Morgunblaðið - 18.02.1981, Qupperneq 40
Síminn
á afgreiöslunni er
83033
Jöorounblnbiö
Síminn á ritstjórn
og skrifstofu:
10100
JRorflunblnbiíi
MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1981
Að loknu fárviðrínu í fyrrínótt:
Eignatjón nemur miUj-
örðum gamalla króna
LJrtST er að KífurleKt tjún varð i
fár\iðrinu er gekk yfir landið í
fyrrinótt. ok þó enn sé lanjft frá
því að allar skemmdir hafi verið
kannaðar, skiptir tjónið millj-
örðum xumalla króna eða tugum
milljóna nýkróna. Veðurhæðin
var svo mikil víða um land að
fólk varð að skríða með jörðu til
að komast milli húsa. hundruð
bifreiða stórskemmdust. þak-
plötur ok jafnvel þök i heilu lajfi
fuku af húsum ok fjöldi fólks
hlaut skrámur ok beinhrot í
veðurhamnum. sem Hlynur Sík-
tryKKsson veðurstofustjóri seKÍr
hafa verið líkastan fcllibyl á
borð við þá er þekkjast á suðlæK-
ari breiddarKráðum.
Ekki er kunnugt um mann-
skaða á landi, en hundruð manna
unnu að björKunaraðgerðum alla
Tryggingar
bæta aðeins
lítinn hluta
skaðans
óveðursnóttina, og í gær voru
vinnuflokkar að viðgerðarstörfum
um land allt. Gluggar í húsum
brotnuðu í óveðrinu, stórskemmd-
ir urðu víða á innbúi fólks,
flugvélar á Reykjavíkurflugvelli
og flugskýli skemmdust, hafnar-
garðurinn á Akranesi sópaðist á
brott, kirkja fauk af grunni, raf-
og símalínur um allt land stór-
skemmdust. Bátar í höfnum urðu
fyrir skakkaföllum, fjúkandi
járnplata drap hross í Húnaþingi,
þar sem slitlag af þjóðvegi fauk
einnig upp á stórum kafla, auglýs-
ingaskilti verslana fuku niður,
ljósastaurar brotnuðu og svo
mætti endalaust telja. Einn
fréttaritara Morgunblaðsins telur
þetta versta veður frá því í
desember 1933, en aðrir vilja líkja
veðurofsanum við leifar fellibyls-
ins Ellenar er gekk hér yfir árið
1973 og olli miklu tjóni.
Rafmagnslaust varð um nær
allt land einhverja stund, og enn
er rafmagn ekki komið á í mörg-
um sveitum, og á Vestfjörðum eru
olíustöðvar kyntar til raforku-
framleiðslu. Um sextíu manns
vinna að rafmagnsviðgerðum, en
enn er óljóst hvenær allt verður
komið í samt lag á því sviði.
Eignatjón er sem fyrr segir
gífurlegt, og ljóst er að tryggingar
munu ekki greiða nema brot af
því tjóni er landsmenn hafa orðið
fyrir. Viðlagatrygging tekur ekki
til fárviðris þótt hún greiði
skemmdir af völdum allra ann-
arra náttúruhamfara, og fram
hefur komið að bjargráðasjóður
er févana. Aðeins þeir eigendur
mannvirkja og ökutækja, er
tryggt hafa umfram það sem
lögboðið er, munu því fá bætur
vegna tjóns í fárviðrinu, svo
mestur skaðinn verður óbættur.
Veðurofsinn náði til allra
landshluta, en þó sluppu stór
landsvæði við versta veðurham-
inn, svo sem Norðausturland,
megin hluti Austfjarða og Suð-
austurland.
Skipverjarnir tveir taldir af:
Staðarhóls-
kirkja fauk
af grunninum
STAÐARHÓLSKIRKJA í Saur-
bæ í Dalasýslu tókst á loft af
grunni sínum í óveðrinu og
skall á félagsheimilinu skammt
frá. Kirkjan er mjög illa farin
og skemmdir urðu verulegar á
félagsheimilinu. Þá urðu tals-
verðar skemmdir á verzlunar-
húsi kaupfélagsins í Saurbæ.
Myndin sýnir kirkjuna og fé-
lagsheimilið.
Reynt verður
að ná Heimaey
út á morgun
HEIMAEY VE 1 stóö rétt á kili eíst í fjörukambin-
um á Þykkvabæjarfjöru í gær og við könnun
skoðunarmanna virtist skipið óskemmt með öllu.
í gær var unnið að því á strandstað að verja
skipið frekari áföllum en stefnt er að því að ná
Ileimaey á flot á stórstraumsflóði nk. fimmtudag.
Samkvæmt viðtölum við skip-
stjórana á Ölduljóninu VE og
togaranum Sindra VE, sem
reyndu björgun Heimaeyjar,
var veðurhamurinn með ólík-
indum og stóð Heimaey undir
stöðugum áföllum á rekinu sem
var með ótrúlegum hraða. „bað
þykir hrikalegt að lenda í
fárviðri á þurru Iandi.“ sagði
Þórður Rafn á Ölduljóninu, „en
fólk gerir sér ef til vill ekki
grein fyrir því að á sjónum
bætist veltingurinn við.“
Lík skipverjanna tveggja
sem fórust er þá tók út i
brimgarðinum, fundust ekki i
gær, er björgunarsveitamenn
gengu fjörur, en þeir hétu
Albert Olason og Guðni Guð-
mundsson. báðir tvitugir og frá
Vestmannaeyjum. Albert lét eft-
ir sig unnustu og barn.
Um 15 björgunarsveitarmenn
frá Hvolsvelli voru á strandstað
til að bjarga skipverjum i land,
en þeir voru ræstir út um það
leyti sem Heimaey var að nálg-
ast brimKarðinn. Voru þeir
komnir niður í fjöruna stundar-
fjórðunKÍ eftir að skipið strand-
aði ug gekk vel að ná skipverj-
unum í land i björgunarstól.
Skipverjarnir 9 gista i Gistihús-
inu á Hvolsvelli.
Fárviðrið olli tjóni um allt land. Hér má sjá uppslátt sem fauk um koll hjá
i Mosfellssveit.
I.jósm. Mbl. Ól. K. Mhk.
Guðni Guðmundsson
Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra:
Engin tilmæli til stjórnar
Framkvæmdastofnunar
samþykkt í ríkisstjórninni
„ÞAÐ er rangt, að ríkisstjórnin hafi
samþykkt einhver tilmæli til stjórn-
ar Framkvæmdastofnunar varðandi
lán i samhandi við kaup á togara til
Raufarhafnar og Þórshafnar. Þvert
á móti varð það niðurstaðan eftir
allnokkrar umræður um málið. að
rikisstjórnin hvorki ályktaði um
það né beindi einum eða neinum
tilmælum til einhvers.“ sagði Hjör-
leifur Guttormsson, iðnaðarráð-
herra, í samtali við Mbl. i gær, en
meirihluti stjórnar Framkvæmda-
stofnunar rikisins samþykkti i gær
tillögu i samræmi við „tilmæli frá
ríkisstjórninni“ um lán ByKKða-
sjóðs til togarakaupa til Þórshafnar
og Raufarhafnar.
Það var Sverrir Hermannsson,
framkvæmdastjóri Framkvæmda-
stjórnar ríkisins, sem bar stjórn
stofnunarinnar tilmæli frá Stein-
grími Hermannssyni, sjávarútvegs-
ráðherra, þess efnis, að Byggðasjóður
miðaði við 28 milljón norskra króna
kaup- og endurbótaverð, sem er
jafnvirði 33,6 milljóna króna í stað 21
milljónar norskra króna, sem er
jafnvirði 25,2 milljóna króna, en við
þá upphæð hafði stjórn Fram-
kvæmdastofnunar miðað í samþykkt
sinni um lán á 20% kaupverðsins.
Tilmæli Steingríms, sem tveir
stjórnarmenn vitna til í greinargerð
fyrir samþykkt sinni sem tilmæla
ríkisstjórnarinnar, voru ennfremur á
þá leið, að af þeim 20% kaupverðs,
sem ríkisábyrgð nær ekki til, lánaði
Byggðasjóður beint 10%, en 10%
Framtalsfrest-
urinn rennur
út á miðnætti
Framtalsfrestur rennur út á
miðnætti í nótt, þ.e. frestur
einstaklinga, en frestur þeirra
sem hafa atvinnurekstur og
frestur fyrirtækja rennur út
síðar. í dag birtist síðari þáttur-
inn í lesendaþjónustu Morgun-
blaðsins „Spurt og svarað um
skattamál". Sjá bls. 25.
yrðu tekin af sérstöku fjárframlagi,
sem ríkisstjórnin hafði heitið
Byggðasjóði. Þeir, sem báru fram
tillögu byggða á þessu og samþykktu
hana, voru Stefán Guðmundsson,
Þórarinn Sigurjónsson, Geir Gunn-
arsson, Matthías Bjarnason og Ólaf-
ur G. Einarsson. Karl Steinar
Guðnason og Eggert Haukdal, for-
maður stjórnarinnar, sátu hjá.
Hjörleifur Guttormsson sagði í
samtali við Mbl. í gær, að tal um
tilmæli frá ríkisstjórninni væri „síð-
asta undrið í þessu furðulega máli.“
„Þetta er alveg yfirgengilegt," sagði
Hjörleifur,,, og jafnfjarstæðukennt
er það að mínu mati að ætla að sækja
fé til þessara kaupa í fjárveitingu,
sem ríkisstjórnin hugsar sem stuðn-
ing við innlenda skipasmíði. Hér er
greinilega tvísýnt mál á ferðinni."
Mbl. tókst ekki í gær að ná tali af
Steingrími Hermannssyni né Sverri
Hermannssyni.
Sjá bls. 5: Meirihluti stjórnar
Framkvæmdastofnunar sam-
þykkti „tilmæli ríkisstjórnar-
innar“.