Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 29 smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar Fíat órgerð 1974 tll sölu, tækifœrisverö Til sýnis Goöheimum 19, síml 32610. Myntir til sölu Stórt safn mynta frá Dönsku- Vestur-lndfum, margar í hæsta flokkl. Skandinavtskar ártals- myntlr og peningaseölar. Blöjlö um ókeypis verölista. Mentstuen, Studiestrædl 47, 14455 Köbenhavn K, síml (01)132111. Keflavík — Reykjavík Er einhver sem vill skipta á 200 fm parhúsi í Keftavík fyrir stóra fbúó eöa einbýll á stór-Reykja- vfkursvæóinu í ca. 2 ár. Uppl. f síma 92-2687. Keflavík Tll sölu mjög góó 3ja herb. neöri hæö. Allt endurnýjaó. Laus strax. 4ra herb. íbúö f fjölbýlishúsi. Laus strax. Eigna- og veröbréfasalan, Hringbraut 90, Keflavík, sími 92-3222. □ Akur 5981143 = 2 □ Helgafell 598114032 — IV/V Aukafundur FERDAFÉLAG ÍSLANDS ÖLDUGÖTU 3 SÍMAR11798 og 19533. Dagsferðir 15. marz: 1. Kl. 13 — Skarösmýrarfjall. Fararstjóri: Halldór Sigurösson. 2. Kl. 13 — SkíÖaganga á Hellisheiöi. Fararstjóri: Hjálmar Guömunds- son. Verö kr. 40.- Fariö frá Umferöarmiöstööinni austan- megin. Farmiöar v/bfl. Feröafélag íslands. Kjötiðnaöarmenn Aöalfundur veröur haldlnn á Hótel Esju laugardaginn 21. marz kl: 14.00. Venjuleg aóalfundarstörf. Stjómin. Kristniboðsvika Samkoma í kvöld kl. 20.30 í húsi KFUM og K aö Amtmannsstfg 2B. Nokkur orö: Sigrún Huld Jónasdóttlr. Skuggamyndir: Jó- hannes Tómasson. Söngur: Sigrún H. Jónsdóttir og Dagný Bjarnhéöinsdóttir. Ræöa: Margrét Hróbjartsdóttir. Tekiö veröur á móti gjöfum til kristniboösins. Allir velkomnir. Krístniboössambandiö. Aöalfundur frjóls- íþróttadeildar KR verður haldinn flmmtudaginn 19. 3. 1981 kl. 18.00 í KR heimllinu. Stjórnin. Kristilegt félag heilbrigöisstétta Almennur fundur verður í Laug- arnesklrkju, mánudaginn 16.3. kl. 20.30. Efni: Aö lifa vlö fötlun. Fram- saga: Haukur Þóröarson, yflr- læknir. Elnnig taka tll máls Amór Pétursson, Elísabet Jónsdóttir og Katrfn Róbertsdóttir. Um- ræöur. Kaffiveitingar Hugleiölng út frá Guösoröl. Fatlaöir og aörir áhugamenn um málefni þelrra sérstaklega boönir velkomnlr. Stjórnin. Húsmœörafélag Reykjavíkur aöalfundurlnn veróur fimmtu- daginn 19. marz kl. 8.30 í félagsheímilinu aö Baldursgötu 9. Venjuleg aóalfundarstörf. Kaffiveitingar. Konur fjölmenniö. Stjórnin. e UTIVISTARFERÐIR Sunnud. 15.3. kl. 13 Grimmansfsll — Reykjafell, létt fjallganga, eöa skfóaganga á sama svæöl. Verö 40 kr. frftt f. börn m. fullorönum. Fariö frá BSf vestanveröu. Póskaferöir Snæfeilanes, gist á Lýsuhóli. Noröur-Svfbióö, ódýr skföa- og skoöunarferö. Útiviat. Krossinn Æskulýössamkoma í kvöld kl. 20.30 aö Auöbrekku 34, Kópa- vogi. Róbert Hunt og frú frá Bandarikjunum eru væntanleg á samkomuna. Allir hjartanlega velkomnir. Arnþrúður M. Halls- dóttir - Minningarorð „Oft finst oss vort land rins og heljrrinda hjarn, Kn hart er þaö aA elns sem móölr vlA barn; ÞaA agar oss strangt meA sln isköldu él, En á samt tll bliAu. þaA meinar alt vel.“ Þannig byrjar Steingrímur Thorsteinsson kvæði sitt Miðsum- ar, ort í upphafi þessarar aldar. Vísan hefur orðið okkur Islending- um minnisstæð, einkum þegar kuldinn næðir um láð og lög. Og víst er hann oft gustmikill og sárkaldur af norðri og norð-austri á veturna á Langanesi og við Þistilfjörð í Norður-Þingeyjar- sýslu. Kaldir úthafsvindar næða þar um opið landið svo hvín í ásum og fjallsrindum. Hvítfyss- andi skálma öldurnar til lands, steypa sér með þungum gný á grynningunum, brotna við klett- ótta ströndina en brimlöðrið stendur sem strókur upp af fjöru- kambinum. Það væri orðum aukið að kalia Langanes og Þistilfjörð þokkafull og broshýr héruð á löngum, köld- um vetrarmánuðum; það er rétt eins og kaldranalegur Kári ætli þar stundum að skaka líftóruna úr ailri skepnu, þegar hann er i ham, og Ægir sjálfur öskrar að mann- fólkinu: „Sjáðu veidi mitt! Stattu þig nú, mannkerti!" Þannig hefur þetta land um aldaraðir tyft og agað börnin sín með stormviðrum Sunnudaginn 1. mars sl. varð Isleifur Jónsson byggingavöru- kaupmaður bráðkvaddur að heim- ili sínu á áttugasta og öðru aldursári. Hann var fæddur í Reykjavík, 4. apríi árið 1899, sonur hjónanna Lovísu Kristjönu ísleifsdóttur og Jóns Eyvindssonar, en þau hjón voru vel kunnir borgarar í Reykja- vík á sínum tíma. Isleifur kvæntist móðursystur minni Svanlaugu Bjarnadóttur og lifir hún mann sinn. Þau hjónin eignuðust fjögur börn, þrjá syni og eina dóttur, sem öll eru nú uppkomin, en þau eru Bjarni og Leifur, sem báðir starfa að versl- un föður síns, Jón útibússtjóri Útvegsbankans í Keflavík, og Nanna, sem starfar við Lands- bankann í Reykjavík. Allt frá því að ég man fyrst eftir mér, eru þau kynni mín af ísleifi mér efst í huga, hversu einstök ljúfmennska hans var alla tíð, en þó um leið hversu heilsteyptum persónuleika hann var gæddur. Mér eru sérstaklega minnisstæð öll þau skipti, sem okkur systkin- unum ásamt móður minni var og stórum vetrarharðindum. Og svo löngu, löngu seinna kemur vorið með bjarta nótt og sunnan- þey og fer mildum, græðandi höndum um stórskorna náttúruna og mannlífið í þessum nyrztu byggðum landsins. Þá er eins og landið vilji gera gælur við mann- anna börn og heiti þeim öllu fögru. Þá verður björgulegt þarna í nóttleysinu norður við íshaf; æð- arfuglinn í sveimum rétt undan ströndum, en hrognkelsi, þorskur og kóðasíid taka að ganga upp undir flæðarmál. Stórbrotið landslag og gjöfull sjórinn hafa mótað allt mannlíf á þessum slóðum alveg fram á þennan dag. -Sjá Ijómxnn um strandlr, þ«r leikur nú sér 1 Ijúelnu suAandi bjargfuKlaher. Og aAarfukIs móAurkvak ómar I ró VIA eyjarnar gnenar á loxnstafa sjó.“ (Stelngr. Thoreteinsson) Arnþrúður Margrét Hallsdóttir var fædd á bænum Fagranesi á Langanesi 8. desember 1897. Faðir hennar var Hallur Guðmundsson frá Heiðarhöfn en móðir hennar Kristbjörg Jónsdóttir bónda á Hóli. Foreldrar hennar bjuggu í Fagranesi þar til Hallur lézt á bezta aldri, aðeins 44 ára, árið 1916. Stóð þá ekkjan ein uppi með sex börn á ýmsum aldri. Sam- kvæmt þeim hörðu kostum sem boðið að koma á heimili þeirra ísleifs og Svanlaugar, hvort sem var um hátíðir eða utan þeirra. Ávallt voru þessar heimsóknir okkur sérstakt tilhlökkunarefni. Eins var, er von var á þeim í heimsókn, þá var koma þeirra hjóna okkur ávajlt fagnaðarefni. ísleifur starfrækti byggingar- vöruverslun í eigin nafni allt frá árinu 1921. Hann vann ötullega að verslun sinni og gerði hana að einni þeirra stærstu sinnar teg- undar í landinu. Þetta gerði hann ekki með hávaða eða brambolti, heldur með sinni sérstöku prúð- mennsku og viljafestu, sem svo mjög einkenndu manninn ísleif Jónsson. Þeir eru orðnir margir, sem átt hafa viðskipti við ísleif í verslun hans í nær sextíu ár, sem hún hefur starfað, og engan hefi ég hitt, sem telur sig hafa verið hlunnfarinn í þeim viðskiptum. Aftur á móti hefi ég oft heyrt menn segja að fyrra bragði, hversu einstakur maður ísleifur væri í viðskiptum og að gott væri að sækja hann þangað heim. Starfsorka hans var mikil og hann fátæk heimili urðu að hlíta við fráfall fyrirvinnu á þeim tímum, brá Kristbjörg Jónsdóttir búi, leysti upp heimilið og börnin hennar dreifðust til náinna ætt- ingja og vina til fósturs eða til að vinna fyrir sér hin eldri. Arnþrúð- ur var næstelzt af sínum systkin- um og var í vinnumennsku á ýmsum nálægum bæjum næstu árin. Var hún m.a. um eitt og hálft ár í vist á Sauðanesi hjá síra Jóni Haildórssyni og kvaðst á þeim tíma hafa lært þar margt til munns og handa, sem átti eftir að koma sér vel síðar í lífinu. Árið 1919 giftist hún Stefáni Sigurbirni Guðmundssyni, ættuð- vann að verslun sinni allt fram á síðasta dag ævi sinnar. Á þessari stundu, er við öll kveðjum Isleif Jónsson með trega og eftirsjá, þá er hugur okkar fullur þakklætis fyrir allar ógleymanlegar samverustundir. Við flytjum Svanlaugu og börnum hennar og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Eitt er víst á þessari kveðju- stund, að það er fögur minning, sem eftir lifir og varir að eilífu. Bergur Tómasson um austan af Fljótsdalshéraði. Voru þau hjónin fyrst í eitt ár hjá Kristjáni Jónssyni, móðurbróður Arnþrúðar, í Krossavík í Þistil- firði, og þar fæddist þeim fyrsta barnið, Óskar. Snemma árs 1921 fluttu þau Þrúða og Stefán til Raufarhafnar og áttu þar heima alla ævi. Þau hjónin voru því meðal frumbyggja kauptúnsins. Þar fæddust þeim fjögur börn, þar lifðu þau sín beztu ár við þrot- lausa vinnu, þar nutu þau elliár- anna í skjóli uppkominna barna sinna og þar báru þau beinin. Þau hjónin unnu Raufarhöfn, þau sáu staðinn vaxa og dafna, vildu vel- gengni hans sem mesta og lögðu bæði dyggilega hönd á plóginn við að efla kauptúnið með ævistarfi sínu. Fyrstu árin á Raufarhöfn bjuggu þau í litlum torfbæ rétt við Búðina, þar sem Bræðurnir Ein- arsson ráku verzlun um langan aldur, en keyptu síðar húsið Grund þar skammt frá — inni á Sandi — eins og Raufarhafnarbú- ar kalla þann bæjarhluta. Á Grund bjuggu þau Þrúða og Stef- án síðan svo til öll sín búskaparár, rúma fjóra áratugi, en síðustu árin, sem Stefán lifði bjuggu þau í lítilli íbúð í húsi Óskars, sonar þeirra, á Aðalbraut 26. Eftir að Stefán andaðist fyrir nokkrum árum, bjó Þrúða löngum á heimili Svövu, dóttur sinnar, þar i bæ. Þegar faðir minn hóf atvinnu- rekstur á Raufarhöfn árið 1947, sá ég í mörg sumur um heimilishald- ið fyrir hann þar nyrðra. Atvikin höguðu því þannig, að fjölskylda mín hafði sumardvöl í litlu, heldur hrörlegu húsi, sem gengur undir nafninu Bessastaðir. Hús þetta er byggt áfast við Grund, heimili þeirra Þrúðu og Stefáns, og nutum við þess nágrennis í mörgu. Það sem framar öðru gerir hvern byggðan stað aðlaðandi eða frá- hrindandi í augum aðkomumanna eru kynnin af íbúunum. Ég minn- ist hér með þakklætis þess góða og hjálpsama fólks á Raufarhöfn, sem ég og fjölskylda mín kynnt- umst öll þau sumur, sem við áttum þar heimili og vinnustað. Nágrannakona okkar, hún Þrúða, bauð mig fljótt velkomna; bauð aðstoð og viðvik, ef hún sá að með þurfti. Hún var kona ekki há vexti en hnellin og snaggaraleg í fasi. Góðleg augun bjuggu yfir kankvísum glampa, brosið var aldrei langt undan og svipurinn lýsti þrótti og viljafestu. Hún var kvik í hreyfingum, rösk og velvirk að hvaða vinnu, sem hún gekk. Alla ævi vann hún heimili sínu af óþreytandi eljusemi, og vinnufús- ar hendur hennar létu líka til sín taka við söltun á síldarvertiðinni, í frystihúsinu eða hvar sem þeirra var þörf. Hún kunni ekki að hlífa sér við vinnu og hafði hreina gleði af erfiðinu. Þau hjónin tóku virkan þátt í safnaðarstarfinu á Raufarhöfn á meðan þeim entust heilsa og kraftar, sungu m.a. í kirkjukór staðarins um langt árabil, og málefni sóknarkirkjunnar áttu ævinlega hauk í horni þar sem þau Þrúða og Stefán voru. í mörg ár hlúði hún að leiðunum í kirkju- garðinum á Raufarhöfn, ekki ein- ungis að leiðum sinna nánustu, heldur og annarra óskyldra, sem þar hvíla. Enginn hefur talið þær mörgu vinnustundir, sem Þrúða lagði þar af mörkum staðnum til sóma; allra sízt mun hún hafa talið þær stundir sjálf. Börn þeirra Arnþrúðar og Stef- áns voru fimm: Elztur er Óskar, búsettur á Raufarhöfn; Hulda, sem búsett var á Raufarhöfn, en hún andaðist nálægt miðjum aldri; Halldóra, búsett í Kópavogi. Aðra elskulega dottur, Guðnýju Soffíu, misstu þau mjög skyndi- lega, er hún var rétt um tvítugt. Yngst er Svava, búsett á Raufar- höfn, og voru þær mæðgur mjög samrýndar. Auk þess ólu þau Stefán upp dótturson sinn, Árna, búsettan á Raufarhöfn, og litu þau hjónin jafnan á hann sem sitt yngsta barn. Fjölskyldan á Grund var einkar samrýmd, allur heimil- isbragur var þar með ágætum. Þegar aldurinn tók að færast yfir foreldrana, voru börnin boðin og búin til að létta undir með þeim á allan hátt og sýndu það mjög í verki. Auk einlægrar trúarvissu, sem bæði Stefán og Arnþrúður báru í brjósti, sóttu þau hjónin óendan- legan styrk við mótlæti lífsins í hið trausta og einlæga samband sitt við börnin, við tengdabörn og svo öll barnabörnin, sem voru þeirra yndi á efri árum. Ég held að mér sé óhætt að segja, að þrátt fyrir sáran ástvinamissi og margt annað mótlæti, hafi Þrúða verið gæfukona, sem þáði með þökk allt, sem Guð henni gaf, en möglaði heldur ekki né örvænti yfir því, sem Drottinn tók frá henni. Hinn 8. desember á fyrra ári fyllti hún 83. aldursárið; allir hennar nán- ustu og hennar fjölmörgu vinir samfögnuðu henni og óskuðu henni til hamingju. Daginn eftir gekk þessi aldraða kona til vinnu sinnar eins og hennar var vani og eins og hún sjálf vildi, hné niður og var þegar örend. Ég kveð þessa góðu vinkonu með trega og vil votta öllum aðstand- endum samúð mína og fjölskyldu minnar vegna þeirra mikla missis. Ingibjörg Vilhjálmsdóttir ATHYGLI skal vakin á þvi, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagshlaði. að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfs- formi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni. að ó-um- ort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasið- um Morgunblaðsins. llandrit þurfa að vera vélrituð og með góðu linubili. ísleifur Jónsson kaupmaður - Minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.