en þá
var hann á einu skíði og notaði
skíðastafi, en í þessum nýja út-
búnaði okkar settum við lítil skíði
neðan á hækjur og notuðum það
sem stafi, og svo erum við á einu
skíði.
Aðspurður sagði Björn að hann
teldi að það hefði ekki verið
erfiðara fyrir sig að læra á skíði
heldur en þá sem eru ekki fatlaðii;.
Maður er nefnilega orðinn svo
vanur því að vera á hækjum, en
með því kemst á visst jafnvægi í
líkamanum. Maður þreytist mjög
fljótt svona á einu skíði og einnig
er erfitt að fara í toglyfturnar,
annars þarf ég ekki að kvarta yfir
aðstöðunni því mér gengur vel að
nota stólalyftuna hérna í fjallinu.
Ég hef fundið það að fólk er
mjög jákvætt í minn garð og ef ég
t.d. stoppa í miðri brekku til að
hvíla mig þá kemur það iðulega
fyrir að fólk stoppar og rabbar við
mig. Að vísu ráku margir upp stór
augu þegar ég var að byrja en það
er nú bara eðlilegt.
Að mínu mati eru fatlaðir alltof
lítið í íþróttum. Okkur í íþróttafé-
lagi fatlaðra gengur oft illa að ná
til fólks sem hefur lent í slysum og
fatlast og einnig annars fatlaðs
fólks. Það er sennilegt að fólkið sé
hrætt við nafnið á félginu og
halda að íþróttafélag fatlaðra sé
einhver aumingjasamtök, en það
er öðru nær. Ég held að aðalmálið
fyrir fatlað fólk, sem hefur áhuga
á að stunda íþróttir, sé að það velji
íþrótt við sitt hæfi og sem það
hefuráhuga á. Allir fatlaðir hafa
möguleika á að stunda einhverja
íþrótt því það er til fjöldinn allur
af íþróttum sem hægt er að bjóða
þeim uppá. Ef þetta fólk finnur
ekkert við sitt hæfi þá má bara
reyna að búa til nýja íþrótt handa
því.
„Harka og keppni
númer eitt“
I dag er ég ekki á skíðum með
keppni fyrir augum ég geri þetta
bara fyrir sjálfan mig því mér
finnst þetta mjög gaman, enda fer
ég oft á skíði. Ég hef möguleika á
að fara erlendis t.d. á vetrar-
ólympíuleikana, en þar á ég engan
möguleika á að verða framarlega
en það skiptir ekki mestu máli
heldur hitt að fá að vera með.
Erlendis eru mjög margir í þeim
flokki sem ég er í, þ.e.a.s. þeir sem
hafa misst af fæti. Þar af eru
margir „super" skíðamenn og hjá
þeim er harkan og keppnin númer
eitt. Á Ólympíuleikunum í fyrra
sá ég að það skiptir ekki máli fyrir
þessa kappa þó af þeim dyttu
gervihandleggir þegar þeir voru
að keppa, þeir héldu ótrauðir
áfram og náðu svo í handleggina
þegar þeir voru komnir í mark,
sagð Björn að lokum.
Hart barist á
Þorramótinu
ÞORRAMÓTIÐ á skíðum var
haldið á ísafirði um helgina og
var keppni mikil og hörð. Á
laugardaginn fór fram keppni í
stórsvigi og sigraði Einar V.
Kristjánsson i karlaflokki, fékk
tímann 122.45 sekúndur. Annar
varð Elías Bjarnason Ak.
(124,26) og Valþór Þorsteinsson.
Akureyri (125,00), varð þriðji. I
kvennaflokki sigraði Ásdis Al-
freðsdóttir R. á 103,62. Önnur
varð Ilrefna Magnúsdóttir Akur-
eyri, en Halldóra Björnsdóttir
varð þriðja.
Á sunnudaginn var síðan keppt
í svigi og sigraði Árni Þór Árna-
son, tími hans var 87,98. Annar
varð Valþór Þorsteinsson Akur-
eyri, en Guðmundur Jóhannsson
ísafirði, varð þriðji. Hrefna Magn-
úsdóttir varð hlutskörpust í
kvennaflokki, samanlagður tími
hennar var 91,95. Ásdís Alfreðs-
dóttir varð önnur og Ásta Ás-
mundsdóttir þriðja.
í alpatvíkeppni karla sigraði
Einar V. Kristjánsson, Valþór
Þorsteinsson varð annar og Elías
Bjarnason þriðji. I kvennaflokki
sigraði Hrefna Magnúsdóttir, Ás-
dís Alfreðsdóttir varð önnur og
Halldóra Björnsdóttir þriðja.
Það var einnig keppt í göngu. í
flokki 20 ára og eldri sigraði
Haukur Sigurðsson, Þröstur Jó-
hannsson varð annar og Halldór
Matthíasson þriðji. í flokki 17—19
ára pilta sigraði Einar Ólafsson,
Ágúst Grétarsson varð annar og
Róbert Gunnarsson varð þriðji.
Finnur Gunnarsson sigraði í
flokki 15—16 ára, Garðar Sigurðs-
son í flokki 13—14 ára, Anna
Gunnlaugsdóttir í flokki 19 ára
kvenna og eldri, Rannveig Helga-
dóttir í flokki 16—18 ára og
Sigurlaug Guðjónsdóttir í flokki
13-15 ára.
Rijvers tekur
vio landsliðinu
Vinningur fyrir 11
rétta var 1.075 kr.
Tveir með 12 rétta
kr. 37.650.- í hlut
í 24. leikviku Getrauna komu
fram tveir seðlar með 12 réttum
og var vinningur fyrir hvora röð
kr. 37.655.-. Þá reyndust 11
réttir í 30 röðum og var vinning-
ur fyrir hverja kr. 1.075.-. Þar
sem annar „tólfarinn" kom upp á
kerfisseðli 16 raða, var hann
einnig með 11 rétta í 4 röðum og
heildarvinningur fyrir seðilinn
kr. 42.000 tæpar.
Þegar leikir í ensku bikarkeppn-
inni og deildakeppninni rekast á,
verða deildarleikirnir að víkja.
Vegna jafnteflisleikja í 4. umf.
bikarkeppninnar um daginn, varð
að setja seðilinn upp með 6
leikjum úr 2. deild, þar sem prenta
verður seðla með ca. 3 vikna
fyrirvara. Sama verður upp á
teningnum varðandi leikina 7.
marz er 6. umferð bikarkeppninn-
ar fer fram, því að fátt verður um
fína drætti í 1. deildinni þann dag.
HOLLENSKA knattspyrnusam-
bandið hefur ráðið Kees Rijvers
til þess að sjá um hollenska
landsliðið og vera eftirmaður Jan
Schwartkruis. Rijvers, sem er
fyrrum landsliðsmaður, þjálfar
belgíska 1. deildar félagið Ber-
ingen um þessar mundir og mun
hann fljótlega yfirgefa hina belg-
isku félaga sina.
Rijvers lék áður með Nac
Breda, Feyenoord og St. Etienne í
Frakklandi. Hann þjálfaði síðan
hjá Tvente áður en hann tók við
liði PSV Eindhoven, þar sem
hann var við stjórn í 7 ár.
Úrslitaleikur
Fram og ÍBK
er í kvöld
FRAM OG ÍBK eigast við i 1.
deild íslandsmótsins i körfu-
knattleik i kvöld. Fer leikurinn
fram i Hagaskólanum og hefst
hann klukkan 20.00. Hér er um
hreinan úrslitaleik i deildinni að
rseða, mótinu er að ljúka og lið
þessi eru lang efst. Hafa þau bæði
tapað fjórum stigum. Þetta er
fjórða og siðasta viðureign lið-
anna á mótinu að þessu sinni,
ÍBK vann Fram i báðum leikjun-
um í Keflavik, en siðast er liðin
mættust i Hagaskólanum burst-
aði Fram lið ÍBK. Auk þess hefur
Keflavikur-liðið tapað einum leik
gegn Þór norður á Akureyri. Það
má fastlega gera ráð fyrir hörku-
leik tveggja ágætra liða, sem
bæði myndu sóma sér vel í
úrvalsdeildinni.
Getrauna- spá MBL. Morgunblaðið Sunday Mirror Sunday People Sunday Express News of the World Sunday Telegraph SAMTALS
1 X 2
Brighton — Liverpool 1 2 2 2 2 2 1 0 5
Everton — Coventry X 1 X 1 X X 2 4 0
Ipswich — Wolves 1 1 1 1 1 1 6 0 0
Leeds — Sunderland 2 1 X 1 2 X 2 2 2
Man.city — Man.Utd. 2 1 1 1 1 1 5 0 1
Middlesbr. — Stoke X 1 1 1 1 1 5 1 0
Nott. Forest — Arsenal 1 X X X X 1 2 4 0
Southampton — WBA X X 1 1 1 2 3 2 1
Tottenham — Leicester 1 1 1 X 1 1 5 1 0
Bristol City — QPR X 2 1 2 X 2 1 2 3
Derby — Orient X 1 1 1 1 1 5 1 0
Sheffield Wed. — Swansea 1 X 1 1 1 X 4 2 0
Athugasemd við
„Arhus féir
Vcgna skrifa íþróttafréttarit-
ara Mbl. um kappleik þann er
fram fór i Árósum hinn fjórða
dag febrúar 1981 og ummæli
þeirra/hans um íslenskan leik-
mann er leikur með Árhus
KFUM, öðru liðinu cr tók þátt í
téðri kcppni, óska ég undirritað-
ur eftir að fá þessa athugasemd
birta á íþróttaopnu Mbl.
Til að gæta fyllstu sanngirni í
garð Símonar Unndórssonar, leik-
manns danska handknattleiksliðs-
ins Árhus KFUM, vil ég gera
eftirfarandi athugasemdir við
skrif ykkar um hlut Símonar í
kappleik Árhus við AGF.
I. Rétt er það í umræddri frétt,
að fyrir þennan kappleik var
mikið gert úr hlutverki Símonar
og það ekki að ófyrirsynju. Eins og
íþróttafréttariturum ætti að vera
kunnugt af heimildum sínum, B.T.
4. febrúar 1981, þá varð Símon að
hlíta þeim reglum að megao ekki
keppa með 1. deildarliði Árhus
fyrstu sex mánuðina eftir komu
sína til Danmerkur. Þess í stað
keppti hann með varaliði félagsins
og var aðal markaskorarinn.
Einnig æfði hann með aðalliðinu.
Eins og kemur fram í frétt þeirri í
B.T., sem þið vitnið í að hluta, þá
rann þessi sex mánaða biðtími út
4. febrúar sl. og strax sama dag
taldi Árhus KFUM sig hafa þörf
fyrir Símon í aðalliði sínu.
II. Þið segið, íþróttafréttaritar-
ar, ég nefni ykkur báða þar sem
fréttin er ómerkt og ég veit því
ekki hvor ykkar samdi hana, að
Símon hafi ekki komið mikið við
sögu, „skoraði aðeins eitt mark og
var meira að segja rekinn út af í
tvær mínútur".
Rétt er að pilturinn skoraði eitt
mark og var rekinn út af í tvær
mínútur. Þar með er sagan ekki
öll. Þannig var Símon inná allan
fyrri hálfleik og stóð sig mjög vel í
vörninni og í sókn var hann
greinilega ógnandi, vörn AGF
riðlaðist, sem sést best á marka-
hlutfalli fyrri hálfleiks, og voru
hafðar góðar gætur á Símoni. En í
seinni hálfleik var hann ekki
settur inná fyrr en allt var komið
í óefni hjá Árhus-liðinu, en það
var of seint, liðið var útbrunnið.
Leiknum lauk með jafntefli eins
og kunnugt er. Einkennilegar
innáskiptingar þjálfara liðsins
vöktu furðu manna, svo ekki sé
meira sagt. Hann lét útkeyrða
menn spila, þó augljóst væri að
þeir væru „sprungnir á limminu".
Það er víst víðar en á Islandi, sem
þjálfurum eru mislagðar hendur
við innáskiptingar.
III. íþróttafréttaritarar, væri
ekki ráð að afla sér betri heimilda
áður en þið sláið upp frétt, í stað
þess að koma með órökstudd
ummæli um menn og málefni.
Með fyrirfram þökk fyrir birt-
inguna,
Árni Ilallgrímsson.
12. febrúar 1981.
Athugasemd
ÞAÐ eina sem fram kom í
umræddri frétt Mbl. var að Ar-
hus hafi tapað niður unnum leik,
fallið fyrir vikið í 2. deild, Símon
Unndórsson hafi skorað eitt
mark í leiknum og verið rekinn
af leikvelli í tvær mínútur. Ekk-
ert nema staðreyndir og ekki
snefill af „órökstuddum ummæl-
um“.
— m-
A