Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981
VIÐSKIPTI
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMÁL - ATHAFNALÍF
— umsjón: SIGHVATUR BLÖNDAHL
Húsgögn og innréttingar:
Um 42,6% aukningin
á innflutningi í fyrra
HÚSGÖGN og innréttingar voru
fluttar inn til landsins fyrir 7.426
milljarða gkróna, samanborið við
5.208 milljarða gkróna árið á
undan. Aukningin miili ára er
því um 42,6%. Ef innréttingar
eru ekki teknar inn i dæmið, þá
voru flutt inn húsgögn fyrir
6.672 miiljarða gkróna. saman-
borið við 4.562 milljarða árið
áður. Aukningin þarna á milli er
þvi heldur meiri eða um 46,2%.
Sambærilegar tölur fyrir árin
1978 og 1979 eru 8,5% aukning í
heildina, en 8,8%, séu innréttingar
ekki taldar með. Milli áranna 1977
og 1978 varð aukningin hins vegar
enn meiri, eða 57,6% í heildina, en
69,6%, séu innréttingar ekki tald-
ar með. Þessar upplýsingar eru
byggðar á samantekt Hlöðvers
Ólasonar, tæknifræðings hjá
Landssambandi iðnaðarmanna.
Á síðasta ári var mest aukning í
innflutningi á stólum úr málmi
eða um 114,7% aukning. Inn voru
fluttir slíkir stólar fyrir tæplega
234 milljónir gkróna 1980, en fyrir
tæplega 109 milljónir gkróna árið
1979. Þá var mikil aukning í
innflutningi á rúmum úr tré, eða
um 89,6% aukning. Inn voru flutt
slík rúm fyrir tæplega 485 millj-
ónir gkróna árið 1980, en um 256
milljónir gkróna árið 1979.
Hvað minnst varð aukningin í
innflutningi á innréttingum ýmiss
konar, eða aðeins um 16,8%. Inn
voru fluttar innréttingar fyrir
liðlega 754 milljónir gkróna árið
1980, en fyrir tæplega 646 milljón-
ir gkróna árið á undan.
Hin nýju brauð frá Krútt í lofttæmdum umbúðum.
Nýjung:
Brauð í loft-
tæmdum umbúðum
BRAUÐGERÐIN Krútt á
Blönduósi sendi nýlega frá sér
tvær nýjar brauðtegundir, sem
kannski er ekki í frásögu fær-
andi, en það sem er sérstakt við
þessar tvær brauðtegundir eru
umbúðirnar. Brauðin eru pökkuð
i sérstakar loftþéttar, lofttæmdar
pakkningar. Óskar Húnfjörð,
eigandi brauðgerðarinnar sagði í
samtali við Mb!.. að auk þess að
vera pakkað i lofttæmdar umbúð-
ir. þá væri önnur nýjung í þessu.
en það er stimplun siðasta sölu-
dags á hrauðin, sem eiga að halda
eiginleikum sínum í a.m.k. þrjár
vikur.
Óskar sagði, að þeir hefðu gert
tilraunir með því að senda brauðið
í farskip og væru viðskiptamenn
brauðgerðarinnar ánægðir með
árangurinn, þ.e. brauðið hefði
geymzt mjög vel.
Brauðin, sem um ræðir, heita
Sírópsbrauð og Ristabrauð, en þau
eru seld í tiltölulega litlum um-
búðum og eru brauðin niður-
sneidd. Hjá Krútt eru aðeins
framleidd brauð úr hreinni nátt-
úruvöru, en öll áherzla lögð á að
forðast efni, sem óæskileg eða
skaðleg geta reynzt mannslíkam-
anum, t.d. eru engin rotvarnarefni
notuð, né heldur klórþvegið hveiti
sem mikið hefur verið notað í því
skyni að gera brauðin hvítari og
girnilegri í augum kaupenda, en
slíkur þvottur á hveitinu með
bleikjandi efnum er talinn skað-
legur heilsu manna auk þess sem
hin hollu efni hverfa úr brauðinu.
Auk þess að framleiða þessi
nýju brauð framleiðir Krútt hinar
svokölluðu Krúttkringlur.
önnur Jumbóþota Cargolux.
Hagnaður hjá Cargolux 1980:
Veltan var um 140
milljón dollara
„ENDANLEGU ársuppgjöri
okkar er enn ekki lokið, vegna
þess að tölvukerfið okkar eyði-
lagðist í brunanum á dögunum, en
það er ljóst, að við verðum réttum
megin við strikið þegar upp verð-
ur staðið,“ sagði Einar Olafsson,
forstjóri Cargolux í Luxemborg, i
samtali við Mbl.
Velta fyrirtækisins á síðasta ári
var liðlega 140 milljónir Banda-
ríkjadala, eða sem næst 920 millj-
ónum íslenzkra króna, eða 92
milljörðum gkróna. „Velta okkar
árið þar á undan var í kringum 100
milljónir Bandaríkjadala og það er
Ijóst, að þótt einhver hagnaður
verði nú, þá verður hann ekkert í
námunda við þann hagnað, sem var
árið á undan."
Aðspurður um nýjar leiðir sagði
Einar, að þeir hefðu byrjað að
fljúga á Mexíkó fyrr í vetur, en það
væri tengt fluginu til Bandaríkj-
anna, sem hófst á sl. ári. Flogið er
einu sinni í viku á Miami, Houston
og Mexíkó á Boeing 747-Jumbó en
auk þess er ein ferð í viku til Miami
og Huston á DC-8.
Einar sagði ástandið hafa verið
þokkalegt að undanförnu og flygi
félagið fjögur flug í viku til Hong
Kong á Boeing 747-Jumbó og eitt
flug í viku til Lagos í Nígeríu
ennfremur á Boeing 747-Júmbó. Á
síðasta ári hóf Cargolux að fljúga
einu sinni í viku á Nairobi í Kenya
og sagði Einar það hafa gengið
mjög vel í upphafi. Síðan hafi verið
settar hömlur á allan innflutning
og gengi það ekki eins vel síðan.
Auk þessara föstu leiða flýgur
Cargolux um allan heim í ýmis
konar leiguflugi og þá á DC-8-þot-
um.
Um ný verkefni sagði Einar, að
hann myndi fara í næstu viku til
Malasíu og líta þar á flugvöll í
suðurhluta landsins með það fyrir
augum að fljúga þangað einu sinni
til tvisvar í viku.
Aðspurður um hvort flugskýlið,
sem brann á dögunum væri komið í
gagnið, sagði Einar að ekki yrði
ráðist í viðgerð á því fyrr en í
sumar, en það væri mjög mikil og
dýr viðgerð.
Gifurleg sala hjá Álafossi hf. að undanförnu:
Höfum satt best að
segja ekki undan
„ÞAÐ er ekki hægt að segja
annað, en að gott hljóð sé I
okkur, það hcíur verið gífurlcg
sala að undanförnu og satt bezt
að segja höfum við alls ekki
haft undan að framleiða,“ sagði
Pétur Eiríksson. forstjóri Ala-
foss hf. í samtali við Mbl.
„Umboðsmenn okkar út um all-
an heim hafa sent inn mikinn
fjölda pantana og það má glöggt
ráða af því, að mikill uppgangur
er í sölu ullarvara á erlendum
mörkuðum," sagði Pétur ennfrem-
ur.
Pétur sagði að tegundum í
framleiðslulínu fyrirtækisins færi
stöðugt fjölgandi, en ''"'nýjungin
á síðasta ári voru barnaflíkur, sem
ekki hafa verið á boðstólum fyrr.
„Salan á barnafatnaðinum hefur
gengið vonum framar, við áttum
allt eins von á því, að erfiðlega
gengi að koma þeim á markað,"
sagði Pétur.
Álafoss hf. selur mikinn meiri-
hluta af sinni framleiðslu á Evr-
ópumarkað og því vaknar sú
spurning hvort gengisþróunin að
undanförnu hafi ekki gert strik í
reikninginn hjá fyrirtækinu. —
„Því 'er ekki að neita, að þessi
óhagstæða gengisþróun undan-
- segir Pétur
Eiríksson,
forstjóri
farna mánuði hefur gert okkur
grikk, en þróunin hefur stöðugt
verið að færast til betri vegar
undanfarin ár þar til í vetur, en ég
vona nú að úr fari að rætast.
Fyrirtækið hefur algerlega
sprengt utan af sér það húsnæði,
sem framleiðslan hefur verið í og
því var ákveðið á síðasta ári að
ráðast í nýbyggingu fyrir hluta
framleiðslunnar. Pétur sagði ný-
bygginguna væntanlega verða
komna undir þak í júní nk.
Sýnishorn af þeim barnafatnaði, sem Álafoss hf. framieiöir.