Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.03.1981, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 14. MARZ 1981 33 Aðalfundur Kaupmannasamtakanna á fimmtudag: Heimild til að selja vörur á markaðsverði - er aðalmálið í augum kaupmanna 1 dag, segir Magnús E. Finnsson, framkvæmdastjóri AÐALFUNDUR Kaupmannasamtaka íslands verður haldinn fimmtudaginn 19. marz nk. að Hótei Sögu. Auk venjulegra aðaifundarstarfa mun formaður Kaupmannasamtakanna. Gunn- ar Snorrason, halda ræðu. bá mun viðskiptaráðherra Tómas Arnason ávarpa fundinn og svara fyrirspurnum fundarmanna. „Aðalmálið í okkar augum um þessar mundir er samþykkt Verðlagsráðs frá 3. desember sl. um heimild til verzlana, að selja vörur á markaðsverði. Þessi samþykkt hefur ekki enn komið til framkvæmda þar sem ríkis- stjórnin hefur enn ekki sam- þykkt hana. Það væri í rauninni stórkostlegt að fá þetta loks fram á árinu 1981, þar sem þetta er talið eðlilegt og hefur verið talið eðlilegt í öllum öðrum löndum, ekki sízt þar sem er svona mikil verðbólga ,eins og hér,“ sagði Magnús E. Finnsson, framkvæmdastjóri Kaupmannasamtaka Islands, í samtali við Mbl. Aðspurður um verkefni á döfinni hjá samtökunum, sagði Magnús að unnið væri að upp- lýsingum um þann kostnað, sem fyrirtæki þurfa að greiða vegna innheimtu opinberra gjalda, sérstaklega þá söluskatt. „Að okkar mati er það eðlilegt að hið opinbera hafi af þessari innheimtu einhvern kostnað," sagði Magnús ennfremur. „Þá hafa kaupmenn mótmælt mjög harðlega 59. grein skatta- laganna, sem gerir ráð fyrir að hægt sé að áætla tekjur ein- staklinga í atvinnurekstri. Það hefur þegar verið safnað undir- skriftum um 40 kaupmanna hér í Reykjavík og þær sendar alþingismönnum," sagði Magn- ús E. Finsson, framkvæmda- stjóri Kaupmannasamtaka ís- lands, að síðustu. Noregsfréttir: Framfærsluvísitala hækkaði um 10,9% milli 1979 og 1980 Framfærsluvisitalan hækkaði um 10,9% í Noregi milli áranna 1979 og 1980. Sé timahilið des- ember 1979 til desember 1980 tekið hækkaði visitalan hins veg- ar um 13,7%, að þvi er segir í hagtiðindum frá norsku hagstof- unni. Hækkunin milii nóvember og desember á sl. ári var hins vegar 0,7%. Iðnaðarframleiðsla jókst um 1% Að magni til jókst iðnaðar- framleiðsla Norðmanna um 1% á árinu 1980. Á sama tíma jókst olíu- og rafmagnsframleiðsla um liðiega 7%. 47. ársþing FÍI haldið á miðvikudag FERTUGASTA og sjöunda ársþing Félags islenzkra iðnrekenda verður haldið miðvikudaginn 18. marz nk. að Hótel Loftleiðum, og hefst þingið klukkan 11.00 með ræðu formanns, Daviðs Scheving Thorsteinssonar. Þá er á dagskránni ræða viðskiptaráðherra, Tómasar Árnasonar, pallborðsum- ræður fulltrúa þingflokk- anna, skýrsla Gunnars J. Friðrikssonar um könnun FÍI á flutningskostnaði. Þá verða umræður, fyrirspurnir og ályktun þingsins sam- þykkt. Góð afkoma hjá Norsk Hydro Afkoma Norsk Hydro, risafyr- irtækisinns norska, var mjög góð á seinni helmingi síðasta árs, en þá var heildarvelta þess liðlega 8300 milljónir norskra króna, eða sem næst 10155 milljónum ís- ienzkra króna, eða liðlega 1000 milljarðar gkróna. Til samanburð- ar má geta þess að veltan á sama tíma 1979 var um 6000 milljónir norskra króna, eða sem næst 7450 milljónum íslenzkra króna, eða sem næst 745 milljörðum gkróna. 2,5 milljón tonn af fiski á land i fyrra Á síðasta ári var landað um 2,5 milljónum tonna af fiski í norsk- um höfnum. Það er 235 þúsund tonnum minna heldur en árið á undan og 190 þúsund tonnum minna heldur en árið 1978. í verðmætum er þó um aukningu milli ára að ræða, eða um sem næst 5%. Neytendaverð upp um 2,9% á einum mánuði Neytendaverð hækkaði mjög óvenjulega mikið á tímabilinu 15. desember til 15. janúar sl., eða um 2,9%. Þetta vill segja, að neyt- endaverð var um 15,2% hærra í janúar sl., en það var í janúar 1980. Þetta er mesta neytenda- vöruverðshækkun, sem hefur orð- ið í Noregi frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar. Stærstu póstarnir í þessari hækkun eru mjög hækkað verð á allri opin- berri þjónustu og lok verðstöðvun- ar í landinu. NEYTENDUR hafa eflaust tekið eftir mörgum nýjungum og breyt- ingum á framleiðslu Smjörlikis hf. og Sólar hf. á undanförnum mánuðum og misserum, en þessi fyrirtæki eru rekin undir sama þaki við Þverholt 19 hér í bæ. Ástæða þess. að ég geri þessi fyrirtæki að umtalsefni hér á síðunni eru hinar nýju og stærri umbúðir utanum Sólblóma, sem nýtur vinsælda hér á landi. Eg fór þvi á fund forráðamanna fyrir- tækisins og innti þá nánar eftir þessum nýju umbúðum og fleiru i starfseminni. Árni Ferdinandsson, sölustjóri, sagði að það hefði verið ljóst fyrir alllöngu síðan, að 250 gramma umbúðirnar utanum Sólblóma væru allt of litlar, en þeir hefðu verið bundnir af gömlu pökkunar- vélinni, það hefði ekki verið hægt að breyta henni þannig að hún Árni Ferdinandsson, sölustjóri Smjörlikis hf. og Sólar hf. I.jósm. Mbl. Kristinn. Ný vél til pökkunar á Sólblóma og Alpa pakkaði stærra. — „Við hófum því leit að nýrri vél fyrir nokkru og þá vorum við með í huga vél, sem gæfi meiri möguleika, jafnframt því að vera nýrri og öruggari fyrir fram- leiðsluna. Það varð svo að ráði á síðasta ári, að við ákváðum að kaupa nýuppgerða vél frá Vestur- Þýzkalandi, sem bæði gefur aukna möguleika og er mun afkasta- meiri," sagði Árni. Gamla vélin, sem hefur verið í gangi undanfarin ár hafði ekki undan framleiðslunni, að sögn Árna, auk þess sem hún var farin að bila heldur mikið. Nýja vélin var sem sagt tekin í fulla notkun sl. haust og hefur staðið sig með ágætum að sögn Árna. Jafnframt því að pakka 400 gramma pakkn- ingum getur nýja vélin ennfremur pakkað minni einingum eins og t.d. 250 grömmum, en Sólblóma var einmitt pakkað þannig áður. „Fólk var farið að tala mikið um það við okkur, að gömlu pakkn- ingarnar væru alltof litlar, það þyrfti að hlaupa „of oft út í búð“, sagði Árni ennfremur. Hinar nýju umbúðir eru, auk þess að vera stærri, mun stífari og Smjörlíki hf. og Sól hf. hyggja 1200 fermetra viðbótarhúsnæði við Þverholt aflagast því síður. Þá hefur verið tekin upp sú nýbreytni, að skrá ýmsar mataruppskriftir á botninn, og hefur það að sögn Árna gefist mjög vel. Þá er skráð á umbúðirnar mjög nákvæmlega hvaða efni Sól- blóminn inniheldur auk síðasta söludags, sem ennfremur er nýjung frá því sem áður var. Árni sagði aðspurður, að nýja vélin létti heldur undir með fólkinu þar sem um færri hreyfingar væri að ræða. Tveir og tveir starfsmenn vinna við vélina hvor sinn hálftím- ann í senn. Þá kom fram hjá Árna, að vikulega væru framleidd um 300 tonn af Sólblóma, en mest hefði framleiðslan verið um 35 tonn á einni viku. í sömu umbúðum og Sólblóma er svo framleitt svokallað Alpa, sem líka er notað ofan á brauð, en hefur ekki sömu efnasamsetningu. Um aðra framleiðslu Smjörlíkis hf., sagði Árni, að stærstur hluti framleiðslunnar væri eftir sem áður brauðsmjörlíkið, Ljóminn, Blái borðinn og Silfurskeifan, en vikulega eru framleidd 90—100 tonn af því. Það er eftir sem áður í sínum gömlu umbúðum. Fyrirtækið hefur og á síðustu mánuðum og misserum verið að færa sig meira yfir í framleiðslu á ýmisskonar olíum til matargerðar. Má þar nefna sóiblómaolíuna, sem framleidd er úr fræjum sólblóma- jurtarinnar, og er sögð góð til steikingar á pönnu. Hún er enn- fremur mikið notuð í ýmiss konar salatgerð. Sojaolían er unnin úr sojabaunum og er notuð til svip- aðra hluta og sólblómaolían. Korn- olía, eða maísolía, er unnin úr maísstöngum og er notuð til steik- ingar á pönnu og til djúpsteikingar. Jarðhnetuolían er notuð til svip- aðra hluta og kornolían, en hún er unnin úr jarðhnetum, eins og nafnið gefur til kynna. Þá fram- leiðir Smjörlíki hf. svokallaða olífuolíu, sem framleidd er úr fyrstu pressun olífuberjanna, og er hún aðallega notuð til salatgerðar. Undir sama þaki við Þverholtið er svo Sól hf., sem framleiðir Tropicana-drykkina og Topp- drykkinn, sem kom á markaðinn í vetur. í Tropicana-framleiðslunni er um þrjá valkosti að ræða, þ.e. appelsínusafinn, sem notið hefur mestra vinsælda, eplasafi og grape- safi. Sú nýjung var tekin upp fyrir nokkru að setja alumíníumþynnu innan á fernurnar, en við það eykst geymsluþol safans verulega. Hann geymist auðveldlega í þrjár vikur ef hann er ekki opnaður. Topp-drykkurinn hefur verið lengi á „teikniborðinu", ef svo má að orði komast, en það hefur verið í bígerð að setja hann á markað í tvö til þrjú ár. — „Við vorum stöðugt að prófa okkur áfram með hann,“ sagði Davíð Scheving Thorsteins- son, framkvæmdastjóri Sólar, „og nú teljum við okkur hafa fundið réttu blönduna, sem fólki muni líka.“ Undirritaður getur vel tekið undir þessi orð Davíðs, því drykk- urinn smakkast afbragðsvel. Að síðustu má geta þess, að fyrirtækin standa í miklum bygg- ingarframkvæmdum um þessar mundir, en byggja á nýtt viðbótar- húsnæði bak við núverandi hús- næði, og svo skringilega hagar þarna til, að stóran hluta bygg- ingarefnisins verður að flytja með krana yfir gömlu byggingarnar. Nýja húsnæðið verður um 1200 fermetrar, en það gamla er um 900 fermetrar. Það mun því verða gjörbreyting á allri aðstöðu fyrir- tækjanna með tilkomu nýja hús- næðisins. Nýju og gömlu umbúðirnar. Séð yfir nýju vélarsamstæðuna, sem framleiðir Sólblóma og Alpa. Ljósmynd Mbl. Kristinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.