Morgunblaðið - 14.03.1981, Síða 11

Morgunblaðið - 14.03.1981, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 11 reynt að verja málstað þeirra) eru orðnir að dufti í gröfum sínum, þá mun nafn Kjarvals lýsa til heiðurs íslandi." Þann- ig var vinátta og ást þeirra, löngu eftir aðskilnað," sagði Eva. DVERGHAMRAR „Margir standa í þeirri trú, að Dverghamrar Kjarvals séu fantasía, en svo er alls ekki. Fyrirmyndin að verkinu eru stuðlabergsmyndanir á Síðu í V-Skaftafellssýslu. Kjarval málaði myndina 1929. Það er viss súrrealismi yfir verkinu, nánast pointismi. Ég hef hér mynd sem tekin var á Síðu síðastliðið sumar og það er fróðlegt að sjá, hvernig Kjar- val hefur skynjað náttúruna," sagði Eva. ANDAR ÖRÆFANNA „Andar öræfanna er enn eitt verkið eftir Kjarval. Faðir minn gekk milli efnamanna í Reykjavík árið 1930 og bauð myndina til kaups fyrir hönd Kjarvals fyrir 70 krónur. Eng- inn taldi sig hafa efni á að kaupa myndina. Astæðan var trúlega sú, að þeir skildu ekki list, höfðu ekki gaman af myndinni. Svo fór að lokum, að faðir minn keypti myndina af Kjarval, þar sem hann hafði vart til hnífs og skeiðar. Margt ungt fólk hefur komið að orði við mig og sagt hve foreldrar mínir hafi verið framsýnir að fjárfesta í mál- verkum. Nú fjárfestir fólk í málverkum. En á þessum árum var þetta sjónarmið hreinlega ekki til. Faðir minn lifði og hrærðist í listum, einkum mál- aralistinni. Hann var í þessu af ástríðu, ofurást á myndlist. Hann fór erlendis aðeins viku eftir að hann fermdist til mennta. Til að stunda nám í garðyrkju. Listfræðingur furð- aði sig fyrir skömmu á því og taldi það undarlegt, að garð- yrkjumaður, járnsmiður og smjörlíkisframleiðandi, það er að segja faðir minn, Markús Ivarsson og Ragnar í Smára, skuli hafa safnað um sig jafn mörgum listaverkum og raun ber vitni og þannig hreinlega bjargað gífurlegum verðmæt- um. En þá var langskólanám aðeins fyrir fáa útvalda og allt er tímanum háð. Sjálfsagt hefðu þessir menn numið list- asögu og orðið listfræðingar hefðu aðstæður leyft. Nú á tímum þykir það sjálfsagt, og er, að menn skuli geta stundað það ævistarf, sem hugur stefn- ir til.“ sagði Eva. LANDPÓSTUR „Þessi mynd Höskuldar Björnssonar var gerð um 1950. Faðir minn sagði einhverju sinni, að Póst og símamála- stjórnin ætti að nota þessa mynd á frímerki. Hún er ákaf- lega falleg í litum og sterk í línum, vel gerð. Höskuldur var okkar fremsti fuglamálari. Það kom þó flatt upp á mig, að margir, einkum yngra fólk, þekkja ekkert til hans. Nú eru 18 ára síðan hann dó, en hann dvaldi langdvölum heima og var alla tíð heilsuveill," sagði Eva. Landpóstur. íslenzkur bás á heimilisiðnað- arsýningu í Thailandi Dagana 6.—20. febrúar var haldin mikil alþjóðleg heimilis- iðnaðarsýning í Bangkok, höfuð- borg Thailands. Margt fyrir- manna var þar samankomið og þótti sýningin hin merkasta. Island átti sýningarbás og hafði Jörgen A. Hade, aðalræðismaður íslands í Thailandi og kona hans veg og vanda af hlut Islands á sýningunni. Þá lagði Nina Johns, Frá islenzka sýningarbásnum á sýningunni i Bangkok. íslenzk kona búsett í Thailandi, muni til sýningarbáss Islands. Frá rottum til Kínverja Úr Vestfirzka fréttablaðinu á ísafirði: Einar Otti, dýralæknir, rakst inn til okkar um daginn og hafði meðferðis auglýsingu um eyðingu villikatta í kaupstaðnum. Við spurðum hann hvernig gengi að eyða. „Þetta er kannske misskilningur," sagði Einar Otti. „Ef öllum villiköttum verður eytt hér á svæðinu, þá gerist ekki annað en það að það verður rottufaraldur hérna í vor, þegar snjóa tekur að leysa." Ef til vill mætti leysa málið með því að hafa villikettina til þess að éta rottur, grimma hunda á kettina, fá kínverja á hundana (sbr. kvikmyndina Mondo Kane) og sprengja kínverja á gamlárskvöld!!! HELGARVIÐTALIÐ W í janúar síðastliðnum gaf Mál og menning út bókina „íslenzkar barnabækur, 1780— 1979“ eftir Silju Aöalsteinsdóttur. í bókinni fjallar Silja um íslenzkar barnabækur í 200 ár. Hún fer ótroönar slóöir, því úttekt hefur ekki áöur veriö gerö á íslenzkum barnabókum og margar frumrannsóknir koma fram í verki Silju, sem er velþekkt fyrir rannsóknir sínar og áhuga á íslenzkum barnabókum. Blaöa- maöur ræddi viö hana í vikunni. Þú setur upphaf íslenzkra barnabóka viö ártaliö 1780. Af hverju? Já, einhvers staöar veröur upphafiö aö vera og satt bezt aö segja, þá ákvaö ég aö þarna skyldi þaö veröa. Þá vegna þess, að fyrsta barnabókin kom þá út, áriö 1780. Hún var eftir VigTús Jónsson, prest á Stöö í Stöövarfirði. Hann orti Ijóö til dóttur sinnar Ég hef lesið þær allar um miöja 18. öld og þaö var gefiö út 30 árum síöar, 1780, þegar Vigfús var látinn. Ljóðiö er ort undir fornyröislagi. Er heilræöavísur og ákaflega skemmtilegt, minnir nokkuö á Hávamál. En sem sagt, ég geng fram veginn frá Vigfúsi. Raunar eru höfundar ekki margir á 18. og 19. öld. Á 19. öld er fyrstan aö telja Jóhann Halldórsson, var aö Bessastööum og síöar í Kaupmannahöfn. Hann var siðavandur og bókmenntir hans voru í siöavönd- unartón. Jónas Hallgrímsson samdi ævintýri og orti margar periur. Þá er að nefna Torfhildi Hólm. Hún bjó um skeið í Vesturheimi og var um margt merkileg kona. Hún var fyrsti íslendingurinn, sem gat framfleytt sér af ritstörfum sínum og fékk einnig styrk frá hinu opinbera. Höfundar á þessu tímabili, voru ekki margir. En ég tók einnig þýðingar frá þessu tímabili. Magnús Stephensen gaf út bókina „Sumargjöf handa börnum" áriö 1795. Þaö var fyrsta barnabókin, sem kom út í óbundnu máli. Er ákaflega siöleg, uppfræöing. Börnin skulu vera góö, ef ekki þá hlýst illt af. í sama tón eru „Kvöldvökur", sem Hannes Finnsson þýddi. Þessar bókmenntir eru ákaflega ólíkar Ijóöum Vigfúsar þar sem umburöarlyndi og mannkærleikur eru í öndvegi. Ég fer vítt og breytt yfir efni á 18. og 19. öld. Dreg fyrst og fremst fram almenn einkenni. íslenzku höfundarnir eiga þaö sammerkt aö hafa búiö langdvölum erlendis. Erlend áhrif eru augljós. Þörf fyrir barnaefni haföi ekki myndast á íslandi. Þá vegna þess, aö íslenzkt þjóöfélag haföi lítiö breyst í aldanna rás. Börnin tóku aö fullu þátt í störfum þjóöfélagsins. Fjölskyldan var órofa heild. Þaö var ekki fyrr en kom fram á 20. öld, aö þörf fyrir barnaefni myndaöist. Þegar bændasamfélagiö riðl- aöist og fólk flutti á mölina. Þá fóru hin fornu bönd aö rofna, faðirinn viö vinnu aö heiman, móöirin heima meö börnin, sem auk þess gengu í skóla. Og bókmenntirnar breyttust? Já, en í fyrstu þegar fram kom á þessa öld voru gefin út ævintýri í gamla forminu og endurminningar frá liönum tíma. Breytingar voru í aðsigi. Fyrsta frumlega barnabókahöfundinn tel ég vera Sigur- björn Sveinsson. Hann var um margt mjög merkilegur maöur. Var kennari í Vestmannaeyjum og í Reykjavík. Hann sá fyrir þróunina, þörfina fyrir nýjar bókmenntir. Hann rifjaöi í verkum sínum upp æsku sína í sveit. Var skapandi höfundur, stílisti og meö skemmtilega kímnigáfu. Hann lýsti veröld, sem var yndisleg, örugg, hlý og barngóö. Þaö er mikil dýpt í verkum hans. í lok verka hans gætir trega. Þegar bernskan er á enda, skömmu eftir fermingu, fór hann suöur — á mölina. Þar er hinn sári undirtónn. Sá tónn, sem veröur aö vera til aö. sveitasælan fái notiö sín því þegar allt kemur til alls, þá er ekkert Ijós án skugga. Þaö var mikil gæfa aö Sigurbjörn mótaöi íslenzkar barnabókmenntir meir en aörir. Ef til vill má segja, aö freistandi heföi veriö aö hefja sögu íslenzkra barnabóka meö Sigurbirni, en þaö var ekki fullnægjandi. Hann hefur vafalrtiö oröiö fyrir áhrifum frá Jónasi Hallgrímssyni en óg spyr: Hvaöa íslenzkur rithöfundur hefur ekki oröið fyrir áhrifum frá Jónasi? íslenzkar barnabókmenntir spruttu ekki upp af engu. Þaö var aödragandi og hann langur. Um svipaö leyti og Sigurbjörn gaf út sína fyrstu sögu kom fram annar höfundur og ekki ómerkur. Ég verö raunar aö segja, aö ég er dálítiö upp meö mér aö hafa „uppgötvaö" Hallgrím Jónsson en þaö geröi ég í lestrarsölum Landsbókasafnsins. Hallgrímur haföi fallið í gleymsku. Hann var ek.ki listfengur eins og Sigurbjörn en hann haföi mikiö gildi sem áróöursmeistari. Hann setti í einu verka sinna upp keppni sveitastráks og bæjarstráks og á endanum haföi sá af mölinni betur. Vegna þess aö hann haföi gengiö í skóla og þar er undirtón verka hans aö finna. Þá er Hallgrímur merkilegur fyrir þá sök, aö hann skrifaöi um samtíö sína, í sveit og bæ. Hann haföi mikil áhrif á höfunda eins og Stefán Júlíusson, Jennu og Hreiðar og Kára Tryggvason. Silja Aöalsteinadóttir Þessir höfundar skrifuöu hvunndagssögur, sem ég kalla svo. Auövitaö er erfitt aö segja til hver bein áhrif hafa veriö en ég tel víst, aö höfundar 4. og 5. áratugsins hafi þekkt til Hallgríms. Þaö er því freistandi aö telja hann fyrirmynd og undanfara, þó rithöfundar séu oft ergilegir út í bókmenntafræð- inga, sem þeir telja aö séu alls staöar aö leita uppi strauma og áhrif. Fram aö 4. áratugnum voru einkum skrifaöar smásögur en um hann miöjan koma fram héllsteypt- ar íslenzkar barnaskáldsögur. Fyrsta unglingaskáld- sagan er „Börnin frá Víöigeröi" eftir Gunnar M. Magnúss. í sögu sinni fer hann aftur til Vesturfar- anna um og fyrir aldamótin. Kannski til aö lýsa íslenzku samfélagi fyrir lesendum sínum, þróun þess. í kjölfariö komu fram margir höfundar, sem skrifuöu barnaskáldsögur en afkastamest voru þau Ragnheiöur Jónsdóttir og Stefán Jónsson. Greinileg þróun er merkjanleg og fyrir mér opnaöist nýr heimur þegar ég var aö vinna aö þessu. Ég sá munstur veröa til, fannst ég uppgötva nýjan heim, nýjan höfund næstum daglega. í Háskóla íslands, þar sem ég haföi veriö í bók- menntafræðum, haföi aldrei veriö minnst á þessa barnabókahöfunda. Því dró maöur þá ályktun, aö þessi saga gæti ekki veriö ýkja merkileg. En sannleikurinn er, aö saga íslenzkra barnabók- mennta er ekki ómerkari en aörir kaflar bókmennta- sögunnar. Hún hefur átt sín blómaskeið og hnignunarskeiö og hefur haft tilhneigingu til aö fylgja þróun skáldsögunnar. Blómaskeiö raunsæju unglingaskáldsögunnar tel ég vera frá 1935 til 1955 meö aðdraganda og eftirleik aö sjálfsögöu. Upp úr 1955 fer þessi raunsæja bylgja aö ganga niöur og viö tóku afþreyingarbókmenntir frá 1960 til 1970. Þær bókmenntir eru sáralítið annaö en skemmtitextar. Margir hverjir geröir af öngri list, aörir vel geröir eins og gengur. Ég tel þessa þróun stafa af áhrifum frá erlendum afþreyingarhöfundum. Bækur þeirra seldust óskaplega vel og þaö var því eölilegt, aö íslenzkir höfundar fylgdu í kjölfariö. Fram komu margir nýir höfundar en þaö er eftirtektarvert, aö eftir 1970 hefur vart komiö fram nýr reifarahöfund- ur. íslenzkar barnabókmenntir hafa batnaö og sjálfsagt er margt sem hefur stuölaö aö þessu. Umræöa hefur aukist meö virkri þátttöku rithöf- unda. Þeir hafa tekiö á hvunndagsvanda barna. Þá er sérkennilegt fyrir síðasta áratug, aö sögur eru einkum ætlaöar yngri börnum, undir 10 ára aldri. Mér liggur viö aö segja forskólabörn. Þaö er í sjálfu sér ágætt, en unglingar þurfa líka sitt. Hvaöa persónulegar niöurstöður dregur þú fram (verki þínu? Annars vegar, aö saga íslenzkra barnabóka er skemmtileg og samstiga sögunni. íslandssögunni vil ég segja. Hún er ekkert einangraó fyrirbæri, heldur samtvinnuö annarri sögu okkar lands og menningu. Þetta fannst mér skemmtileg niöurstaða. Og hins vegar, aö margir merkilegir rithöfundar hafa skrifaö fyrir börn. löulega hefur verið talaó um barnabókar- höfunda, sem 2. flokks höfunda. Slíkt er alrangt. Margir afburöasnjallir rithöfundar, listamenn, hafa skrifaö fyrir börn. En einnig miölungsgóöir hand- verksmenn. Hér er alls ekki um aö ræöa einlitan hóp, heldur fjölbreyttan. Rithöfundar barnabóka hafa veriö misgóöir, eins og gengur og gerist í bókmenntum. Aö lokum Silja, hve miklum tíma hefur þú varíö (þessar rannsóknir? Ég hef variö 10 árum af ævi minni í þessar rannsóknir. Ég hef að vísu gert annað meö, en meövitað og Ijóst hef ég unniö í fimm ár beinlínis aö þessari bók. Fimm árin á undan vann ég aö kandidatsritgerö minni, „Þjóöfélagsmynd íslenzkra barnabóka". Þaö er hreint ævintýralega vond bók. Fyrir þaö verk las ég 200 íslenzkar barnabækur. En mikiö fannst mér margar bækurnar leiöiniegar og oft varö ég leið, sérstaklega framan af en þegar heildarmyndin var aö fást, þá varö þetta verkefni heillandi. Hver bók var eins og púsl, lítill partur af stóru púsluspili. En eins og ég sagöi, þá var kandidatsritgerö mín hreint ævintýralega leiöinleg. Hún tekur yfir áratug- inn 1960 til 1970 og er þröngur stakkur skorinn. Þaö vantar alla dýpt í verkiö. Auövitaö vann ég hana af beztu samvisku en í þessum efnum, sem öörum er ekki hægt aö alhæfa en þaó geröi ég. Nú er ég reynslunni ríkari. Ég hef lesiö allar barnabækur íslenzkra höfunda — 600 aö tölu og ég hef raðað þeim snyrtilega í spjaldskrá hjá mér. — H.Halls.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.