Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 37 Pétnr Pétursson þulur: Sólskríkja eða snjótittlingur Undarlegt er það og með ólík- indum, að þeir er rituðu hvað harðast og börðust gegn samningi þeim er opinberir starfsmenn samþykktu í sept. mánuði sl. skuli nú snúast til varnar gegn samn- ingsrofi og njóta eigi fulltingis þeirra er mæltu hvað mest með samþykkt hins sama samnings. Hvernig má slíkt verða? Vitnum í greinar þær, fjölmarg- ar er birtust í dagblöðum á sl. hausti, þá er atkvæðagreiðsla fór fram. Allir eiga leiðréttingu orða sinna. Hér er þetta eigi rifjað upp í því skyni að varpa rýrð á þá er lofsungu samningsgerðina. Öðru nær. Guði sé lof fyrir skoðana- muninn. Það væri þokkalegt þjóð- félag þar sem skoðanir væru ekki skiptar um mannlíf og mynstur þess. En má ekki vænta þess að þeir sem lýstu ánægju sinni um málsúrslit við samningsgerð síð- sumars snúist til varnar þá vegið er í knérunn þeirra með samn- ingsrofi? Ef flett er dagblöðum og tíma- ritum er geyma frásagnir og .greinar um kjarasamning BSRB á sl. hausti verður ljóst að afstaða meðmælenda miðast við nokkur meginatriði. Því til staðfestingar má minna á röksemdir greinar- höfunda: Ingibjörg Agnars sjúkra- liði segir í Dagblaðsgrein: „Samn- ingstiminn er aðeins 13 mánuð- ir.“ „I.aun hækka ... mest hjá þeim sem lægst hafa launin.“ Málhildur Angantýsdóttir sjúkra- liði segir í Morgunblaðsgrein: „Fyrstu 15 launaflokkarnir hækka“ og „vísitölugólf hækkar ncðstu launaflokkana umfram aðra“. Halldóra Lárusdóttir sjúkraliði segir í Þjóðviljanum: „ ... mörg veigamikil atriði fyrir okkur sem erum i lægstu launaflokkunum. Þar á ég við flokkahækkanir, að viðbættri þeirri grunnkaupshækk- un, sem ákveðin er, vísitölugólfið sem bætir hag þeirra. sem eru allra neðst o.fl. Einar Ólafsson formaður Starfsmannafélags ríkisstofnana segir í viðtali við Þjóðviljann: „Get kinnroðalaust mælt með þessum samningi." Björn Arnórsson hagfræðing- ur BSRB segir í viðtali við Timann: „Hækkun i neðstu flokk- unum.“ „Getur haft ófyrirsjáan- legar afleiðingar verði samkomu- lagið fellt. Við sitjum ekki við þennan samning nema i 12 mán- uði. Þá getum við tekist á um þær Selfoss: Bæjarstjórn deilir á skrif Timans og blaða austanf jalls „ÉG BAR fram þessa tillögu til ályktunar vegna skrifa dagblaðs- ins Tímans í gær og einnig vegna skrifa í blöðum hér austanfjalls og þá sér í lagi í siðasta tölublaði Þjóðólfs,“ sagði Páil Jónsson tannlæknir og bæjarfulltrúi á Sel- fossi í viðtali við Mbl. i gær. en bæjarstjórn Selfoss samþykkti á siðasta fundi sinum ályktun þar sem blaðaskrif um málefni Sjúkra- húss Suðurlands eru hörmuð og átalin. Umrædd skrif eru tilkomin vegna auglýsingar stjórnarnefndar Sjúkrahúss Suðurlands um lausa stöðu yfirlæknis við sjúkrahúsið, en núverandi yfirlæknir Sjúkrahúss Selfoss er talinn af hendi ráðuneyt- is og fleiri aðila eiga að hljóta stöðuna sjálfkrafa. Tilíaga Páls var samþykkt samhljóða og hefur Mbl. borist hún með ósk um birtingu. Hún hljóðar svo: „Bæjarstjóm Sel- foss harmar þau blaðaskrif, sem nú fara fram um málefni Sjúkrahúss Suðurlands og ályktar, að slík skrif séu sizt til þess fallin að vinna málinu gagn. Skrif um einstaka starfsmenn eru aðeins til að skapa sundrungu og óeiningu heima fyrir og tefja fyrir framgangi málsins." það hvort — og þá hvað langt — eigi að hleypa útlendum aðilum inná athafnasvæði okkar íslend- inga í þessum efnum. Og við skulum ekki gleyma því að minna Alþingi á það, að með farsælli lausn þessara mála, erum við að „færa landhelgina inn í landið". 3. Fiskræktun og fiskakynbætur í ám okkar og vötnum svo og í klaki og eldi er undirstaðan undir því, að fiskeldi geti náð tilætluðum árangri og jafnframt skapað betri samkeppnisaðstöðu fyrir okkur á erlendum markaði, með því að geta boðið fram betri vöru-quali- tet fremur en quantitet. 4. Fiskeldi og sjóeldi á laxi getur orðið mjög þýðingarmikill at- vinnuvegur hjá okkur íslending- um, ekki hvað sízt meðal bænda, sem margir hverjir eiga í þessum efnum geysimikil hlunnindi og verðmæti, sem hingað til hafa lítt eða ekki nýtt verið. 5. Útflutningur á eldisfiski, augn- hrognum, seiðum og eldislaxi á í framtíðinni að geta fært þjóð okkar mikinn auð í búið, ef rétt er á málum haldið og vel að búið í skynsamlegri og framsýnni nýrri fiskiræktar- og fiskeldislöggjöf. 6. Skapa yrði í slíkri löggjöf ör- leiðréttingar sem þá þarf að gera.“ Guðjón B. Baldvinsson segir í Morgunblaðinu: „Hvers virði eru kjarabætur tii Iáglaunafólks?“ „... þá hijóta allir að sjá nauðsyn þess að hafa samninga bundna i sem skemmstan tima.“ Haraldur Steinþórsson framkv. stjóri BSRB segir í viðtali við Alþýðublaðið: „Við teljum vel hægt að hækka grunnkaupið mun meira.“ Sigrún Aspelund hjá Bruna- bótafélagi íslands segir í viðtali við Tímann: „Láglaunahópar inn- an BSRB fá nú hlutfallslega meiri hækkun en þeir hæstlaun- uðu.“ I krafti meðmæla er byggðust á fyrrgreindum rökum samþykkti þorri opinberra starfsmanna samning þann sem um var rætt í almennri atkvæðagreiðslu. For- maður BSRB og fjármálaráðherra innsigluðu samninginn með traustu handtaki. Á gamlársdag 1980 setur ríkis- stjórnin bráðabirgðalög og skerðir laun um 7%. Formaður BSRB lýsir áhrifum bráðabirgðalaganna með þessum orðum í Ásgarði, tímariti opinberra starfsmanna: „Þessi skerðing á umsaminni verðlagsuppbót 1. marz þýðir í raun afnám grunnkaupshækkun- ar skv. samningum BSRB, jafn- vel þeirra sem mesta hækkun fengu. þ.e. i lægri flokkunum. Hvað stendur þá eftir af samn- ingnum? Þarf nokkurn að undra þótt spurt sé: Hvar er baráttuþrek forystumanna? Hvers vegna blása þeir ekki í lúðra þá er góður samningur er gereyðilagður með þessum hætti sem formaðurinn lýsir? Hvað veldur því að forystu- menn unna ekki almennum félög- um sjálfsagðra lýðréttinda, að snúast til varnar þá er undirritað- ur samningur þeirra er ónýttur með þessum hætti. Sá hinn sami samningur er þeir mæltu með á fyrrgreindum forsendum? Svari þeir sem geta. Skáldið spurði forðum: Ó, hvar er vörður að verja/ mitt vesalings hjartakorn? Hvenær birtast verðir kjara- samningsins er gerður var á engjaslætti? í stað þess að vitna í hið fornkveðna: „Eg lýt hátign- inni, en stend á rétti mínurn," segja foryztumenn BSRB: Við þiggjum Hólsfjallahangikjöt handa hálaunamönnum en sleikj- um askana í nafni láglaunaflokka. I stað þess að viðurkenna að hér er um nýjan samning að ræða segja þeir: Þetta er sami samning- urinn. Hann hét Sólskríkjusamn- ingur á sl. sumri. Nú er hann orðinn að Snjótittlingi. Pétur Pétursson þulur. ugga tekjustofna fyrir hinum margvíslegu framkvæmdum, er af uppbyggingu slíks atvinnurekstr- ar leiddi en umfram allt að setja ströng ákvæði er tryggðu það, að rétt væri af stað farið í fram- kvæmdum. 7. Ný fiskiræktar- og fiskeldis- löggjöf myndi tryggja það að grundvöllur skapaðist fyrir því, að á komandi árum gætum við ís- lendingar eignast sérfróða og dug- andi kunnáttumenn á þessum sviðum, með mikla menntun að baki og ómetanlega reynslu. Ýmislegt fleira mætti hér auð- vitað til telja, en hér skal nú lokið að sinni. Flestum virðist nú vera ljóst, að náttúran hefur verið mjög gjafmild við okkur íslend- inga í þeim efnum, að bera á borð fyrir okkur á „silfurfati" eitt fegursta og auðugasta vatnasvæði heimsins í dag, miðað við stærð lands og þjóðar og þá ekki síður vegna þess, hve laus við erum við skaðvænlega mengun enn sem komið er. Og það er kunnara en frá þurfi að segja, að allar menn- ingarþjóðir hafa fyrir lögnu gert sér ljósa grein fyrir hinni gífur- legu þýðingu fiskiræktar- og fisk- eldismálanna, og hve mikill þjóð- arauður felst í því að þróun þeirra sé studd á réttlátan og farsælan hátt. Það er framtíðin. Tvær myndir frá Keflavík Þessar skemmtilegu myndir fengum við sendar fyrir skömmu frá Keflavík. Þeir bræður, Eiríkur og Starkaður Barkarsynir teiknuðu, og sendi Starkaður 7 ára, línur með sinni teikningu: „Þessar fjórar rjúpur sá ég út um gluggann heima hjá mér. Þær koma til byggða þegar hart er í ári og þær fá ekki nóg að borða. “ Lítill leikur Málaðu eða litaðu 16 hringi á pappaspjald eins og sýnt er á myndinni, en hafðu samt einn hringinn öðruvísi. Nú er leikurinn í því fólginn að setja tölur, krónupeninga eða eitthvað annað á alla hringina nema einn, þann sem stjarnan er í. Síðan áttu að reyna að „drepa" með því að stökkva yfir „mennina“, en það er því aðeins hægt, að auður reitur sé á bak við hann. Þannig áttu að halda áfram þangað til allir „mennirnir" eru dauðir nema einn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.