Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 19
, MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 19 Magnús L. Sveinsson, borgarfulltrúi: Skipulagsmál borgarinnar komin í algjört óefni hjá vinstri flokkunum TVEIR fulltrúar vinstri meirihlutans í borgarstjórn Reykja- víkur ráðast gegn Magnúsi L. Sveinssyni borgarfulltrúa í Tímanum og Þjóðviljanum hinn 10. marz síðastliðinn vegna fréttaviðtals. sem birtist við hann í Morgunblaðinu 6. marz, þar sem hann skýrir frá hugmyndum meirihlutans um ibúðabyggð í Elliðaárdal og þungaiðnað í Árbæjarhverfi. Sigurður Ilarðarsson, fulltrúi Alþýðubandalagsins og formaður skipulagsnefndar Reykjavíkur, segir í Þjóðviljan- um, að viðtaiið við Magnús hafi verið ákaflega villandi og að mikil rangfærsla fælist í fyrirsögninni. Gylfi Guðjónsson, fulltrúi Framsóknarflokksins í skipulagsnefnd, segir við Tímann, að viðtalið við Magnús sé hrein skemmdarverka- starfsemi, þar sem farið sé vísvitandi með rangt mál. Að þessu tilefni átti Morgunblaðið samtal við Magnús L. Sveinsson og spurði hann, hvað hann vildi segja um þessi ummæli. Magnús sagði: „Ég vil í fyrsta lagi segja það, að frétt Morgunblaðsins og viðtalið við mig er full- komlega sannleikanum sam- kvæmt. Máli mínu til stuðn- ings vif ég leyfa mér að vísa til skipulagskorts, sem mér og öðrum í umhverfismálaráði var kynnt af borgarskipulagi hinn 3. þessa mánaðar. Á því korti voru þessi tvö svæði kynnt, þar sem svæðið í Ell- iðaárdalnum, norðan Stekkj- Magnús L. Sveinsson arbakka var merkt sem íbúða- byggð, sem gert var ráð fyrir að byggð yrði á skipulagstím- anum, þ.e.a.s. innan næstu 20 ára. Varðandi svæðið á græna beltinu milli Hraunbæjar og Bæjarháls, sem liggur með- fram fjölmennustu götu borg- arinnar, var það á sama korti merkt sem þungavinnusvæði. Þetta kort er til í borgarskipu- lagi fyrir hvern sem er, sem ganga vill úr skugga um, hver fari hér með rétt mál.“ Morgunblaðið spurði Magn- ús L. Sveinsson, borgarfull- trúa, hverjar hann teldi ástæður fyrir því, að fulltrúar vinstri meirihlutans brygðust svo við viðtalinu við hann í Morgunblaðinu 6. marz. Hann svaraði: „Ég hygg, að ástæður tauga- veiklunar meirihluta skipu- lagsnefndar og stóryrðanna í minn garð, séu vegna þeirrar staðreyndar, að borgarstjórn- armeirihluti vinstri flokkanna er kominn í algjört óefni með skipulagsmál borgarinnar og það finna þeir sjálfir, þegar þeir eru nú í þeirri stöðu að verða að standa ábyrgir frammi fyrir borgurunum. Mitt hlutverk í þessu máli er í raun ekki annað en ég er að upplýsa það, sem þessir menn eru að vinna að, og vitað er að veldur mikilli óánægju meðal íbúanna í nágrenni þessara svæða. Það virðist vera svo sem meirihlutinn megi hvergi sjá grænt svæði, öðru vísi en það skuli tekið undir íbúða- byggð eða atvinnurekstur. Annars er fleira merkilegt við þessar skipulagshugmynd- ir vinstri flokkanna í borgar- stjórn," sagði Magnús. „Þar er m.a. gert ráð fyrir því, að smíða tvær nýjar brýr yfir Elliðaárnar, auk Höfðabakka- brúarinnar. Það er gert ráð fyrir því, að brú komi yfir árnar, sem tengi austurhluta Breiðholts- og Seláshverfis og síðan er gert ráð fyrir annarri brú, þar sem svokallaður Ofanbyggðavegur á að liggja. Spyrja má: Hvar er nú um- hyggja þessara manna fyrir EUiðaánum og umhverfi þeirra? Hræsnin og skynhelg- in ríða ekki við einteyming í þessu sem öðru hjá þessum blessuðum höfðingjum," sagði Magnús L. Sveinsson að lok- um. málflutningur sjálf- stæðismanna” — ,J borgannAJefnum I Morpunblaölnu," seglr Ibútebyggö í ElliðaánWnM Gylfl 6uí]óns8on (ulltrúl I sklpulagsMrnd —------- • ---------I sas: "’JJ' — I«IU. ne Norðlingaholt | sc«t SiRuríwf H m: ,!ií555iairt5 ■.•££:--rsar:* jgrijy-yE e."X. erjr.ss. ^2s.,£rsjSi Úrklippur úr Tímanum og Þjóöviljanum frá 10. mars. AÐALSKIPUIAG REYKJAVÍKUR $ cziHaBN íeCrwæyoGO »i Wmmtm mmnwómr allt m 20% svæ' sts mm s-vNoafimmsDi mmofwsEsm bvggingaí} ms m:B£JARsv£Di mm , m svæoi til sérstakra nota m ÚTIVtSTAfí- CG ÖBfGG’) SVÆ« V-,. n n rt J *-f: Þessi mynd er af kortinu, sem Magnús L. Sveinsson vitnar til i viðtalinu. Kortið er í lit, en tii skýringa hefur Morgunblaðið sett inn örvar, er benda á umrædd svæði. Örvarnar þrjár hægra megin á myndinni sýna þungavinnusvæðin á græna svæðinu milli Hraunbæjar og Bæjarháls. Fjórða örin, sem er til vinstri sýnir svæðið i Elliðaárdal, norðan Stekkjarbakka, sem litað er og merkt sem íbúðarsvæði. Á milli örvanna þriggja og þessarar til vinstri er Höfðabakkabrún sýnd. Ofar i ánni er siðan sýnd brú, sem tengir austurhluta Breiðholts og Seláshverfi. Loks sést mikil brú neðst á myndinni. þar sem svokallaður Ofanbyggðavegur á að liggja. Nú er mikið um að vera í Blómaval við Sigtún. Skoðið hið fjölbreytta úrval okkar af allskonar ungplöntum á mjög hagstæðu verði. Veitið ungplöntunum áframhaldandi ræktun heimafyrirog látið þærvaxa í höndum ykkar. Hafsteinn Hafliðason, garðyrkjufræðingur, leiðbeinir viðskiptavinum þessa helgi um pottaplöntur, meðferð þeirra, umpottun og staðsetningu. Það er margt að sjá í Blómaval. Opið frá kl. 9-21 IblltelMClllfÍaa Gróðurhúsinu við Sigtún.Símar36770-86340

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.