Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 15 Frædsluþáttur Gedverndarfélags Islands 7 Umsjón: Oddur Bjarnason Nauðsynlegar úrbætur í geðheilbrigðismálum Alþingi fjallar nú um tillögu til þingsályktunar um geðheil- brigðismál, skipulag og úrbætur. Flutningsmenn eru úr öllum stjórnmálaflokkum á þingi og þeir hafa haft samráð við stjórn geðhjálpar, sem er félag geð- sjúklinga, aðstandenda og vel- unnara. Með því að miklu máli skiptir, að þessi tillaga nái fram að ganga, þykir mér hlýða að fjalla nokkuð um þann vanda, sem er tilefni tillögunnar. sá vandi hlýtur að vera mjög mikill, því að það ætti ekki að vera nauðsynlegt, að skilja geðheil- brigðismál frá öðrum heilbrigð- ismálum og fjalla um þau sér- staklega. Hlutverk geðheilbrigðisþjón- ustunnar er mjög umfangsmikið enda eru geðsjúkdómar mjög tíðir. Gera má ráð fyrir, að annar hver maður muni þjást af geðkvilla áður en hann nær 75 ára aldri. Á hverjum tíma er talið að 20—25 af hundraði fullorðins fólks þjáist af geð- kvillum. Það er þó ekki nema hluti af þessu fólki, sem leitar meðferðar. Heilbrigðisyfirvöld verða að mynda samfellda þjónustukeðju fyrir einstaklinga og fjölskyldur, sem eiga við geðræn vandamál að stríða, allt frá fyrirbyggingu og frumþjónustu til langvarandi umönnunar, þegar hennar er þörf. Það verður að vera unnt, að sinna bráðum sálarkreppum án tafar og veita þeim, sem haldnir eru alvarlegum geðsjúkdómum fullnægjandi meðferð. Heil- brigðisyfirvöld verða að tryggja nægan húsakost fyrir þessa þjónustukeðju í göngudeildum, á sjúkradeildum, á endurhæf- ingardeildum, áningastöðum milli sjúkrahúsa og heimila og vernduðum heimilum. Þau verða einnig að tryggja nægan vel menntaðan mannafla til að starfa við þessa þjónustukeðju. Meðferð á geðsjúklingum er tímafrek og því aðeins, að mann- afli sé nægur er unnt að beita góðri og fjölbreyttri nútíma meðferð. Heilbrigðisyfirvöld verða að tryggja aðgang sjúkl- inga að vernduðum vinnustöðum og greiða fyrir þeim á almennum vinnumarkaði. Þá verða þau að tryggja, að geðsjúklingar eigi kost á viðunandi húsnæði og nægiiegu lífsviðurværi, þegar þeir fara úr vistrými á meðferð- arstofnunum. Þau vandamál, sem stafa af geðsjúkdómum eru svo mikil, að engin von er til þess, að starfs- menn geðheilbrigðisþjónustunn- ar geti leyst þau einir. Þeir verða að leita eftir samstarfi við starfsmenn í öðrum greinum heilbrigðisþjónustunnar, félags- málastofnunum og öðrum hjálp- arstofnunum. Þá er ekki síður mikilvægt, að leita eftir sam- starfi við allan almenning og hvetja hann til að taka virkan þátt í fyrirbyggingu geðsjúk- dóma svo og meðferð og endur- hæfingu geðsjúklinga. Til að tryggja þessa samvinnu og til að auka umburðarlyndi almennings og gera þannig geðsjúklingum auðveldara að snúa aftur til samfélagsins og hafast við í því, verður að veita víðtæka fræðslu um málefni þeirra. Fræðsluþátt- um Geðverndarfélagsins er ætl- að það hlutverk. Því miður vantar mikið á, að geðheilbrigðisþjónustan geti gegnt hlutverki sínu með full- nægjandi hætti. Til þess að svo geti orðið, verður að auka bæði mannvirki og mannafla. Það er talið, að samtals þurfi 4,3 vistun- arrými fyrir geðsjúklinga fyrir hvert þúsund landsmanna. Hér á landi eru þau innan við tvö. Það vantar húsrými fyrir alla hlekki þjónustukeðjunnar. Brýnust er þörfin fyrir vistunarrými á sjúkradeildum fyrir bráðveika sjúklinga, en þörfin er einnig mikil fyrir vistunarrými á endurhæfingadeildum, langlegu- deildum, endurhæfingaheimilum eða áningastöðum og vernduðum heimilum. Þá er einnig mikil þörf á auknu rými á göngudeild- um. Það fer ekki milli mála að mannafla vantar til starfa við alla hlekki þjónustukeðjunnar til að sinna meðferð og endur- hæfingu eins vel og æskilegt væri. Sú tregða, sem hefur verið á að skapa viðunandi aðstæður í þjónustu fyrir geðsjúka, hefur fælt fólk frá því að leita sér menntunar á þessu sviði. Jafn- framt hefur þessi tregða ekki verið til þess fallin að auka samúð og skilning almennings á þörfum geðsjúklinga. Það er ljóst, að ástandið í geðheilbrigðismálum er slæmt og geðheilbrigðisþjónustan er vanbúin til að gegna hlutverki sínu með fullnægjandi hætti. Það verður að gera róttækar aðgerðir í geðheilbrigðismálum og umfangsmiklar endurbætur á geðheilbrigðisþjónustunni. Skipulag á þjónustu við geð- sjúklinga mætti vera betra, eins og raunar skipulag á þjónustu við aðra sjúklinga, en það er ekki skipulaginu í sjálfu sér að kenna, að þjónustan hefur ekki verið sem skyldi. Skortur á aðstöðu hefur komið í veg fyrir að unnt væri að koma á viðunandi þjón- ustuskipulagi. Þær endurbætur, sem nauð- synlegar eru á geðheilbrigðis- þjónustunni hafa vafalaust mik- inn kostnað í för með sér, en þjóðfélagið verður að leggja í þann kostnað. Þó að það sé dýrt í bráð að veita geðsjúklingum fullnægjandi meðferð og endur- hæfingu, er það þó enn dýrara í lengd fyrir geðsjúklingana, að- standendur þeirra og þjóðfélagið í heild, sé ekki komið á fullnægj- andi þjónustu. Stórstígar fram- farir hafa á undanförnum ára- tugum orðið í geðræðum. Þekk- ing manna á meðferð og endur- hæfingu hefur stóraukist og nú er ljóst, að hvort tveggja getur komið að góðu gagni, sé rétt að staöið. Meðan starfsmenn geð- heilbrigðisþjónustunnar hafa jafn ófullnægjandi aðstæður til að sinna starfi sínu og raun ber vitni, geta þeir ekki hagnýtt þessa þekkingu, nema að tak- mörkuðu leyti til hagsbóta fyrir geðsjúklinga, aðstandendur þeirra og þjóðfélagið allt. Meðal þeirra endurbóta, sem brýnast er að gera í geðheil- brigðisþjónustunni eru þessar: 1. Þjónustu við bráðveika sjúkl- inga verður að efla stórlega með auknu svigrúmi á legu- deildum og göngudeildum geðdeilda. Nærtækast er að gera þetta með því að ljúka framkvæmdum við geðdeild Landspítalans hið fyrsta og veita heimild til að ráða nauðsynlegan mannafla til reksturs deildarinnar. 2. Það er nauðsynlegt, að auka þjónustu við hópa, sem til þessa hafa orðið útundan, einkum unglinga og aldraða. 3. Koma þarf upp áningastöðum milli sjúkrahúsa og heimila til að endurhæfa geðsjúklinga og vistheimilum fyrir þá, sem ekki geta búið á eigin vegum. 5. Það verður að stuðla að rann- sóknum á geðrænum vanda- málum, hvernig þau verða fyrirbyggð og leyst. 6. Síðast en ekki síst verður að huga að upplýsingum og fræðslu til almennings í mál- efnum geðsjúklinga og þar sem til geðverndar horfir fyrir einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið í heild. Geðverndarfélagið hefur um langt árabil unnið að hagsbótum fyrir geðsjúklinga og fengið miklu áorkað. Þannig hefur það komið upp rými fyrir 22 sjúkl- inga á Reykjalundi. Það hefur átt hluta af Bergiðjunni, sem er verndaður vinnustaður fyrir geðsjúklinga að Kleppsspítalan- um. Þá hefur það haldið úti tímaritinu Geðvernd, sem er fræðslurit um geðfræði. Geð- verndarfélagið mun á sumri komanda hefja framkvæmdir við áningastaði fyrir geðsjúkl- inga á nýskipulögðu svæði í Fossvogi og nýtur þar stuðnings og velvildar ýmissa aðila og má þar fremsta telja Kiwanishreyf- inguna á Islandi. Þá lögðu tón- listarmenn, sem efndu til minn- ingartónleika um John Lennon einnig til drjúgan skerf, er þeir gáfu Geðverndarfélaginu ágóð- ann. Ýmislegt bendir nú til þess, að skilningur sé almennt að aukast á hinum mikla vanda, sem steðj- ar að geðsjúklingum og aðstand- endum þeirra, og hinum þungu búsifjum, sem geðsjúkdómar valda þjóðfélaginu. Meðal þess- ara vísbendinga er sú staðreynd, að þingmenn allra flokka hafa sameinast um tillögu til þings- ályktunar um geðheilbrigðismál og hinar góðu viðtökur, sem Kiwanismenn fengu, er þeir seldu Kiwanislykilinn til ágóða fyrir málefni geðsjúklinga. Það myndi flýta fyrir úrbótum í geðheilbrigðismálum, ef þings- ályktunartillagan næði fram að ganga og því verður að vona, að sá velvilji og skilningur, sem fram kemur hjá flutnings- mönnum tillögunnar, eigi hljómgrunn í öllum þingheimi. Vitni vantar að ákeyrslum í Hafnarfirði „Það er mjög erfitt. Þetta er víðlent svæði, nær allt suður til Seyðisfjarðar. Á þessu svæði er allt Fljótsdalshérað og dalirnir upp af því. Vegna þess að ég bý nyrst er erfitt að ferðast um nema yfir sumarið." — Þú ert þá kannski á ferðalagi allt sumarið? „Það þyrfti að vera svo, en ég er farinn að eldast og ferðalögin eru minni en æskilegt væri.“ — Á kirkjan mikil ítök í hugum fólks á þínu svæði? „Það er vandi að svara því. Ég held það sé hvorki meira né minna en gengur og gerist hjá þjóðinni yfirleitt. En það er erfitt að dæma um slíkt því oft er meira um það að kirkjan eigi ítök í hugum manna en í fljótu bragði virðist." — Hvernig ætlið þið að minn- ast kristniboðsársins? „Við höfum hugsað okkur að Múla- og Austfjarðaprófastsdæmi sameinist um minningarhátið. Hátíðin yrði þá líklega haldin á Egilsstöðum sem er miðsvæðis fyrir bæði prófastsdæmin. Þetta er allt á undirbúningsstigi ennþá en þó er gert ráð fyrir því að kirkjukórarnir taki þátt í þessari hátíð. Auk þess verður kristni- boðsársins minnst sérstaklega í hverri sókn.“ Sigmar hefur búið á Skeggja- stöðum í 37 ár og sat í hrepps- nefndum í> Skeggjastaðahreppi í rúm 25 ár. Konan hans, Guðríður Guðmundsdóttir, er nú oddviti hreppsnefndar en Sigmar gegndi því starfi á undan henni. „Ég fór austur svo að segja beint frá prófborðinu og hef aldrei haft tíma til að láta mér leiðast. Ég er Austfirðingur og mig lang- aði til Austfjarða að loknu prófi. Ég hafði um tvo staði að velja, Mjóafjörð og Skeggjastaði. Ég valdi Skeggjastaði þar sem ekkert prestssetur var í Mjóafirði, það var auðvelt að velja þarna á milli. Ég hef enn ekki komið því í verk að sækja í burtu. Ég var eini umsækjandinn á sínum tíma og fékk lögmæta kosningu. Fólkið tók vel á móti okkur og okkur hefur liðið vel.“ „Messur, best sóttu samkomurnar“ Að lokum ræddum við um stöðu kirkjunnar í landinu: „Uti á landsbyggðinni hlýtur presturinn að þurfa að koma við sögu í mörgu. Konan mín hefur t.d. verið kennari í rúm 30 ár og skólinn hefur verið á heimili okkar jafn lengi. Börnin eru í dagiegum tengslum við prestinn og prestssetrið. En nú erum við að vinna að því að byggður verði skóli fyrir Bakkafjörð og sveitina í kring." — En hvernig finnst þér tengsl kirkjunnar og hins almenna Is- lendings vera. Eru þau kannski að rofna? „Það er vandasamt að svara þessu. Sums staðar ber meira á því en áður. En ég held að í raun og veru sé svo ekki. Á vissu tímabili ævinnar fjarlægjumst við kirkjuna en tengjumst henni aftur síðar. Ég get því ekki sagt að tengsl kirkju og fólks séu almennt að rofna. Og oft eru þessi tengsl mun meiri en lítur út fyrir í fyrstu. Vissir hættir manna hafa breyst með árunum og það hefur komið niður á því sem síst skyldi. Og þó er ekki að furða að slíkar breytingar bitni á því sem var hefðbundið. Það er mikið talað um lélega kirkjusókn en tekið er tillit til hversu oft fólk er boðað saman í kirkju held ég að þetta séu best sóttu samkomurnar. Og mér finnst kirkjusókn heldur vera að glæðast. Kirkjunni berast mun meiri gjafir nú en áður og finnst mér það líka benda til þess að fólk hugsi mikið til kirkjunnar. Og þar sem ungir og áhugasamir prestar hafa komið til starfa hefur nýtt líf færst yfir söfnuðinn. Þótt lítið beri á held ég að ítök kirkjunnar séu alls ekki þverrandi," sagði Sigmar að lokum. — rmn. Dagný Björgvinsdóttir Tónlistarskólinn: Burtfararprófs- tónleikar Dagnýjar Björgvinsdóttur Á morgun verða haldnir burt- fararprófstónleikar í sal Tónlist- arskólans í Reykjavík og hefjast þeir kl. 15. Dagný Björgvinsdóttir tekur burtfararpróf í píanóleik frá skólanum og verða verk eftirtal- inna höfunda á efnisskránni: J.S. Bach, Schubert, Chopin og Sjosta- kovitsj. Dagný er nemandi Mar- grétar Eiríksdóttur og mun hún einnig ljúka píanókennaraprófi frá Tónlistarskólanum í vor. Öll- um er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Leikfélag Kópavogs: 75. sýning á Þorláki Annað kvöld verður 75. sýning Leikfélags Kópavogs á hinum sívinsæla gamanleik „Þorláki þreytta“. Nú hefur sú breyting orðið á hlutverkaskipan að Guðrún Þ. Stephensen hefur tekið við sem spúsa Þorláks af Sólrúnu Yngva- dóttur, en hún verður fjarverandi um sinn vegna fótbrots. Helgi Þorgils Friðjónsson sýn- ir í Rauða hús- inu á Akureyri í dag kl. 16 opnar Helgi Þorgils Friðjónsson sýningu i Rauða húsinu á Akureyri. Þar sýnir Helgi málverk, teikningar og bækur. Þetta er önnur einkasýning Helga á árinu, en sú fyrri var í Norræna húsinu í febrúar. Áður hefur hann haldið sex einkasýn- ingar hérlendis, í Hollandi og Sviss. Auk þess hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga víða um heim. Sýning Helga Þorgils Friðjóns- sonar stendur til 22. þ.m. SKORAÐ er á tjónvalda eða vitni að gefa sig fram við rannsóknar- lögregluna i Hafnarfirði varðandi þessar ákeyrslur: Laugardaginn 7/3 1981, á tíma- bilinu frá kl. 00.15—12.12, var ekið á hægri hlið bifreiðarinnar R- 63176, sem er fólksbifr. af verðinni Volvo, þar sem bifreiðin var mann- laus á bifreiðastæði við húsið nr. 92 við Álfaskeið í Hafnarfirði. Miðvikudaginn 4/3 sl., á tímabil- inu frá kl. 17.00—18.30, var ekið á bifreiðina Ö-7038, sem er af gerð- inni Datsun Station, árg. 1973, þar sem bifreiðin stóð mannlaus á Reykjanesbraut skammt sunnan Þúfubarðs ofan við Hafnarfjörð. Ekið hefur verið aftaná bifreiðina og hún stórskemmd. Bifreiðin er gul að lit. Miðvikudaginn 4/3 sl. var ekið á bifreiðina G-4710, sem er af gerð- inni Daihatsu, fólksbifr., þar sem hún stóð á Álmholti í Mosfellshr. Gerðist á tímab. frá kl. 16.00— 18.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.