Morgunblaðið - 18.02.1981, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
39
Rikharður Hrafnkelsson fór á
kostum í LauKardalshoIlinni i
gærkvöldi, sýndi alls kyns kúnst-
ir og skoraði hvað eftir annað
frábærar körfur. Hlutur hans
var mikill i stórleik Valsmanna
gegn nýbökuðum íslandsmeistur-
um UMFN.
Njarðvik fékk á baukinn
íslandsmeistarar Njarðvíkur i
körfuknattleik mættu ofjarli sin-
um i Laugardalshöllinni í gær-
kvöldi. er liðið mætti Vals-
mönnum. Þó svo að leikur UMFN
bæri mikinn keim af því að hann
skipti ekki máli, duldist það
engum. að Valsmenn léku við
hvern sinn fingur og léku á
köflum þann besta körfuknatt-
leik sem ætla má að íslensk lið
séu fær um að sýna. í sókn hittu
Valsmenn, með Rikharð Hrafn-
kelsson í broddi fylkingar, þegar
þeim bar svo við að horfa og í
vörn hirtu þeir Pétur Guð-
mundsson og Brad Miley flest
fráköst. í stuttu máli, þá átti
Njarðvík aldrei möguieika. Loka-
tölur urðu 92—74 og staðan i
hálfleik var 44—30.
Njarðvíkingar byrjuðu hörmu-
lega, sérstaklega var snillingurinn
Danny Shouse miður sín, en hann
lék þarna sinn lakasta leik í vetur.
Hittni hans og annarra leikmanna
að Gunnari Þorvarðarsyni undan-
skildum, var bókstaflega léleg.
Þannig náði Valur strax 14 stiga
forystu, 20—6, og hélst sú forysta
til leikhlés. í síðari hálfleik dró
enn í sundur og var lengst af þetta
16—20 stiga munur.
Það voru Valsmenn sem léku
þennan leik eins og meistarar en
ekki lið UMFN. Ríkharður
Hrafnkelsson fór á kostum og
skoraði margar stórglæsilegar
körfur og þeir Pétur Guðmunds-
son og Brad Miley áttu stórleik
bæði í sókn og vörn. Hefur báðum
farið geysilega fram síðustu vik-
urnar, ekki síst Miley. Kristján
Ágústsson og Jón Steingrímsson
léku einnig vel þegar þeir voru
inni á og það gerðu einnig Torfi og
Jóhannes. Lið UMFN var heillum
horfið að þessu sinni og því
auðveld bráð frísku liði Vals.
Gunnar Þorvarðarson var eini
leikmaður liðsins sem að lék eins
og hann á að sér. Jónas stóð þó
vel fyrir sínu og Arni Lárusson
var góður í fyrri hálfleik.
Stig Vals: Ríkharður Hrafn-
kelsson 24, Pétur Guðmundsson
16, Brad Miley 15, Kristján
Ágústsson 14, Jón Steingrímsson
10, Torfi Magnússon og Jóhannes
Magnússon 6 stig hvor.
Stig UMFN: Danny Shouse 20,
Gunnar Þorvarðarson 18, Jónas
Jóhannesson 8, Árni Lárusson 8,
Þorsteinn Bjarnason og Guðsteinn
Ingimarsson 7 hvor, Jón Viðar
Matthíasson 3, Valur Ingimundar-
son og Brynjar Sigmundsson 2
hvor. — gg.
Þrir leikmenn skoruðu yfir 100 mörk
— leikmenn FH voru í 84 mínútur utan vallar
ÍSLANDSMÓTINU i handknattleik er nýlokið eins og menn
vita. Það er einnig kunnara en frá þarf að segja. að Víkingur
varð meistari. Áður hefur Morgunblaðið skýrt frá því hve mörg
vítaköst markverðir 1. deildar gerðu sér lítið fyrir og vörðu. Þá
hefur einnig verið frá því greint, að Sigurður Sveinsson hafi
sett nýtt markamet, auk þess sem hann sigraði í einkunna-
keppni blaðsins. Ý mislegt fleira markvert kemur í ljós ef litið
er á hráar tölur í sambandi við mótið. Það er til dæmis
merkilegt að athuga hve marga leikmenn hvert lið um sig hefur
notað. en slikt segir oft sína sögu um gengi liða. Þá er gaman að
velta því fyrir sér hvaða lið hafa sankað að sér flestum
brottvisunarmínútunum og hvaða einstaklingur hafi reynst
brotlegastur. Rennum nú yfir hvert lið fyrir sig og látum
tölurnar tala sinu máli:
Víkingur
Víkingar notuðu 15 leikmenn
allt mótið, en eins og kunnugt er,
var mest keyrt á 8 leikmönnum á
þeim bæ, aðrir komu inn á
endrum og eins en voru aldrei í
byrjunarliði. Víkingar voru utan
vallar í alls 74 mínútur. Mjög
báru af í vaskleikanum þeir
Steinar Birgisson (22 mín), Þor-
bergur Aðalsteinsson (16 mín)
og Árni Indriðason (14 mín), en
samtals voru þeir utan vallar í
52 mínútur, eða sem nemur
næstum heilum leik. Auk þess
fengu Þorbergur og Steinar hvor
sína útilokun. Markhæstir hjá
Víking voru þessir:
Þorbergur AAalstrins.son 79/7
Steinar Birgisson 56
Páll Björgvinsson 54/12
Árni IndriÖason 33/15
ólafur Jónsson 23
Guömundur GuAmundsson 23
/
Gunnar Baldursson var næst
markhæsti leikmaður 1. deildar
og einn af þremur sem fór yfir
100 mörk. Hinir voru Axel
Axelsson og Sigurður Sveins-
son.
Þróttur
Þróttarar notuðu aðeins 12
leimenn og fór ekkert lið í 1.
deild niður fyrir þá tölu. Enda
stóðu Þróttarar sig vonum fram-
ar. Leikmenn Þróttar voru utan
vallar í alls 50 mínútur. Páll
ÓLafsson, landsliðsmaður, bar
þar hæst með 18 mínútur, en
harðjaxlinn Magnús Margeirs-
son var rekinn út af í alls 16
mínútur. markhæstir hjá Þrótti
voru annars þessir:
Sigurður Sveinsson 135/25
Páll Óiafsson 66
Ólafur H. Jónsson 30
Jón ViAar Jónsson 21
Lárus Lárusson 20
Valur
Valsmenn notuðu aðeins 13
leikmenn, einum meira en lið
Þróttar. Og Valsmenn urðu einn-
ig einu sæti neðar en Þróttur.
Valsmenn voru utan vallar í
heila klukkustund, auk þess sem
að tveir leikmanna liðsins
hrepptu hvor sína útilokun. Þor-
björn Guðmundsson var kóngur
í ríki sínu hjá Val, safnaði að sér
18 mínútum og annarri útilokun-
inni. Þorbjörn Jensson var utan
vallar í 14 mínútur, en það var
Jón Pétur Jónsson, sem nældi
einnig í útilokun. Markhæstir
hjá Val voru þessir:
Þorbjörn GuAmundsson 53/11
Bjarni GuAmundsson 53
Brynjar HarAarson 44/20
Steindór Gunnarsson 42
Stefán Halldórssson 39/13
FH
FH-ingar notuðu alls 18 leik-
menn, flesta í deildinni ásamt
liði Fram og botnliði deildarinn-
ar, Fylki. FH-ingar voru dugleg-
ir að safna brottrekstrarmínút-
um, komu í sarp þeirra heilar 84
mínútur. Eigi færri en fimm
leikmenn liðsins náðu 10 mínút-
um eða meira í brottrekstrum,
aðalmaðurinn var Sæmundur
Stefánsson með 16 mínútur, auk
þess sem hann tryggði sér einu
útilokunina sem féll FH í skaut.
Guðmundur Árni Stefánsson var
utan vallar í 12 mínútur, sem er
vel af sér vikið í aðeins 5
leikjum. Þá voru þeir Gunnar
Einarsson, Kristján Arason og
Guðmundur Magnússon utan
vallar í 10 mínútur hver. Mark-
hæstir hjá FH voru eftirtaldir:
Kristján Arason 86/44
Sæmundur Stefánsson 34
Geir Hallsteinsson 33
Gunnar Einarsson 29
GuAmundur Magnússon 26
ValgarA ValgarAsson 25
Haukar
Haukarnir notuðu aðeins 14
leikmenn, sem er lítið miðað við
hve neðarlega liðið hafnaði.
Haukarnir voru einnig með
prúðasta móti, voru aðeins utan
vallar í 34 mínútur. Og enginn
náði heilum tug mínútna. Hörð-
ur Harðarson komst þó næstur
því, hann náði 8 mínútum plús
einni útilokun. Sigurgeir Mar-
teinsson var rekinn þrívegis út
af, eða í 6 mínútur. Markhæstir
voru:
HörAur HarAarson 68/28
Július Pálsso 40/4
ViAar Simonarson 33/12
Karl Initason 32
Árni Hermannsson 29/2
Fram
Engan hafði órað fyrir í upp-
hafi mótsins að lið Fram ætti
eftir að vera í fallhættu í 1.
deild. En sú varð raunin. Liðinu
gekk afar illa í mótinu framan af
og vann ekki leik. Nú er ljóst að
liðið þarf að taka þátt í 3-liða
keppni ásamt KR og Haukum
um fallsætið. Og útilokað er að
spá nokkuð um gengi liðsins í
þeirri keppni svo jöfn á hún án
efa eftir að verða. Alls notaði lið
Fram 18 leikmenn í mótinu.
Leikmenn Fram voru utan
vallar í 68 mínútur alls í mótinu
Axel Axelsson hlaut flestar
brottvísanir, samtals 18 mínút-
ur. Erlendur Davíðsson var í
öðru sæti með 14 mínútur. Síðan
kom Björgvin Björgvinsson með
12 mínútur.
Markhæstu leikmenn Fram:
Axel Axelsson 100/48
Atli Hilmarsson 45
BjörKvin Bjoncvinsson 44
Hannes Leifsson 42/2
Theodór GuAfinnsson 22
Jón Árni Kúnarsson 14
KR
Lið KR byrjaði mótið mjög
vel. Liðið var mjög óheppið að
sigra til dæmis ekki Víking í
fyrri leik liðanna. En þeim leik
lyktaði með jafntefli 11—11.
Mikið heppnisjafntefli hjá Vík-
ingum. En er líða tók á mótið
gekk KR illa. Liðið missti stór-
skyttuna Alfreð Gíslason sem
meiddist og gat ekki leikið með.
Nú þarf KR að leika aukaleiki
um fallsætið í 2. deild. Leikmenn
KR fengu aðeins brottvísanir í
46 mínútur. Þrír leikmenn voru
útaf í 10 mínútur í það heila í
mótinu. Þeir Friðrik Þorbjörns-
son, Konráð Jónsson og Jóhann-
es Stefánsson.
Markahæstu leikmenn KR
voru.
KonráA Jónsson 72/5
AlfreA Gislason 61/17
Jóhannes Stefánsson 37
Björn Pétursson 35/13
Haukur Ottesen 33/5
Haukur Geirmundsson 26
Fylkir
Lið Fylkis hafði ekki erindi
sem erfiði upp í 1. deild. Allt
mótið út í gegn var liðið mjög
slakt og náði sér aldrei á strik.-
Liðið var nú mun lakara í öllum
leik sínum en undanfarin ár.
Alls notaði liðið 18 leikmenn allt
mótið en hjá þeim liðum sem illa
gengur eru jafnan notaðir marg-
ir leikmenn. Besti maður liðsins
í heildina var án efa markvörð-
urinn Jón Gunnarsson bráðefni-
legur og getur náð langt. Þá átti
Gunnar Baldursson góða leiki.
Þjálfari Fylkis var Stefán Gunn-
arsson fyrrum Valsmaður. Fylk-
ismenn voru utan vallar í 76
mínútur alls í mótinu. Þar var
fremstur í flokki Andrés Magn-
ússon með 18 mínútur og eina
útilokun. Á hælum hans er
Einar Ágústsson með 16 mínút-
ur og tvívegis í mótinu var hann
útilokaður. Stefán Gunnarsson
var rekinn útaf í 10 mínútur
samanlagt.
Markahæstu leikmrnn Fylkis voru þessir:
Gunnar BlOndal 104/28
Einar Ágústsson 44/2
Stefán Gunnarsson 27
örn Hafsteinsson 26
Ásmundur Kristinsson 20
KKþr.
Enginn var rekinn oftar af
leikvelli en Vikingurinn harð-
skeytti. Steinar Birgisson, enda
gaf hann aldrei þumlung eftir i
vörninni.
Fimleikar
Fimleikafélagið Björk er
eina félagið i Hafnarfirði, þar
sem eru iðkaðir fimleikar.
Þar eru starfandi 5 stúlkna-
flokkar á aldrinum 5—17 ára
og einn drengjaflokkur á
aldrinum 5—11 ára.
Hið árlega innanfélagsmót
félagsins fimmtudaginn 19.
febrúar i íþróttahúsinu við
Strandgötu i Hafnarfirði kl.
19.00.
FH stendur
best að vígi
ÞRÁTT fyrir að 1. deildar-
keppninni i handknattleik
karla sé lokið er enn keppt í
öðrum flokkum á fullri ferð.
Næsti leikur i 1. deild
kvenna er á laugardag i
Hafnarfirði kl. 14.00 en
llaukar mæta KR. í siðasta
leik i deildinni sigruðu Vals-
stúlkurnar Þór frá Akur-
eyri með miklum yfirburð-
um, 25—5. Baráttan í deild-
inni er á milii FH. sem er i
efsta sæti, Vais og Fram. Og
búast má við þvi að loka-
spretturinn hjá liðunum
verði sérlega mikið spenn-
andi.
Staðan i 1. deild kvenna er
nú þessi:
FH 10 8 1 1 196:130 17
Valur 11 7 2 2 171:131 16
Fram 9 7 0 2 167:119 14
Víkingur 10 4 3 3 134:131 11
KR 9 4 1 4 116:125 9
Akranes 10 2 2 6 107:171 6
Haukar 10 1 2 7 115:140 4
Þór, Ak. 11 1 1 9 148:207 3
Everton
áfram
EVERTON sigraði South-
ampton i aukaleik i 5. umferð
ensku bikarkeppninnar i
knattspyrnu, en leikið var i
Liverpool í gærkvöldi. Að
sögn fréttaskeytis AP skoraði
Eamon O'Keafe sigurmark
Everton. sem mætir Manchest-
er City i G. umferð. Þrir leikir
fóru einnig fram i 1. deild.
Úrslit urðu sem hér segir:
Ipswich — Middlesbr. 1—0
Cr. Palace — Coventry 0—3
Man. Utd. — Tottenham 0—0
Þá sigraði Wrexham
Oldham 3-1 i 2. deild.
Skíðafréttir
Svigmót Víkings
Svigmót VikinKs i flokki unKlinica
sem halda átti um slAustu holjfi var
frestaA vegna veAurs. óvíst or hvenær
keppni i unKlinKaflokki for þvi fram.
on um næstu heljfi verAur keppt i
flokki harna or fuilorAinna. MótiA
verAur haldiA í SieggjubeinaskarAi ojf
verAur koppt i flokki harna á iaugar-
dax on I flokki fullorAinna á sunnu-
da*f.
Bikarmót Unglinga á Húsa-
vík
Um na-stu helici fcr fram á liúsavik,
fyrata Rikarmót vetrarins I alpaitrcin-
um i flokki uniclinira. Kcppt vcrður i
stúrxviici á lauKardaK <>K sviifi á
sunnudag. Ficstir bcstu kcppnismcnn
landsins i flokki unKlinKa munu taka
þátt i mótinu.
Firmakeppni sktðaráðs
Reykjavíkur
Á morKun fimmtudaK. fcr fram
vcrðlaunaafhcndinK firmakcppni
SklðaráAa Rcykjavikur. scm haidin
var i Bláfjóllum 8. fcbrúar sl. VcrA-
launaafhcndinKÍn vcrAur I 1-eifshóð.
Hútel LoftlciAum <>k hcfst kl. 26.30.